Þjóðviljinn - 10.11.1984, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 10.11.1984, Blaðsíða 8
„Ekki get ég sagt þaö. Ég býst við því, að aðstæður og uppeldi hafi átt þátt í því að ég aðhylltist snemma það sem mér þótti vera alþýðu manna í hag hverju sinni. En um eiginleg stjórnmál hugsaði ég annrs lítið. Ég hafði að vísu veður af ágreiningi manna um þau efni og af togstreitunni milli kaupmanna og kaupfélaga, o.s.frv., en svo ekki söguna meir.“ Fyrstu eiginleg kynni mín af stjórnmálum hófust með Al- þingiskosningunum 1924. Tveir menn voru þá í framboði í Vestur-ísafjarðarsýslu, Ásgeir Ásgeirsson, síðar forseti, fyrir Framsóknarflokkinn, en fyrir fhaldsflokkinn Guðjón Guð- laugsson, sem verið hafði þing- maður Srandamanna og lands- kjörinn þingmaður. Ásgeir stóð sig vel á framboðsfundinum og síðar flutti hann svo skemmtilegt og fróðlegt erindi um alþýðu- menntun í Svíþjóð. Ýmsir töldu að Ásgeir væri allróttækur, og við strákarnir, sumir hverjir, vildum líka vera róttækir og fylgdum honum að málum. í kosningabar- áttunni heyrðist þess vísa, sem sumir eignuðu séra Böðvari Bjamasyni á Rafnseyri, kannski með vafasömum rétti: / kosninganna svörtum saur sálir ykkar lítið fríkka. En ég vil hvorki gamlan gaur né grímuklœddan bolsévikka. Svo lauk þessari kosningasnerru, og Ásgeir var kosinn þingmað- ur.“ „Var rætt um stjórnmál á heimili þínu?“ „Naumast gat það heitið, og við keyptum heldur engin þjóð- málablöð, og svo var reyndar um velflesta íbúa kauptúnsins. En svo tókum við nokkrir strákar upp á því að fara að halda mál- fundi, einskonar stjórnmála- fundi, í káettunni á kútter Helga, sem stóð þarna uppi á kambi. Þetta mun hafa verið 1925 og ’26. Þóttumst við þá stundum vera til- teknir alþingismenn að fjalla um ákveðin mál. Má nærri geta hvað þær umræður hafa verið gáfu- legar eins og þekkingu okkar á þjóðmálum var háttað. Þó stóðu þeir eitthvað skár að vígi sem komu frá heimilum þar sem þjóðmálablöð voru keypt. Ég var yngstur eða næstyngstur í þessum hópi og helst til ófróður í þessum efnum.“ „Hafðir þú þá ekki lesið neitt um stjórnmál er hér var kornið?" „Ekki gat það heitið. Þýsku- kennari minn hafði að vísu léð mér nokkur þýsk smárit, sem fjölluðu um ýmis mál frá sósíal- ísku sjónarmiði, en eiginleg stjórnmál komu þar lítt við sögu. Svo fylgdist maður að sjálfsögðu með umræðum á leiðarþingum alþingismannsins okkar. Það var líka um þessar mundir, ég held einhvern tíma á árinu 1926, sem ég las bókina Rök jafnaðarstefn- unnar eftir Roy Hendersen í þýð- ingu Yngva Jóhannessonar. Éf ég man rétt var boðskapur hennar sá, að fátækt og misrétti yrði því aðeins útrýmt að auðlindir og helstu atvinnutæki yrðu þjóðar- eign og væru skynsamiega nýtt, áætlunarbúskapur yrði að koma þartil. í bókinni varsterkursið- rænn undirstraumur og þetta var þokkalegasta rit.“ í skóla ó Akureyri „Hvenær fórstu svo í Gagn- fræðaskólann á Akureyri?“ „Það var um haustið 1926. Um vorið hafði ég sótt um skólavist og fengið jákvætt svar. Heimavist fékk ég hinsvegar ekki að þessu sinni. Ég var kominn langt á 17. árið, þegar hér var komið. Móðir mín fór með mér til Akureyrar og sýslaði m.a. í því að útvega mér samastað og fæði. Að því búnu hélt hún aftur heim á leið, en ég tók inntökupróf í 2. .bekk.“ „Hvernig leist þér svo á skólann?