Þjóðviljinn - 01.12.1984, Side 3
FRÉTTIR
1918
Sambandslögin
á Þjóðskjalasafn
Jón og Baldur bjarga fullveldinu frá drukknun í
skjalamergð dómsmálaráðuneytisins
Igær brugðu þeir Bjarni Vil-
hjálmsson þjóðskjalavörður og
Aðalgeir skjalavörður Kristjáns-
son sér yfir bflastæðið milli Safn-
ahússins og Arnarhvols og komu
aftur í vinnuna með merkisplögg:
sambandslagasamninginn frá 18.
júlí 1918, staðfestingu konungs á
lögunum sem undirrituð var 30.
nóvember 1918, og konungsúr-
skurð um íslenska fánann frá
sama tíma.
Jón Helgason dómsmálaráð-
herra afhenti þjóðskjalaverði
þessi skjöl með viðhöfn í skrif-
stofu sinni. Jón sagði að ekki
þætti hlýða að skjöl sem svo
mikla þýðingu hefðu fyrir ís-
lensku þjóðina væru geymd
áfram í ráðuneytinu með öðrum
skjölum ómerkari; þau gætu
gleymst eða horfið í skjalamergð-
inni. Hafa menn því ákveðið að
afhenda þau Þjóðskjalasafni til
Rás tvö
Afmælisútsending
Þorgeir útvarpsstjóri: um áramót verðum við
rás allra landsmanna
Idag verður útvarpað úr
Hvassaleitinu frá tvö til sex,
fyrsta regluleg laugar-
dagssending rásar tvö í tiiefni árs-
afmælis stöðvarinnar. „Við höld-
um uppá afmælið með hóflegum
hætti“ sagði Þorgeir Ástvaidsson
rásarleiðtogi við Þjóðviljann, og
lofar þeim endurbótum á dreifí-
kerfí að rásin heyrist á öllum
helstu þéttbýlisstöðum um ára-
mótin.
Hóflega; en ýmislegt verður þó
Alþingi
Alsamn-
ingurinn
Samningur ríkisstjórnarinnar
við Alusuisse var endanlega stað-
festur í atkvæðagreiðslu í Neðri
deild Alþingis í gær, eftir að út-
varpsumræður höfðu farið fram.
Samþykkir voru 23 liðsmenn
stjórnarinnar og Bandalags jafn-
aðarmanna. Andvígir voru 12
þingmenn Alþýðuflokks, Al-
þýðubandalags og Kvennalista.
Einn þingmaður, Magðalena Sig-
urðardóttir úr Framsóknarflokki
sat hjá og fjórir voru fjarverandi.
Meðal þeirra var Jón Baldvin
Hannibalsson, sem áður hafði
lýst stuðningi sínum við samning-
inn, þvert ofan í stefnu Alþýðu-
flokksins. ólg
til hátíðabrigða: góðir gestir
koma í heimsókn og tjá sig um
rásina, Guðmundur Ingólfs
mætir með djassbræður sína í
beina útsendingu, „og hingað
kemur stjörnuspekingur sem ætl-
ar að smella okkur á vogarskál-
arnar“ sagði Þorgeir.
-Ég get ekki verið annað en
ánægður, sagði Þorgeir um fyrsta
starfsárið, ég vissi hvað ég hafði í
handraðanum þegar útí þetta var
lagt, en undirbúningstíminn var
lítill og óvissuþættirnir margir.
Ég gerði alls ekki ráð fyrir að allir
hrópuðu húrra, og gagnrýnin hef-
ur ekki komið á óvart. Hún hefur
sumpart verið reist á rökum, en
annað verið byggt á misskilningi
og vanþekkingu.
-Við höfum stundum verið
hart dæmdir, til dæmis í málfars-
efnum, en ég er feginn að sú
gagnrýni kom fram. Þetta er ís-
lensk stöð og verður það áfram,
þótt auðvitað fljóti hér alþjóðlegt
efni útí loftið. Menn gagnrýndu
rás tvö fyrir málfar, en gagnrýnin
er ekki bundin við hana, og
skapaði umræður um málfar í
fjölmiðlum yfirleitt.
-Á næsta starfsári verður dag-
skráin lengd. Á afmælinu hefjum
við reglulegar laugardagssend-
ingar og bráðlega verður útvarp-
að á fimmtudagskvöldum frá átta
til tólf, sagði útvarpsstjórinn, og
við óskum honum og hans liði til
hamingju með afmælið!
vörslu, og hefur safnið látið búa
til sérstaka geymslumöppu utan-
um fullveldispappírana. Við-
staddur afhendinguna var Baldur
Möller ráðuneytisstjóri.
Sambandslagasamningunum
lauk í júlí 1918. í september var
kvatt saman aukaþing um samn-
inginn og hann samþykktur þar
með 37 atkvæðum gegn tveimur.
Danska þingið samþykkti einnig
samninginn, og í allsherjarat-
kvæðagreiðslu 19. október
fögnuðu íslendingar fullveldi:
12411 með, 999 á móti.
Um hádegisbil hinn 1. desemb-
er var Eldgamla ísafold leikin á
Stjórnarráðsblettinum og síðan
hlustuðu þeir Reykvíkingar sem
ekki lágu í spánsku veikinni á Sig-
urð Eggerz lýsa yfir fullveldi: „í
dag eru tímamót. í dag byrjar ný
saga, saga hins viðurkennda ís-
lenska ríkis...“
Þjóðskjalavörður lítur á sambandslaaasamninginn, undirritaðan af sambands-
laganefndum ríkjanna og ríkisstjórn íslands: Jóni Magnússyni, Sigurði Eggerz,
Sigurði Jónssyni. Dómsmálaráðherra flettir lögunum sjálfum staðfestum af
konungi.
