Þjóðviljinn - 27.10.1984, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 27.10.1984, Blaðsíða 2
FRETTIR UM HELGINA MYNDUST Listamiðstöðin í dag verða opnaðar fjórar einkasýningar í Listamiðstöðinni við Lækjartorg og standa þærtil4. nóv. Santiago Harker fráKólumbíu sýnirljósmyndirfrá Bogota er hann nefnir „Hulið". Ingiberg Magnússon 10 krítar- myndirerhann nefnir trjástúdíur, Anna Ól- afsdóttir Björnsson sýnir 9 dúkristur er kal- last Blikur og Gunnar Hjaltason gullsmiður sýnir 16 vatnslita- og pennateikningar. Kal- last sýning hans Smá- myndir. Norrænahúsið í kjallara Norræna hússins stendur nú yfir myndverkasýning þrig- gja listamanna, þeirra Steinþórs Steingrimssonar, Gunnars Arnar Gunn- arssonar og Samúels Jóhannssonar. Þeir sýna aðallega stórolí- umálverk. Sýningu lýk- ur4. nóvember. I anddyri Norræna hússins hefur Kjuregej Alexandra Argunova f rá Jakútíu opnað sýn- ingu á myndverkum unnum í efni (applicati- on) á árunum 1979- 1984. Kjarvalsstaðir í austursal Kjarvalss- taða opnar Steinunn Marteinsdóttlr leirker- asmiður stóra sýningu á verkum sínum í dag. Það eru lágmyndir, vasar og ker. Þetta er þriðja einkasýning hennar á Kjarvalsstöð- um. Þá sýnir um þessar mundir á Kjarvalsstöð- um myndhöggvarinn Sverrir Ólafsson 32 myndir sem unnar eru í kopar, stál og tré. EinnigerKatrínH. Ágústsdóttir með vatnslitamyndasýningu oglýkurhenni um þessahelgi. Listasaf n ASÍ Síðasta sýningarvika á málverkasýningu Jak- obs Jónssonar í Listas- afni ASÍ en á henni eru 53verk, flestunnin meðolíulitástriga. Listmunahúsið Nú er síðasta sýningar- helgi hjá Guðnýju Magnúsdótturí Listmunahúsinu við Lækjargötu en hún sýnir þar keramikskúl- ptúraogteikningar. Guðný hefur verið við nám og starf í Finnlandi sl. 3 ár. Gallerí íslensk list HafsteinnAustmann með sýningu á vatns- litamyndum í Gallerí ís- lensk list að Vesturgötu 17. Síðasta sýningar- helgi-opið kl. 2-6 um helgina. Gallerí Borg f Gallerí Borg stendur yfirsýningálituðum Ijósmyndum og æting- umeftirSvöluSigurl- eifsdótturen hún hefur verið í námi í Bandaríkj- unum að undanförnu. Opið kl. 14-18álaugar- dag ogsunnudag. Galleri Gangurinn I Gallerí Ganginum Rekagranda 18 stend- uryfirsamsýning 12 listamanna frá fjórum löndumogmun hún hanga uppi til nóvemb- erloka. Þeir eru Anselm Stalder, Helmut Fe- derle, Martin Dísler, JohnArmlederog Klaudia Schiffle frá Sviss, PeterAnger- mann frá Þýskalandi, John van’t Slot frá Hol- landi og Daði Guð- björnsson.Tumi Magnússon, Árni Ing- ólfsson, KristinnG. Harðarsonog HelgiÞ. Friðjónsson frá íslandi. Asmundarsalur Arkitektafélag fslands heldur nú sýningu í Ás- mundarsal við Freyjug- ötu á lokaverkefnum 14 ungra arkitekta sem lokið hafa námi frá mis- munandi skólum í Evr- ópu og Ameríku sl. 2 ár. Eden Sigurbjörn Eldon Loga- son sýnir nú 30 vatns- litamyndir í Eden Hver- agerði og verður sýn- ingin opin til 4. nóvemb- er. Hnitbjörg Listasafn Einars Jóns- sonar er opið daglega nema á mánudögum kl. 13.30-16 oghögg- myndagarðurinn erop- inn kl. 10-18. ! ÝMISLEGT Austurbæjarbíó Leikfélag Reykjavíkur sýnir Félegt fés efti Dario Fo á miðnæturs- ýningu í kvöld, laugar- dag kl. 23.30. Uppi- staðaverksinser misskilningursem hefst á því að forstjóra FIAT-verksmiðjannaer rænt. í kjölfar ránsins slasastforstjórinn svo aðgræðaverðurá hann nýtt andlit. Fyrir misskilning er nýja and- litiðgerteftirmyndaf einum starfsmanna hans í verksmiðjunni og eru því tvær persónur meðsamaandlitið. Akureyri Þann 12. október frum- sýndi Leikfélag Akur- eyrargamanleikinn Einkalíf eftir Noel Cow- ard. LeikstjórierJill Brooke Árnason og hún og Signý