“ „Mér leist vel á hann, ég kunni vel við kennarana og bekkjar- systkinin. Þar voru margir ágæt- ismenn eins og t.d. Sigurður Þór- arinsson, Jón heitinn Magnússon og Ármann heitinn Halldórsson. Af bekkjarbræðrum mínum sem enn eru á lífi má t.d. nefna dr. Friðrik Einarsson, Pál Hallgríms- son sýslumann, Jón Sigtryggsson tannlækni og Hörð Bjamason húsameistara ríkisins. Síðar komu svo dr. Matthías Jónasson, Kristján Kristjánsson, Tryggvi Pétursson og Eiríkur heitinn Magnússon." „Og hvernig gekk svo námið og á hvaða greinum hafðir þú mestan áhuga?“ „Námið gekk vel. Ég minnist þess að vísu ekki að ég yrði nokkru sinni dúx, en ég var svona einhversstaðar í efri kantinum, þetta 3., 4., 5. eða svo. Ég hafði fengið áhuga á íslensku þegar í barnaskóla, en kennari minn þar Ólafur Ólafsson var mikill móð- urmálsunnandi, og sá áhugi jókst nú enn meir; og ég einbeitti mér nokkuð í því efni. Eg hafði einnig talsverðan áhuga á náttúrufræði, einkum jarðfræði - en kennarar í báðum þessum greinum voru frá- bærir, Sigurður skólameistari í ís- lensku og Pálmi Hannesson, síð- ar rektor, í náttúrufræði, og hefur það eflaust orðið til að efla áhug- ann.“ „Hvaða sumarvinnu fékkstu svo?“ „Fyrstu tvö sumurin var ég sfldarbátum, hið fyrra á m/s Báru, hið síðara á m/s Þingey. Þetta voru ekki sérstök sfldar- sumur, en ég hafði þó viðunandi kaup sem hrökk nokkurn veginn fyrir heimavist og öðrum skóla- kostnaði. En ég var í heimavist 2., 3. og 4. vetur minn í skóla. Heimavistin var tiltölulega ódýr; og ef sumarvinna var sæmileg gátu skólapiltar unnið fyrir sér. Þriðja sumarið var ég í síma- vinnu. Og heim kom ég aðeins eitt vorið meðan ég var í skóla.“ Ungír jafnaðarmenn „Gafstu þig eitthvað að stjórnmálum á skólaárunum?“ „Ekki kvað nú mikið að því fyrstu tvo-þrjá veturna a.m.k. Ég taldi mig að vísu vera róttækan jafnaðarmann og gerðist áskrif- andi að Rétti. Það var ekki fyrr en í 4. og þó einkum 5. bekk að ég fór að skipta mér meir af stjórnmálum. Ég gekk þá í Félag ungra jafnaðarmanna á Akur- eyri. Við sóttum leshring hjá Ein- ari Olgeirssyni þar sem hann fór m.a. yfir Kommúnistaávarpið og Rök jafnaðarstefnunnar, en Ein- ar er sem kunnugt er hinn ágæt- asti kennari og honum lét einkar vel að fræða æskufólk um þessi efni. 1. maí 1929 áttum við svo þátt í að hvetja menn til að taka sér frf þann dag, en 1. maí var þá enn ekki orðinn lögboðinn frí- dagur verkafólks, og það átti eftir að kosta talsverða baráttu að ná því fram. Um kvöldið efndum við í FUJ til smágöngu út í verkalýðs- hús.“ „Og hvernig gast svo skólayfir- völdunum að þessu hátterni ykk- ar?“ „Þetta var nú ekki vel séð, og skömmu síðar var okkur Eggert Þorbjarnarsyni tilkynnt að til stæði að setja sérstaka reglugerð sem tæki til (pólitísks) framferðis skólanemenda út á við, og yrðum við sem og aðrir nemendur að undirgangast hana ef við vildum vera áfram í skóla. En ekki hafði þá enn verið gengið að fullu frá þessari reglugerð hvorki að inn- taki né formi." „Hvar varstu svo um sumar- ið?“ „Um sumarið vann ég á sfld- arplani á Siglufirði, Rauða plan- inu svonefnda sem sumir kölluðu meira að segja „Rauða torgið“.“ „Rak Sfldareinkasala ríkisins planið?“ „Já, og Einar Olgeirsson var þá enn forstjóri hennar. Á Siglufirði kynntist ég mörgum róttækum ungum mönnum, þ.á.m. heima- mönnum eins og Þóroddi Guð- mundssyni og Gunnari Jóhanns- syni, Eyjólfi Árnasyni, sem átti þá enn heima á ísafirði, Sverri Kristjánssyni úr Reykjavík, Kristjáni Júlíussyni frá Húsavík og Jóni Rafnssyni úr Vestmanna- eyjum ofl. ofl.“ Andstœður skerpast „Bilið milli hinna róttæku og hægfara í Alþýðuflokknum mun hafa farið vaxandi er hér var komið sögu.