Þjóðviljinn - 25.11.1984, Blaðsíða 4
Björn Þórhallsson
varaforseti ASÍ
tekinn ó beinið
Alþýöusambandsþing, hiö
35. í röðinni, hefst á mánu-
daginn. Þar munu mörg mái
verða á dagskrá en aö öllum
líkindum munu nýgerðirkjar-
asamningar verða ræddir,
skerðing ríkisvaldsins á þeim
með gengisfellingunni fyrr í
vikunni auk þess sem kjara-
rán síðustu missera mun ef-
laust verða á dagskrá. Björn
Þórhallsson er varaforseti AS(
en jafnframt miðstjórnarmað-
ur í öðrum ríkisstjórnarflokkn-
um, Sjálfstæðisflokknum. Við
tókum Björn á beinið.
Finnst þér að þú berir ábyrgð á
kjaraskerðingarstefnu stjórn-
valda síðustu mánuðina og finnst
þér vera þín í miðstjórn Sjálf-
stæðisflokksins samrýmast stöðu
þinni sem varaforseti ASÍ?
„Ég er alls ekki fulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins í stjórn Alþýðu-
sambands íslands. Ég er þar sem.
einlægur verkalýðssinni og for-
maður Landsambands verslunar-
manna. Auðvitað á ég minn þátt í
því að móta stefnu Sjálfstæðis-
flokksins en ég dreg enga dul á þá
skoðun mína að forysta flokksins
hefur gengið allt of langt í kjara-
skerðingunni og að ég firri mig
allri ábyrgð á þeim verkum. Ég
hef eftir mætti reynt að beita mín-
um áhrifum innan flokksins til að
koma í veg fyrir þessa gífurlegu
skerðingu á kjörum launafólks og
tel það styrk fyrir mig sem vara-
forseta ASÍ að geta barist innan
frá í Sjálfstæðisflokknum."
Áttu von á því að þú eða aðrir
Sjálfstæðismenn í áhrifastöðum
innan Alþýðusambandsins verði
látnir gjalda tengsla ykkar við
flokkinn þegar kemur að kosn-
ingu í trúnaðarstöður á ASÍ-
þinginu?
„Nei, ég á ekki von á því. Ég
hef ekki heyrt um neinar tilraunir
til að gera alvarlegar breytingar á
ASÍ forystunni og alls ekki um
neinn samblástur gegn mér eða
mínum skoðanabræðrum. En
auðvitað er maður við öllu bú-
inn.“
Ert þú því hlynntur að fjölgað
verði í miðstjórn ASÍ?
„Já, ég er því hlynntur sérstak-
lega ef það má verða til að auka
hlut kvenna þar. Hins vegar vil ég
að svo stöddu ekki binda niður
töluna sem slíka, mér finnst t.d.
ekkert sjálfgefið að eigi að fjölga
um 4 miðstjórnarmenn. Ýmislegt
annað kemur til greina.“
Nú er forysta Alþýðusam-
bandsins og stærri verkalýðsfé-
laganna stundum sökuð um að
vera úr tengslum við hinn al-
menna félagsmann. Ert þú sam-
mála þessu?
•>Ég er þessu alls ekki sam-
mála. Hins vegar er það ljóst að
við forystumennirnir gerum
aldrei nóg af því að tala við hina
almennu félaga en hjá okkur eins
og annars staðar koma fram vissir
gallar fulltrúalýðræðisins."
Nú varst þú að skrifa undir
samninga sem gera ráð fyrir rúm-
lega 14.000 króna lágmarkslaun-
um. Hefur þér einhvern tíma
dottið i hug að hægt sé að iifa af
slíkum launum?
„Nei, það hefur mér aldrei
komið til hugar. Aftur á móti vit-
um við að oftast nær eru tvær
fyrirvinnur fyrir hverju heimili og
þær geta í sameiningu látið end-
ana ná saman auk þess sem lág-
tekjufólk verður að leggja á sig
mikla vinnu til að ná því marki.“
Deilið þið forystumenn laun-
þegasamtakanna kjörum með
þessu fólki?
„Nei, það gerum við alls ekki.
Við verðum að beygja okkur
undir þau lögmál markaðarins að
greiða sérhæfðum starfsmönnum
í okkar þjónustu þau laun sem
gilda fyrir sambærilega krafta í
þjóðfélaginu. Það væri skolla-
leikur og óhreinskilni af mér ef ég
héidi því fram að við deilum
kjörum með okkar lægst launaða
fólki.“
Starfsfólk á skrifstofu ASÍ og
þar með launaðir forystumenn,
greiða í lífeyrissjóð opinberra
starfsmanna, en hann er mun
hagstæðari en lífeyrissjóður ASI.
