Þjóðviljinn - 01.12.1984, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 01.12.1984, Blaðsíða 16
MENNING KVIKMYNDIR Stúdentaleikhusið „Skrýtin blanda ...sagði Brigid í gærkvöldi frumsýndi Stúd- entaleikhúsið nýja dagskrá sem nefnist „Skrýtin blanda" ...sagði Brigid. Erþettadag- skrá unnin úr nýjum íslensk- um skáldsögu- og Ijóðabók- um. Flestar þeirra koma út núnafyrir jólin en aðrareru væntanlegar. Þær bækur sem unnið hefur verið úr eru: Ekkert slor eftir Rúnar Helga Vignisson og Ydd eftir Þórarin Eldjám en Forlagið gefur þær út. Þel eftir Álfrúnu Gunnlaugsdóttur, Með kveðju fráDublin, eftir Áma Bergmann ogMaðurr og haf eftir Véstein Lúðvíksson, Mál og menning gef- ur út. Smásagnasafn eftir Fríðu Á. Sigurðardóttur sem Skuggsjá gefur út og heitir Við gluggann. Saga eftir Ólaf Gunnarsson, Ið- unn gefur út. Auk óútkominna handrita eftir Gyrði Elíasson, Sveinbjörn I. Baldvinsson, Lilju K. Möller, Sigfús Bjartmarsson og Stefán Snævarr. Leikstjóri er Guðmundur Ól- afsson en samantektinni stjóm- uðu Páll Valsson og Helgi Gríms- son. Sýningar verða í Félagsstofnun Stúdenta 1., 2., 6., 7., 8. og 9. desember og hefjast klukkan 21.00. Tekið er á móti miðapönt- unum í síma 17017 allan sólar- hringinn. Listmunauppboð Meistarar á boðstólum eftir Braga Ásgeirsson, Brynjólf Þórðarson, Hring, Kjartan Guð- jónsson, Jóhannes Geir, Magnús Jónsson dósent, Svein Þórarins- son, Sverrir Haraldsson, Tryggva Ólafsson o.fl. Auk fyrrgreindrar olíumyndar eftir Kjarval verða tvær aðrar ol- íumyndir og tvær vatnslitamynd- ir. Meðal annarra listmuna má nefna leikrönnu eftir Guðmund frá Miðdal, veggteppi eftir Sigríði Eggen og stóran kertastjaka, renndan af Benjamín rennismið fyrr á öldinni. Verkin verða sýnd á Hótel Borg, Gyllta sal, í dag, laugar- daginn 1. desember milli klukkan 14.00-18.00 en uppboðið sjálft fer fram á Hótel Borg sunnudag- inn 2. desember og hefst klukkan 15.30. Olíumálverk eftir Jóhann Briem, stórt abstraktverk eftir Þorvald Skúlason, sérstæð landslagsmynd eftir Jóhannes Kjarval, tvær myndir eftir Nínu Tryggvadóttur, vatnslitamyndir eftir Ásgrím Jónsson, Barböru Árnason og Snorra Arinbjarnar eru meðal þeirra verka sem verða ó fyrsta listmunauppboðinu sem Gallerí Borg heldur nk. sunnu- dag, 2. desember, klukkan 15.30 að Hótel Borg. Auk framangreindra verka verða á uppboðinu m.a. verk eftir Baldvin Björnsson frá 1911- 1913, Benedikt Gröndal, ísleif Konráðsson og Nínu Sæmunds- son, en verk þessara listamanna eru afar sjaldan á uppboðum nú- orðið. Þá eru og á uppboðinu verk Úr kvikmyndinni „Anna Pavolva“. Sovésk kvikmyndavika í Regnboganum f dag, laugardag 1. des- ember, hefst í Regnboganum sovésk kvikmyndavika. Fyrsta myndin sem sýnd verður er Anna Pavlova, sem einsog nafnið bendirtil fjallar um ævi ballerínunnar heimsfrægu. Leikstjóri er Emil Lotianu frá Moldavíu, en hann hefur áður gert margar frægar myndir um Sígauna og a.m.k. eina sem byggð er á sögu eftir Tsékhof, Veiðiferðina, sem sýnd var í íslenska sjónvarp- inu fyrir nokkrum árum. Alls verða sex kvikmyndir sýndar á þessari sovésku viku. Allar eru þær nýjar af nálinni, framleiddar á árunum 1983 og 1984. Vassa heitir nýjast mynd leikstjórans Glebs Panfilovs, sem er af mörgum talinn ein áhuga- verðasti sovéski kvikmyndastjór- inn í dag. Myndin er byggð á leikriti eftir Gorkí, Vassa Zhelez- nova, og segir frá konu af borg- arastétt (myndin gerist rétt