Þjóðviljinn - 10.11.1984, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 10.11.1984, Blaðsíða 3
Kirkjuþing Spjallað vlð Gunnlaug Finnsson í Hvilft COTT VEGGRIP GÓÐ ENDING Kirkjuþingi lauksl. fimmtudag og hafði þá staðið í 10 daga. Einn fulltrúa á þing- inu var Gunnlaugur Finnsson frá Hvilft í Önundarfirði. Þótt annríki væri mikið á þinginu varð Gunnlaugur við þeirri beiðni blaðamanns, að svara fáeinum spurningum hans. Var Gunnlaugur þáfyrst spurðurað því, hvort Kirkju- þing væri haldið á hverju ári. - Já, nú orðið eru þingin haldin árlega, en til skamms tíma, eða allt til ársins 1982, voru þau hald- in annað hvort ár. Á meðan svo var máttu þau standa 14 daga mest. En um leið og þinghaldið varð árlegur viðburður var tím- inn styttur niður í 10 daga. - Hvernig er hagað kosningum til þingsins og hverjir skipa það? - Samkvæmt lögum um Kirkjuþing er landinu skipt niður í 8 kjördæmi. Hvert kjördæmi utan Reykjavíkur kýs tvo fulltrúa á Kirkjuþing og skal annar vera prestur en hinn leikmaður. Reykjavík hefur þá sérstöðu vegna fjölmennis, að þar eru kosnir 4 fulltrúar, 2 leikmenn og 2 prestar. Síðan er fulltrúi frá guðfræðideild Háskólans og ann- ar frá brauðlausum prestum. Biskup og kirkjumálaráðherra eru sjálfkjörnir á þingið. Ráð- herra hefur að sjálfsögðu lítinn tíma til þess að sitja þingið en annar mætir þá í hans stað. - Hverjir kjósa fulltrúana? - Prestarnir kjósa sína fulltrúa en leikmennirnir eru kosnir af Gunnlaugur Finnsson sóknamefndum og safnaðarfull- trúum. - Hver greiðir kostnaðinn við þinghaldið? - Það gerir ríkið og er sérstök fjárveiting á fjárlögum, sem til þess er ætluð. - Hvert er hlutverk Kirkju- þings? - Það má segja að hlutverk þess sé tvíþætt. í fyrsta lagi er því ætl- að að vera ráðgefandi um þau löggjafaratriði, sem snerta kirkj- una og í annan stað að fjalla um innri mál hennar. - Hvað hafa mörg mál verið lögð fyrir það þing, sem nú stend- ur yfir? - Fyrir þetta þing hefur komið 41 mál og er það einu fleira en í fyrra. - Nú hefur mér virst að menn haldi sig hér mjög vel að verki. Finnst þér tíminn, sem ykkur er ætlaður til þinghaldsins, vera of stuttur? - Hann er óneitanlega í stytsta lagi þegar afgreiða þarf þetta mörg mál. Það er hætt við að tímaskortur geri það að verkum að þau fái ekki öll þá umfjöllun, sem þörf væri á. Það er rétt að hér er ekki slegið slöku við og yfir því skal ekki kvartað. En vissulega er það ekki nógu gott ef kasta þarf höndunum til afgreiðslu mála vegna tímaskorts. - Hver telur þú vera merkust þeirra mála, sem liggja fyrir þessu þingi? - Að mínu áliti er veigamesta málið drög að frumvarpi til laga um starfsmenn þjóðkirkjunnar. Frá þinginu fer það til laganefnd- ar þjóðkirkjunnar, sem tekur það tillögfræðilegrar athugunar og af- greiðir það svo væntanlega með ósk um að það verði flutt á Al- þingi. Eg vil einnig nefna mál, sem lýtur að því að hefja undirbúning þess að minnst verði 1000 ára af- mælis kristninnar á íslandi, - árið 2000 - og þá með tilliti til útgáfu- starfa og annarra þátta, sem þurfa langan undirbúng og krefj- ast mikillar vinnu. Loks vil ég svo nefna kynningu á skýrslu trúar- og skipulags- nefndar Alkirkjuráðsins. Og þar með varð að slá botninn í þetta rabb því Gunnlaugur var kallaður á nefndarfund. -mhg ífs Fastara grip $ öruggari hemlun $ Hljóölátarí akstur ÖLL HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA FYRIR FÓLKSBI'LA OC SENDIBÍLA HEKIAHF Laugavegi 170-172 Sími 21240 Til sölu eru: tvær 40.8m2 einstaklingsíbúðir tvær 60.1m2 2ja herbergja íbúðir fjórar 66.4m2 2ja herbergja íbúðir þrjátíu 70.0m2 2ja herbergja íbúðir sex 89.0m2 3ja herbergja íbúðir tíu 98.6m2 3ja herbergja íbúðir sex 99.3m2 3ja herbergja íbúðir Hér er um að ræða netto stærðir íbúða, án hlutdeildar 1 sameign. Verzlunarmannafélag Reykjavíkur auglýsir: Til sölu 60 íbúðir fyrir aldraða félagsmenn VR við Hvassaleiti 56-58. Þeir félagsmenn VR sem orðnir eru 63 ára eiga rétt á að kaupa íbúð, þó þannig að fé- lagar 67 ára og eldri eiga forgangsrétt á íbúðunum. Miðað ervið að þessum aldurs- mörkum sé náð um áramótin 1985/1986. Þeim félagsmönnum, sem áhuga hafa á að kaupa þessar íbúðir, er bent á að koma á skrifstofu félagsins, í Húsi verslunarinnar 8. hæð, og kynna sér teikningar og fá upp- lýsingar um verð íbúðanna. Skilafrestur umsókna er til 7. desembern.k. VERZLUNARMANNAFÉLAG REYKJAVÍKUR

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.