Þjóðviljinn - 10.11.1984, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 10.11.1984, Blaðsíða 11
Hvert er leyndarmálið við að halda sér svo vel hálffimmtug?: „Syngið, svitnið, öskrið, stökkvið og dansið í 20 ár, og þið munuð jafnvel virðast ódauðleg", segir Tina Turner og glottir við tönn í svitastorknum kjól. DÆGURMÁL Tina Turner, eöa Annie Mae Bullock, er enginn nýgræðingur í sönglistinni. Hún er fædd 26. nóvember 1939, veröur því 45 ára eftir nokkra daga. Eins og svo margir söng- og tónlistarmenn úr rööum blökkumanna Ameríku, hóf hún feril sinn sem söngvari í kirkju, þar sem faðir hennar var prestur babtistasafnaðar. Nú er Tina hinsvegar Búddisti. Tina Turner hitti fjölhljóðfæra- leikarann Ike Turner árið 1956, og söng sitt fyrsta lag opinber- lega með hljómsveit hans í klúbbi einum í St. Louis. Tina, þá kölluð Little Ann, steig þar uppá sviðið öllum að óvörum og tók að syngja með sveitinni. Það var ekki að sökum að spyrja, ike réð hana og 1958 voru þau gift. Fyrsta plata þeirra kom út 1960, undir nafninu Ike og Tina Turner. Hún innihélt lagið Afool in love sem komst í 2. sæti ryþma- og blús listans í USA. Tina varð þar með miðpunktur sjómennsku þeirra hjóna með níu manna hljómsveit á bak við sig og þriggja kvenna fákiætt bakradda- band, The Ikettes. Sviðsframkoma Tinu vakti at- hygli fyrir hve geysi kröftug og mögnuð hún var (og er víst enn), þar sem hún fór sér að öllu óðs- lega, svo vel að enginn þótti standa henni á sporði. Mick Jag- ger er eitt dæmi um rokkara sem reynt hefur að taka upp stfl og takta Tinu á sviði, en verður lítið annað en klaufalegur í saman- burði við hana. Eins og flestum er líklega kunnugt, kom út ekki alls fyrir Ike og Tina Turner. Tina yfirgaf hann á miðju hljómleikaferðalagi árið 1976 eftir að hann hafði lagt hendur á hana, og með 35 sent og benzínkrít- arkort í vasanum hóf hún sólóferil sinn. f hjónabandi sínu ólu þau upp 4 syni, 1 áttu þau saman, Tina kom með 1 í hjónabandið og Ike 2. löngu plata með heiðurskvinn- unni og kallast Private Dancer. Hún geymir tíu lög sem eiga það eitt sameiginlegt að vera vel sungin. Þarna er að finna lagið hans Johns Lennon, Help, í nýrri útsetningu öllu hægari í sál- tempói. Lumman hans Als Green, Lets stay together, 1984 hans Davids Bowie, Private Dancer sem Mark Knopfler hefur samið og telja verður eitt besta lag þessarar plötu, ásamt hinu hraða Steel Claw en bæði síðast- töldu lögineru krydduð gítarsólói Jeffs Beck. Þá er að nefna What’s love got to do with it, sem er eitt besta popplag í langan tíma og hefur gert það gott. Nánari sálmar verða ekki sungnir hér yfir þessari afurð Tinu Turner, aðeins minnt á gæði hennar sem liggja kannski helst í þeim tjáningarmætti sem rödd Tinu býr yfir. Líklega hefur Tina Turner ekki fyrr sýnt á einni og sömu plötunni eins blæbrigðarík- an söng og á Private Dancer, en slíka viskírödd og það eins kraft- mikla og Tina er með er auðvelt og jafnvel freistandi fyrir söngv- ara að ofnota á fullum styrk. Þess má loks til gamans geta, að Janis heitin Joplin var mikill aðdáandi Tinu Turner. A $ David alitaf snja Nýjasta platan hans Davids Bowie verður víst ekki talin til hans bestu verka. Þó er það svo að undirrituð kann betur við hana en þá þar á undan, Let’s dance, en þá er á að líta, að hann hefur aldrei verið mitt átrúnaðargoð þó að snilli hans fari ekki á milli mála. Er svo enn og þessi nýj- asta plata Davids er langt fyrir ofan meðallag í rokk- og popp- tónlistinni enda þótt David standi nú