Þjóðviljinn - 19.12.1984, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 19.12.1984, Blaðsíða 4
LEIÐARI Þverbrotin Börn - hvaöa fjársjóöir eru þeim fremri? Hvaö vekur dýpri tilfinningar en þau? Er þaö fordæm- anleg kröfuharka aö mælast til aö til farsældar þeirra sé kostaö fé öörum hlutum fremur? Oddvitar núverandi ríkisstjórnar hafa því miö- ursvarað þessu játandi meö verkum sínum. Hjá þeim viröast börn og velferö yngstu kynslóð- anna sannast sagna ekki ýkja hátt skrifuð. Þaö sama gildir raunar um svo margt annað, sem þó þótti einna dýrmætast í mannlegu félagi áöur en markaðslögmálin og gróöaþörfin voru gerð að þeim gullkálfi sem allt þarf aö dansa í kringum. Þetta viöhorf stjórnvalda til barna og heimil- anna hefur komiö einkar skýrt fram í fjárlagaum- ræöunni sem stendur yfir á Alþingi þessa dag- ana: allar tillögur stjórnarandstööunnar um hækkun á fjárframlögum til byggingar dagvist- arheimila hafa veriö rokfelldar af stjórnarliðinu! Þessi afstaöa þeirra sem fara meö völd opin- berar raunar tvískinnung í merkara lagi. Ráöa- menn, meö félaga forsætisráöherra Steingrím Hermannsson í brjósti fylkingar, hafa marglýst yfir að auövitaö sé rétt aö gera ráð fyrir aö nú þurfi tvo til aö vinna fyrir heimili. En sé þaö rétt - loforð um sem enginn raunar efast um lengur- hvaö á þá að gera viö börnin? Hvar á aö geyma þau meö- an pabbi og mamma eru úti aö vinna? Eiga þau kannske aö ganga sjálfala á götunum og syngja um dýrö ríkisstjórnarinnar eins og fuglar himins- ins um dýrð Drottins? í hnotskurn er málið einfaldlega þetta: ríkis- stjórn sem hefur komiö á þvílíkri vinnuþrælkun að báöum foreldrum er nauðugur einn kostur aö vinna langan starfsdag utan heimilis, ber auðvitað siöferöileg skylda til aö stuðla aö því aö börn þessara sömu foreldra eigi kost á ör- uggu skjóli meðan pabbi og mamma eru í vinnu. Um langt skeiö hefur átak í byggingu dagvist- arheimila því veriö á dagskrá félagshyggjuafla í landinu. Sú barátta hefur þó mætt á konum. Áriö 1979 unnu þær áfangasigur: Eftir aö hafa safnaö tíu þúsund undirskriftum til stuðnings átaki í dagvistarmálum gerði verkalýöshreyfing- in þaö aö kröfu sinn í októbersamningunum 1980 aö ríkisstjórnin gerði áætlun um aö fullnægja þörf fyrir byggingu dagvistarheimila á næstu tíu árum. Að þessu gekk stjórnin. Til að uppfylla lágmarksskilyröi þessarar dagvistun áætlunar heföi nú þurft aö veita á fjárlögum nákvæmlega 75.8 miljónum króna. Alþýðu- bandalagið geröi tillögu um aö einmitt þessari upphæö yröi veitt til byggingar dagvistarheimila á næsta fjárlagaári. Kvennalistinn gerði tillögu um áþekka upphæð, eða 70 miljónir. Báöar voru felldar af stjórnarliöum: sú fjárhæö sem nú er inni á fjárlögum nær ekki einu sinni helmingi þessara upphæöa! Ríkisstjórnin ætlar sé því að þverbrjóta þau loforð sem verkalýðshreyfingunni voru gefin 1980. Þetta ástand er auðvitað meö öllu óviöun- andi. Verkalýðshreyfingin og stjórnmálaflokkar sem setja hagsmuni mannfólksins ofar hags- munum auðmagnsins þurfa aö taka höndum saman um aö hrinda niöurskuröi