Þjóðviljinn - 10.11.1984, Blaðsíða 14
BÆJARROLT
tækniskóli
t
íslands
Áætlaö er aö hefja kennslu í Rekstrariðnfræði í janú-
ar 1985, enda verði það heimilt samkvæmt væntan-
legum fjárlögum. Námsbrautin tekur tvö og hálft
skólaár fyrir iðnaðarmenn og aðra tvítuga eða eldri
með viðeigandi starfsreynslu að mati skólanefndar.
Á vorönn 1985 er áætlað að þeir sem áður hafa lokið
iðnfræðinámi (byggingar, rafmagn, vélar) geti bætt við
sig og lokið prófi í maí 1985 sem rekstrariðnfræðingar.
Enn fremur er áætlað að starfrækja 1. önn á náms-
braut í rekstrariðnfræði og er sú önn jafngild 1. önn í
frumgreinadeild skólans (undirbúningsdeild).
Umsóknir um nám í rekstrariðnfræði ber að skrifa á
þar til gerð eyðublöð og senda fyrir 25. nóvember n.k. í
Tækniskóla íslands, Höfðabakka 9, 110 Reykjavík.
Rektor
Útboð
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í eftirfar-
andi:
RARIK 84019 raflínuvír 320 km
RARIK 84020 þverslár 1070 stk.
Oþnunardagur: Þriðjudagur 11. desember 1984 kl.
14.00
Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkis-
ins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, fyrir opnunartíma
og verða þau opnuð á sama stað að viðstöddum þeim
bjóðendum sem þess óska.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Rafmagnsveitna
ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, frá og með
mánudeginum 12. nóvember 1984 og kosta kr.
200.00 hvert eintak.
Rafmagnsveitur ríkisins,
Laugavegi 118, 105 Reykjavík
Hafnarfjarðarbær
Útboð - viðbygging
Hafnarfjarðarbær leitar tilboða í viðbyggingu Hafnar-
borgar Strandgötu 34. Húsinu á að skila fokheldu og
frágengnu að utan 20. ágúst 1985.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu bæjarverkfræð-
ings Strandgötu 6, gegn 3000 kr. skilatryggingu. Til-
boð verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 20. nóv. kl.
11.00.
Bæjarverkfræðingur
Rannsóknastofnun
fiskiðnaðarins
óskar eftir að ráða útibússtjóra á Neskaupstað frá og
með áramótum. Menntun í efnafræði, efnaverkfræði
eða matvælafræði áskilin.
Upplýsingar veitir forstjóri í síma 20240.
FÉLAGSMÁLASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Heimilishjálp
Starfsfólk óskast í heimilishjálp.
Tilvalið fyrir húsmæður og skólafólk, sem hefur tíma
aflögu. Geta unnið 2 saman ef óskað er.
Upplýsingar veittar í síma 18800.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og
útför föður okkar, tengdaföður, vinar og afa
Siggeirs Lárussonar
bónda, Kirkjubæjarklaustri.
Guðm. Guðmundsson „ERRO“
Lárus Siggeirsson Ólöf Benediktsdóttir
Kristinn Siggeirsson Ólafía Jakobsdóttir
Gyða S. Siggeirsdóttir Magnús Einarsson
Guðlaug Sveinsdóttir og barnabörn.
Öliðjuver víð Aðalstrceti
Nú er verið að gera næstelsta
hús í Reykjavík að bjórkrá. Fer
vel á því þó að húsið sé fyrrver-
andi biskupssetur. Biskupinn,
sem bjó þar, hét Geir Vídalín,
kallaður góði. Hann var feitur og
makráður og sjálfsagt ölkær eins
og flestir lærðir menn á hans tíð.
Og það fer líka vel á því að hafa
ölkrá í elsta iðnaðarhúsi íslend-
inga því að þetta hús, Aðalstræti
10, stendur eitt eftir af iðjuveri
Skúla fógeta. En ölgerð hófst
með landnámi Ingólfs.
Og þó að verði slagsmál í hús-
inu hefur það séð annað eins því
að Jörundur hundadagakonung-
ur og sá armi þrjótur Savignac
voru með nokkra uppivöðslu í
þessu húsi á dögum Geirs góða.
Og færi vel á því að kyrjaðir yrðu í
kránni söngvar Jónasar Árnason-
ar úr Jörundarfarsa hans. Einnig
mætti syngja „Jón Sigurðsson var
sveitungi óþekktrar konu“ eftir
Megas því að í þessu húsi gisti Jón
Sigurðsson hjá Jens bróður sín-
um á 7. áratug 19. aldar.
Já, þetta hús hefur fylgst með
Reykjavík og börnum hennar allt
frá vöggu og kynni frá mörgu að
segja hefði það mál. Og ef ekki er
hægt að komast í stemmningu yfir
ölglasi í „Hus til Klædevarernes
Conservation og Underkpb-
mandens Logemente“, eins og
það er kallað í 200 ára gömlum
skjölum, þá er hvergi hægt að
komast í stemmningu.
