Þjóðviljinn - 19.12.1984, Síða 11
VIÐHORF
Það
Árið 1984 er brátt á enda. Það
ár mun lengi í minnum haft hjá
alþýðu þessa lands. Ríkisstjórn
íslands eyddi nefnilega i/12 ársins,
öllum októbermánuði, í harðvít-
uga styrjöld við fólkið í landinu.
Slíkur atburður hefur ekki fyrr
gerst og þætti ærnum tíðindum
sæta meðal siðaðra þjóða. Og
hvað hafði öll alþýða þessa lands
til saka unnið? Það eitt að vilja
njóta arðsins af vinnu sinni til
sómasamlegs framfæris, ekkert
far fram yfir. Það var glæpurinn.
raun og veru hóf þessi endemis-
stjórn þessa styrjöld strax við
valdatöku, sagði fólkinu stríð á
hendur, rauf þess kjarasamn-
inga, setti kaupgjald fast, svipti 1
fólk samningsrétti, hellti yfir
fólkið holskeflu dýrtíðar, stork-
aði því með því að létta gjöldum
af auðmönnum og auðfyrirtækj-
um og hlaða undir hina auðugu
svo þeir mættu auðgast enn meir.
Fólkið beið og hafðist lítt að.
Beið í meira en ár, þá var bikar-
inn fullur, styrjaldarátök hófust.
Þau átök skulu ekki nánar rakin
hér, utan það að vegna skipulags-
galla sótti alþýða fram í tveimur
fylkingum, annars vegar þeir er
tilheyra til BSRB, hinsvegar þeir
er félagsbundnir eru í ASÍ. Svo
hörmulega tókst til að á meðan
önnur fylkingin barðist þá hafðist
hin ekkert að, utan það að full-
trúar hennar sátu dag eftir dag og
viku eftir viku á meiningarlitlum
rabbfundum sötrandi molasopa
með Magnúsi Gunnarssyni.
Endirinn varð svo af þessum
sökum vopnahléssamningar í
mánaðarlokin sem ekki gáfu
fólkinu hálfan sigur. Fólkið tók
vopnahléssamningana hátíðlega
og lagði niður vopn. Ríkisstjórn-
in afvopnaðist aldrei, henni var
hefnd efst í huga.
er til skammar að sítja
undir þessu lengur...
eftir Starra í Garði
Innan fárra daga tók hún að
hefna sín á fólkinu, 16% gengis-
felling, 50% verðbólga á næstu
vikum. Styrjöldin hélt áfram af
þeirra hálfu, nú skyldi kné fylgja
kviði. Ríkisbúgarðinum fylgir
einskonar kúgildi sem hverjir
nýir húsbændur taka við af þeim
sem fyrir sátu, ráðsmaðurinn ævi-
ráðinn, sem falið hefur verið af
húsbændum fullt einræðisvald í
peninga- og efnahagsmálum.
Þegar lítilmennskan er alveg að
drepa ráðherrana, þegar árásir á
fólkið hefjast með gengisfellingu
eða vaxtahækkun, þá berja þeir
sér á brjóst og segja: Það var ekki
ég sem gerði þetta, það var hann
Jóhannes.
Gengisfelling hefur ætíð verið
fóðruð með því, að verið sé að
bjarga sjávarútveginum. Ég skal
taka dæmi um bjargráð síðustu
gengislækkunar við sjávarútveg.
Það er gerður út togari sem Kol-
beinsey heitir. Útgerð hans er að
kafna í dollaraskuldum sem sí-
fellt hækka eftir því sem dollarinn
verður voldugri, þessar skuldir
voru að leiða togarann undir upp-
boðshamarinn áður en þessi
gengislækkun kom til. En hvað
svo, með þessu eina pennastriki
gengisfellingarinnar hækkuðu
skuldir skipsins um 26 miljónir að
mig minnir.
Hefndarráðstöfun
Nei, það vita nú allir að þessi
gengisfelling er einfaldlega
hefndarráðstöfun ríkisstjórnar-
innar á hendur fólkinu. Hvað
tekur nú við? Svo hart sem nú
þegar sverfur að mörgu alþýðu-
heimili í dag. Þá verður ekki ann-
að séð en slíkt er aðeins smjör-
þefurinn af því sem í vændum er,
styrjöldin er enn í fullum gangi af
hálfu ríkisvaldsins. Ætlar alþýða
þessa lands árið 1984 eða ’85 að
líða þennan andskota?
Meðan Danir höfðu ekki enn
drepið alla dáð úr þessari þjó fyrr
á öldum veitti þjóðin þjónum
konungsvalds Dana sem hugðust
fara með ofríki á hendur lands-
mönnum verðugar móttökur.
Einn slíkur var settur í poka,
bundið fyrir og einni af stórám
landsins falin geymsla pokans
ásamt innihaldi. Þó skammt sé
austur að Brúará og nóg til af
pokum í landinu þarf ríkisstjórn-
in ekki að óttast slíka meðferð,
það yrði talin næg refsing þeim til
handa að þeir fengju sér aðra
vinnu en unnin er úr ráðherra-
stólum. Það gæti nefnilega orðið
dálítið erfitt þá að fá vinnu sem
nokkur vildi trúa þeim fyrir.
