Þjóðviljinn - 10.11.1984, Síða 2
FRETTIR
Háskólinn
Rekbr falli
frá skaða-
bótakröfum
Á háskólaráðsfundi í fyrradag
bar Þorleifur Einarsson, forseti
Verkfræði- og raunvísinda-
deildar, upp tillögu um að Há-
skólinn falli frá skaðabótakröfum
þeim á hendur BSRB sem felast í
málsókn rektors fyrir borgar-
dómi. Afgreiðslu á tillögu Þorleifs
var frestað á fundinum.
Lögð hefur verið fyrir ráðið
skrifleg áskorun sama efnis frá
174 kennurum við skólann. Litlar
líkur eru á að borgardómur felli
dóm á þessu ári.
-m
Landfrœði -
Doktor í
vestfirskri
landmótun
Hinn 5. júlí sl. lauk Eggert Lár-
usson doktorsprófi frá Durham
University í Englandi. Dokt-
orsritgerð hans er um landmótun
jökla og ísaldarlok á Vestfjörðum
með sérstöku tilliti til Vestur-ísa-
fjarðarsýslu.
Efni ritgerðarinnar er tvíþætt;
annarsvegar fjallar hún um þróun
landslags á Vestfjörðum, einkum
fyrir áhrif jökulrofs á kvarter;
hinsvegar um breytingar á
jöklum og sjávarstöðu í lok ís-
aldar í Dýrafirði og norðanverð-
um Arnarfirði. Stundaði dr. Egg-
ert rannsóknir á Vestfjörðum
sumurin 1981-1982 oftast í Dýra-
firði og Arnarfirði.
Andmælendur voru Ian Y. As-
kwell Salford University og dr.
Ewan Anderson Durham Uni-
versity.
Dr. Eggert lauk prófi frá kenn-
araskóla íslands 1969 og stúd-
entsprófi ári síðar frá sama skóla.
Árið 1974 lauk hann B.S.-prófi
frá Háskóla íslands í landa- og
jarðfræði. Árin 1974-77 stundaði
hann nám við landafræðideild
Durham University.
Dr. Eggert Lárusson var
stundakennari við Durham Uni-
versity 1974-76, við Kennarahá-
skólann síðan 1980 og hann hefur
verið fastráðinn kennari við
Flensborgarskólann síðan 1980.
Dr. Eggert var fyrsti formaður
Landfræðifélgsins 1979 og gengdi
þar formennsku í tvö ár. Foreldr-
ar hans eru Ingibjörg Björnsdótt-
ir og Lárus H. Eggertsson.
-óg
Gísli Björnsson á dráttarbrautinni. Mynd: Atli.
Skagaströnd
Dráttarbrautin dregst
Einir um hituna við Húnaflóa
Dráttarbrautin á Skagaströnd
verður fullgerð næsta vor og ekki
í ár einsog áður var vonað. A fj ár-
hagsáætlun Höfðahrepps var gert
ráð fyrir 2,9 milljónum til að
ljúka smíðinni, en verkið reynist
kosta um hálfa aðra milljón í við-
bót. Engin dráttarbraut er nú við
Húnaflóa og vænta Skagstrend-
ingar þess að eigendur báta við
flóann muni færa sér mannvirkið
í nyt þegar fullbúið verður.
Áð sögn Sigfúsar Jónssonar
sveitarstjóra var kostnaður við
dráttarbrautina ekki ljós þegar
hreppurinn gerði fjárhagsáætlun
sína, og þarsem fé nægði ekki til
að ljúka henni nú verður fram-
kvæmdum frestað til vors. Ekki
er nema um mánaðar vinna eftir.
Gísli Björnsson framkvæmda-
stjóri Trésmiðju og skipasmíðast-
öðvar Guðmundar Lárussonar
tók á móti blaðamanni Þjóðvilj-
ans við dráttarbrautina fyrir
nokkru og var þá verið að steypa
hliðarfærslugarða við brautina.
Hún verður leigð skipasmíða-
stöðinn'.
„Menn berjast við að skapa hér
einhverja atvinnu aðra en beinar
fískveiðar“, sagði Gísli, „og með
þessu eflist iðnaður og þjónusta
við bátana. Við vonumst til að
bátar við flóann, uppundir 40
bátar, sæki hingað. Brautin getur
tekið um 200 lesta skip.“
Farið var að undirbúa smíði
mannvirkisins fyrir þremur árum
og er heildarkostnaður gróflega
áætlaður um 13,5 milljónir. Þaraf
borgar hafnarmálastjórn 40%,
hreppurinn 60%.
Verkalýðshreyfingin
ASÍ-þing eftir
hálfan mánuð
Rúmlega 500fulltrúar á Hótel Sögu. Pétur Tyrfingsson ekki ísveit Dagsbrúnar
Alþýðusambandsþing verður
haldið á Hótel Sögu 26. - 30. nóv-
ember, eftir tvær vikur rúmar.
Búist er við rúmlega fimm hundr-
uð fulltrúum til þingsins, þarsem
meðal annars verður kosið til
helstu embætta og í miðstjórn
sambandsins.
