Þjóðviljinn - 10.11.1984, Blaðsíða 17

Þjóðviljinn - 10.11.1984, Blaðsíða 17
Bakgrunnur -wu j-i.j.jaexci3 euomunassonar a Alþingi að kvöldi 11.10. 1984, Vid skulum leysa deiluna . Hér töluöu áóan tveir kennarar, ef ég man rétt •H.v. 11. þ.m. Reykv. , er hún ekki kennarí, ég held þaó/ekki rétt? Ég get sagt ykkur þaó 1 hreinskilni aó kennaralaun eru of lág og ég hef ekkert á moti þvi aö standa að þvi aó kennaralaun hakki. Þaó eru ekki há laun aö vinna vió skul™ segja halfsdags vinnu fyrir 7-8 þús. kr. á nvánuði. haó er vinnuskylda á hverjum degx eóa svo til. En ef kennarar gera kröfu til þjúófélagsins , þá veróa þeix lxka að þola aó þjóófélagið geri kröfur til þeirra. Kennarar . hveriu - ? &aa ^ 30 stunda vinnuvika. Hver klukkutúni er 48 minútur. i jel2:-etta ar rar.gt raöh.) Er þaó rangt, já Þá skulum viö leióretta þaó Hvað er hver klukkutind pr. kennara? Hvaó er vinnuskylda kennara'á timann* Kennsiustundin já. (Cripió fram i: Heldur-ráóherra aó kennarar geri ekker^ nera aó ^ga.og enna...) paó gera allir eitthvað elskan min...(.7BH: Heldur ráóherra aó Þm. gen ekkert nema aó gaspra i raóustögi?) 5m. eru nú komnir hingaó m.a. til Þess. En vió skulum segja, a þaó sé lágmark 3 mánuóir i sumarfri. Er þaó rangt TJca? (Gnpió fram i: Þaó er rangt lika). Er það rangt lika? •Þaó eru aórar upplysingar sem ég hef. Þaó eru 9 sinnum mánaóarfridagar. Pessar 4o vikur sem eftir tverr dagar, sunnudagar og laugardagar, þaó.eru 8o dagar. (Gri Kennarar eru orðnir lang- þreyttir á bágum kjörum sínum. Þeir eru þreyttir á því að störf þeirra eru metin til lágra launa og þeir eru þreyttir á því að vinnu- tíminn er af mörgum misskilinn. í kjarasamningum kennara er gert ráð fyrir að fjöldi vinnu- stunda á árinu séu 1.800. Svo er einnig í kjarasamningum annarra stéttarfélaga. Gert er ráð fyrir að hver kennari skili 45.75 klukku- stunda vinnu í viku hverri. Inn í það eru síðan reiknaðir matar- og kaffitímar á sama hátt og hjá öðrum stéttum. Kennarar sinna fræðsluhlutverki sínu í 36 vikur á ári hverju, þ.e. 9 mánuði sem skólaárið nær yfir. Alls eru því áætlaðar 1647 vinnustundir á kennara yfir veturinn. Því til við- bótar er gert ráð fyrir að þeir vinni 153 stundir á árinu. Er þá reiknað með vinnu við lokafrá- gang eftir veturinn og undirbún- ing kennslu næsta skólaárs. Einn- ig er hægt að skylda kennara til að fara á endurmenntunarnám- skeið, sem þá reiknast inn í þess- um 153 vinnustundum. Alls gera þetta 1800 vinnustundir á ári. Kennsluskylda er 30.5 stundir á viku í 1.-6. bekk grunnskóla, 29 stundir í 7.-9. bekk og 26 stundir á viku í menntaskóium. Hver kennslustund er 40 mínútur. Fyrir 10 árum síðan var kennsluskylda í barnaskóla 36 stundir á viku hjá kennurum í fullu starfi. Þessum stundum var síðan fækkað í 34 og síðar í 32. Eftir það hefur kennsluskyldan smám saman verið minnkuð um 1/2 stund í hvert sinn. Um næstu áramót verður hún 30 stundir. Þeim mun meiri tími er nú ætlað- ur til undirbúnings kennslu, enda sífellt verið að endurnýja náms- efni. Kennarar geta ekki lengur þulið sömu gömlu rulluna og síð- ustu ár yfir börnunum, heldur verða þeir að setja sig inn í nýtt efni og nýja starfshætti. Nemend- / um er ekki lengur raðað eftir námsgetu í bekki, hópar eru blandaðir og ætlast er til sjálf- stæðra vinnubragða nemenda. Námsefni er oftlega unnið í skól- unum, enda tæknin töluverð og námsefnisgerðin því auðveldari en fyrr. Allt gerir þetta kröfu til vinnu kennara. Það eru efalaust fleiri en Al- bert sem hugsa sem svo að kenn- arar hafi margra mánaða sumar- frí og stutta vinnuviku. Slíkt er ekki undarlegt vegna þess að vinnutími kennara er reiknaður út á allt annan hátt en hjá öðrum stéttum. Auðvitað er erfitt að meta undirbúningstíma fyrir kennslu og sjálfsagt eru til kenn- arar sem ekki nota þennan tíma sem skyldi. í öllum starfsgreinum er fólk sem vinnur misjafnlega samviskusamlega. Einnig er horft í allar frímínúturnar sem kennarar hanga í. Gleymist þá stundum að þeir eru bundnir í kennslustundunum og gefst þá enginn tími til að taka sér hlé. Kaffitíma fá þeir eins og aðrir. Endurmenntunarnámskeiðin hafa verið vel sótt. Kennarahá- skólinn hefur staðið fyrir þeim. Rósa Björk Þorbjarnardóttir endurmenntunarstjóri segir kon- ur hafa verið hlutfallslega dug- legri við að sækja þau en hlutfall þeirra í kennarastétt segir til um. 75% almennra kennara í grunn- skólum eru konur. Af þeim eru meira en 50% í skertri stöðu. Þær sinna flestar öðru starfi jafnhliða kennslunni. Finnst gott að fá langt sumarfrí, jólafrí og páska- frí. Öðrum kennurum finnst æskilegt að fá jafnari vinnu allt árið og aukavinnu greidda. -jp Guðríður Schröder hjúkrunarfrœðingur, móðir skólabarna: Ekki vanmetið umfram aðrar stéttiropinberra starfsmanna „ Ég held að það sé einka- skoðun kennara að þeirra stétt hafi dregist meira aftur úr í launum en aðrarstéttir. Hjúkrun- arfræðingar álíta t.d. slíkt hið sama um sig. Kennarastarfið er vanmetið til launa eins og önnur störf opinberrastarfsmanna. Þar er engin stétt undanskilin. Tvö launakerfi eru í landinu; kerfi op- inberra starfsmanna og kerfi hinna," sagði Guðríður Schröder hjúkrunarfræðingurog móðir fjögurra barna, þar af tveggja á skólaaldri. „Ég álít að það verði ekki mál- stað kennara til framdráttar ef þeir fara fram á hækkun umfram aðrar stéttir opinberra starfs- manna. Kjarabaráttan hefur ekki verið skemmtileg vegna þess að það er aldrei heppilegt að einn hópur taki sig út, eins og kennar- ar hafa gert, og segi sig vanmet- inn og illa skilinn." Guðríður sagðist hafa af því áhyggjur að kennarar skammti sér jafnvel sjálfir vinnutíma innan Iaunarammans. „Ég hef heyrt það sjónarmið hjá ungum kennara að ekki sé hægt að sinna heimavinnu, eins og t.d. að fara yfir verkefni, því launin séu svo íág. Skólastjórar verða auðvitað að halda utan um vinnuskil hvers kennara." -jp Sólrún Jensdóttir menntamólaráðuneytinu Brýnt að fram fari endurmat „Eins og Ragnhildur Helga- dóttir, menntamálaráðherra, hef- ur lýst yfir, er brýnt orðið að fram fari endurmat á kjörum kennara með hliðsjón af menntun þeirra og ábyrgð, og ríkisstjórnin hefur látið í Ijós þann vilja, að staða kennara innan launakerfisins verði endurskoðuð. í mennta- málaráðuneytinu er nú unnið að undirbúningi þessa máls og er þess vænst að niðurstaða fáist sem allrafyrst", sagði Sólrún Jensdóttir, skrifstofustjóri skóla- deildar menntamálaráðuneytis- ins. „Löggilding starfsheitis kenn- ara er mikilvægt skref í þá átt að þeir fái kjör sín rétt metin. Starfa fulltrúar kennarasamtakanná nú að því ásamt starfsmönnum menntamálaráðuneytisins að semja lagafrumvarp um það efni. í umræðunni að undanförnu hefur athyglin einkum beinst að grunnskólakennurum en ekki er síður ástæða til að endurmeta kjör framhaldsskólakennara. Það verður að búa vel að kenn- urum því að menningarleg og efnahagsleg framtíð þjóðarinnar veltur á því að takast megi að hlúa að hæfileikum unga fólksins svo að þeir nýtist sem best ein- staklingum og þjóðfélaginu til heilla. -jP Sunnudagur 11. nóvember 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 17

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.