Þjóðviljinn - 28.11.1984, Page 2
FRETTIR
Ökumenn
Sjóvá: tjónlaus ökumaður eftir
fimm ár fær 55% bónus, eftir
tíu ár 65%. Samvinnutryggingar:
það sama og ellefta árið frítt.
Hagtrygging: þrjú ár tjónlaus
sama sem 50% bónus, fímm ár
55%, tíu ár 65% og ellefta árið
frítt. Þetta kemur fram í nýlegum
auglýsingum. Verðstríð þjá bif-
reiðatryggjendum?
Já, en önnur félög auglýsa líka
og segja að þetta sé ekkert að
marka, útkoman úr dæminu sé
óþekkt fyrren Tryggingaeftirlit
og samráðsnefnd tryggingafélaga
hafa ákveðið grunniðgjald og
bónusflokkakerfi á næsta ári.
Ástæða skæruhemaðar trygging-
afélaganna í dagblöðum uppá
síðkastið: uppsagnarfrestur bif-
reiðatryggingar er fyrsti desemb-
er næstkomandi.
Undanfarin ár hefur verið
fremur rólegt á þessum vígstöðv-
um. Tjónlausir ökumenn hafa á
nokkrum árum unnið sig uppí
50% bónus (þ.e. borga helming
iðgjalds) og haldið sér í honum.
Tryggingafélög
í skæruhemaói
Keppst um bestu bílstjórana fyrir uppsagnardag bifreiðatrygginga, 1.
des. Tryggingaeftirlit: engin mótmœli, engin afstaða fyrren seinna.
Úrslitin gætu orðið nýtt bónuskerfi nœsta ár, en hver borgar?
Einu afbrigðin eru að til Ábyrgð- boðið 65% bónus (þ.e. 35% ið- leiti þeir eftir.
ar, félags bindindismanna, borga gjalds borgað) eftir tíunda árið og Nú reið Sjóvá á vaðið með of-
menn lægri iðgjöld og Samvinn- hefur þetta verið látið óátalið. Þó angreind kjör og önnur trygg-
utryggingar hafa boðið ókeypis mun hafa tíðkast að ökumenn fái ingafélög í kjölfarið. Þar á móti
tryggingu á ellefta tjónlausu ári. ellefta árið frítt hjá öðrum fé- auglýsa keppinautar að tómt mál
Ábyrgð hefur vegna þess tilboðs lögum en Samvinnutryggingum sé að bera saman kjörin fyrren á
næsta ári og minna á að þótt upp-
sagnarfrestur sé um mánaða-
mótin geti ökumenn beðið ró-
legir til 1. mars með að skipta um
félag.
Forstöðumaður Tryggingaeft-
irlitsins, Erlendur Lárusson,
sagði Þjóðviljanum að engin af-
staða hefði enn verið tekin til
þess hvernig málum yrði háttað
1985. Eftirlitið hefur ekki mót-
mælt auglýsingunum. Hann taldi
ekki ósennilegt að leitað yrði eftir
kerfisbreytingum í kjölfar auglýs-
ingastríðsins, en það yrði ekki
ljóst fyrren heildardæmið í ár yrði
reiknað - tjón á móti iðgjöldum.
Hinsvegar væri ljóst að ef
breytingar yrðu gerðar til þeirrar
áttar sem nú er talað um yrði að
dreifa kostnaðinum á aðra en
þessa allra öruggustu ökumenn.
Munurinn á þeim sem nú borga
lægst iðgjöld og þeim sem borga
hæst er sjöfaldur. Meðaliðgjald
án bónuss eða maluss (refsi-
greiðslu) á venjulegan einkabíl er
nú um 9.000 á ári.