“ „Það er reyndar rétt. Á þingi Alþýðuflokksins í desember 1927 höfðu þessar andstæður skerpst. En þá var Spörtu, félagi róttækra jafnaðarmanna í Reykjavík synj- að um inngöngu í Álþýðuflokk- inn.“ „Og dró svo ekki til frekari tíð- inda á þingi Sambands ungra jafnaðarmanna á Siglufirði síð- sumars 1930?“ „Ekki verður því neitað, að þau tíðindi voru að sumu leyti óvænt. Samband ungra jafnaðar- manna var ekki gamalt. Upphaf- ið að því var stofnun Félags ungra jafnaðarmanna í Reykjavík í nóvember 1927. Litlu síðar voru stofnuð tvö önnur félög, annað í Hafnarfirði, hitt á Akureyri (okkar félag). Þessi þrjú félög mynduðu svo með sér samband í maí 1929, ásamt Félagi járn- smíðanema í Reykjavík, þar sem stofnþing sambandsins var hald- ið. Á aukaþingi sambandsins í nóvember 1929 var félagi á Siglu- firði veitt viðtaka. Svona stóðu málin þegar 3. þing SUJ kom saman á Siglufirði 13. september 1930.“ „Og lágu margar inntöku- beiðnir fyrir?“ „Já, fram komu inntökubeiðn- ir frá 8 félögum, félagi á ísafirði, í Hnífsdal, á Sauðárkróki, í Álfta- firði og Glerárþorpi, á Hvítár- bakka og Húsavík. Þeim var meinuð innganga. Leystist þingið þá upp og fyrrverandi sambands- stjórn og fylgjendur hennar gengu af fundi. Félögin á Akur- eyri og Siglufirði mynduðu þá ásamt þeim félögum, sem synjað hafði verið um inngöngu, nýtt samband sem seinna hlaut svo nafnið Samband ungra kommún- ista.“ „Það mun hafa verið um þetta leyti eða nokkru síðar sem þú tókst saman ritgerðina „Hreyfing íslenskrar öreigaæsku“ sem birt- ist í Rétti um haustið.“ „Satt er það.“ „Ég kom með ljósrit af henni. Þú kemst þar m.a. svo að orði: „Innan FUJ þarf einnig að skipu- leggja fræðslustarfsemi. FUJ verða að halda uppi kommúnist- ískum kvöldskólum og lesstofum þar sem unglingum er kynntur marxisminn og viðhorf hans. En alla þessa fræðslu verður að miða við hagsmuni stéttabaráttunn- ar..“ Síðar víkur þú svo að vinnu- brögðum fyrrverandi sam- bandsstjómar og segir þá m.a. „Engar kröfur hafa verið teknar upp fyrir vinnandi æskulýð til að bæta kj ör hans og aðstöðu,... “ og svo síðar „Útbreiðslustarf fýrr- verandi sambandsstjórnar var líka hið hörmulegasta. í sumar sendi hún tvo félaga út á land til að stofna ný félög,... Ekkert nýtt félag var stofnað af þeim“. „Telur þú að þessi umskipti í æskulýðshreyfingunni hafi ýtt undir stofnuriKommúnistaflokks íslands?“ „Ekki vil ég fullyrða neitt um það, en hitt er ljóst að þessir at- burðir juku enn á spennuna milli hinna róttæku og hægfara í Al- þýðuflokknum. Alþýðusam- bandsþingið þá um haustið tók svo af skarið. Með samþykktum þess var hinum róttækari, komm- únistunum, gert illkleift að starfa áfram innan Alþýðuflokksins.“ Rekinn úr skóla „Allir þessir atburðir og sér- staklega skrif þín í Rétti drógu dilk á eftir sér fyrir þig sjálfan.“ „Já satt er það. Menntamála- ráðuneytið hafði nú með nýrri reglugerð bannað nemendum framhaldsskóla að vinna að stjórnmálum utan þeirra - og raunar innan þeirra líka.“ „Samt voru nemendur fram- haldsskóla almennt eldri þá en nú. Þú verður t.d. tuttugu og eins árs um haustið sem þú ert í 6. bekk. Nú yrði reglugerð sem þessari væntanlega hnekkt sem stj órnarskrárbroti. “ „Má vera, en á grundvelli hennar var mér samt vikið úr skóla“. „Og þú mótmæltir og kvaddir með grein í Verkamanninum.“ „Ég kallaði hana „Kveðju“.