Landbúnaðarvörur
15% hækkun á mánudag
Niðurgreiðslur látnar standa í stað. Aðeins 40% hœkkunarinnar
vegna launaliðs bóndans. Milliliðir taka annað eins.
Verð á landbúnaðarvörum mun
hækka að meðaltali um 15% á
mánudaginn kemur. 6 manna
nefndin fundaði í allan gærdag
um nýja verðskrá en ekki er talið
að útreikningar liggi að fullu fyrir
fyrr en síðdegis í dag.
Samkvæmt heimildum Þjóð-
viljans verða niðurgreiðslur ekki
hækkaðar í samræmi við þá stór-
hækkun sem nú er verið að á-
kveða. Þetta mun þýða meiri
hækkun á mjólkurvörum en öðr-
um landbúnaðarvörum. Þá er
Gerðuberg
List á laugardegi
■ ist
Lme
ist á laugardegi er yfírskrift
nenningarsamkomu sem ABR
Breiðholt stendur fyrir í Gerðu-
bergi í dag. Tilefnið er auðvitað
afmæli fullveldisins, 1. desember.
Dagskráin hefst kl. 14.30.
Ifrétt frá félaginu segir að þar
muni fiðlukvartett nemenda úr
Tónskóla Sigursveins leika, Edda
Andrésdóttir mun lesa úr bók
sinni og Auðar Laxness, Á
Gljúfrasteini, Árni Bergmann les
úr skáldsögu sinni Með kveðju
frá Dublin og Gunnar Guttorms-
son og Sigrún Jóhannesdóttir
munu syngja erlend og innlend
sönglög.
Vernharður Linnet ætlar að
kynna dagskráratriðin. Kaffistof-
an í Gerðubergi verður auðvitað
opin. Kjörið tækifæri fyrir alla
fjölskylduna til að hlýða á vandað
menningarefni um leið og haldið
er upp á fullveldisafmælið. -v.
einnig athyglisvert að áf þessari
15% hækkun sem nú á að hleypa
út í verðlagið er einungis 40%
kostnaðarhækkunarinnar til-
komin vegna launaliðs bóndans
og 20% vegna hækkunar kjarfóð-
urs eftir nýliðna gengisfellingu að
sögn Gunnars Guðbjartssonar
formanns framleiðsluráðs land-
búnaðarins. Afgangurinn eða um
40% kostnaðarhækkunarinnar
liggur í smásöluálagningunni og
ýmsum milliliðum í landbúnað-
arkerfinu. -Ig.
Þjóðviljinn
Frá og með 1. desember hækk-
ar áskriftarverð Þjóðviljans upp í
300 kr. á mánuði. Blaðið kostar
30 kr. í lausasölu virka daga en 35
kr. um helgar. Auglýsingaverðið
hækkar í 180 kr. dálksentimetr-
inn.
ASÍ þing
Vígstaðan undirbyggð
Ásmundur Stefánsson: Við getum breyttþessu þjóðfélagi. Áherslumunur, ekki ágreiningur.
Gerumst virkara afl í pólitískri umræðu. Gagnmerk mál afgreidd.
Pó að skoðanir séu að sjálfsögðu
misjafnar, þá er Ijóst, að það
er vaxandi óánægja með þá mis-
skiptingu, sem við búum við í
okkar þjóðfélagi. Ég er
sannfærður að með sameiginlegu
átaki og öfíugu starfi í verkalýðs-
hreyfíngunni, starfi sem ekki er
bara starf forystu, heldur allrar
hreyfíngarinnar. þá getum við
breytt þessu þjóðfélagi, þá getum
við þokað því áfram og við
skulum vinna að því að bæta
lífskjörin, ná auknum jöfnuði og
réttlátara þjóðfélagi.
Þetta voru lokaorð Ásmundar
Stefánssonar, forseta ASÍ, þegar
hann sleit 35. þingi ASÍ í gær. Þar
með var lokið fjölmennasta þing-
haldi sem háð hefur verið á ís-
landi.
Á blaðamannafundi sagði Ás-
mundur Stefánsson að hann væri
ánægður með þetta þing. Auðvit-
aö hefðu á stundum verið um að
ræða áherslumun en ágreining og
nefndi í því sambandi kjaramála-
ályktun þingsins.
Ásmundur var inntur efitr því
hvað honum hefðu þótt merkustu
mál þingsins. Hann taldi erfitt að
taka út eitt ákveðið mál í þessu
sambandi, þó benti hann á að
menn stæðu með í höndunum
merka ályktun í kjaramálum,
sömuleiðis væru merkir áfangar í
skipulagsmálunum, merkar sam-
þykktir í fræðsiumálum, áfanga í
málefnum aldraðra og fleira
Hlinilllill—
mætti nefna. Þá benti Ásmundur
á að ljóst væri að verkalýðshreyf-
ingin yrði að skipuleggja sig betur
og gerast virkara afl í almennri
pólitískri umræðu og marka sér
traustari málefnaforsendu, í ein-
stökum málaflokkum. Þetta væri
nauðsynlegt ekki síst í ljósi þess
hve vel VSÍ hefði skipulagt sig
með her manns á mörgum víg-
stöðvum.
Ásmundur sagði að
su nkis-
miklu ósvífnari og yfirgangs-
samari en nokkur önnur rikis-
stjórn til margra ára, í að berja
niður kjörin og auka misrétti í
þjóðfélaginu. Forsetamir voru
sammála um að verkalýðshreyf-
ingin væri slíkt afl að frarn hjá
henni yrði ekki gengið ef hún
beitti sér og enda þótt ekki hefði
komið til allsherjar verkfalls á
síðustu árum, skyldi enginn van-
meta afl hreyfingarínnar.
stjórn sem nú sæti.
-a.dor