Þjóðviljinn - 16.12.1984, Qupperneq 18
Hagnýtsálar-
frœði
eða hvernig kjólar halda áfram
aðveraóseldiríbúðum.
Skrítlur
Allt í lagi.
Pétur, sagöi kennarinn, enn
einu sinni kemur þú of seint.
Klukkan er tuttugu mínútur yfir
átta.
Það gerir ekkert til kennari.
Mamma segir alltaf aö ég eigi allt
lífið framundan.
Kjarakaup
Blómaverslun ein í Verona
festi upp svofellda auglýsingu í
búðarglugganum:
Hjá okkur eru blóm svo ódýr að
meira að segja eiginmenn geta
keypt þau.
Tryggð
Ég held því fram að tryggð
þessa hunds eigi sér engan líka.
Eg hefi selt hann þrisvarog þrisv-
ar hefur hann komið til mín aftur.
Óhapp
Tveir fangar tala saman. Ann-
ar segir við þjáningabróður sinn:
Allir kvarta yfir því að þeir hafi
verið óheppnir, þess vegna sitji
þeir inni. Ég trúi því ekki. Það er
ekki til svona mikið af óheppni.
Við erum bara svona gaga.
Jæja? sagði hinn. En hvað um
mig? Ég ætlaði að brjótast inn í
sumarbústaðinn hans Fredda og
heilum mánuði eyddi ég í að
koma mér vel við hundinn hans,
gaf honum kjötbita og spægi-
pylsu og guð má vita hvað. En
þegar ég svo var kominn inn í
forstofuna í þessu sloti þegjandi
og hljóðalaust - þá steig ég ofan
á rófuna á kettinum!
Mengunar-
vandamál
- Ég sé að vatnið hér er illa
mengað. Hvað gerið þið í mál-
inu?
- Fyrst síum við vatnið, svo
sjóðum við það og svo bætum við
í það nauðsynlegum steinefnum.
- Fyrirtak. Og hvað svo?
- Svo drekkum við bjór.
Réttlætisbarátta
Mamma, sagði Sigga litla.
Hann Nonni heimtar að fá að éta
hálfa tertusneiðina mína. Mér
finnst það ekki rétt, því hann gat
verið búinn að borða tertur í tvö ár
áður en ég fæddist.
Þarna er þessi frægi hönnuður - hann ætlar ekki að sýna þessa nýju
vinkonu sína fyrr en á næstu bílasýningu.
Viltu ekki vera svo vænn Jónmundur að fara og búa til kaffi handa
okkur.
eða ætlið þér barasta að ná yður
niðri á eiginmanninum með því
að kaupa eitthvað sem er dýrt?
Ha? sagði frú Thorlands.
Kannski grunið þér hann um
framhjáhald og teljið að þetta sé
eina leiðin til að jafna metin?
Ég á nú ekki orð, sagði við-
skiptavinurinn.
Ég segi yður satt: það er mjög
dýrt form fjandskapar að eyða
peningum sagði Gugga. Ég tel
ráðlegast fyrir yður að hugsa mál-
ið í nokkra daga. Eins og Freud
sagði: ný dragt eyðir ekki hjú-
skaparduld.
Frú Arnalds sagði ekki orð en
sigldi út eins og galías í sterkum
vindi.
Ég heyrði þetta, en ég sagði
ekkert. Því ég hefi alltaf borið
virðingu fyrir vísindum.
Svo kom önnur kona, sem ég
ekki þekki, og þó þekki ég allan
bæinn eða svo gott sem.
Hún sagði:
Ég verð að fá eitthvað æsilegt.
Ég er að fara í móttöku í Ráð-
herrabústaðnum og ég vil fá kjól
sem leggur alla flata.
Gugga kinkaði kolli ofur skiln-
ingsrík:
Komdu með mér. Hér erum
við með ægilega smarta kvöld-
kjóla fyrir fólk sem skortir sjálfs-
traust.
Sjálfstraust?
Einmitt. Vissirðu ekki að föt
eru eitt aðalmeðalið sem konur
brúka til að berja niður skort á
öryggi og sjálfstrausti?
Ég er ekkert óörugg, sagði
konan og var fúl.
Af hverju viltu þá að allir liggi
flatir í Ráðherrabústaðnum?
Hvers vegna viltu ekki að menn
taki þér eins og þú ert, en ekki
umbúðunum utan um þig? Hef-
urðu ekki fylgst með? Þú ert
mjög lagleg og það er eitthvað
merkilegt við þig sem þú ert að
reyna að fela, guð má vita til
hvers. Ég get svo sem selt þér
nýjan kjól sem vekur athygli - ef
þú endilega vilt. En þá kemstu
heldur aldrei að því, hvort það
varst þú sjálf eða dressið sem
varð til þess að menn göptu af
undrun og aðdáun.
