Þjóðviljinn - 16.11.1984, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 16.11.1984, Blaðsíða 4
LEIÐARI Hagfræðingar hafna gengisfellingu Síðustu daga hafa fjölmiðlar flutt fréttir um gengisfellingaráform ríkisstjórnarinnar. DV birti í gær á forsíðu viðtal við forystumann úr stjórnarliðinu sem fullyrðirað 12-14% gengis- felling verði ákveðin næstu daga. Síðan muni koma í kjölfarið strax á næsta ári 5-8% gengis- felling til viðbótar. Það er því greinilega til um- ræðu í ríkisstjórninni að fella gengið á næst- unni um yfir 20%. Fer þá þessi stjórn Sjálf- stæðisflokksins og Framsóknarflokksins að verða með mestu gengisfellingarstjórnum enda hóf hún feril sinn á slíku verki. í Þjóðviljanum á miðvikudaginn voru birt við- töl við tvo hagfræðinga, Má Guðmundsson hjá Seðlabanka Islands og Birgi Björn Sigurjónsr son sem nú starfar hjá Bandalagi háskóla- manna en hefur sl. ár kennt við Stokkhólmshá- skóla. Báðir þessir hagfræðingar vara ein- dregið við gengisfellingu. Hún sé ekki leiðin út úr efnahagsvandanum á íslandi. Þar séu aðrir kostir betri. Röksemdir Más Guðmundssonar eru svo- hljóðandi: „Það eru vissulega til aðrar leiðir en gengis- felling. Spurningin um hvaða leið er valin er hins vegar ekki tæknileg eða efnahagsleg, heldur pólitísk. Spurningin er um hvaða ríkis- stjórn er við völd og hverjum hún þjónar. Verkalýðsstjórn mundi við núverandi aðstæð- ur fara aðrar leiðir en að fella gengið. Slík stjórn mundi minnka ráðstöfunartekjur há- tekjuhópa með sköttum eða skyldusparnaði á hæstu tekjur. Hún mundi leggja aukna skatta á þær greinar sem bera sig vel, til dæmis endur- nýja þá fyrirtækjaskatta sem núverandi ríkis- stjórn hefur lagt niður. Og slík stjórn mundi ná tökum á fjárfestingunni í landinu, draga úr óþarfafjárfestingum og erlendum lántökum sem þeim fylgja. Þessar þrennskonar aðgerðir valda minni eða óbreyttri eftirspurn innanlands, á heildina litið, og koma þannig í veg fyrir að viðskipta- hallinn aukist - á sama tíma og kaupmáttur almenns launafólks eykst. Slíkar aðgerðir mundu tryggja að kjarasamningar fælu í sér raunverulega tekjutilfærslu milli þjóðfélags- hópa.“ Már Guðmundsson bendir einnig á ýmsar aðrar aðgerðir, svo sem lækkun olíukostnaðar og farmgjalda, endurskipulagningu á sjávarút- veginum og á starfsemi margvíslegra milliliða- fyrirtækja. í viðtali við Þjóðviljann sagði Birgir Björn Sigurjónsson hagfræðingur að nauðsynlegt væri að leysa vanda sjávarútvegsins með öðr- um tækjum en gengisfellingu. Hann benti á að í umræðum hér á landi væri oft blandað sam- an tvennum vanda. Annars vegar vanda sem skapaðist vegna sveiflna í sjávarafla og á fisk- mörkuðum. Hins vegar almennri kostnaðar- aukningu innanlands. Síðan sagði Birgir Björn: „Ég held að nú sé gæfulegra að taka á vanda sjávarútvegsins með beinum fjármála- aðgerum ríkisins og stærri verðjöfnunarsjóði sem gæti raunverulega jafnað sveiflurnar. Menn verða að skilgreina það til hvers þeir vilja nota gengisfellingartækið. Það er óheppi- legt að nota gengisfellingu til að jafna sveiflur í sjávarútvegi... Besta skýringin fæst með því að líta á söguna. Þetta hefur aldrei dugað, þótt gengið hafi verið fellt bæði þegar illa er ástatt í sjávarútvegi og þegar vel er ástatt í sjávarút- vegi.