Þjóðviljinn - 01.12.1984, Blaðsíða 1
SUNNUDAGS-
BLADIÐ
MENNING
:
ASÍ þing
Pólitískum valdahlut-
föllum verði breytt
35. þing ASÍ skorar á ðll að-
ildarfélög sín og sérhvern félags-
mann sem skipar raðir samtak-
anna, að nota komandi mánuði til
undirbúnings markvissrar sókn-
ar í kjaramálum launafólks.
Þetta segir í merkri kjaramála-
ályktun sem var samþykkt á ASÍ
þingi sem lauk í gær. Þar var jafn-
framt hvatt til þess að tíminn
verði notaður til mikillar umræðu
í stéttarfélögunum út um land til
að efla markvissa áætlun fyrir
endurheimt þess kaupmáttar sem
tapast hefur.
Þá var samþykkt ályktun sem
borin var upp af félögum úr Al-
þýðuflokki og Alþýðubandalagi
auk óflokksbundinna fulltrúa þar
sem talið er „brýnt, að pólitískum
valdahlutföllum á íslandi verði
breytt“, og bent á að bandalag
forystumanna Sjálfstæðisflokks-
ins og Framsóknarflokks ásamt
leiðtogum VSÍ, Verslunarráðsins
og SÍS sé ábyrgt fyrir hinni miklu
aðför að kjörum launafólks.
Einnig er hvatt til þess að
launafólk samfylki öllum sem að-
hyllast hugsjónir félagshyggju til
að mynda nýtt landstjómarafl.
Nánar verður birt síðar.
-ÖS
Sjá líka bls. 3.
I bók Halldórs Laxness heitir einn kaflinn Ferðabæklingur frá Rúmeníu 1960 og lýsir þriggja vikna dvöl þar. A meðan lót Auður gera sundlaugina. „Auður hefur
séð um allar framkvæmdir. Eg hef haft ákaflega daufan sans fyrirframkvæmdum og bústangi yfirleitt", sagði Nóbelskáldið í gær. Lengst til vinstri er Edda Andrés-
dóttir sem skrífaði samtalsbókina við Auði. Ljósm.: EO.
íí
Hann krotaði stundum í próförkina
í gær kom út samtalsbók Eddu Andrésdóttur og Auðar Laxness
og nýtt ritgerðasafn eftir Halldór Laxness
Hann krotaði stundum í próf-
örkina og sagði: andskotinn,
einkum ef risið var mjög lágt og
heimilislegt en hann var ánægður
með bókina f heild, og þá er mér
sama hvað aðrir segja, sagði
Auður Laxness á blaðamanna-
fúndi á Gjjúfrasteini í gær um
viðbrögð Halldórs Laxness við
nýrri samtalsbók Eddu Andrés-
dóttur við hana. Bókin var kynnt
í gær ásamt nýju ritgerðarsafni
eftir Halldór Laxness: Og árin
lfða.
Bók þeirra Eddu og Auðar
heitir Á Gljúfrasteini. Auk sam-
talanna, sem eru megingrunnur
bókarinnar, er í henni talsvert
birt af dagbókum Auðar frá ýms-
um tímum og einkabréfum. Mik-
ill fjöldi mynda er í bókinni.
Og árin líða er ritgerðasafn
eins og áður sagði, og eru flestar
ritgerðimar um bókmenntir,
kirkjusögu og þjóðemismál. Þá
er þar birt langt viðtal Ingólfs
Margeirssonar við Nóbelsskáldið
um Ragnar í Smára en stærsti
hluti bókarinnar en endurprent-
un á Kaþólskum viðhorfum sem
gefin vom út árið 192:. Nokkuð
af greinunum er áður obirt.-GFr
Fíkniefni
Amfetamínneysla storeykst
Lögreglan hefur á þessu ári lagt hald á 1,3 kgaf amfetamíndufti.
Lyfið er vanabindandi og getur valdið skyndilegri geðveiki segir landlœknir.
Mikið aukning hefur orðið á amfetamínneyslu hér á Hjá landlæknisembættinu fengum við þær upplýsingar, upplýsingar væm til um útbreiðslu lyfsins hér á landi, en í
landi síðustu 2 árin segir Arngrímur ísberg, fulltrúi að mjög strangar reglur giltu um notkun þessa lyfs, og væri könnun sem gerð var á fíkniefnaneyslu skólanema á aldrin-
lögreglustjóra, í samtali við Þjóðvifjann í dag. I skrá lög- óheimilt að gefa út lyfseðil á lyfið nema með sérstöku leyfi ura 15-20 ára í aprílmánuði s.l. kom í ljós að 1,3% skóla-
reglunnaryfirmagnafhaldlögðumffkniefnumsfðustuárin landlæknis. Er lyfið aðeins notað við meðhöndlun eins nema hafði reynt þetta lyf.
kemur í fjós að magn það sem lögreglan hefur lagt hald á af sjaldgæfs sjúkdóms. Amfetamín er talið hættulegt af tveim -ólg-
þessu lyfi hefur margfaldast sfðustu tvö árin og er það sem ástæðum. I fyrsta lagi er það vanabindandi, oj> í öðru lagi __
af er þessu ári 1318,3 grömm. Arngrímur sagði að þetta getur það orsakað skyndilega geðveiki sem lýsir sér f því að
væri allt smyglað og kæmi til landsins f duftformi. Sagði menn sofa ekki sólarhringum saman.
með Þ'1 M ‘ne"1'eð* Landlæknir sagffi Pjóöviljanum að nngar íreiðanlngar Sjá SUIlnudagsblað bls. 4.
Framkvœmdasjóður fatlaðra
Skorið niður um 80 miljónir
Pað hafa verið skornar hressi-
lega niður lögbundnar
greiðslur til okkar í fram-
kvæmdasjóð fatlaðra á fjárlögum
fyrir næsta ár og reyndar voru
framlögjn einnig stóriega skert á
þessu ári frá því sem kveðið er á
um í lögum um málefni fatlaðra,
sagði Ólöf Rfkharðsdóttir hjá
Sjálfsbjörgu en hún á sæti í stjórn
framkvæmdasjóðsins.
í fjárlögum Alberts Guð-
mundssonar fyrir næsta ár er
framlag til framkvæmdasjóðs
fatlaðra aðeins 40 miljónir en ætti
að vera samkvæmt lögum nálega
100 miljónir. Þá er framlag til
erfðafjársjóðs sem rennur til fra-
mkvæmda fyrir fatlaða aðeins
ráðgert tæpar 20 miljónir en ætti
samkvæmt lögum að vera ríflega
helmingi hærra. Framlög til fram-
kvæmda hjá fötluðum verða því
skorin niður úr rúmum 140 milj-
ónum í aðeins 60 miljónir.
„Framlögin voru skorin niður í
fyrra þegar lögin tóku gildi og
þau hafa ekkert verið hækkuð
fyrir nsæta ár þrátt fyrir ákvæði í
lögum um að þau eigi að fylgja
vísitölu byggingakostnaðar. Þessi
gífurlegi niðurskurður þýðir að
ekki verður hægt að byrja á
neinum nýframkvæmdum sem
mikil þörf er fyrir og ekki verður
hægt að standa við áætlanir varð-
andi þær framkvæmdir sem nú
eru í gangi. Það liggja umsóknir
fyrir sjóðnum uppá 200 miljónir
svo það sjá allir að 60 miljónir
hrökkva skammt. Það verður
fyrirkvíðanlegt að eiga að skipta
þessu“, sagði Ólöf.
-Ig-
Nýtt lands-
stjómar-
afl!