heldur lakar að vígi gagnvart sjálfum sér. Tonight heitir skífan og hafa útvarpshlustendur orðið allvarir við lagið Blue Jean, sem mér að vísu finnst lakasta eða kannski leiðinlegasta og jafnframt eina leiðinlega lagið á plötunni. Tvær gamlar lummur hefur David út- sett upp á nýtt, I keep forgettin', sem lagasmiðirnir gamalreyndu Leiber og Stoller sömdu 1962, og svo Beachboys-lagið góða God only knows. Harla gott, en eink- um gleðst hjartað af fyrrnefnda lagínu. Þá eru ótalin 6 lög sem eru hvert öðru betra, einkum Loving the Alien, þar sem David Bowie gagnrýnir trúarbragðastríð - í þessu tilfelli gyðinga og múham- eðstrúarmanna, og Tumble and twirl, sem hann semur með Iggy Pop. Sá kemur frekar til sögu þessarar plötu sem lagasmiður og tekur undir með David í Dancing with the Big boys. Þá kemur vin- kona okkar Tina Turner við söng titillagsins og skemmir ekki fyrir. Við fyrstu yfirferð virkar To- night nokkuð samhengislaus en með tímanum spái ég að eyru og sál meti vel og sætti öll lagasýnis- horn skífunnar, þar sem David minnir okkur á í einni bunu svo ólíka menn sem Bob Marley (Don’t look down) og Scott Walker - ef einhver man nú eftir þeim alvarlega hjartaknúsara (God only knows), auk þess að vera í sínu eigin Bowie lflci. A ________MYNDHST______ Eldlönd Ásgerðar „Ásgerður Búadóttir hefur orðið til þess, fremur en nokk- ur annar vefari, að breyta allri ásýnd íslenskrarvefjarlistar. Verk hennar skipa sér á alger- lega eðlilegan hátt við hlið málverka, höggmyndaog annarra tjáningarforma „frjálsrar listsköpunar í ís- lensku samfélagi. Því marki hefur hún náð vegna hinnar nákvæmu og ströngu kröfu sem hún hefursett sér, afneit- unar hverskonar undansláttar og ákveðni í að virða að fullu hin sömu fagurfræðilegu lögmál og starfsfélagar henn- ar á sviði málverksins“. Svo kemst Aðalsteinn Ingólfsson að orði í formála sýningar- skrár fyrir sýningu sem Ás- gerðuropnar á Kjarvaisstöð- um í dag. Vulkan heitir þetta verk Ásgerðar. Ljósm.: eik Við hittum Ásgerði að máli er hún var að undirbúa sýninguna. Hún sagði að mörg verkanna á þessari sýningu hefðu verið á flakki um heiminn að undan- fömu, sum allt að tvö ár, þau sem vom á sýningunni Scandinavia Today, önnur skemur svo sem verk af Borealis í Finnlandi og þau sem vora á sýningu hennar og Svavars Guðnasonar í Nikolaj-kirkjunni í Kaupmanna- höfn í sumar. Ásgerður sagði að mikið hefði verið skrifað um sýn- ingu þeirra Svavars í dönsk blöð og hún fengið lofsamlega dóma. Sýning á verkum Borghildar Óskarsdóttur stendur yfir um þessar mundir í Gallerí Langbrók. Borghildur stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla ís- lands og Edinburg College of Art. Hún hélt einkasýningu í Flest listaverk Ásgerðar á sýn- ingunni sem verður opnuð í dag eru stór og þau heita nöfnum eins og Eldland, Bláin, Elektra, Vulkan, Jörð, Sfinx og Dögun. Flest era þau ofin í ull og hross- hár. Hún sagðist oft verða fyrir áhrifum af náttúruhamförum eins og þegar eldur er uppi á ís- landi, jafnvel þó að hún læsi að- eins um hann í blöðunum. Sýning hjá Ásgerði er alltaf viðburður enda má hiklaust kalla að hún standi í fremstu röð vef- listarmanna á Norðurlöndum. Ásmundarsal árið 1983 og hefur tekið þátt í fjölda samsýninga. Borghildur er félagi í Leirlistarfé- laginu og er ein af Langbrókum. Sýningin er opin virka daga kl. 12 - 18 og um helgar kl. 14 - 18. -GFr Gallerí Langbrók Keramikverk Borghildar Laugardagur 10. nóvember 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.