Meðal umræðuefna á þinginu
auk hefðbundinnar kjara-,
atvinnu- og efnahagsmálaum-
ræðu er skipulag verkalýðshreyf-
ingarinnar, atvinnulýðræði, vinn-
uvernd, lífeyrismál, tölvur,
fræðslu- og menningarmál, út-
gáfa, málefni aldraðra og fatl-
aðra.
Frestur aðildarfélaga til að til-
kynna um fulltrúa sína er útrunn-
inn og munu kjörbréf könnuð
eftir helgi. Þjóðviljanum er ekki
kunnugt um kosningar í neinu fé-
Iagi um þingfulltrúa.
Búast má við nokkurri endur-
nýjun á þingheimi frá síðasta
ASÍ-þingi enda er ungt fólk
óðum að sækja fram til áhrifa í
verkalýðshreyfingunni. Þannig
eru sex nýir fulltrúar af 22 í sveit
Dagsbrúnar, allt ungir menn. Á
þeim lista er þó ekki að finna Pét-
ur Tyrfingsson sem mjög hefur
látið að sér kveða í félaginu und-
anfarið.
Starfsmannafélagið Sókn
sendir átján menn til þings og
vekur nokkra athygli að formað-
ur samninganefndar félagsins í
febrúarlotunni, Óttarr Magni Jó-
hannsson, er ekki þar á meðal og
aðeins einn úr samninganefnd-
inni. Nokkur átök urðu um fe-
brúarsamningana í Sókn.
- m
Upplýsingaveitur,
kapalkerfi
William Evans, framkvæmda-
stjóri og verkfræðingur frá Man-
itoba símafélaginu, mun halda al-
mennan fyrirlestur í boði
Verkræðistofnunar Háskólans.
Fjallar hann um breiðbandsnet
(kapalkerfí) Winnipegborgar,
einnig um athyglisverðar tilraun-
ir með nýjungar á sviði upplýs-
ingaveitna í dreifbýli (MMDS).
Fundarstaður: Lögberg (hús
lagadeildar), stofa 101, mánu-
daginn 12. nóv. 1984 kl. 18.00.
Samningar
Hjúkmnarfræðingar já
Úrslit í atkvæðagreiðslu hjúkr-
unarfræðinga í Reykjavík um
samningana urðu ljós eftir hádegi
í gær. Atkvæði þeirra eru talin
sérstaklega þarsem Hjúkrunarfé-
lag íslands semur sjálft við borg-
ina.
Já sögðu 160 (62%), nei sögðu
32 (12,4%), auðirseðlar ogógild-
ir voru 66 (25,6%).
Á Akureyri samþykktu hjúkr-
unarfræðingar samsvarandi
samning með 56 atkvæðum gegn
BSRB
Talið í dag
Lokatölur á mánudag
I dag verða talin atkvæði í
kosningum BSRB-manna um ný-
gerðan kjarasamning. Lokatölur
verða ekki kunnar fyrr en á
mánudag vegna póstatkvæða, en
verði úrslit skýr má búast við að
kjörstjórn kynni bráðabirgða-
niðurstöður eftir talningu í dag.
Síðasti frestur til að póstleggja
atkvæði,af landsbyggðinni var í
gær. Hjá kjörstjórn BSRB var
okkur sagt að líkur væru á með-
alkosningu, kjörsókn milli 70 og
80 prósent. í atkvæðagreiðslunni
um sáttatillöguna kusu um 85%
félaga. Á kjörskrá eru um ellefu
þúsund ríkisstarfsmenn. Auk
þeirra kjósa bæjarstarfsmenn um
sína samninga og átti talning í
Reykjavfk að hefjast eftir lok
kjörstaðar um tíu í gærkvöld.
-m
Kirkjuþing
Bænaskráin
dregin
til baka
Ratsjáin afgreidd
með rökstuddri
dagskrá
Eitt þeirra mála, sem komu
fyrir nýafstaðið Kirkjuþing, var
tillaga til þingsályktunar um
stuðning íslensku kirkjunnar við
„Bænaskrá Vestfirðinga“ til
ríkisstjórnarinnar, þar sem þeir
mótmæla framkomnum hug-
myndum um byggingu ratsjár-
stöðvar á Vestfjörðum. Hefur
„Bænaskráin" áður verið kynnt
hér í blaðinu, ásamt undirskrift-
um.
Ljóst var að skoðanir um þetta
mál voru mjög skiptar á Kirkju-
þingi. Sú nefnd, sem fékk það til
meðferðar, klofnaði og skilaði
tveim nefndarálitum. Þar sem
mikið skorti á að einhugur væri
um málið en í hvorugu nefndar-
álitinu kom hinsvegar fram á-
greiningur um friðarmálaályktun
síðasta kirkjuþings ákvað flutn-
ingsmaður, sr. Lárus Þ. Halldórs-
son, að draga ályktun sína til
baka og flutti um það rökstudda
dagskrá, sem var samþykkt.
-mhg
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN