Þjóðviljinn - 10.11.1984, Page 13
Namm-namm
Lambalceri vinsœlasti
rétturinn í Frakklandi
Gœtu það ekki reynst góð tíðindi fyrir ísienskan útflutning?
[ Frakklandi veröa þeir sem
gera skoðanakannanir að til-
greina vandlega hvaða daga
þeir hafi lagt spurningar sínar
fyrir menn, því að það getur
skipt máli að vita hvort niður-
stöðurnar endurspegli á-
standiðfyrireða eftireinhvern
atburð. í sumum tilvikum væri
það kannske ekki úr vegi að
þeir tilgreindu líka klukkan
hvað skoðanakönnunin hafi
farið fram. Ef spurt er um vin-
sældir ýmissa rétta og drykkj-
artegunda, hefur það vafa-
laust einhver áhrif á úrslitin
hvort skoðanakönnunin fer
fram rétt fyrir eða eftir máítíð.
En nýleg skoðanakönnnun
sem gerð var í Frakklandi um
uppáhaldsrétti manna bendir
þó til þess að Fransmenn séu
jafnsvangir á hvaða tíma sól-
arhringsins sem er, því að úr-
slitin voru þar mjög skýr á
öllumsviðum.
Þau koma samt nokkuð á
óvart. í þessu mikla nauta- og
svínaeldislandi var það nefnilega
lambalæri sem var langefst á vin-
sældalistanum, og var það uppá-
haldsréttur 43% þeirra, sem
spurðir voru. Bæði konur og karl-
ar af öllum aldri og öllum starfs-
hópum voru sammála um það, -
einungis kjósendur kommúnist-
aflokksins settu „búrgundar-
naut“ - nautagúllas í rauðvíns-
sósu - í efsta sæti, hvað sem því
kann að valda. Næst á listanum
var hani í rauðvínssósu, sem fékk
30% atkvæða, síðan piparsteik
með 27% atkvæða, og þá „búrg-
undarnaut“ með 26% atkvæða.
Allir fiskréttir voru þar fyrir neð-
an, og kemur það kannske ekki á
óvart. en þó reyndust þeir tal-
svert vinsælli meðal kvenna en
karla, nema Gaullista, sem mátu
sandhverfu mikils!
Konur vilja
kampavín
Ýmsir réttir sem eru mjög al-
gengir í Frakklandi, eins og t.d.
súrkál, voru mjög neðarlega á
listanum, og er því kannske um
að kenna að skoðanakönnunin
fór fram í miklum sumarhitum í
byrjun júní, en súrkál er fyrst og
fremst talið vera vetrarréttur.
jafnan neðarlega á listanum, og Nú er franskt kindakjöt nokk- lendingum nýjar leiðir til útflutn-
má segja að sú tilhneiging hafi uð ólíkt hinu íslenska, en skyldu ings á kindakjöti?
komið fram víða í þessari könn- þessar miklu vinsældir lambalæra (eftir ,,Libération“).
í Frakklandi ekki getað opnað ís-
un.
Hugmynda-
samkeppni
kkiaðarbankans
Wli nmki
mntíikn
Mikil gróska er nú í starfsemi lönaðarbankans.
Bankinn hefur vaxið ört undanfarin ár, enda lagt
kapp á að mæta kröfum viðskiptavina sinna um sífellt
betri þjónustu. Um þessar mundir stendur yfir víðtæk
endurskipulagning á starfsemi bankans, í því skyni, að
búa hann enn betur undir það markmið, að vera
nútíma banki, sem veitir góða þjónustu. Liður í þess-
ari endurskipulagningu er hugmyndasamkeppni sem
bankinn efnir nú til. Samkeppnin er í tveimur liðum:
a) Um nýtt merki, skrift og einkennislit, eða liti fyrir
bankann.____________________________________
b) Um myndrænt tákn til notkunar í auglýsingum og
kynningargögnum bankans.
Dómnefnd skipa: Bragi Ásgeirsson, listmálari, Gísli
B. Björnsson, teiknari FÍT., Rafn Hafnfjörð, prent-
smiðjustjóri, Tryggvi T. Tryggvason, teiknari FÍT. og
Valur Valsson, bankastjóri.
Ritari dómnefndar og jafnframt trúnaðarmaður
keppenda er Jónína Michaelsdqttir, Iðnaðarbankan-
um við Lækjargötu. Þátttakendur geta snúið sér til
hennar og fengið frekari upplýsingar um samkeppn-
ina og um Iðnaðarbankann. Síminn er 91 -20580.
Skilafrestur tillagna er til 15. janúar 1985. Skal skila
tillögunum í póst eða til einhverrar afgreiðslu Iðnaðar-
bankans merktum:
Iðnaðarbankinn
Hugmyndasamkeppni
í ljós kom við skoðanakönnun-
ina að vínsmekkur karla og
kvenna var ekki alveg eins: 56%
karlmanna kusu helst Bordeaux
rauðvín og 35% kampavín, en
meðal kvenna vildu 55% kampa-
vín og 36% Bordeaux rauðvín.
Þegar á heildina er litið, reyndust
Bordeaux rauðvín vera í efsta
sæti (46%), þá kom kampavín
(45%), síðan Beaujolais vín
(31%), en rauðvín frá Búrgund
voru í fjórða sæti.
Á sviði osta var camembert-
ostur í efsta sæti, eins og reyndar
mátti búast við (45%), síðan
geitarostur (41%) og Roquefort-
ostur (40%). Mjög sterkir ostar,
eins og Munster, voru hins vegar
neðst á listanum, og má vera að
árstíðin valdi nokkru um það.
Nýr markaður
Hvað snerti eftirrétti var það
greinilegt að léttir réttir voru í
efri sætunum en hinir þyngri voru
Samkeppnin er haldin samkvæmt reglum FÍT, Félags
íslenskra auglýsingateiknara og er öllum opin.
Veitt verða ein verðlaun fyrir bestu tillögurnar.
a) Fyrir merki, skrift og einkennislit kr. 120.000.00
b) Fyrir tákn kr. 40.000.00
Tillögur um merki skulu vera 10-15 cm í þvermál, í
svörtum lit, á pappírsstærð DIN A-4. Einkenna skal
tillögurnar með kjörorði, en nafn höfundar og
heimilisfang fylgi með í lokuðu ógagnsæju umslagi.
Þátttakendum er heimilt að senda fleiri en eina
tillögu. Skal hver tillaga þá hafa sér kjörorð og henni
fylgja sér umslag með nafni höfundar.
b/t Jónínu Michaelsdóttur
Lækjargötu 12
101 Reykjavík.
Dómnefnd skal skila niðurstöðum innan eins mánað-
ar frá skiladegi.
Efnt verður til sýningar á tillögunum og þær endur-
sendar. Verðlaunaupphæðin er ekki hluti af þóknun
höfundar. lðnaðarbankinn áskilur sér einkarétt á
notkun þeirra tillagna sem dómnefnd velur. Jafn-
framt áskilur bankinn sér rétt til að kaupa hvaða
tillögu sem er samkvæmt verðskrá FÍT.
Iðnaðarbankmn
-nútímabanki
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13