Þjóðviljinn - 25.11.1984, Side 3
Dýrasta
jólabókin
Dýrasta jólabókin sem kemur
út á þessu ári er án efa ensk-
íslenska orðabókin sem Örn
og Örlygur gefur út. Vinna við
bókina hefur tekið mörg ár og
fjöldi manns komið nálægt
verkinu. Prentaraverkfallið í
haust setti alvarlegt strik í
reikninginn og um tíma var tal-
ið að útgáfan væri að fara á
hausinn. Fjárhagur útgáfunn-
ar er vissulega verulega
slæmur þótt tekist hafi að
koma orðabókinni á prent, því
fyrir skömmu barst fjárveit-
inganefnd Alþingis beiðni frá
útgáfunni um styrk uppá 3-5
miljónirtil að bjarga málunum.
Það sem vakti þó eina mesta
athygli nefndarmanna er upp-
lýst var að vegna útgáfu orða-
bókarinnar hafi verið tekið
nokkurra miljón króna erlent
lán. ■
Snúður á
Guðmundi G.
Blaðamenn á NT fengu
óvænta en lítt spennandi
heimsókn á ritstjórnarskrif-
stofurnar í vikunni. Þar var
mættur álprinsinn Guðmund-
ur G. Þórarinsson sem fann
sig knúinn til að messa dug-
lega yfir blaðamönnum fyrir
skrif blaðsins um afrek sín í
álmálinu. NT hefur lítið gert í
því að hampa hinum ömur-
lega álsamningi heldur tekið
þá stefnu að þegja sem fast-
ast yfir ósköpunum. Sama var
að segja um fundinn með ál-
prinsinum, blaðamenn þögðu
sem fastast en höfðu lúmskt
gaman af afrekasögu Guð-
mundar sem tilkynnti er hann
hélt snúðugur af fundinum að
honum yrði aftur mæta, tækju
blaðamenn ekki sönsum. ■
I
Að fæðast
inn í flokka
Mönnum verður tíðrætt um
pólitískar erfðir í hinum ýmsu
flokkum. Jón Baldvin Hanni-
balsson, nýkjörinn formaður
Alþýðuflokksins, lét þess get-
ið í ræðu að hann væri fæddur
í Alþýðuhúsinu á ísafirði og
sagði það ekki vera tilviljun að
hann væri nú í Alþýðuflokkn-
um. Hitterlíklega ekki tilviljun
heldur að Geir Hallgrímsson
utanríkisráðherraog fyrn/. for-
maður Sjálfstæðisflokksins er
fæddur [ gamla Sjálfstæðis-
húsinu við Austurvöll þar sem
nú er matstofa Landsímans.
Fortíðin í
Alþýðuflokknum
Og enn um Jón Baldvin. Hann
sagði í samtali við útvarpið um
ÞJÖÐVILJINN - SÍÐA 3
síðustu helgi að fortíð Alþýðu-
bandalagsins væri svo
óbermileg að ekki væri líklegt
að það gæti sameinað vinstra
fólk undir sinni forystu. Hann
hefur líklega ekki hugleitt það
þegar hann lét þessi orð falla
að fortíð Alþýðubandalagsins
liggur öll í Alþýðuflokknum.
Kommúnistaflokkurinn var
stofnaður árið 1930 sem
vinstri klofningsflokkur úr Al-
þýðuflokknum og árið 1938
var Sósíalistaflokkurinn stofn-
aður með sameiningu vinstri
arms Alþýðuflokksins og fé-
laga úr Kommúnistaflokknum
sem þá var lagður niður. Svo
var það árið 1956 að enn gekk
vinstri armurinn (þá að vísu
orðinn dálítið afvatnaður) úr
Alþýðuflokknum og stofnaði
Kosningabandalag með Sósí-
alistaflokknum sem fékk nafn-
ið Alþýðubandalag. Síðan
hefur vantað vinstri arminn á
Alþýðuflokknum - eða svo til.
Graðgönguhljóð
Þórbergur Þórðarson rithöf-
undur var einn af frum-
kvöðlum í íslenskri orðfræði
og samdi meðal annars
leiðarvísi um orðasöfnun, og
var einn aðstoðarmanna Sig-
fúsar Blöndals við Blöndals-
orðabók. Orðasafn hans er nú
í vörslu Orðabókar Há-
skólans. Þar kennir margra
grasa, meðal annars eru þar
skýringar við orðið grað-
ganga. Þæreru svohljóðandi:
„Graðganga, leikur prent-
ara fólginn í því, að einhver
einn prentaranna er tekinn,
þannig, að maður fer aftan að
honum, tekur fram um
mjaðmirnar og utan um pung-
inn og því næst tekur annar
þann mann yfir um mittið og
svo fleiri koll af kolli, uns stroll-
an er orðin löng, þá fer hún á
hreyfingu og pungurinn er
kreistur á þeim sem fremstur
stendur, unz hann gefur af sér
vein, graðgönguhljóð" ■
Nokkur vátryggingarfélög hafa undanfáriö
kvatt sér hljóös varðandi bílatryggingar og boö-
aö prósentulækkanirá brúttóiögjöldum.
Af bví tilefni vilja Almennar Tn/ggingar hf.
benda viðskiptavinum sínum og almenningi á
eftirfarandi:
Hár prósentuafsláttur af háu brúttóiðgjaldi
segir einungis hálfa sögu. Raunar er ólíklegt aö
slík reikningsdæmi gefi hagstæðasta útkomu
fyrir neytendur. Aörar leiðir eru ekki síðri, - t.d.
breytt skráning iðgjalda - ööruvísi iögjöld.
Þaö sem mestu máli skiptir fyrir neytendur
er aö sjálfsögöu aö greiða sem minnst fyrir
þjónustuna á hverjum tíma og fá sem besta
þjónustuístaðinn.
Stefnan er því Ijós, Almennar Tryggingar
munu sem nútíma þjónustufyrirtæki ávallt hafa
hagsmuni viöskiptavina sinna í fyrirrúmi og
bjóöa kjör sem allir geta fellt sig við.
ÆiriilSiTiieT?
TRYGGINGAR