Þjóðviljinn - 16.11.1984, Blaðsíða 1
HEIMURINN
ATVINNULÍF
Kvótafrumvarpið
Fallið í efri deild?
Nokkrir stjórnarþingmenn andvígir frumvarpi sjávarútvegsráðherra um
kvótakerfi nœstu 3 árin. Líklegt það verði fellt á jöfnum atkvœðum óbreytt.
Svo getur farið að fiskveiði-
stefnufrumvarp sjávarútvegs-
ráðherra sem gerir ráð fyrir kvót-
afyrirkomulagi við fískveiðar
næstu þrjú árin verði fellt af efri
deild alþingis.
8 stjómarandstöðuþingmenn í
deildinni eru allir á móti frum-
varpi ráðherrans, og að öllum lík-
indum em minnst tveir stjórnar-
þingmenn sömu skoðunar. Það
Alusuisse
Þaká
oikuverði
til aldamóta
Nýi samningurinn gefur
13.4 millidali - heims-
markaðsverð uppí 30!
„Þeirri blekkingu hefur verið
haldið á lofti að hinn nýi samning-
ur feli sér verðtryggingu f sam-
ræmi við markaðsverð á áli. Ef
nánar er athugað, þá sést að það
er ekki tengingin við álverðið
skiptir máli í þessu sambandi,
heldur það þak sem sett er á orku-
verðið allt til ársins 2004“. Þetta
segir Ólafur Gíslason í fréttaskýr-
ingu um álsamninginn nýja á bls.
14-15 í Þjóðviljanum í dag.
í fréttaskýringunni er bent á að
reiknað sé með að almennt fari
markaðsverð á raforku til stór-
iðju uppí 30 millidali á næstu
ámm. Hins vegar er gert ráð fyrir
því í nýja samningnum að orku-
verðið til Alusuisse-hringsins
verði 13.4 millidalir á næstu fimm
ámm. Kostnaðarverð á orku frá
Landsvirkjun fyrir næsta ár er
áætlað 20.8 millidalir.
Sjá bls. 14-15
Gengisfellingin
Stendur í
stjóminni
Þingflokkar Sjálfstæðisflokks-
ins og Framsóknarflokksins sátu
á árangurslausum fundum í gær
til að reyna að berja saman til-
lögur í efnahagsmálum. Fyrir
utan gengisfellingar hefur ekkert
verið fastákveðið ennþá.
Töluvert ber á ósamkomulagi
innan flokkanna en auk þess er
liðið svo á tímann, að þeir vilja
bíða úrslita atkvæðagreiðslna í
verklýðsfélögunum um samning-
inn. Gengisfellingunni hefur því
verið frestað um sinn en talið er
að til úrslita dragi um eða eftir
helgina.
-ós/óg
eru þeir Þorvaldur Garðar Krist-
jánsson þingmaður Vestfirðinga
sem þegar hefur lýst harðri and-
stöðu sinni við frumvarpið og
Eyjólfur Konráð Jónsson sem var
í mörgum atriðum mótfallin
kvótafyrirkomulaginu er það var
afgreitt á þingi í fyrra og mun að
öllum líkindum greiða atkvæði
gegn frumvarpi sjávarútvegsráð-
herra eins og það liggur fyrir al-
þingi núna.
Við 1. umræðu um frumvarpið
á Alþingi í fyrradag sagði Þor-
valdur Garðar Kristjánsson m.a.
að menn hefðu talið rétt að gera
tilraun með kvótakerfið í eitt ár
til að afla reynslu og nú væru
menn reynslunni nlcari. „Sú
reynsla sýnir okkur að engin efni
standa til þess að við festum kvót-
akerfið til frambúðar heldur
þvert á móti að við afnemum
það“.
Skúli Alexandersson sagði að
ráðherra væri að sækjast eftir
allsherjar fiskveiðistjórnun á
miðunum umhverfis landið næstu
þrjú árin. Hér væri verið að fara
inn á vafasama braut sem þegar
hefði sýnt sig að væri neikvæð
fyrir íslenskan sjávarútveg. Ein
alvarlegasta afleiðing kvótakerf-
isins væri sú að í stórum mæli
hefði veiddur afli alls ekki skilað
sér á land heldur verið kastað aft-
ur fyrir borð í von um að draga
verðmeiri afla uppí kvótann.
Menn hefðu miklu frekar nálgast
hættu á hruni fiskstofnanna með
kvótakerfinu en þeim aðferðum
sem áður voru notaðar við veiði-
stjórn.
->g-
Lambakjötskrokkar
42% dýrara kjöt
Heildarverð lambakjötskrokka í
smásölu er ákveðið afsexmanna-
nefnd en hins vegar ákveða kaup-
menn álagningu á einstökum hlutum.
Skyndikönnun Þjóðviljans á verði
íslensks lambakjöts hér og í Dan-
mörku leiðir mikinn verðmismun í
Ijós.
Islenskt lambakjöt er mun ódýrara í verslun f Danmörku en hér
heima. Er verðmunurinn 42% á heilum skrokkum og kom þetta í ljós
við skyndiathugun sem Þjóðviljinn gerði á verði lambakjöts f tiltekinni
verslun í Reykjavfk annars vegar en Kaupmannahöfn hins vegar. Við
samanburðinn kom eftirfarandi f ljós:
Tegund Danmörk ísland Verðmunur í %
Svið 78.00 kr. 78.00 kr. 0%
Hryggur 187.69 kr. 204.50 kr. 9%
Súpukjöt 146.00 kr. 185.00 kr. 26.7%
Læri 187.60 kr. 218.30 kr. 16.2%
Kótilettur 221.00 kr. 220.00 kr. 0%
Saltkjöt 156.30 kr. 189.00 kr. 21.0%
Skrokkar 104.20 kr. 147.90 kr. 42.0%
Londonlamb 218.70 kr. 280.00 kr. 28.0%
Nýru 104.20 kr. 115.00 kr. 10.4%
Hjörtu 84.50 kr. 115.00 kr. 36.0%
Lifur 65.70 kr. 115.00 kr. 75.0%
Sexmannanefnd ákveður heildarverð lambaskrokksins í smásölu
hér á landi. Hins vegar hefur kaupmönnum verið gefið frelsi til að
ákveða álagningu á einstökum hlutum skrokksins. Þeir geta því selt
vinsælustu bitana, t.d. læri og hrygg á uppsprengdu verði en notað svo
slög og annað sem illa selst til að halda verðinu innan þeirra marka sem
sexmannanefnd ákveður. -jp.
Það er ekki sama hvar þú kaupir lambaskrokkinn, sem kjötiðnaðarmaðurinn á
myndinni heldur á. (Atli).
Alþýðuflokkur
Hef ekki áhuga
Jón Þorsteinsson hafnar sœti á landsfundi
Eg er alveg laus við allar áhyggj-
ur af þessum formannsslag í
Alþýðuflokknum, hann skiptir
mig ekki máli til eða frá. Það er
rétt að ég var kjörinn á þetta
flokksþing. Það var hinsvegar
gert án þess að tala við mig og því
hafnaði ég þessu og minn vara-
maður hlýtur að taka við.
Þetta sagði Jón Þorsteinsson,
lögfræðingur og fyrrverandi ;
þingismaður Alþýðuflokksir
en hann hefur neitað að ta:
kjöri á landsfund flokksins se
hefst í dag.
Jón sagðist vera búinn að mis
allan áhuga á þessum málum. 1
er bara hættur, svo einfalt er þ
og því fer ég ekki á flokksþinj
-S.d