Pálsdóttir þýddu. í aðalhlutverk- umeruSunnaBorg, Gestur E. Jónasson, Guðlaug María Bjarna- dóttirogTheodórJú- líusson. Næsta sýning erásunnudag kl. 20.30. Slnfónían I dag, laugardag, kl. 14 heldur Sinfóníuhljóm- sveit (slands sína fy rstu áskriftartónleika á þessu starfsári í Hásk- ólabíói. Fluttverðaþrjú verk: Infinitesimal, Fra- gmentof Eternity, eftir Atla Heimi, Sinfónía nr. 2, eftir Brahms og Pían- ókonsert nr 3 eftir Beet- hoven. f síðastnefnda verkinu er hinn þekkti píanóleikari Nicolas Economu frá Kýpur einleikari. Stjórnandi er Jean-Pierre Jacquillat. Náttúrverndarráð óskar eftir að ráða náttúrufræðing á skrifstofu sína til að vinna að náttúruverndarmálum. Staðgóð þekking á náttúru landsins og náttúruvernd- armálum nauðsynleg. Upplýsingar um menntun og fyrri störf sendist til skrif- stofu Náttúruverndarráðs að Hverfisgötu 26, 101 Reykjavík, fyrir 15. nóvember n.k. Náttúruverndarráð Húsgagnasmiðir, bóistrarar, aðstoðarfólk Félagsfundur verður haldinn miðvikudaginn 30. okt. kl. 18.00 að Suðurlandsbraut 30, 2. hæð. Fundarefni: 1. Heimild til verkfallsboðunar. 2. Kosning fulltrúa á A.S.Í.-þing. 3. Önnur mál. Félag starfsfólks í húsgagnaiðnaði. Sveinafélag húsgagnasmiða og bólstrara Suðurlandsbraut 30. Menntamálaráðherra Löggjöf um fram- haldsskóla óþörf! Ragnhildur Helgadóttir telur að samrœmdur fram haldsskóli muni „steypa alla unglinga í sama mót“ Ragnhildur Helgadóttir menntamálaráðherra er and- víg setningu heildarlöggjafar um samræmdan framhaldsskóla og ráðuneyti hennar hefur ekki í undirbúningi neitt frumvarp þar að lútandi. Eina verkefnið sem unnið er að á þessu sviði í ráðu- neyti hennar er samning reglu- gerðar um fjölbrautaskóla. Það kom fram í ræðu ráðherr- ans í fyrirspurnatíma á Alþingi á þriðjudag að hún teldi þá heildarlöggjöf um samræmdan framhaldssicóla sem í undirbún- ingi hefði verið hjá mennta- málaráðuneytinu í tíð fyrri ríkisstjórna hafa orðið til þess að tefja aðra laga- og reglugerða- smíða varðandi þetta skólastig, en frumvörp um samræmdan framhaldsskóla hafa verið lögð 5 sinnum fyrir alþingi frá 1974, en aldrei náð fram að ganga. Það var Hjörleifur Guttorms- son sem beindi fyrirspurn til ráð- herrans um hvað liði undirbún- ingi ráðuneytisins á löggjöf um framhaldsskóla. Vitnaði hann meðal annars til ályktunar þriðja fulltrúaþings Kennarasambands íslands frá þvx' í júní sl., þar sem skorað var á Alþingi að afgreiða samræmda löggjöf um fram- haldsskóla eigi síðar en vorið 1985. Taldi Hj örleifur að hér væri um stórmál að ræða sem þyrfti vandaða meðferð af hálfu þings- ins. Taldi hann að það skapaði mikið óöryggi á þessu skólastigi að ekki væri fyrir hendi löggjöf þar sem kveðið væri á um lág- markssamræmi á milli skóla og skólastofnana og einnig hvað varðaði skiptingu kostnaðar, sem væri mjög mismunandi á þessu skólastigi. Þá taldi Hjörleifúr að markmið slíkrar löggjafar hlyti að vera að ýta undir markvisst átak í verkmenntun á framhalds- skólastigi, þar sem gera þyrfti verknámsbrautir meira aðlað- andi og betur fallnar til að gegna hlutverki sínu, auk þess sem tengja þyrfti siíkar námsbrautir öðrum þáttum og námsbrautum á Pétur framhaldsskólastiginu, þannig að nemendur lentu ekki í blindgötu í námi, heldur gætu ávalt nýtt fyrra nám til áframhaldandi menntunar, jafnvel þótt breytt sé um áherslur. í svari Ragnhildar Helgadóttur kom fram að hún óttaðist að sam- ræming framhaldsskólanámsins mundi leiða til þess „að steypa alla unglinga í sama móta og fækka þeim leiðum til vals í námi og starfi sem mismunandi skólar hljóti að bjóða upp á“. - ólg. Alþýðubandalagið Samstaða með