Þjóðviljinn - 10.11.1984, Page 6
IÞROTTIR
V. Þýskaland
Engin mörk
Frá Jóni H. Garðarssyni frétta-
manni Þjóðviljans í V.Þýskalandi:
Þrjú „íslendingalið“ léku í
Bundesligunni í knattspyrnu í
gærkvöldi og engu þeirra tókst að
skora mark.
Dússeldorf mátti sætta sig við
markalaust jafntefli á heimavelli
gegn Dortmund í viðureign
tveggja neðstu liðanna. Leikur-
inn var lélegur og það eina mark-
verða var eitt stangarskot sem
Dússeldorf átti. Atli Eðvaldsson
var fyrirliði Dússeldorf annan
leikinn í röð.
Bochum sigraði Bayer Uer-
dingen mjög sanngjarnt, 1-0.
Bochum, með Klaus Fishcer sem
langbesta mann, sótti allan
leikinn og að lokum tókst Frank
Schultz að skora sigurmarkið.
Lárus Guðmundsson lék með
Uerdingen en sást lítið, enda var
liðið alltaf í vörn.
Kaiserslautern sigraði Ein-
tracht Braunschweig 1-0 og
skoraði Thomas Allofs eina
markið í lélegum leik. í sjónvarp-
inu var ekki að merkja að Magn-
ús Bergs léki með Braunschweig,
frekar en í siðustu leikjum.
Pfaff valinn!
Udo Lattck þjálfari Bayern Múnc-
hen tilkynnti kl. 11.20 í gærmorgun
þá ákvörðun sína að Jean-Marie
Pfaff, hinn frábæri belgíski mark-
vörður, fengi nú aftur stöðu sína sem
aðalmarkvörður. Hinn ungi Rai-
mond Aumann hefur haldið honum á
bekknum í haust en Pfaff sýndi stór-
kostlegan leik í Evrópukeppninni á
miðvikudag og það réði úrslitum.
0m á
fullu
Örn Óskarsson vonast til þess
að allt sé þá þrennt sé - hann er
farinn að æfa á fullu og stefnir á
að æfa með Þrótturum í 1.
deildinni í knattspyrnu næsta
sumar. Hann gekk til liðs við
Þrótt fyrir sumarið 1983 en hefur
enn ekki getað leikið með liðinu -
hann sleit hásin vorið 1983 og aft-
ur sl. vor. Bata hans í ár seinkaði
mjög vegna þess að einhverra
hluta vegna gleymdist grisja í fæti
hans eftir síðasta uppskurð!
Þróttarar ættu því að geta stillt
upp öflugri vörn næsta sumar,
með leikmenn á borð við Örn,
Jóhannes Eðvaldsson, Ársæl
Kristjánsson og Kristján Jóns-
son.
- VS
Körfubolti/úrvalsdeild
Njarðvík vann
Hauka tvisvar
Stig gleymdist - en Njarðvík vann eftir framlenginguna
Gunnar Þorvarðarson brást ekki á ör-
lagastundu og tryggði Njarðvík sigur
á Haukum.
Njarðvíkingar sigruðu Hauka
tvívegis í sama leiknum - stór-
viðureign liðanna í Njarðvík í
gærkvöldi! Staðan eftir venju-
legan leiktíma var 80-80 en hefði
átt að vera 81-80 fyrir Njarðvík
því ritarar gleymdu að færa inn
eitt vítaskot Jónasar Jóhannes-
sonar í síðari háifleik. Njarðvík
náði síðan að sigra 91-90 í fram-
lenginguni.
Leikurinn var hraður, jafn og
spennandi. Njarðvík náði 10 stiga
forystu en JÍaukar jöfnuðu og
leiddu í hléi, 37-39. Þeir voru síð-
an yfir mest allan síðari hálfleik
og þegar þrjár mínútur voru eftir
var staðan 71-78 þeim í hag. Þá
fóru þeir að reyna að hægja
íeikinn niður og það gekk ekki
upp - Njarðvíkingar náðu af
þeim boltanum aftur og aftur og á
lokasekúndum jafnaði Valur
Ingimundarson með þriggja stiga
langskoti, 80-80.
Haukar voru yfir nánast alla
framlenginguna sem var hálfgert
einvígi Vals Ingimundarsonar og
Pálmars Sigurðssonar. Þegar 11
sekúndur voru eftir tókst Gunn-
ari Þorvarðarsyni þjálfara að
jafna fyrir Njarðvík, 90-90, og í
leiðinni fékk hann eitt vítaskot
sem hann skoraði úr af sinni al-
Guðmundur Steinsson og Hörður Jóhannesson sýna fótabúnaðinn fágæta, ásamt feðgunum Björgvini og Olafi Schram,
umboðsaðilum Adidas á íslandi.
Adidas
Guðmundur
gullskór
Guðmundur Steinsson úr
Fram fékk i gær Gullskó Adidas
Piltalandsliðið
Slæmur skellur
gegn Svíum
afhentan í hófl sem Heildverslun
Björgvins Schram, umboðsaðili
Adidas hér á landi, stóð fyrir.
Þetta er í annað skiptið sem
gullskórinn er veittur hér á landi
markahæsta leikmanni 1. deildar
en Ingi Björn Albertsson hlaut
hann í fyrra. í þetta skiptið (og
svo skal framvegis) var einnig
veittur silfurskór öðrum marka-
hæsta manni deildarinnar - Herði
Jóhannessyni úr ÍA.