fyrir byltingu) sem á í basli með mann sinn, drykkjumann og spilagosa. Aðalhlutverkið er leikið af Innu Tsjúríkovu, sem er frábær leik- kona, eiginkona Panfilovs og hef- ur áður leikið í myndum hans mjög eftirminnileg hlutverk. Inna Tsjúríkova leikur einnig eitt af hlutverkunum í myndinni Stríðssaga, sem Pjotr Todorovskí stjómar. Sú mynd gerist í seinna stríðinu og síðar, á sjötta ára- tugnum. Todorovskí samdi einn- ig handritið og tónlistina. Natalía Andreitsjénko og Nikolaj Búrla- jev leika unga elskendur, og myndin er framleidd í Úkraníu. Stríðssaga hefur vakið mikla at- hygli og þykir óvenjuleg og eink- um er leikurunum hrósað. Lotianu, Panfilov og Todorov- skí eru allir á miðjum aldri, rétt um fimmtugt, en Júlí Raizman, leikstjóri myndarinnar Óska- stundin, er áttræður öldungur og hóf feril sinn sem kvikmynda- stjóri á tímum þöglu myndanna. Hann hefur gert margar ágætar myndir á þessum langa ferli. A.m.k. ein mynda hans hefur verið sýnd á kvikmyndahátíð hér, Einkalíf, sen sýnd var í fyrra ef ég man rétt. Raizman hefur fengið orð fyrir að takast á við vandamál samtímans í myndum sínum og enn fæst hann við eitt slíkt: í Óskastundinni segir fró konu sem er Qórhagslega sjólfstæð og ó marga kunningja en engan til að elska og er þar af leiðandi ein- mana. Vera Alentova og Anatolí Papnov leika aðalhluverkin. Eldar Rjazanov er í hópi þekkt- ari leikstjóra Sovétríkjanna og þótti ógætur gamanmyndahöf- undur hér í eina tíð. En nú fóum við að sjó mynd sem hann hefur gert eftir sígildu rússnesku leikriti, Án heimanmundar eftir Ostrovskí, og er myndin kölluð Grimmilegur mansöngur. Einsog Vassa gerist þessi mynd á Volgu- bökkum meðal kaupmanna, en nokkru fyrr í tímanum, eða á 19. öld. Ung leikkona, L. Gúsjeva, leikur aðalhlutverkið. Sjötta og siðasta myndin er Snúið heim úr geimnum, sem framleidd er í Úkraínu, nánar til- tekið í Kiev. Leikstjóri er Alex- ander Súrín. Myndin gerist að miklu leyti í geimstöð og persón- urnar eru geimfarar. Samt er hér ekki á ferðinni „stjömustríðs- mynd“ á ameríska vísu, heldur raunsæ mynd á sovésku vísu um fólk sem vinnur sín störf við að- stæður sem okkur þykja enn furðulegar en em það kannski ekki þegar betur er að gáð. Þessar sex myndir eru að vísu lítill partur af ársframleiðslu sovéskra kvikmyndavera, sem eru 39 talsins og framleiða 150 langar, leiknar myndir á ári fyrir utan stuttar myndir, sjónvarps- myndir, heimildarmyndir o.s.frv. En þær ættu að gefa nokkuð góða hugmynd um það sem er að ger- ast austur þar um þessar mundir í kvikmyndabransanum. Og þær ættu að vera kærkomin til- breyting frá því einhæfa, svotil al- bandaríska kvikmyndavali sem okkur býðst í kvikmyndahúsum Reykjavíkur á þessum síðustu og verstu frelsistímum. Sem fyrr segir hefst sovéska kvikmyndavikan í Regnboganum í dag og stendur út næstu viku. Sýningar verða auglýstar jafnóð- um í dagblöðunum. Kodak FRAMKÖLLUN HANS PETERSEN HF Umboösmenn um land allt * Kort með umslagi. Minnsta pöntun er 10 stk. eftir sömu mynd. ....OG ÞAÐ FYRIR AÐEINS 17 KR. Nú geturóu komið vinum og vandamönnum skemmtilega á óvart meö jólakorti sem skartar þinni eigin Ijósmynd og sparaö um leiö dágóða upphæö. Taktu mynd sem fyrst eöa veldu eina góöa úr safninu og viö sjáum um aö gera úr henni kort sem stendur upp úr jólakortaflóöinu í ár. Allt sem viö þurfum er filman þln. wmamm

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.