Mér fannst nú nóg komið. Ég
gekk fram og sagði!
Gugga mín, ef að konan vill
kvöldkjól, leyfðu henni þá að
skoða kvöldkjóla. Hvurslags er
þetta eiginlega.
Nei, sagði viðskiptavinurinn.
Hún hefur rétt fyrir sér. Til hvers
ætti ég að eyða tíu þúsundum til
að fá að heyra eitthvað smjaður
frá fólki sem er skítsama um það
hvort ég er til eða ekki? Þakka
þér kærlega fyrir hjálpina vina.
Ég held þetta sé rétt hjá þér - ég
hefi verið eitthvað svo óörugg og
ekki einu sinni vitað af því.
Svo gekk hún út og var tiltölu-
lega ánægð á svipinn, en ég ekki.
Gugga brosti til mín uppörf-
andi eins og hún vildi segja:
Þarna sérðu.
Ég sá og skildi. Ég sagði henni
upp.
Eg efast um að sálfræðin séu
vísindi. Að minnsta kosti ekki
hagnýt.
Skaði stældi og frumsamdi.
Það er alltaf verið að segja mér
að sálfræði sé svo afskaplega
hagnýttfag. Líkaíviðskiptum.
Það hjálpi svo vel til að átta sig á
allskonardjúpstæðum ástæðum
fyrir því, að menn gera það sem
þeir gera, hætta við það sem þeir
ætluðu að gera eða láta sig
dreyma um eitthvað, sem þeir
kannski mundu gefa ef þeir hefðu
efniáþví. Eðaef einhvertelur
þeim trú um, að þeir hafi nú rétt
til að kaupa sér vídeó eða eyða
þúsundkalli í steik.
Til dæmis, segir hagnýta sál-
fræðin: hvernig á að selja fólki
brjóstsykur og súkkulaði þegar
allir vita að gotterí er óhollt og
fítandi og guð má vita hvað. Jú -
kamel
síríussúkkulaði
nóalakkrís
saltaðar hnetur
egilsbjór
og svo framvegis. Þetta er fín
auglýsing. Hún bregst aldrei.
Eg hefi verið að hugsa mikið
um þetta með sálfræðina, því ég
er með svona fatabúð hérna í
miðbænum. Hún hefur gengið
bara vel. Ég segi bara við kúnn-
ann: Þetta fer þér ágætlega. Þú
yngist upp um þrjú ár (ég segi
aldrei fimm ár því að ég veit að
það borgar sig ekki að ljúga mjög
miklu í einu). Svona hefi ég haft
það lengi. En ég veit að ég er ekki
á eftir tímanum.
Hvort heldurðu, spurði Gugga, að skipti meira máli, þú sjálfur eins og þú ert eða
umbúðirnar utan um þig?
þú grefur upp úr sálarkimanum
ákveðið samhengi: þegar hann
eða hún voru lítil, þá fengu þau
gott ef þau voru góð. Ef þau til
dæmis borðuðu hafragraut. Þá
áttu þau skilið að fá 'kandís eða
karamellu. Þetta ber að nota,
segir hagnýta sálfræðin. Þú býrð
til mynd af náunga sem er sveittur
og brosandi að hvfla sig eftir að
hafa grafið hundrað metra skurð
á feiknarlegri gröfu, rekið hross
til byggða yfír fjöll og firnindi eða
neglt saman flekahús á hálfum
degí. Og hann er að fá sér
eitthvað sem honum þykir gott.
Og textinn í auglýsingunni er:
Nú á ég skilið að fá mér
kók
pepsíkóla
Gugga var ósköp elskuleg og
greindarleg á bak við gleraugun
og ég var viss um að okkur mundi
koma vel saman.
En svo kom frú Thorlands ask-
vaðandi, öll á taugunum eins og
venjulega og sagðist ætla að
kaupa sér dragt fyrir veturinn.
Gugga brosti elskulega og
spurði:
í hvaða verðflokki?
Það skiptir ekki máli, sagði frú
Thorlands og ég heyrði það ekki
vel fram í kompu þar sem ég sat,
hvort hún var frekar hissa en
móðguð. Að spyrja hana um
verðflokk, drottinn minn!
Skiptir ekki máli, sagði Gugga
hugsi. Segið mér þá eitt frú: Eruð
þér að kaupa dragtina vegna þess
að þér þurfið á henni að halda,
18 SfÐA - ÞJÓÐVILJINN ~ JÓLABLAÐ