Adidas hefur verðlaunað
markakónga í hinum ýmsu
löndum í 17 ár og árlega fær
markahæsti leikmaður Evrópu
slíkan grip sérstaklega.
- VS
kunnu ró og yfirvegun, 91-90.
Troðfullt húsið nánast sprakk af
fagnaðarlátum og Gunnar var
tolleraður.
Valur Ingimundarson var að
vanda langdrýgstur Njarðvíkinga
og skoraði 41 stig án þess að vera
með neina sérstaka tilburði.
Gunnar var sterkur, þó hann væri
farinn að haltra undir lok leiksins
vegna meiðslanna sem hrjá hann.
ísak Tómasson átti frábæran
kafla í byrjun síðari hálfleiks er
hann skoraði 15 stig og hélt í við
Haukanna. Jónas Jóhannesson
gætti ívars Websters vel en það
kostaði hann villur.
Pálmar átti frábæran leik með
hinu sterka Haukaliði og í fram-
lengingunni skoraði hann öll 10
stig liðsins. ívar Webster var
sterkur í fráköstunum. Það varð
Haukunum fyrst og fremst að
falli að ætla að hanga á boltanum
síðustu þrjár mínúturnar í hinum
venjulega leiktíma - með eðli-
legum leik hefðu þeir vafalítið
haldið sínum hlut.
Stig UMFN: Valur 41, Isak 15, Gunnar
13, Ellerl Magnússon 7, Árni Lárusson 6,
Jónas Jóhannesson 5 og Hreiðar
Hreiðarsson 4.
Stig Hauka: Pálmar34, Ivar22, Kristinn
Kristinsson 11, Henning Henningsson 9,
Ólafur Rafnsson 7, Hálfdán Markússon 5
og Reynir Kristjánsson 2.
Sigurður Valur og Jón Otti
dæmdu leikinn mjög vel.
-SÓM/Suðurnesj um
UEFA
Bretaslagur
Það verður mikill Bretaslagur í
3. umferð UEFA-bikarsins í
knattspymu því þar drógust sam-
an í gær enska félagið Manchest-
er United og skoska félagið
Dundee United. Drátturinn fór
annars þannig:
Real Madrid - Anderlecht
Inter Milano - Hamburger SV
Bohemians Prag - Tottenham
Manch. United - Dundee United
Spartak Moskva - Köln
Craiova - Zeljeznicar
Lodz - Dinamo Minsk
Videoton - Partizan Belgrad
Arnór Guðjohnsen og félagar í
Anderlecht fá erfiða andstæðinga
þar sem em spænska stórliðið
Real Madrid. Þó hefur Real frek-
ar verið á niðurleið undanfarin
misseri og er ekki lengur það
stórveldi sem það áður var í evr-
ópskri knattspyrnu.
Leikir 3. umferðar fara fram
28. nóvember og 12. desember.
- ab/VS
Piltalandsliðið í handknattleik
fékk slæma útreið gegn Svíum á
Norðurlandamótinu sem hófst í
Danmörku í gærkvöldi. Leikið
var í Nyköping og sigraði Svíþjóð
34-15.
íslenska liðið komst í 2-0 en
það snerist fljótt við Svíar leiddu
12-6 í hálfleik. Síðari hálfleik var
martröð fyrir íslensku piltana
sem aldrei áttu möguleika gegn
geysisterku sænsku liði sem
skoraði 15 mörk úr hraðaupp-
hlaupum í leiknum.
Að sögn Sigmundar Her-
mundssonar fararstjóra gekk
ekkert upp hjá íslenska liðinu og
allir voru á ótrúlega lágu plani.
„Þeir geta ekki leikið verr en
þetta,“ sagði Sigmundur.
Júlíus Jónasson skoraði 5
mörk, Geir Sveinsson 4, Her-
mundur Sigmundsson 2, Snorri
Leifsson 2, Sigurjón Guðmunds-
son 1 og Valdimar Grímsson 1.
íslenska liðið leikur við Finna
og Norðmenn í dag og Dani á
morgun. Fyrir stuttu vann það
fimm marka sigur á Dönum í V-
Þýskalandi og stóð sig mjög vel
gegn Tékkum og V-Þjóðverjum
þannig að úrslitin í gærkvöldi eru
með ólíkindum.
-VS
Þróttur
Jóhannes skrifar
undir í dag
Jóhannes Eðvaldsson, fyrrum landsliðsfyrirliði í
knattspyrnu, hefur verið ráðinn þjálfari 1. deildar-
liðs Þróttar og skrifar hann undir samninginn í dag.
Samningurinn er til tveggja ára.
Jóhannes hefur um árabil leikið sem atvinnumað-
ur, lengst með Celtic í Skotlandi en einnig með
Tulsa Roughnecks í Bandaríkjunum og Hannover
96 í V. Þýskalandi. Nú síðast lék hann með Mot-
herwell í skosku úrvalsdeildinni en hætti þar sl. vor.
Jóhannes mun vafalítið leika með Þrótturum
sjálfur næsta sumar, ef hann kemst í liðið eins og
hann orðar það sjálfur. Hann lék með íslenska
landsliðinu sl. haust og á alls 34 landsleiki að baki.
-VS
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 10. nóvember 1984