stjórnvalda í byggingu dagvistarheimila. Dagvistun og mál sem þeirri þarfaþjónustu tengjast eru eitt af brýnustu verkefnum líöandi stundar. Sameiginlegt átak á því sviöi gæti verið ein af þungamiðjunum í auknu samstarfi félags- hyggjuafla á íslandi. KLIPPT 0GSK0RIÐ Vinnuþrælkuð, drykkfelld lukkuþjóð etur handunnið svissneskt konfekt. Lokuð þjóð í Morgunblaðinu um helgina voru skemmtileg viðtöl við ungt fól sem dvelur hér á landi sem skiptinemar og hefur verið hér í nokkra mánuði. Glöggt er gests augað, segir máltækið, og það er merkilegt hversu samdóma unga fólkið er um það hvernig mann- lífið er hér á landi. Andrey Lipe frá Norður- Kaliforníu segir íslendinga vera lokaða en elskulega undir niðri. „Við búum í miklu heitara landi, heima er fólkið opnara og út- hverfara, hér finnst mér fólk miklu lokaðra og meira eitt en heima, það er miklu meira ein- mana hér. Við búum við efna- hagslega fátœkt, en ykkar vanda- mál eru miklu frekar sálfrœði- leg“, segir German Iozno frá Col- umbíu, sem vinnur í fiski á Patró. Vinnu- þrælkun íslendingar vinna mjög mikið, að áliti hollensku stúlkunnar Beu Mayer, sem er í síld á Eskifirði, - „jafnvel 10 tíma á sólarhring eða meira. Ég held að fólk sé ánœgt með þetta afþvíþað þekkir ekkert annað". Steita og drykkjumennska Samfara vinnuþrælkun kemur svo ov r!n?kkíain Hcn fvó • Hollandv ,thcr vcrður hrtst aft í klára úr flösku scm hefur verið j_____________ '_________ opnuð. Ég held þetta geti stafað af því að fólk er að vinna svo lengi frameftir á kvöldin alla vikuna og œtlarsvo að skemmta sér rœkilega um helgar til að vega upp á móti allri vinnunni". Andrey Lipe hin bandaríska: „Pað er eitthvert stress í loftinu og mér finnst ég líka vera hálfstress- uð hérna". German Tozano frá Columbíu: „Islendingar drekka hinsvegar svo mikið magn í einu, eru gjarnan búnir að safna upp svo miklu stressi alla vikuna, sem brýst síðan út um helgar og þá er eins og það sé verið að sleppa villtum hestum úr rétt“. German Iozono segir líka að þó að íslendingar séu lokaðir þá geti þeir opnast töluvert með því „að drekka eina vodkaflösku eða álíka magn af víni, en strax þegar runnið rr nf /jhnjr infrí Inkaðir og 'íð'ur og I *' k fi ekki nœsta dag". Ohamingjusamir einstaklings- hyggjumenn Það er ekki nema von að blaða- maðurinn spyrji hvort gesturinn hafi ekki heyrt um niðurstöður skoðanakönnunnarinnar frægu sem lýsti íslendingum sem ham- ingjusömustu þjóð í heimi. Col- umbíumaður hefur svar á reiðum höndum: „Ég held að íslendingar séu þannig að þeir segist vera hamingjusamir þó þeir séu það ekki. Mér finnst líka hugtakið hamingja vera annað hér en hjá okkur. Mér telstþað mikið íýmiss konar neyslu, það er eins og ís- lendingar vilji helst sleppa við að gera allt, láta vélarsjá um alltfyrir sig". meiri einstaklingshyggjumenn “ en hann á að venjast heima fyrir og segir að hér sé „miklu minni samvinna millifólks og hver verði að bjarga sjálfum sér“. Við höf- um margt að læra. Sterkari konur Julio Mercado frá Mexíkó segir að konur hér á landi séu „miklu sterkari og ákveðnari“ en hann eigi að venjast í heima- landinu. „Pað er jafnvel tekið meira mark á orðum konu en karlmanns". Klippari hefur gert skoðana- könnun hjá sjálfum sér og telur mun meir að marka hvað þessu unga fólki finnst um íslenska þjóð hciJur en hvað íslensku þjóðinní ílílíiSi um SJtiilí* SctlltKV ct'ííli Gallup-könnuninni. Konan í konfektinu Svosem til að sanna tilfinningu Mecados frá Mexíkó um „sterku konuna“ er viðtal í DV í gær við konuna með konfektið, konuna sem á sérverslun fyrir svissneskt konfekt og hyggst ætla að koma upp fimm svona svissneskum súkkulaðistöðum í framtíðinni. Konan í konfektinu hefur ekki lítið undir: „Ég átti fyrir tvö önnur fyrirtœki, Kórund, sem er útgáfufyrirtœki og Eignabank- ann, sem er fjárfestingafyrirtæki. Ég stofna öll mín fyrirtæki til að grœða á þeim. Mitt eina mottó í lífinu er að verða rík”. Barlómurinn í öðrum bísness- mönnum fer í taugarnar á kon- unni og „mér dettur ekki í hug að fela mig á bak við einhverjar hug- sjónir svo ég viðurkenni hve vel mér gengur". Ekki fella fleiri ríkisstjórnir Freygerður í konfektinu, Kór- und, og Eignamarkaðinum sagði við DV, „að þó að gengisfellingin vœri sér að kenna gœtu alþingis- menn huggað sig við að hún ætl- aði að fara að framleiða konfektið góða hérlendis og líklega myndi framleiðslan hefjast í lok sept- ember á nœst ári þannig að hún myndi ekki hafa það á samvisk- unni að fella fleiri ríkisstjórnir". Um leið og klippari óskar Freygerði til hamingju með að flytja framleiðsluna innf landið, efla íslenskah iðnað, þfi er henni þakkaður stuðnjngunnn í stjórn- arandstöðunni. - óg DIÖDVimNN Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis I og verkalýðshreyfingar Útgefcndi: Útgáfufélag Þjódviljans. RfUtJórar: Árni Bergmann, össur Skarphóðinsson. Rftstjómarfulftrúi: Oskar Guðmundsson. Fréttmatjórf: Valþór Hiöðversson. Blaðamenn: Áifhoiður Ingadóttir, Ásdís Þórhallsdóttir, Guöjón Friðnksson, Jóna Pálsdóttir, Lúðvík Geiisson, Magnús H. Gíslason, Mörður Árnason, ólafur Gíslason, Sigurdór Sigurdórsson, Víðir Sigurðsson (íþróttir). yóamyndlr: Átfi Arason, Einar Karissön. Útttt oq hönnun: Filip Franksson, Þröstur Haraldsson Handrftfr- og prófaHuit««tur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar Framkvæmdastjórl: Guðrún Guðmundsdóttir. Skrifstofuatjórl: Jóhannes Harðarson. Auglýsingsetjóri: Ragnheiður Óladóttir. Auglýsingar: Anna Guðjónsdóttir, Margrót Guðmundsdóttir. Afgreiðalustjóri: Baldur Jónassori. AfgreSðala: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pótursdóttir. Símavarala: Asdís Kristinsdóttir, Sigríður Kristjánsdóttir Húsmæður: Bergljót Guðjónsdóttir, Ólof Hunfjörð. fnnhalmtumonn: Brynjólfur Vilhjálmsson, ólafur Biörnsson. Útkeyrsla, afgreiðsla, auglýsingar, ritstjórn: Slðumúla 6, Reykjavík, sími 81333. Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf. Prentun: Blaðaprent hf. Verð i lausasölu: 30 kr. Sunnudagsverð: 35 kr. Áskriftarverö ó ménuðí: 300 kr. 4 SÍÐA - PJÓÐVILJINN Miðvikudagur 19. desember 1984

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.