-m
Soda Stream
Bannað
að gefa
Fiat
Sól hf er ekki rekið
sem happdrætti, segir
lögfrœðingur Verð-
lagsráðs
Verðlagsráði þykir Ijóst að
þessi gjöf til eigenda Soda Stream
tækja, sem kostar um 270.000
krónur, hljóti að þýða hærra
verð á tækjunum og þar með sé
obbi kaupenda tækjanna að
greiða fyrir þau hærra verð en
þeir ella þyrftu, sagði Gísli ísleifs-
son lögfræðingur Verðlagsráðs er
hann var að því spurður hvers
vegna ráðið hefði bannað Sól hf
að gefa einhverjum eiganda Soda
Stream tækja Fiat Uno.
„Það má segja að hér sé á ferð-
inni sama hugsun og er hjá
happdrættunum, þ.e. að fá
marga til að vonast eftir einum og
sama vinningnum. Happdrætti
starfa eftir mjög ströngum lögum
og Sól hf rekur ekki happdrætti",
sagði Gísli ennfremur. Hann
minnti á að fýrir nokkrum árum
hefði tiltekinn pylsusali boðið de-
mant í pylsuenda í því skyni að
örva söluna og hefði hann hætt
þeim leik eftir að úrskurður
Verðlagsráðs féll þess efnis að
slíkt væri ólögmætt. Davíð Sche-
ving TTiorsteinsson eigandi Sólar
hf mun hins vegar ætla sér að láta
tilmæli Verðlagsráðs sem vind
um eyru þjóta.
Nú vantar ekki sex-ið hjá ASÍI
Einn starfshópa á landráðstefnu Samtaka herstöðvaandstæðinga að störfum. Ljósm. eik.
Samtök herstöðvaandstœðinga
Aldrei aftur Hírósíma
Á næst ári verða 40 ár liðin frá
kjarnorkuárásunum á Hirósíma
og Nagasakí. Þessa verður minnst
af friðarhreyfíngum víða um
heim á næsta ári. Samtök her-
stöðvaandstæðinga hafa ákveðið
að nota þetta tækifæri til að
leggja sérstaka áherslu á barátt-
una fyrir kjarnorkufriðlýsingu
íslands og kjarnorkuvopnalaus
Norðurlönd undir kjörorðunum
Aldrei aftur Hírósíma - Aldrei
aftur Nagasakí. Vilja Samtökin
að kjarnorkufriðlýsing íslands
verði tryggð með stjórnarskrár-
grein, en friðlýsing Norðurlanda
verði framkvæmd á grundvelli
þeirra tillagna sem norrænu frið-
arhreyfíngarnar samþykktu í
Reykjavík í aprfl 1983.
Þetta kom fram á Landsráð-
stefnu Samtaka herstöðvaand-
stæðinga sem haldin var í Reykja-
vík 25. nóvember s.l.
í ályktun ráðstefnunnar segir
að andófið gegn eflingu og ný-
sköpun hemaðarmannvirkja
Bandaríkjanna á íslandi sé tengd
þessari baráttu órofa böndum,
því ratsjárstöðvum hersins fyrir
norðan og austan sé ætiað að vera
augu og eym þess kjamorkuher-
afla, sem sveimar um norðurhöf
og er reiðubúinn nótt sem dag að
fremja ný voðaverk eins og í
Hírósíma og Nagasakí.
Á ráðstefnunni var samþykkt
starfsáætlun, og er meðal annars
gert ráð fyrir Keflavíkurgöngu á
Hírósíma-daginn í byrjun ág-
ústmánaðar. Kosin var 12 manna
miðnefnd samtakanna og mun
hún skipta með sér verkum á
starfsárinu.
ólg.
BHM
Slóreignaskattar
í stað neysluskatta
Á 6. þingi Bandalags Háskóla-
Mmanna sem haldið var um
helgina var m.a. samþykkt tillaga
frá Stefáni Ólafssyni formanni
launamálaráðs ríkisstarfsmanna
innan BHM um að tekjutapi rík-
issjóðs vegna niðurfellingar
tekjuskatts af launatekjum verði
mætt með sköttum á eignir um-
fram eðlilegar þarfír fjölskyldu
og eignir einkafyrirtækja, félaga
og stofnana. Einnig verði vaxta-
tekjur umfram verðtryggingu
höfuðstóls skattlagðar.
