Þjóðviljinn - 28.11.1984, Blaðsíða 11
Ósvífin
ríkisstjóm
Ásmundur Stefánsson: Enginn flokkur sem sett Itefur mann
í ráðherrastól vikist undan kjaraskerðingu
Isetningarræðu sinni og síðar í
skýrslu sinni gagnrýndi Ás-
mundur Stefánsson, forseti ASÍ,
verkalýsflokkana tvo, Alþýðu-
flokkinn og Alþýðubandalagið
nokkuð. Þannig sagði í ræðunni:
„Þessi ríkisstjórn er ósvífnari
en aðrar og ekki sú fyrsta sem
lögbýður kjaraskerðingu og svar-
ar kjarasamningum með gengis-
fellingu. Það alvarlega er að um
langa hríð hefur stjórnvöldum
VR
liðist að ganga þannig tii verka og
enginn flokkur, sem sett hefur
mann í ráðherrastól, hefur vikist
undan slíkum verkum“.
Síðar sagði í skýrslu forseta
sem hann flutti á mánudaginn
eftir hádegi: „Verkalýðshreyf-
ingin í dag getur ekki hallað sér
að einum stjórnmálaflokki eða
tveimur og sótt afstöðu sína til
þjóðmála þannig. Verkalýðs-
hreyfingin getur ekki tekið upp
Engin athugasemd
gerð við kjörbréf
símtól og sótt línuna í atvinnu- og
félagsmálum til annarra. Hreyf-
ingin verður sjálf að móta sína
afstöðu og samræma þau sjón-
armið sem innan hennar eru“.
Ásmundur var jafnframt
grimmur í máli sínu um núver-
andi stjórn og sagði meðal annars
í ræðu sinni:
„Sú ríkisstjórn sem nú situr
hefur gengið fram af meiri ósvifni
en dæmi eru um hin síðari ár í
samskiptum við verkalýðs-
hreyfinguna. Hún hóf sinn feril
með lagaboði um stórfellda
kjaraskerðingu og banni við
samningum og gekk þannig þvert
á eina grundvallarforsendu okkar
lýðræðiskerfis. Hún gerir nú
samninga um háar prósentu-
hækkanir og leggur jafnframt
drög að því að eyða þeim nær
strax í verðbólgubáli gengisfell-
ingar og almennra verðhækkana.
Þetta er illt, ekki bara vegna þess
að ríkisstjórnin sé vond heldur og
enn frekar vegna þess að lög-
bundnar kjaraskerðingar eru
ekki uppáfynding þessarar ríkis-
stjórnar." _ös
Haldið í tjóðrið
Ráðherrar og þingmenn Sjálfstœðisflokksins hitta fulltrúa flokksins á
ASÍ þingi. Gömul kempa þakkar fyrir gengisfellinguna.
Gáfum ekki upp aukafélaga segja talsmenn
VR
Eins og skýrt var frá í Þjóð- máli við Þjóðviljann í gær og
viljanum í gær, héldu fulltrúar sögðu Þetta vera alrangt. Ef VR
verlsunarmannafélaganna ut- hefði gefið UPP aukafélaga sína,
an af landi því fram, að Versl- Þá væru fulltrúar á þinginu á milli
unarmannafélag Reykjavíkur 20 °g 30 fieiri en Þeir eru nu- fieir
hefði gefið upp aukafélaga bentu líka á að ekkert verslunar-
sína á skrá til ASI, til þess að fá mannafélag utan af landi hefði
fleiri fulltrúa á ASÍ þingið sem Sert athugasemd við kjörbréf VR
nú stendur yfir. fulltrúa á þinginu.
„Fulltrúar frá VR komu að -S.dór
Einsog Þjóðviljinn greindi
frá hittu ýmsir mektarmenn úr
Sjálfstæðisflokknum þá full-
trúa af þingi ASÍ sem fylgja
flokknum að máli. Fundurinn
átti sér stað á Hótel Loftleiðum
í fyrradag og auk verkalýðs-
frömuða úr hópi Sjálfstæðis-
manna voru þar staddir ráð-
herrarnir Matthías Bjarnason
og Geir Hallgrímsson, líka
„ekki“-ráðherrann Þorsteinn
Pálsson formaður Sjálfstæðís-
flokksins, Ólafur G. Einarsson
formaður þingfiokksins og
auk þess Árni Johnsen úr
Eyjum.