Finnst þér þetta réttlátt?
„Ég veit raunar ekki nógu
mikið um þetta mál, en ég hygg
að það sé rétt hjá þér að á skrif-
stofum okkar greiða menn í líf-
eyrissjóð BSRB. Langt er um lið-
ið frá því þetta var ákveðið og
fyrir mína tíð í forystu Alþýðu-
sambandsins. Ég greiði hins veg-
ar í lífeyrissjóð verslunarmanna
og hef lengi gert.“
Aftur að Sjálfstæðisflokknum.
Nú hafa frjálshyggjumenn ráðið
talsvert um stefnu flokksins um
skeið. Ertu ánægður með þá þró-
un?
„Síður en svo. Fiokkurinn er
sprottinn úr jarðvegi frjálsiyndis
og frá þeirri stefnu hefur hann
verulega hvikað á síðustu árum.
Ég hef reynt að beita áhrifum
mínum til þess að kippt verði í
stýrið og flokkurinn sveigður af
hægri stefnunni, sem hefur
ráðið.“
Tilheyrir Þorsteinn Pálsson
hinurn dæmigerða hópi frjáls-
hyggjumanna i flokknum?
„Nei, ég tel Þorstein Pálsson
ekki klassískan frjálshyggjumann
en hins vegar hefur sú kredda
haft talsverð áhrif á flokksfor-
manninn. Því er ekki að neita.“
Nú á Sjálfstæðisflokkurinn
þátt í því að gengið var fellt um
daginn og Ví af ávinningum ný-
gerðra kjarasamninga er að engu
orðinn. Ætlar ASÍ að gera
eitthvað í málinu?
„Alþýðusambandið er bundið
af samningum allt fram til 1. sept-
ember á næsta ári. Ég á því ekki
von á neinum aðgerðum, svo sem
uppsögn samninga eða þess hátt-
ar. Hins vegar reikna ég með að
menn taki upp þráðinn í apríl
næsta vor og hefji viðræður til að
leiðrétta kaupmáttinn. Ég á von á
því að þá verði lögð áhersla á þau
atriði sem Verkamannasam-
bandið reyndi að halda sig við nú,
þ.e. að tryggja kaupmáttinn í
raun. Þessar aðgerðir ríkisvalds-
ins, sem menn raunar vissu fyrir
að myndu dynja yfir, sýna svo
ekki verður um villst að verka-
lýðshreyfingin hefði frekar átt að
leggja áherslu á tryggingu
kaupmáttar en miklar prósentu-
hækkanir á pappírnum.“
Nú hefur verið spáð 20-30%
verðbólgu á næsta ári og engin
ákvæði um verðtryggingu í samn-
ingum, enda bannað með lögum.
Hvenær verður búið að taka alla
launahækkunina til baka?
„Það er hörmulegt til þess að
vita en ég hygg að strax í apríl á
næsta ári standi launamenn jafnt
að vígi og þeir gerðu fyrir samn-
inga og raunar miklar líkur til
þess að þeir standi þá uppi með
lakari kaupmátt en þeir höfðu.“
Nú eru breytingar á skipulagi
ASI búnar að vera í áratugi á döf-
inni og verða ræddar á fyrirhug-
uðu þingi. Koma smákóngarnir í
einstökum félögum í veg fyrir
breytingar?
„Nei, sú er ekki ástæðan að
mínu viti. Ástæðurnar eru
auðvitað margar en fyrst og
fremst veldur þessari tregðu sú
staðreynd að innan verkalýðs-
hreyfingarinnar eru menn alls
ekkert vissir um að breyting væri
til bóta. Það er t.d. ekkert í nú-
verandi skipuiagi sem kemur í
veg fyrir að vinnustaðir verði
grunneiningar við samningagerð-
ina. Starfsmenn hjá ÍSAL eru
t.d. í ýmsum verkalýðsfélögum
og landsamböndum innan ASÍ en
koma sameiginlega fram við gerð
kjarasamninga við fyrirtækið.
Þetta er hægt að gera víðar. Ég vil
alls ekki gera breytingu á skipu-
lagi ASÍ breytingarinnar vegna
heldur er ég þess hvetjandi að
menn leiti leiða til að vinna innan
þess ramma sem núverandi
skipan mála setur okkur. Það er
ágætlega víður rammi.“
Skipulagi ASÍ verður því ekki
breytt á 35. þinginu?
„Nei, ég held að því verði ekki
breytt á þessu þingi en málin
verða rædd.“
-v
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 25. nóvember 1984