„Meginmarkmiðið með þess-
ari stefnu er að hafna neyslu-
sköttum sem mótvægi gegn
niðurfellingu tekjuskatts. Ef
virðisaukaskattur á að koma í
staðinn þá yrði útkoman verri
fyrir lágtekjufólk og miðtekju-
fólk. Þessi leið sem þarna var
samþykkt er mikilvægt kjaraatr-
iði fyrir meginþorra launafólks.
Með henni er lagt til að verðbólg-
ugróði undanfarinna ára verði
skattlagður og um leið viðbrögð
við þeim ógöngum sem þjóðfé-
lagið er komið í vegna offjárfest-
ingar félaga og fyrirtækja í óarð-
bærum eignum og eignum sem
engin þörf er á. Þetta er því þýð-
ingarmikil stefnumörkun", sagði
Stefán Ólafsson á fundi sem for-
ystumenn innan BHM efndu til í
gær.
Gunnar G. Schram var endur-
kjörinn formaður bandalagsins
til tveggja ára á aðalfundinum. í
ræðu hans við setningu þingsins
kom m.a. fram að launakjör
háskólakennara hafa dregist
saman um nær helming á síðustu
12 árum. Mikil óánægja er með
stöðu kjaramála hjá opinberum
starfsmönnum innan BHM en
samningar við ríkið eru lausir í
lok febrúar n.k. -Ig
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Mlövikudagur 28. nóvember 1984
Gamla
kompaníið
fákk
Gerðuberg
íslensk skrifstofuhús-
gögn í bókasafnið
Á fundi Innkaupastofnunar
Reykjavíkur í fyrradag var
ákveðið að taka tilboði Gamla
kompanísins um skrifstofuhluta
innbús í bókasafninu í Gerðu-
bergi, menningarmiðstöð breið-
hyltinga. Tvö tilboð bárust, hitt
frá Kristjáni Siggeirssyni hf.
Tæknimenn athuguðu tilboðin
og mæltu að lokum með boði
Gamla kompanísins uppá tæpar
780 þúsund krónur. Skrifstofu-
húsgögn í bókasafninu verða að
miklum meirihluta heimasmíð-
uð, en eins og einu sinni var í
fréttum er innbú í Gerðubergi að
öðru leyti harla erlent að upp-
runa. Stjóm Borgarbókasafnsins
mun hafa verið áfram um að taka
innlenda smíð frammyfir erlenda
ef kostur væri.
Smíði innbús í safnið var boðin
út í tveimur hlutum. Hinn þáttur-
inn eru innanstokksmunir sér-
stakir fyrir bókasöfn, og verða
þau tilboð opnuð 11. desember.
Nokkur norræn fyrirtæki em
ásamt Kristjáni Siggeirssyni hf.
talin standa sterkast að vígi um
þann hluta.
I því útboði er vitnað til fram-
leiðslu ákveðins dansks fyrir-
tækis. Elva Björk Gunnarsdóttir
borgarbókavörður og aðrir að-
standendur útboðsins segja frá-
leita þá sögu að með þvf sé verið
að hygla fyrirtækinu danska eða
umboðsmönnum þess hér. Hefur
Þjóðviljinn fengið staðfest eftir
öðmm leiðum að útboðið er á
engan hátt óvenjulegt. -m
Loðna
Loðnu-
ævintýri
Allt svart í sjónum
Loðnukvótinn var í gær aukinn
um 300 þús. lestir miðað við 20.
nóvember sl. en þá lauk stofn-
mælingum rannsóknarskipa Haf-
rannsóknastofnunar á loðnu-
stofninum.
Mælingar meta stærð stofnsins
um 1 miljón lesta, þar af um 720
þús. tonn af hrygningarloðnu.