Þjóðviljinn - 10.11.1984, Blaðsíða 1
10
nóvember
1984
laugar-
dagur
221. tölublað 49. órgangur
UOÐVIUINN
MENNING
ÍÞRÓTTIR
Knattspyrna
Búbbi
þjálfar
Þrótt
Jóhannes Eðvaldsson hefur
verið ráðinn þjálfari 1. deildar-
liðs Þróttar í knattspyrnu og
skrifar undir samning við félagið í
dag. Jóhannes hefur um árabil
leikið sem atvinnumaður, nú síð-
ast með Motherwell í Skotlandi
og var lengi fyrirliði íslenska
landsliðsins.
- VS
Sjá bls. 6
Almálið
Sverrir sagði nei
Iðnaðarráðherra ber að ósannsogli á alþingi íslendinga
Samningurinn við Alusuisse yrðum“ einsog kveðið var á um í
léttir þeirri skyldu af eldri samningum. Hjörleifur
álhringnum að útvega súrál og Guttormsson spurði Sverri Her-
rafskaut „á bestu fáanlegu skil- mannsson iðnaðarráðherra á al-
þingi 25. október sl. hvort einhver
ádráttur væri gefinn um „breytta
túlkun á ákvæðum núgildandi
samninga að því cr skattareglur
Starfsmannafélag
Reykjavíkur
Samningar
samþykktir
í gærkvöldi voru talin atkvæði
hjá Starfsmannafélagi Reykja-
víkur um nýgerða kjarasamn-
inga. Úrslit urðu þau að já sögðu
77%, en nei 8,7%. Auðir seðlar
voru 14%. Á kjörskrá voru 2452
en aðeins 1527 greiddu atkvæði
eða 62.3%.
Einnig voru í gær talin atkvæði
hjá Starfsmannafélagi Seltjarnar-
ness og þar sögðu 43 já eða 78%,
nei sögðu 5 eða 9% en auðir seðl-
ar voru 7 eða 13%.
GFr
/ aftanskini á svellaðrí Tjörn (Atli).
snertir, t.d. ákvæði aðstoðar-
samnings um að Alusuisse sjái
ÍSAL fyrir aðföngum á bestu
fáanlegum kjörum“. Sverrir
Hermansson iðnaðarráðherra
svaraði skýrt: „Svarið er nei“. f
samningnum sem loks var gerður
opinber í vikunni kemur hins veg-
ar í fjós að slíkur ádráttur er eigi
að síður gefinn.
Þetta kemur greinilega fram í
samningnum þarsem stendur að
umrædd ákvæði um „bestu fáan-
legu skilmála" eigi við í þeim til-
vikum þegar Alusuisse veitir
ÍSAL aðstoð sem ráðgjafi við
innkaup hjá þriðja aðilja, en ekki
þegar það er sjálft að selja ÍSAL
hráefni frá fyrirtækjum innan
samsteypunnar. Frá sjónarmiði
Alusuisse skiptir þessi túlkun á-
kvæðisins ekki aðeins máli
gagnvart ríkisstjórninni heldur
einnig hugsanlegum samstarfsað-
ila í ÍSAL samkvæmt hinum nýju
ákvæðum þar um, og hefur fyrir-
tækið því lagt áherslu á, áð fá að-
stoðarsamningnum breytt að
þessu sinni“.
- óg
Formannsslagur
Ákvörðun
um helgina
FerJón Baldvinfram á
móti Kjartani?
Ég tek ákvörðun nú um helg-
ina, sagði Jón Baldvin Hannibals-
son í samtali við Þjóðviljann í gær
en Kjartan Jóhannsson staðfestir
1 viðtali við blaðið, að hann ætli
að gefa kost á sér áfram til for-
mennsku í Alþýðuflokknum.
í vantraustsumræðunni á dög-
unum sagði Jón Baldvin að Al-
þýðuflokkur ætti að vera „vinstra
megin við miðju“, en Kjartan
segir klárt og kvitt að flokkurinn
sé „vissulega vinstri flokkur".
-óg
Sjá bls. 4 sunnudag.
Fiskiþing
stöðvast
Hávaxtastefna ríkisvaldsins tröllríðúr atvinnuvegunum.
Stórir hópar hafa verið leystir undan ábyrgð.
Gengisstefna sem í raun hefur
útilokað eða gert óarðbæran
allan útflutning okkar á hina
hefðbundnu markaði í V-
Evrópu, hávaxtastefna og miklar
verðhækkanir í öllum þjónustu-
greinum og á aðföngum, ásamt
miklu hærra olíuverði til físki-
skipa en í nokkru samkeppnis-
landa okkar, eru búin að eyða því
fé, sem eftir var í atvinnu-
greininni. Nær öll útgerð og físk-
vinnsla í landinu er nú að stöðv-
ast, segir m.a. í ályktun sem sam-
þykkt var samhljóða á Fiskiþingi
sem slitið var í gær.
í ályktuninni segir ennfremur
að ríkisvaldið hafi losað stóra
hópa í þjóðfélaginu undan
ábyrgð í baráttunni gegn verð-
bólgunni og hleypt af stað þeirri
hávaxtastefnu sem nú tröllríður
atvinnuvegunum. Allir nema
ráðamenn sjái að þessi kapítuli í
viðureigninni við verðbólguna sé
tapaður.
Fiskiþing vekur athygli á því að
sjávarútvegurinn aflar 73% þess
gjaldeyris sem þjóðin aflar og að
baki þessarar gjaldeyrissöfnunar
eru aðeins 16% af erlendum
skuldum þjóðarinnar. Ef þessi
gjaldeyrisöflun eigi að halda
áfram verði að tryggja rétta geng-
isskráningu, stórlækka vexti,
lækka olíuverð til fiskiskipa og
raforkuverð til fiskvinnslunnar.
Ekkert megi gera til að torvelda
hina hagstæðu viðskiptasamn-
inga sem sjávarútvegur og iðnað-
ur á við Sovétríkin. Endur-
greiddur verði uppsafnaður sölu-
skattur þessa árs og sjávarútveg-
inum verði endurgreitt gengistap
af 40% afurðarlána ef til gengis-
breytinga kemur, enda hafi þessi
hluti lánanna verið færður yfir í
erlenda mynt í siðasta mánuði án
nokkurs samráðs við aðila sjávar-
útvegsins. - Ig