Þjóðviljinn - 10.11.1984, Blaðsíða 18
BRIDGE
ífgl LAUSAR STÖÐUR HJÁ
'í' REYKJAVIKURBORG
Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk til eftirtalinna
starfa. Starfskjör samkvæmt kjarasamningum.
• Forstöðumaður mötuneytis Droplaugarstaða,
vist- og hjúkrunarheimilis aldraðra, Snorrabraut 58.
Æskilegt er að viðkomandi sé matreiðslumaður
með meistararéttindi.
Upplýsingar veitir Sigrún Óskarsdóttir, forstöðumaður
í síma 25811.
• Félagsráðgjafi við fjölskyldudeild Félagsmála-
stofnunar Reykjavíkurborgar. Staðan er laus frá 1.
janúar1985.
Upplýsingar veitir yfirmaður fjölskyldudeildar í síma
25500.
• Starfsmaður við fjölskylduheimili fyrir unglinga.
Upplýsingar eru veittar í síma 81836 eftir kl. 16.
• Skrifstofumaður til afleysinga í Fé-
lagsmálastofnun Reykjavíkurborgar fram til næstu
áramóta. Starfið felst aðallega í vélritun og er góð
vélritunarkunnátta nauðsynleg.
Upplýsingar veitir Guðjón Sigurbjartsson, yfirmaður
fjármála- og rekstrardeildar í síma 25500.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykja-
víkurborgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð, á sérstökum
umsóknareyðublöðum sem þar fást, fyrir kl. 16.00,
mánudaginn 19. nóvember 1984.
LAUSAR STÖÐUR HJÁ
REYKJAVÍKURBORG
Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk til eftirtalinna
starfa. Starfskjör samkvæmt kjarasamningum.
• Fóstrur við Hamraborg, Iðuborg, Múlaborg,
Suðurborg, Sunnuborg, Vesturborg (um áramót)
og Ægisborg.
• Fóstra - þroskaþjálfi eða starfsmaður með aðra
uppeldislega menntun til að sinna börnum með
sérþarfir.
Upplýsingar veitir forstöðumaður viðkomandi heimilis
eða umsjónarfóstrur á skrifstofu Dagvistar, í síma
27277.
• Línumaður hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur. Þarf
helst að vera vanur.
Upplýsingar veitir starfsmannastjóri R.R. í síma
686222.
• Bókavörður hjá Borgarbókasafni Reykjavíkur.
Upplýsingar veittar á skrifstofu Borgarbókasafns í
síma 27155.
• Skrifstofumaður á Slökkvistöðina í Reykjavík.
Upplýsingar veitir Tryggvi Ólafsson í síma 22040.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykja-
víkurborgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð, á sérstökum
umsóknareyðublöðum sem þar fást, fyrir kl. 16.00,
mánudaginn 19. nóvember 1984.
LAUSAR STÖÐUR HJÁ
REYKJAVÍKURBORG
Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk til eftirtalinna
starfa. Starfskjör samkvæmt kjarasamningum.
• Hjúkrunarfræðingar við hinar ýmsu deildir Heilsu-
verndarstöðvar Reykjavíkurborgar. Um er að ræða
bæði heilar stöður og hluta úr stöðum. Einnig ósk-
ast hjúkrunarfræðingar á kvöldvakt í heimahjúkrun.
• Aðstoðardeildarstjóri við heimahjúkrun.
• Deildarmeinatæknir í fullt starf.
• Fjölskylduráðgjafi óskast við áfengisvarnardeild,
æskileg háskólamenntun í félags- og heilbrigðis-
fræðum.
• Sjúkraþjálfari ífulltstarf fyrir sjúklinga heimahjúkr-
unar.
• Starfsmaður til að annast viðgerðir á vinnufatnaði
starfsfólks og annan saumaskap.
Upplýsingar gefa hjúkrunarforstjóri og framkvæmda-
stjóri Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur, í síma
22400.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykja-
víkurborgar Pósthússtræti 9, 6. hæð, á sérstökum
umsóknareyðublöðum sem þar fást, fyrir kl. 16.00,
mánudaginn 19. nóvember 1984.
Skemmtileg nýjung
Mikil þátttaka í Stofnanakeppninni
26 sveitir mættu til leiks í fyrstu
Stofnana/Fyrirtækjakeppni sem
haldin hefur verið hér á landi til
þessa.