“ Þessi viðvörunarorð hagfræðinganna tveggja ættu að vera ráðherrunum tilefni til alvarlegrar umhugsunar um að hafna nú gengisfellingarleiðinni og taka upp nýjar að- ferðir. KLIPPT 0G SKORIÐ Blekkingar Alexander Stefánsson félags- málaráðherra er maður mikilla reiknikúnsta. Ekki var hann fyrr sestur í ráðherrastólinn en hann tók að reikna það út, að sú ríkis- stjórn sem hann situr í hafi stór- aukið framlög til félagsmála; til fatlaðra og húsnæðismála svo dæmi séu nefnd. NT, sem er nýtt blað og á enga forsögu, hefur ver- ið að éta þetta upp eftir ráðherr- anum, sennilega afþví blaðið veit ekki betur. (Aldrei hefði Þórar- inn látið hafa sig útí svona endi- leysu.) í Þjóðviljanum í gær tekur Helgi Seljan Alexander þing- bróður sinn heldur betur á beinið og kveður fullyrðingar ráðherr- ans um fjárveitingar til málefna fatlaðra „ósvífnar blekkingar". Par er og rifjað upp að formaður Þroskahjálpar hafi sagt frá því að framlög til framkvæmdasjóðs fatlaðra hefðu verið skorin niður um 48% frá lögbundnum fram- lögum! Formaðurinn Heitir Egg- ert Jóhannsson og gott ef hann er ekki góður og gegn Framsóknar- maður. Pannig sameinast hinir vönduðustu menn um að hnekkja hæpnum yrðingum félagsmála- ráðhérrans. Arðurinn En hvar hefur þessi lærði reikningsmaður úr kaupfélaginu í Ólafsvík lært á tölur? Illar tungur herma að reiknikúnst Alexand- ers núna sé svosem ekkert mál, - það hafi verið meiri snilld hjá honum um árið, þegar hann var kaupfélagsstjóri í Ólafsvíkinni - og kaupfélagið fór á hausinn. Sama ár - gjaldþrotaárið - var kaupfélagsstjórinn höfðinglegri en nokkru sinni og greiddi út arð! Aldrei hefði Ólafsvíkur-Kalla dottið í hug að gera annað eins - og lék þó greifa í útlöndum, eins- og segir í bók Jónasar Árnasonar • og Jóns kadetts sem var að koma út að nýju. Jamm, syndin er lævís og lipur. Samanburðar- fræðin í samanburðarfræði Alexand- ers ær ein meginforsenda í öllum málum sú, að bera saman 1982 „síðasta stjórnarár . Svavars Gestssonar" við árin 1983 og 1984. Staðreynd málsins er hins vegar sú, að ríkisstjórn Gunnars Thoroddsen ríkti fram á mitt ár 1983 - og það sem skiptir meiru, að 1983 er síðasta fjárlagaár þeirrar ríkisstjórnar. Þess vegna væri rökréttar að bera saman það ár við fjárlagaárin 1984 og 1985 þegar áhrifa Alberts Guðmunds- sonar og bróður hans í andanum, Alexanders Stefánssonar, fer verulega að gæta. Áður hefur verið getið um blekkingarnar í málefnum fatl- aðra. Ekki er nú málflutningur- inn burðugri þegar kemur að húsnæðisgeiranum. Þannig ber Alexander saman í einni bendu frá 1981 til 1984, bæði Byggða- sjóðs ríkisins og Byggingasjóð verkamanna. Að sjálfsögðu nefnir hann einungis krónutölu en ekki verðlagsbreytingar. Þannig nefnir hann ekki að bygg- ingavísitalan var 1982 (október) 1331 en í ár 2490. Og að sjálf- sögðu ekki að kaupmáttur hafi rýrnað svo að, nú tekur það ein- stakling tveimur árum lengur að vinna fýrir meðalíbúð en það gerði í tíð síðustu stjórnar. Meiraðsegja Heimdellingarnir í Sjálfstæðisflokknum sjá ástæðu til að benda á mistök Alexanders og kosningasvik á halelúja- samkomum sínum. í Mogganum í gær er minnt á það í ályktun frá Heimdalli að báðir stjórnarflokk- arnir hafi sett stefnuna á 80% lánshlutfall frá Byggingasjóði ríkisins. Það hlutfall sé nú 29.1 %. Þar fyrir utan hefur lítið fjármagn verið til hjá Byggingasjóðunum, og ekki borgað út fyrr en eftir dúk og disk - og þá með erlendum lánum. Ástæðan Sfargir spyrja sig hvers vegna Alexander