Þjóðviljinn - 13.12.1984, Blaðsíða 2
FRETTIR
Pólarlax
Vill geyma seiði
í Kleifarvatni
Bœjarstjórn með málið til athugunar og stangveiðifélagið sem hefur umráð yfir vatninu.
Fiskeldisfyrirtækið Pólarlax í
Straumsvík hefur sent bæjar-
stjórn Hafnarfjarðar erindi um
að fá að geyma laxaseiði í flotkví-
um í Kleifarvatni og fóðra þar
þangað til þau hafa náð göngust-
ærð.
„Þetta er allt á frumstigi og
fyrst og fremst hugsað sem til-
raun til að byrja með ef leyfið
fæst“, sagði Hannes Helgason
starfsmaður Pólarlax í samtali við
Þjóðviljann í gær. Stangveiðifé-
lag Hafnarfjarðar hefur umráð-
arétt fyrir Kleifarvatn samkvæmt
samningi við bæinn og er erindi
Pólarlax nú til umsagnar hjá fé-
laginu.
Hannes sagði að Pólarlax hefði
verið í góðu samstarfí við fisk-
eldisstöð í Færeyjum sem gerir
töluvert af því að geyma seiði í
vötnum til að spara sér kostnað
og auka afrakstursgetu án mikilla
dýrra framkvæmda. „Þetta hefur
gengið mjög vel hjá þessum aðila
í Færeyjum og einnig er þetta
mikið stundað víðar í nágranna-
löndunum. Okkur langar að prófa
þetta og sjá hvað verður úr en ég
á ekki trú á að það yrði á þessum
vetri sem sett yrðu niður flotkvíar
í vatnið ef leyfi fæst“, sagði
Hannes.
f Hafnarfirði hafa gárungarnir
sagt að það væri ekki nema sjálf-
sagt að leyfa fyrirtækinu að setja
seiðin í vatnið og hjálpa þannig til
við að fóðra hin umtöluðu
Kleifarvatnsskrýmsli. _lg
Tannskemmdir skólabarna
Forvamarstarfi illa sinnt
Sífelltfleiri bœjarfélög taka upp flúorskolun í barnaskólum. Tekist hefur að ná
tannskemmdum verulega niður íReykjavík og víðar. Ástandið víða mjögslæmt
Tannskemmdir í börnum hér-
lendis eru margfalt meiri en
þekkist í næstu nágrannalöndum
og Bandaríkjunum. Er jafnvel
álitið að íslensk börn eigi heims-
met í tannskemmdum eins og
skýrt var frá í Þjóðviljanum í
gær. Þar kom m.a. fram að helm-
ingur allra tanna í 12 ára börnum
í Hafnarfirði eru ýmist skemmd-
ar, viðgerðar eða útdregnar, en
ástandið er enn verra á Akranesi
B/v Maí, togari Bæjarútgerðar
Hafnarfjarðar heldur að
öllum líkindum til veiða í kvöld og
mun selja afla sinn erlendis um
jólin. Einnig er talið líklegt að b/v
Júní verði sendur á miðin í vik-
unni og látinn sigla með aflann.
Frystihús Bæjarútgerðarinnar
hefur nú verið lokað í hálfan
þriðja mánuð og litlar líkur að
því nýlegar athuganir sýna að þar
eru að meðaltali 13.2 tennur
skemmdar af hverjum 24 í 12 ára
börnum.
Magnús R. Gíslason yfir-
tannlæknir tannheilsudeildar
heilbrigðisráðuneytisins sagði í
samtali í gær að ástandið væri
hvergi nógu gott í þessum efnum
hérlendis. Nýlegar kannanir
sýndu að tannskemmdir hér væru
BÚH
það taki til starfa aftur fyrr en
eftir áramótin.
Samkvæmt heimildum Þjóð-
viljans stefnir meirihluti útgerð-
arráðs á að vinnsla verði hafin að
nýju þegar eftir áramótin, en
meirihluti Sjálfstæðismanna og
Óháðra borgara í bæjarstjórn er á
annarri skoðun og sýnir lítinn
áhuga á því að koma frystihúsinu
langt umfram það sem þekktist í
nágrannalöndum og það væri
vegna þess að forvarnarstarfi
væri ekki nógu vel sinnt. Sem
dæmi má nefna að á Norður-
löndum eru að meðaltali 4
skemmdar tennur í hverju 12 ára
barni og í Bandaríkjunum aðeins
2.7 en þar drekkur annar hver
íbúi flúorblandað drykkjarvatn.
Á Norðurlöndum er hins vegar
unnið mjög gott forvarnarstarf í
af stað aftur.