Það eru Bridgefélag Reykja-
víkur og Bridgesamband íslands,
sem standa að keppninni.
Spilaðar eru þrjár umferðir á
kvöldi, alls níu umferðir. Eftir
fyrsta kvöldið (si. miðvikudag),
er staða efstu fyrirtækja þessi:
stig
1. Mjólkurbú Flóamanna Self.i 65
2. Dagblaðið Vísir 61
3. Isal-skrifstofa 60
4. A. Blöndal Selfossi 54
5. ístak 52
6. Sendibílastöðin 51
7. Lögmannafélag íslands 51
8. SÍS-búvörudeild 51
9. Landsbankinn A-sveit 49
10. SÍS-sjávarafurðadeild 48
Fyrsta kvöldið tókst mjög vel
að mati flestra og staðfestir það
sem áður var vitað, að mjög mik-
ill og almennur bridgeáhugi er
innan velflestra stærri fyrirtækja
hér á höfuðborgarsvæðinu.
Næstu umferðir verða spilaðar
fimmtudaginn 15. nóvember í
Domus Medica og mæta menn
vonandi enn galvaskari til leiks
þá.
Fró Bridgesambandi
Reykjavíkur
Undanrásir fyrir Reykjavíkur-
mótið í tvímenning 1984 verða
spilaðar sem hér segir: 1. umferð
laugardaginn 17. nóvember. 2.
umferð sunnudaginn 18. nóvem-
ber og 3. umferð sunnudaginn 25.
nóvember.
27 efstu pörin kotnast í úrslit-
akeppnina, sem verður um helg-
ina 8/9 des.
Allt mótið verður spilað í
Hreyfils-húsinu v/Grensásveg og
hefst kl. 13.00 og alla dagana.
Þátttökugjald fyrir parið í undan-
rásum er kr. 800.
Nv. Reykjavíkurmeistarar í
tvímenning eru þeir Guðmundur
Páll Arnarson og Þórarinn Sig-
þórsson.
Skráningarlisti í Reykjavíkur-
mótið mun liggja frammi í félög-
unum næstu spiladaga. Loka-
frestur til að tilkynna þátttöku er
fimmtudaginn 15. nóvember, en
koma má þátttökutilkynningum
einnig til Öiafs Lárussonar hjá
BSÍ.
Opna Hótel
Akraness-mótið
(Barometer) verður haldið
dagana 1. og 2. desember n.k. og
hefst laugardaginn 1. desember
kl. 13.00.
Fró Bridgeklúbbi
Akraness
Þriðja umferð í barometer-
keppni Bridgefélags Akraness
var spiluð fimmtudaginn 2. nóv.
sl.
1. Guðjón Guðmundsson -
Ólafur G. Ólafsson 123
2. Einar Guðmundsson -
Karl Ó. Alfreðsson 118
3. Matthías Hallgrímsson -
Björgúlfur Einarsson 99
4. Pálmi Sveinsson -
Þorvaldur Guðmundsson 83
5. Karl Alfreðsson -
Alfreð Viktorsson 73
ÓLAFUR
LÁRUSSON
Fró Bridgefélagi
Reykjavíkur
Aðalsveitakeppni félagsins
hefst næsta miðvikudag. Skrán-
ing er þegar hafin í þá keppni, hjá
eftirtöldum: Sigurði B. Þor-
steinssyni s. 622236, Hermanni
Lárussyni s. 41507, Herði
Blöndal s. 685914 og Sigurði
Sverrissyni s. 34234. Einnig má
koma þátttökutilkynningum til
Agnars Jörgenssonar.
Fró Bridgefélagi
Skagfirðinga
Eftir 14 umferðir af 35 (2
kvöld) er staða efstu para í
Barometer-tvímenningskeppni
félagsins þessi:
stig
1. Steingrímur Steingrímsson -
Örn Scheving 185
2. Baldur Árnason -
Sveinn Sigurgeirsson 141
3. Högni Torfason -
Steingrímur Jónasson 130
4. Bjarni Pétursson -
Ragnar Björnsson 119
5. Árni Alexandersson -
Hjálmar Pálsson 96
6. Oskar Hjaltason -
Trausti Hjaltason 89
7. Ingi Már Aðalsteinsson -
Þórður Jónsson 75
8. Rúnar Lárusson -
Sigurður Lárusson 74
Keppni verður framhaldið
næsta þriðjudag. Spilað er í
Drangey, félagsheimili Skagfirð-
ingafélagsins í Reykjavík v/
Síðumúla.