BSRB Félagsfundur ABR telurað boð ríkisstjórnarinnar um skattalœkkanir sé til þess gert að gera verkalýðshreyfinguna samábyrga stjórninni í ríkisfjármálum. Félagsfundur Alþýðubanda- lagsins í Reykjavík 25. októ- ber 1984 lýsir aðdáun sinni á bar- áttu BSRB í yfírstandandi verk- falli, einkum þó þeirri samstöðu og virkni, sem félagsmenn BSRB hafa sýnt í kjarabaráttu gegn ó- löghlýðnum stjórnarvöldum. Slík virkni mörg þúsund félaga, á fundum, við verkfallsvakt og í öðru starfí í verkfallinu, ber lýð- ræði og þegnskap góðan vott. Slíkt lýðræði ætti að vera verka- lýðshreyfíngunni í heild gott leiðarljós. Þannig hljóðar upphaf álykt- unar sem samþykkt var á félags- fundi í ABR í fyrrakvöld. Þar segir ennfremur að félagið vari sterklega við því að verkalýðs- hreyfingin geri samninga við afturhaldssama ríkisstjórn um lækkun opinberra gjalda og tekna. Ríkisstjórnin hafí þegar greitt mennta- og félagsmálum þung högg og hún óski þess nú í þrengingum sínum að íslensk verkalýðshreyfing gerist henni samábyrg í ríkisfjármálum og skrifi upp á óútfylltan skattavíxil án þess þó að verkalýðshreyfing- in fái ráðið um framhaldið. Leikurinn sé augsýnilega gerður til að koma höggi á BSRB og að slíkt hljóti Alþýðubandalagið að fordæma. í lok ályktunar félagsfundar ABR segir: „Baráttan stendur ekki aðeins fyrir bættum kjörum launafólks. Þetta er líka barátta gegn gerræði, fyrir lýðræði, í fél- ögunum, í deilum við atvinnurek- endur, í stjórnmálum. Allir Al- þýðubandalagsmenn hljóta að gera málstað lýðræðisins að sín- um, hvar sem er í þessari bar- áttu“. - v. Flokksráð Flokksráðsfundur Alþýðu- bandalagsins verður haldinn í næsta mánuði og á fjöimennum fundi í ABR í fyrrakvöld voru kjörnir 33 aðalmenn á flokks- ráðsfundinn og jafnmargir til vara. Atkvæði féllu þannig: Pétur Tyrfingsson 92, Adda Bára Sigfúsdóttir 83, Haraldur Steinþórsson 81, Álfheiður Inga- dóttir 78, Ásmundur Stefánsson 71, Guðrún Ágústsdóttir 70, össur Skarphéðinsson 67, Mar- grét Pála Ólafsdóttir 67, Sigurjón Pétursson 66, Guðrún Hallgríms- dóttir 64, Óttarr Magni Jóhanns- son 61, Þorbjörn Broddason 60, Grétar Þorsteinsson 59, Skúli Thoroddsen 59, Erlingur Viggós- son 57, Guðrún Helgadóttir 56, Þröstur Ólafsson 56, Gylfi Páll og Adda efst Hersir 55, Guðmundur J. Guð- mundsson 54, Kristín Á. Ólafs- dóttir 53, Arna Jónsdóttir 51, Ævar Kjartansson 50, Lena M. Rist 49, Sigurlaug Gunnlaugs- dóttir 48, Már Guðmundsson 48, Margrét S. Björnsdóttir 47, Arn- ór Pétursson 47, Steinunn Jó- hannesdóttir 46, Björn Arnórs- son 45, Guðjón Jónsson 45, Guð- mundur Hallvarðsson 45, Ólöf Ríkarðsdóttir 44, Gerður Óskarsdóttir 44. Varamenn: Svanur Jóhannes- son 44, Sigurður Einarsson 43, Bjargey Elíasdóttir 43, Jónínan Benediktsdóttir 43, Óskar Guð- mundsson 42, Guðmundur Þ. Jónsson 41, Bergþóra Gísladóttir 41, Auður Styrkársdóttir 39, Steinar Harðarson 38, Kjartan Bára Ólafsson 38, Svanur Kristjánsson 38, Gísli Gunnarsson 38, Hanna K. Stefánsdóttir 37. Baldur Ósk- arsson 37, Ragnar Á. Þórsson 36, Valgerður Eiríksdóttir 33, Guð- mundur Jónsson 33, Helga Sig- urjónsdóttir 30, Gunnar Gutt- ormsson 29, Monika M. Karls- dóttir 28, Erling Ólafsson 28, Ingólfur H. Ingólfsson 28, Guð- rún Hannesdóttir 26, Hulda S. Ólafsdóttir 25, Leó Ingólfsson 25, Ólafur Björnsson 24, Vé- steinn Ólason 23, Tryggvi Þór Aðalsteinsson 23, Árni Berg- mann 23, Gunnar Karlsson 20, Guðrún Guðmundsdóttir 20, Pálmar Halldórsson 18, Emil Bóasson 18, Dagný Haraldsdótt- ir 15, Guðrún K. Óladóttir 18. 2 SÍÐA - ÞJÓÐVIlJINN Laugardagur 27. október 1984

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.