Einn hængur er þó á og hann
eigi alllítill. Á íslandi er ekki leyft
það öl sem menn kneyfa á Hviids
Vinstue og öðrum gömlum ís-
lendingakrám í Kaupmannahöfn
heldur verða menn hér að belgja
sig fulla af einhverju sulli sem
enginn veit hvað inniheldur. Nú
er að vísu frumvarp á Alþingi um
að leyfa á ný elstu iðngreinina og
vonandi verða alþingismenn ekki
að athlægi enn einu sinni með því
að synja því framgangs. Það
hlýtur að vera skárra að drekka
alvörubjór en platbjór ef áfeng-
ismagnið er það sama. Úr því að
áfengisbölið hefur hvort sem er
sinn gang.
Ölkrár innan gæsalappa
sprettá nú upp í Reykjavík og
best færi á því að hafa þær flestar
niðri í kvos og ekki síst í Aðal-
stræti sem hefur langa hefð í þeim
efnum. Hvar nema í Aðalstræti 5
var hin fræga og alræmda Svína-
stía á síðustu öld. Þar héldu snill-
ingar til og að öðrum ólöstuðum
má nefna sjálfan Þórð Malakoff
sem íslendingar hafa síðan sung-
ið um við hin margvíslegustu öl-
teiti. Og þegar Benedikt Gröndal
fór á túr fór hann í sínu verstu
larfa og hélt niður í Svínastíu.
Og í Aðalstræti voru fleiri
frægir samkomustaðir sem of
langt yrði að telja upp enda er nú
„Snorrabúð stekkur". Nýja öl-
kráin fellur því vel að anda gömlu
Reykjavíkur en helst þyrfti að
gera húsið upp sem uppruna-
legast. Mér sýnist að nú eigi ekki
að færa framhliðina meira en 60-
80 ár aftur í tímann og láta þar við
sitja. En koma tímar og koma
ráð.
-Guðjón
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
AB-Seltjarnarnesi
Aðalfundur
Aðalfundur verður haldinn þriðjudaginn 13. nóvember í sal Tónlist-
arskólans á Nesinu (Heilsugæslustöðin 2. hæð). Dagskrá: aðal-
fundarstörf og umræður um stjórnmálaástandið.
- Stjórnin.
AB-Keflavík
Aðalfundur
Aðalfundur félagsins í Keflavík verður haldinn þriðjudaginn 13.
nóvember kl. 20.30 í húsi Stangveiðifélagsins Suðurgötu 2. Dag-
skrá: 1) Venjuleg aðalfundarstörf. 2) Önnur mál. Inntaka nýrra
féiaga.
Stjórnin
Alþýðubandalagið Hafnarfirði
Aðalfundur bæjarmálaráðs
Aðalfundur Bæjarmálaráðs ABH verður haldinn í Skálanum
Strandgötu 41, mánudaginn 12. nóv. kl. 20.30. Áríðandi er að allir
fulltrúar í ráðinu og nefndarmenn flokksins mæti. Félagsmenn eru
minntir á að fundir bæjarmálaráðs eru öllum opnir.
Stjórnin
Félagsmálanámskeið - Kópavogi
N.k. mánudagskvöld kl. 20.00 verður haldinn rabbfundur um
fundarsköp og fleira. - Hópurinn.
Skólamálahópur AB
Næsti fundur skólamálahópsins verður haldinn fimmtudaginn 15.
nóvember n.k. kl. 20.30 að Hverfisgötu 105, Reykjavík.
Umræðuefni: Stefnumótun AB í málefnum framhaldsskólans.
Framhaldsumræða.
Hópurinn er opinn öllu áhugafólki um skóla- og menntamál.
- Stýrihópurinn.
Konur-
1985 nálgast!
Miðstöðin minnir allar konur á
undirbúning vegna loka
kvennaáratugsins 1985.
Fimm opnir hópar hafa hafið
störf á vegum ’85 nefndarinn-
ar, sem 23 samtök kvenna
standa að.
Hóparnir eru:
Gönguhópur
Listahátíðarhópur
Alþjóðahópur
Fræðsluhópur
Atvinnumálahópur.
Skráið ykkur til starfa strax.
Allar upplýsingar um fundar-
tíma og starf hópanna fást hjá
Jafnréttisráði, síminn er
27420.
Kvennafyikingin.
Félagsvist ABR
Hin vinsæla félagsvist ABR
hefst á þriðjudaginn, 13. nóv-
ember. Þá byrjar þriggja
kvölda keppni undir stjórn Vil-
borgar Harðardóttur og Dag-
bjartar Gunnarsdóttur.
Keppnisdagar eru: 13. nóv.,
27. nóv. og 11. desember.
Félagsvistin hefst klukkan 20
stundvíslega. Lyftan er komin
í húsið. Kaffi og meðlæti.
Stjórn ABR.
14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 11. nóvember 1984