Þjóðviljinn - 01.12.1984, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 01.12.1984, Blaðsíða 7
Frábœr sýning í Listasafni íslands eftir Sabine Weiss. Tekin í 1956. . Ungfrú Anita, eftir Robert Doisneau. Tekin á dansstaðnum „Rauða kúl- an", rue de Lappe í París, 1951. Málari Eiffel-tumsins, eftir Marc Riboud. Tekin í París, 1953, 1 t i ■—tHL Æ&g&gr . W 28 •' ' ' ' Wtvi&ÍLs&s&SBBt&' Myndhöggvarinn Giacometti, eftir Henri Cartier-Bresson, 1961. Leiktjöld leikhúss í Osaka (Japan), eftir Marc Riboud, 1982. Gangurinn, eftir Claude Batho. Tekin 1970. Olette í austanverðum Pýreneafjöllum, í listasafni íslands stendur nú yfir sýning á verkum 10 franskra ljósmyndara. Þetta er farandsýn- ing frá Nútímalistasafninu í París og hingað er hún komin fyrir milligöngu franska sendiráðsins. Pessir tíu ljósmyndarar eru allir vel þekktir fulltrúar franskrar ljósmyndalistar og meðal þeirra eru heimsþekkt nöfn; menn sem hafa lagt mikið af mörkum til að efla almennan skilning á gildi list- rænnar ljósmyndunar. Ljósmyndin á sér langa hefð í Frakklandi, enda var það þar sem hún leit fyrst dagsins ljós á önd- verðri 19. öld. Daguerre, Niépce og síðar Nadar lögðu grunninn að franskri ljósmyndun á öldinni sem leið. En það var ekki fyrr en í byrjun þessarar aldar að þessum áhrifamikla miðli var lyft í list- rænarhæðir. Einn þeirra sem það gerði var Henri Cartier-Bresson (1908), aldursforseti sýnenda og fremst- ur meðal jafningja í þessum tíu manna hópi. Þessi ævintýralegi heimildaljósmyndari og fyrrum andspyrnuhreyfingarmaður er ekki eingöngu einn af feðrum nú- tíma fréttaljósmyndunar, heldur liggja eftir hann frábærar heim- ildakvikmyndir s.s. úr spænsku borgarastyrjöldinni (Sigur lífsins, 1937) og heimstyrjöldinni (Endurkoman, 1945). Fast á hæla Cartier-Bresson, koma mannlífslýsendur á borð við Robert Doisneau (1912), Marc Riboud (1923), Édouard Boubat (1923) og Jean-Philippe Charbonnier(1921). Allireru þeir listrænir fréttaljósmyndarar sem starfað hafa í hinum ýmsu heimshornum, auk heimalands- ins. Viðfangsefni þeirra eru mannlífið í sinni margbreytileg- ustu mynd, eins og reyndar kem- ur í ljós þegar þessi magnaða sýn- inger skoðuð. I hópnum eru tvær konur, þær Claude Batho (1933-81) og Sa- bine Weiss (1924) og lýsa myndir þeirra innileik, um leið og dregin er upp hvöss og raunsæ frásögn af daglegu lífi íFrakklandi. Gilles Ehrmann (1928) beinir sjónum sínum hins vegar að hinu óvenju- lega og furðulega í alþýðlegu um- hverfi, svo myndir hans virðast í fljótu bragði óraunverulegar þótt háraunsæjarséu. Þeir Jean Dieuzaide (1921) og Jean-Loup Sieff (1935) færa okk- ur svo frá fréttaljósmyndinni inn á svið listrænna og yfirvegaðra vinnubragða stúdíó- listamannsins, þar sem hlutirnir eru rannsakaðir án tillits til augnabliksins. Það er ógerlegt að lýsa sýningu þessara 10 frönsku ljósmyndara í stuttu máli. Til þess er hver og einn þeirra of yfirgripsmikill og margslunginn. Samanlagteru á Listasafninu 105 verk eftir þessa fulltrúa. Meðal þeirra eru ijós- myndir sem eru heimsþekktar, enda eiga listamennirnir verk í öllum helstu söfnum heims. Hvort heldur menn eru ljós- myndarar eða leikmenn í því fagi, þá er vert fyrir þá að gera sér ferð í Listasafn íslands til að berja þessar myndir augum. Enginn verður svikinn af þeirri reynslu. HBR UMSJÓN: GUÐJÓN FRIÐRIKSSON ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.