Stefánsson sé með þessi læti núna, - það hafi ekkert heyrst í manninum (amk. miðað við árið sem hann lenti á þingi) í ráðherrastólnum fyrri. Flestir leita skýringanna í Framsóknar- flokknum og í kjördæmi ráðherr- ans. Flestir telja að Alexander hafi ekki borið sitt barr eftir að hafa með bolabrögðum troðið sér í fyrsta sæti á framboðslista. Þá hafi örlað á baklandi hjá honum (menn í Ólafsvík mundu eftir arðinum!) og kappinn var sköru- legur á málfundum heima í hér- aði. En hann hefur ekki mátt vera að því að sinna kjördæminu svo mjög uppá síðkastið. Og bændur í Borgarfirði kunnu aldrei al- mennilega að meta þennan fram- gjarna mann úr Ólafsvíkurkaup- félaginu. Davíð á Arnbjarnarlæk Aðal- steinsson er líka orðinn dálítið þreyttur á rausinu í Alexander og er til þess líklegur að notfæra sér mistök, afglöp og óvinsældir ráð- herrans til að skjóta honum niðurfyrir sig á framboðslista Framsóknar í Vesturlandskjör- dæmi næst. Steingrímur Steingrímur Hermannsson for- sætisráðherra og Framsóknar- flokkurinn allur gerir sér grein fyrir því að flokkurinn er orðinn afskaplega óvinsæll vegna frammistöðunnar í félagsmálum. Og þegar Þorsteinn reyndi að troða sér inní stjórnina með Al- þýðuflokknum á dögunum, setti Steingrímur það skilyrði að Framsóknarflokkurinn fengi líka að fórna einu ráðuneyti fyrir krata. Þetta hefur Steingrímur eiginlega staðfest í viðtali við DV á dögunum. Allir vissu að for- maðurinn átti þá við að Fram- sókn slyppi við húsnæðismálin (og Alexander) sem búið er að klúðra. Steingrímur ætlaði að koma sínum flokki undan ábyrgðinni af ófremdarástandinu í húsnæðismálum, - og fá krata til að axla ábyrgðina. Þannig ætlaði hann að fórna Alexander. En það er vart fyrir Alexander að treysta því að Steingrímur taki hann í náðina bara fyrir að fara með bægslagangi að Svavari Gestssyni og sannleikanum. Hæpnar full- yrðingar verða aldrei annað en hæpnar. -óg DJÚÐVIUINN Málgagn sósíalisma, þjóöfrelsis og verkalýöshreyfingar Utgefandi: Útgáfufólag Þjóöviljans. Rft«t}órar: Ámi Bergmann, össur Skarphóðinsson. — Ritstjómarfulttrúl: Oskar Guðmundsson. Fréttaat|óri: Valþór Hlöðversson. Biaðamann: Álfheiður Ingadóttir, Ásdís Þórhallsdóttir, Guðjón Fóðriksson, Jóna Pólsdóttir, Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gíslason, Möröur Ámason, Ólafur Gíslason, Sigurdór Sigurdórsson, Viðir Sigurösson (íþróttir). yóamyndir: Atli Arason, Einar Karisson. Utllt ofl hönnun: Filip Franksson, Þröstur Haraldsson. Handrfta- og prófaricalaatur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar. Framkvœmdastjórl: Guðrún Guðmundsdóttir. Skrifstofustjóri: Jóhannes Haröarson. Auglýsingaatjóri: Ragnheiður Óladóttir. Auglýsingar: Anna Guðjónsdóttir, Margrót Guðmundsdóttir. Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson. Afgraiðsla: Bóra Sigurðardóttir, Kristín Pótursdóttir. Simavarala: Ásdís Kristinsdóttir, Sigrfður Kristjánsdóttir. Húsmœður: Bergljót Guðjónsdóttir, Ólöf Húnflörð. Innhsimtumann: Brynjólfur VilhjóJmsson, Ólafur Bjömsson. Utkeyrsla, afgreiðsla, auglýsingar, ritstjórn: Síðumúla 6, Reykjavík, sími 81333. Umbrot og setnlng: Prentsmiðja Þjóðviljans hf. Prentun: Blaðaprent hf. Verð I lausasölu: 22 kr. Sunnudagsverð: 25 kr. Áskriftarverð ó mónuði: 275 kr. ' 4 SÍÐA - ÞJÖÐVIUINN Föstudagur 16. nóvember 1984

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.