“ „Ljósrit hef ég líka af henni. Þér farast þar m.a. svo orð: „Nú er að athuga hina nýju reglugerð og þau straumhvörf, sem hún táknar í sögu skólans.. .Nemend- ur mega ekki koma opinberlega fram, hvorki í ræðu né riti“. „Þeir mega eigi stunda „sálnaveiðar“ meðal félaga sinna né reyna að fá þá til að ganga í pólitísk félög. Þeir mega eigi taka þátt í verk- föllum, meðan þeir eru í skólan- um, helst ekki á sumrin heldur. Þannig hefur meistari skýrt reglugerðina. Það hefur reyndar verið leyft, að menn væru í pólit- ískum félögum, þó að erfitt sé að fá það út úr reglugerðinni ... Þessi nýja reglugerð brýtur alger- lega í bága við stjórnarskrá ís- lands, þar sem hverjum íslensk- um þegn er heimilað fullt ritfrelsi og leyft að stofna félög í sérhverj- um löglegum tilgangi. Hún er því nokkurs konar lögbrotslög. ... Nú er svo komið, að ég hef brotið þetta ákvæði reglugerðar og ver- ið rekinn úr skóla ... Við þennan brottrekstur minn setti meistari mér svokölluð tilboð, sem eru allskringileg á sína vísu. Má segja, að fyrra tilboðið sé svokall- að aðeins til að sýnast. í stað þess að spyrja og rannsaka, hvort ég hafi skrifað þessa grein eftir eða áður en reglugerðin kom, í stað þess að fylgja þessari sjálfsögðu rannsóknarskyldu, er mér gert tilboð um, hvort ég vilji lýsa því yfir, að ég hafi skrifað hana áður. Það er eins og ég hefði þarna al- gerlega frjálsan vilja til að velja um, en hann væri eigi háður þeirri staðreynd, er að baki fæl- ist. Hitt tilboðið er um að segja mig úr skóla og hafa þó mötu- neyti í skólavist og vissu fyrir að fá að taka stúdentspróf. - Mér var boðið að vera áfram formað- ur FUJ svo fremi, að það ræki eigi útbreiðslustarfsemi, hvorki í ræðuné riti... Mérer fullljóst,að hér er um hreina stéttabaráttu að ræða og skoða mig sem einn lið í sveitum verkalýðsins og þarf enga píslarvættisgloríu til að halda kjarki.““ „Þetta hafa verið langar og strangar tilvitnanir og ýmsu þó líklega sleppt, og þær rifjuðu upp fyrir mér sumt, sem ég var næst- um búinn að gleyma. Ég hafði t.d. um þetta leyti lesið nokkur sænsk smárit eftir sósíalista yst á vinstri væng. Þar á meðal voru bæklingar eftir sænska rithöfund- inn og ljóðskáldið Ture Nermann og smárit þýdd úr rússnesku, m.a. eftir málsvara hinnar svo- nefndu öreigamenningar(Prolet- kult), A. Bogdanov og fleiri. Og er ég ekki frá því að sjá megi ein- hver áhrif frá þessari lesningu í skrifum mínum um þessar mund- ir, td. í greininni um öreigaæsk- una í Rétti. En svo vikið sé aft- ur að brottrekstrinum, þá sótti ég um að fá að taka stúdentspróf ut- anskóla við Menntaskólann á Akureyri. En mér var tjáð að í því efni yrði ég að snúa mér til menntamálaráðuneytisins. Ég sendi síðan umsókn í skeyti suður og bað um svar, en það kom ekki. Eftir nokkurn tíma sendi ég aftur skeyti og ítrekaði umsóknina, en svar barst ekki að heldur. Sá ég þá að hverju fór.“ Með kommúnistunn „Hvað tókust þér svo fyrir hendur að svo komnu máli?“ „Mig minnir að næstu vikur hafi ég unnið við að þýða ritgerð Leníns, Marxismann, sem hann samdi upphaflega fyrir svissneskt alfræðirit. Og þýðinguna birti ég í næsta árgangi Réttar.“ „Það er sennilega besta fram- setningin á marxismanum í stuttu máli.“ „Það má vera, en ég var óvanur þýðandi og margt í þýðingunni má færa til betri vegar.“ „Varst þú á stofnþingi Komm- únistaflokks íslands í desember 1930?“ „Nei, ég fór til Siglufjarðar og var þar um veturinn. Ég annaðist þar fræðslustarf á vegum hreyfingarinnar, Kommúnistafé- lagsins, og FUK.“ „Hvar varstu svo næsta sum- ar?“ „Ég var á sflarplani á Siglu- firði, og veturinn eftir (1931-32) Ásgelr Blöndal. 8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 11. nóvember 1984

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.