Um þessa helgi
Líkt og flestar helgar að und-
anförnu, er ýmislegt að gerast
þessa helgi í bridgefélagi okkar. í
Hveragerði fer fram um helgina
Suðurlandsmót í tvímenning með
þátttöku hvorki meira né minna
en 40 para. Spilaður verður Baro-
meter, 3 spil milli para. Um
stjórnun sjá þeir Hermann og
Ólafur Lárussynir.
Líflegt starf í bridgemálum
fyrir austan fjall.
í íþróttahúsi Hafnarfjarðar fer
fram Reykjanesmót í tvímenn-
ing, en litlar fegnir hafa borist af
þátttöku þar. Þáttinn grunar að
ekki sé hún nándar nærri eins öfl-
ugogíHveragerði. Keppnisstjóri
þar verður Einar Sigurðsson.
í dag er úrslitaleikur ólympí-
umótsins í Seattle. Þar veðjar
þátturinn á heimamenn, USA.
Þeir eru langbestir í dag.
Næstu helgi hefst svo Reykja-
víkurmótið í tvímenning, undan-
rásir. Skráning er hafin í öllum
félögunum á höfuðborgarsvæð-
inu. Spilað verður í Hreyfilshús-
inu.
1 Hugmyndasamkeppni
iL um skipulag
”— Víðistaðasvæðis
Hafnarfjarðarbær auglýsir hér með hug-
myndasamkeppni um skipulag Víðistaða-
svæðis. Keppnin fer fram eftir samkeppnis-
reglum Arkitektafélags íslands. Þátttökurétt
hafa allir íslenskir ríkisborgarar oa erlendir
ríkisborgarar sem búsettir eru á íslandi og
hafa hér fasta atvinnu.
Mót þetta er orðinn fastur liður
í starfsemi Bridgefélags Akra-
ness, og verður nú sem fyrr vand-
að til þess eftir því sem kostur er.
Fjöldi þátttakenda er ákveðinn
32 pör og hafa féiagar í B.A. mik-
inn áhuga á mótinu og hafa marg-
ir þegar skráð sig til þátttöku.
Hótel Akranes býður þátttak-
endum úr öðrum félögum hag-
stæðan „helgarpakka" þar sem
innifalin er gisting og fæði á með-
an á mótinu stendur, fyrir aðeins
kr. 1.500.00 fyrir manninn, en þá
er ekki innifalið keppnisgjald
sem verður kr. 600.00 fyrir parið.
Vegleg verðlaun verða veitt og
er heildarupphæð þeirra kr.
30.000.00 sem skiptast þannig:
1. verðlaun kr. 15.000.00
2. verðlaun kr. 10.000.00
3. verðlaun kr. 5.000.00
Þeir sem vilja tilkynna þátt-
töku sína eru beðnir að hringja í
síma (93) 2000 á skrifstofutíma,
en þar verður tekið á móti þátt-
tökutilkynningum uns áðurnefn-
dum parafjölda hefur verið náð.
Tilgangur þessarar hugmyndasam-
keppni er að fá fram heildarskipuiag Víði-
staðasvæðis, sem miði aðallega að því að
svæðið verði nýtt sem íþrótta- og útivist-
arsvæði fyrir almenning.
Heildarverðlaunafé er kr. 250.000 og
innkaup fyrir allt að kr. 65.000.
Dómnefnd skipa:
Sigþór Jóhannesson verkfræðingur,
formaður
Gunnar S. Óskarsson arkitekt, ritari
Bjarni Snæbjörnsson arkitekt
Einar E. Sæmundsen landslagsarkitekt
Snorri Jónsson fulltrúi.
Keppnisgögn eru afhent hjá trúnaðarmanni
dómnefndar, Þórhalli Þórhallssyni, Freyju-
götu 41 (Ásmundarsal) 101 Reykjavík, sími
11465 og heimasími 16788.
Frestur til að skila tillögum rennur út 31. jan
1985.
18 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 11. nóvember 1984