Þjóðviljinn - 01.12.1984, Qupperneq 4
LEIÐARI
Tvísýna í Nicaragua
í gær bárust þær fréttir aö fulltrúar vinstrifylk-
ingar og skæruliöa í El Salvador væru aö setjast
að samningaborði meö fulltrúum stjórnar Duart-
es í erlendu sendiráði í höfuðborg landsins. Sú
fregn vekur upp vonir um að menn séu nú
nokkru nær pólitískri lausn mála í því landi en
áður. Enn sem fyrr er fasísk grimmd svonefndra
dauðasveita, sem eiga margskonar aðgang að
valdakerfinu og að bandarískri leyniþjónustu,
stærst hindrun á vegi pólitísks samkomulags,
en sæmilega innrættir menn hljóta að vona að
einangra megi það lið með einhverjum hætti.
Þessar jákvæðu fregnir um sáttaumleitanir í
El Salvador koma skömmu eftir alvarleg tíðindi
frá grannríkinu Nicaragua sem minna á það, að
eftir sigur í forsetakosningunum heldur stjórn
Reagans áfram taugastríði gegn þessu Mið-
Ameríkuríki með „ískyggilegu kappi“ eins og
biaðið New York Times kemst að orði í nýlegum
leiðara. Taugastríði sem ekki aðeins stjórn
Sandinista í landinu heldur og mikill fjöldi á-
hyggjufullra granna óttast, að kynni að Ijúka ef
ekki með beinni innrás þá í meiriháttarflughern-
aði gegn Nicaragua.
Eins og menn rekur minni til voru fregnir um
góða framkvæmd forsetakosninga í Nicaragua í
byrjun máðarins kæfðar með stórum upphróp-
unum frá Washington, um að bandarísk njósna-
tækni hefði misst sjónar á sovéskum MIG-
þotum innpökkuðum. Var því ítrekað haldið
fram að orustuþotur þessar væru á leið til Nicar-
agua með sovésku flutningaskipi, og mundu
þoturnar skapa hættu nágrönnum Nicaragua.
Eftir nokkra hríð urðu Bandaríkjamenn að viður-
kenna að fregnin um þoturnar væri úr lausu lofti
gripin og fyrrgreint bandarískt stórblað, New
York Times, sagði að þau sovésk vopn sem í
raun kæmu nú til Nicaragua gæfu „ekki ástæðu
til undrunar eða uggs“, ef tekið er mið af þeim
hernaði, styrtkum af Bandaríkjamönnum, sem
nú er rekinn er frá grannríkjum Sandinista.
Ráðamenn í Washington sögðu, að fréttin
falska væri byggð á „glæpsamlegum leka“ frá
bandarískum njósnaþjónustum - en um leið var
Ijóst, að þeir voru látunum fegnir. Liðsoddar
Reagans halda áfram að hamra á því, að hvort
sem MIG-þotur koma til Nicaragua eða ekki, þá
sé landið að verða sovésk bækistöð, háskaleg
öryggi nágrannanna og Bandaríkjanna sjálfra.
Það er haft hátt um bandarískar heræfingar í
kringum Nicaragua og að kannski verði flotinn
látinn stöðva sovésk skip á leið til landsins og
að það sé ekki hægt að útiloka loftárásir á Nic-
aragua.
Það er ekki gott að vita hve alvarlegar þessar
hótanir eru. Enginn sem man langa sögu yfir-
gangs hins bandaríska „hákarls" í „sardínu-
heirni" ríkja Mið-Ameríku, getur útilokað að Re-
aganstjórnin fitji upp á enn einu hernaðarævin-
týri. Að minnsta kosti er hert á taugastríðinu til
að skapa í almenningsáliti réttlætingu fyrir því,
að auka stuðning við málaliða þá
gagnbyltingarsinnaða, sem herja á Nicaragua
frá Honduras og Costa Rica. Til að reyna að
kyrkja Nicarauga efnahagslega, stöðva um-
bótastarf í landinu og skapa það pólitískt ástand
innanlands sem tæki fyrir viðleitni Sandinista til
að forðast einsflokkskerfi annarra byltíngarr-
íkja.
Við þessum háskalega leik bandarískra
stjórnvalda eru til ýmis svör. Eitt þeirra mátti
heyra í útvarpsviðtali í fyrrakvöld við forseta
Alþýðusambandsins norska, sem hefur veitt
Nicaragua ýmislega þróunaraðstoð. Hann
sagði sem svo: Nicaragua á fyllilega skilið að fá
þróunaraðstoð og ef Sandinistar fá aðstoð frá
aðilum á borð við norsk launamannasamtök, þá
eru meiri líkur en ella á því, að þeir geti sneitt hjá
háska valdaeinokunar, að þeir geti treyst sína
byltingu með frelsi.
Kvennnabyltingin gengin í garð. Konurnar á myndinni voru fulltrúar á þingi ASÍ. Þær eru á leiðinni upp stigann að Súlnasal Hótel Sögu, þarsem ASf þingið var haldið í síðustu
viku. Að sjálfsögðu eru þær glaðar og reifar, enda að koma af „samráðsfundi" sem jafnréttisráð bauð til í Rúgbrauðsgerðinni. Hvað þær eru að syngja? Auðvitað „Kátir voru
karlar!“ Mynd: eik.
DJÖÐVIUINN
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis
og verkalýðshreyfingar
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans.
Ritstjórar: Árni Bergmann, össur Skarphéöinsson.
Ritstjórnarfulltrúi: Oskar Guömundsson.
Fróttastjórl: Valþór Hlööversson.
Blaöamenn: Álfheiöur Ingadóttir, Ásdís Þórhallsdóttir, Guðjón Friöriksson,
Jóna Pálsdóttir, Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gíslason, Möröur Árnason,
ólafur Gíslason, Sigurdór Sigurdórsson, Víöir Sigurösson (íþróttir).
Ljósmyndir: Atli Arason, Einar Karlsson.
Útllt og hönnun: Filip Franksson, Þröstur Haraldsson.
Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar.
Framkvœmdastjóri: Guörún Guðmundsdóttir.
Skrlfstofustjóri: Jóhannes Harðarson.
Auglýaingastjóri: Ragnheiöur Óladóttir.
Auglýsingar: Anna Guðjónsdóttir, Margrét Guömundsdóttir.
Afgreiöslustjóri: Baldur Jónasson.
Afgreiösla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir.
Símavarsla: Ásdís Kristinsdóttir, Sigríður Kristjánsdóttir.
Húsmœöur: Bergljót Guöjónsdóttir, ólöf Húnfjörð.
Innbeimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Bjömsson.
Útkeyrsla, afgreiðsla, auglýsíngar, ritstjórn:
Síðumúla 6, Reykjavík, sími 81333.
Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Verð í lausasölu: 22 kr.
Sunnudagsverð: 25 kr.
Áskriftarverð á mánuði: 275 kr.
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 1. desember 1984