Sjálfstæðismenn í bænum eru
því skiptir í afstöðu sinni til fyrir-
tækisins. Bæjarfulltrúarnir vilja
helst „selja“ BÚH til einstaklinga
enn fulltrúar flokksins í útgerðarráði
og fjölmargir aðrir áhrifamenn í
flokknum vilja halda rekstrinum ó-
breyttum, enda fyrirtækið vel rekið í
alla staði. - lg.
skólum og börn m.a. látin skola
tennurnar reglulega með flúor.
Erfiðlega hefur gengið að
koma slíku forvarnarstarfi á hér-
lendis, en þar sem það er viðhaft
hefur tekist að draga verulega úr
tannskemmdum. í Reykjavík eru
tannskemmdir t.d. komnar niður
í 6.8 að meðaltali að áliti skóla-
tannlækna. Flúorskolun er ný-
hafin í skólum í Garðabæ, hún er
viðhöfð á Seltjarnarnesi og verð-
ur bráðlega tekin upp í Kópa-
vogi, en á öllum þessum stöðum
er um verulegar tannskemmdir
að ræða í börnum.
„Þetta hefur kostað nokkra
baráttu við sveitarfélögin því
margir halda að þeir séu að spara
fjárhæðir þegar börn mæta ekki
reglulega í tannskoðun. Þetta er
mesti misskilningur því þegar þau
loks mæta eru skemmdirnar
orðnar meiri og viðgerðir miklu
kostnaðarsamari en ella. Við
erum að framkvæma hér ýmsar
tannviðgerðir á börnum sem
þekkjast varla lengur í nágranna-
löndum eins og rótfyllingar",
sagði Magnús. Hann sagði einnig
að efniskostnaðurinn við flúor-
skoðun 'æri sáralítill, 50 krónur á
hvert skóiabarn á ári.
-Ig-
Togaramir sigla enn
Sjálfstœðismenn klofnir í afstöðunni til sölu fyrirtcekisins
Ætli helstu fórnarlömb gos-
styrjaldarinnar verði ekki
megrunarfríkin.
Útvarp
Blöndal
liggur á
í dag verður fundur í
menntamálanefnd neðri deildar
alþingis, þar sem gert er ráð fyrir
að Sjálfstæðisflokkurinn muni
vilja láta sverfa til stáls við Fram-
sóknarflokkinn og stjórnarand-
stöðunna um útvarpslagafrum-
varpið. Formaður nefndarinnar
Halldór Blöndal og Sjálfstæðis-
flokkurinn allur hafa lagt mikla
áherslu á að frumvarpið verði til
umfjöllunar alþingis fyrir jóla-
leyfi þingmanna, en nefndar-
menn segja miklu vinnu eftir í
nefndinni.
óg
Karfaveiðar
Landiá 6
daga fresti
Bæjarútgerð Reykjavíkur hef-
ur ákveðið að togarinn Otto N.
Þorláksson landi karfa í Reykja-
vík á 6 daga fresti alveg burtséð
frá því hvernig aflast. Er þetta
gert til að fá sem best hráefni í
neytendapakkningar, bæði fyrir
innanlandsmarkað og Banda-
ríkjamarkað.
Aftur á móti eru sjómenn ekki
jafn hrifnir af þessu nýja fyrir-
komulagi, vegna þess að laun
þeirra skerðast mjög, þar sem
ljóst er að aflinn verður miklu
minni með þessu fyrirkomulagi.
-S.dór
Vegagerð
Hringvegur
í Blafjöll
Ný leið frá Suðurnesjum á Suðurlandsveg
Bláfjallavegur frá Suðurnesj-
um hefur verið opnaður. Er
þá hægt að aka frá Krísuvíkur-
veginum á gamla Bláfjallaveginn
neðan við Eldborgina.
„Þar með er búið að opna nýja
leið milli Suðurnesja og Suður-
landsvegar", sagði Elín Pálma-
dóttir formaður Bláfjallanefndar
við Þjóðviljann. „Reyndar er
ekki alveg búið að ganga frá veg-
inum eins og fyrirhugað er að
hann verði. Eftir er að ganga frá 3
km hringvegi upp að skíðaskálan-
um og niður að gatnamótunum,
en nú þarf að aka fyrir Eldborg-
ina og síðan upp að skálanum.
Einnig er eftir að hækka endann á
Bláfjallaveginum gegnum
Óbrynnishóla við Krísuvíkur-
veg“. Sagði Elín hættu á að veg-
urinn teppist þarna þegar snjó-
þyngsli verða.
Með tilkomu nýja vegarins
mun leiðin í Bláfjöll styttast veru-
lega fyrir Suðurnesjabúa og
Hafnfirðinga. Kópavogsbúar
fara álíka vegalengd hvora
leiðina sem þeir velja.
-jP
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 13. desember 1984