Sjaldgæft er að jafn háttsettir
menn úr stjórnmálaflokkunum
reyni að hafa áhrif á störf sinna
fulltrúa á þingi ASÍ. Þannig hefur
til dæmis enginn úr hópi forystu-
manna Alþýðubandalagsins og
Framsóknarflokksins utan verka-
lýðshreyfingarinnar hitt sína full-
trúa.
Þegar leið á fundinn kvaddi sér
hljóðs gömul baráttukempa úr
fulltrúahópi VR, og kvaðst vilja
þakka ráðherrum flokksins
„sendinguna" frá í síðustu viku.
Með því átti hann við gengisfell-
inguna sem stjórnin framkvæmdi
í síðustu viku og lét hinn gamli
Sjálfstæðismaður forystumenn
flokksins fá ómyrk orð í eyra af
þessu tilefni.
-ÖS
Helgi Guðmundsson: kvöldskólar útum land á vegum MFA, fyrir þá sem ekki komast burt á Félagsmálaskólann.
Verður lýðháskóli
alþýðunnar til?
Helgi Guðmundsson: Viljum byggjafrœðslu-
og ráðstefnusetur í Ölfusborgumfyrir Fé-
lagsmálaskólann. Lýðháskóladeild ogkvöld-
skólar líka á dagskrá. Baráttuhugur.
Efling Félagsmálaskólans er
eitt af höfuðmálunum fyrir
næsta kjörtímabil. Skólinn nýt-
ur mikils álits og til dæmis
voru hvorki meira né minna en
600 manns í honum á síðasta
kjörtímabili. Og það er virki-
lega ánægjulegt að sjá að hér í
hópi fulltrúanna á þingi ASÍ
eru margir úr skólanum.
Þetta sagði Helgi Guðmunds-
son trésmiður, en hann er for-
maður MFA og hefur sinnt skól-
anum mjög mikið. Þjóðviljinn
hafði tal af honum í gær eftir að
Helgi hafði framsögu fyrir álykt-
unum um starf og eflingu MFA á
næstu árum.
„Með eflingu Félagsmála-
skólans er til dæmis átt við að
hafinn verði undirbúningur að
byggingu fræðslu- og ráðstefnu-
seturs í Ölfusborgum. Jafnframt
erum við þess mjög fýsandi að
námið í skólanum verði metið til
jafns við annað nám í landinu. Þá
á ég við að samfélagið greiði
kostnaðinn af skólanum einsog
öðru námi og skólahaldi“.
„Draumurinn er líka að koma
á fót sérstakri lýðháskóladeild
sem yrði þá hugsuð fyrst og
fremst fyrir ungt fólk, en líka fyrir
alla aðra sem hefðu áhuga. Þá
höfum við í hyggju að koma á fót
kvöldskólum útum land og hafa á
þeim svipað námsefni og nú er í
Félagsmálaskólanum, en það
yrði hins vegar sniðið fyrir þá sem
ekki eiga kost, sökum fjölskyldu
eða fjárhags, að fara í burt að
heiman í tvær eða þrjár vikur“.
Helgi sagði líka að það væri
mikill hugur í þeim MFA
mönnum að fjölga þeim náms-
kostum sem MFA byði upp á.
Vilji væri fyrir að koma upp tölv-
ukúrsum, jafnvel frístundaskóla
þar sem menn gætu komið sér
niður í ýmissi skapandi iðju, til
dæmis leiklist.
„Það er óhætt að segja að MFA
nýtur mikillar virðingar og áhuga
félagsmanna í verkalýðshreyfing-
unni“ sagði Helgi að lokum.
-ÖS
Mi&vikudagur 28. nóvember 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11