Það líður að jólum. Þau verða
æði döpur á mörgu alþýðuheimil-
inu að þessu sinni. Það er þungur
kross að bera fullvinnandi fólki
að geta ekki séð sér og sínum fjár-
hagslega farborða með vinnu
sinni. Ráðherrar og þeirra tildát-
ar halda hinsvegar tvöfalda hátíð
um jólin. Annarsvegar vegna
fæðingar Krists endur fyrir löngu,
því án efa eru þeir í hópi þeirra
„sem gera sér mat úr að nudda sér
utaní Krist“, eins og Jón Helga-
son kvað og svo einnig sem vekur
þeim enn meiri fögnuð, þ.e. að
njóta um jólin sætleika hefndar-
innar sem þeir hafa nú komið
fram á hendur fólkinu.
Ætlar þetta velmenntaða og
duglega fólk að láta 10 ráðherra
og þeirra tindáta troða afkomu
sína og lífshamingju undir fót-
um?Ætlar það að láta samninga
sem ríkisstjórnin hefur þegar
rofið, eða aðra lagakróka, verða
sér fjötur um fót til að hrinda
þessum ófögnuði af höndum sér
með hverjum þeim ráðum sem
duga?
Starri í Garði Þorgrímsson
er bóndi í Mývatnssveit
Gengisfelling hefur verið fóðruð með því að verið sé
a&fflk Æf-
að bjarga sjávarútveginum. Ég skal taka dœmi um
bjargráð síðustu gengislœkkunar. Það er gerður
út togari sem Kolbeinsey heitir. Útgerð hans er
að kafna í dollaraskuldum. Við gengisfellinguna
hækkuðu skuldir hans um 26 miljónir kr.
FRA LESENDUM
Að hengja bakara fyrir smið
Nokkur orð til Margrétar Pálu Ólafsdóttur
Einu sinni heyrði ég það ráð
gefið, til að losna við innibyrgða
reiði, að ganga út, helst í roki, og
öskra upp í vindinn.
Grein M.P.Ó. í Þjóðviljanum
þann 11. des. s.l. minnir mig
reyndar helst á vindhögg. Hún
gagnrýnir ASÍ og verkalýðsfor-
ystuna á mjög ósanngjarnan hátt.
Eða hverjir fóru af stað með
kröfu um kaupmáttartryggingu?
Ekki BSRB, þar var áherslan
lögð á háar prósentur, sem hægt
væri að kippa til baka með
stjórnvaldsaðgerðum strax að
loknum samningum.
Menntamálaráðherra er ný-
kominn frá Noregi með hugann
fullan af áhuga fyrir norsku gervi-
hnattasjónvarpi. Það kom ekki
fram kostnaðarhliðin á þessu fyr-
irtæki, þ.e. móttökustöðin hérna
heima, en trúlega skiptir hún
miljónum.
Spurningin er bara þessi: Get-
um við ekki beðið með sjónvarp-
ið og borgað vextina af erlendu
skuldunum, sem ótætis Þjóðvilj-
inn segir okkur að séu orðnar sjö
þúsund miljónir, eða sjö miljarð-
ar, eða 150 þúsund krónur á fimm
manna fjölskyldu? Við gefum
börnum okkar sparibauk og það
tekur þau oft langan tíma að fylla
baukinn, en þau eru stolt og
ánægð þegar þau tæma hann í
Það mætti gjarnan upplýsa
M.P.Ó. um það að á sama tíma
og BSRB var að skrifa undir
samninga án nokkurrar trygging-
ar, var samninganefnd ASÍ á
fundi með VSÍ, langt komin með
að ná virkum endurskoðunará-
kvæðum í sína samninga. Þá ber-
ast þau skilaboð á fundinn að
BSRB sé búið að semja um prós-
entuhækkanir án tryggingar.
Reyndar án þess að muna eftir
lágmarkslaunataxta líka. Eftir
það snúa VSÍ menn við blaðinu,
línan var gefin, engin trygginará-
kvæði lengur til umræðu.
bankanum og fara með spari-
sjóðsbókina sína heim.
Ættum við fullorðna fólkið
ekki að taka þau okkur til fyrir-
myndar í því að spara? Norð-
menn verða jafn góðir vinir okk-
ar þótt við tökum ekki þessu til-
boði þeirra, og skilja að við höf-
um ekki efni á þesu með sjö milj-
arða króna erlenda vaxta-
greiðslu.
Ég ítreka það að við verðum að
venja okkur af því að velta alltaf
erlendu skuldasúpunni á undan
okkur, snapandi eftir nýjum lán-
um fyrir vaxtagreiðslum.
Því segi ég; Hingað og ekki
lengra.
Arnór Þorkelsson
ASÍ stóð frammi fyrir því að
nokkuð mörg félög höfðu ekki
sagt samningum sínum lausum og
gat þess vegna ekki boðað til að-
gerða, því innbyrðis samstöðu
vantaði. Það mætti ráða af orðum
M.P.Ó. að verkalýðsfélögin geti
ráðið alfarið gangi mála í samn-
ingum en svo er ekki. Það semur
enginn ef hann hefur engan hin-
um megin við borðið að semja
við.
Mitt félag, ásamt nokkrum
öðrum verslunarmannafélögum
af landsbyggðinni, sendum sam-
eiginlegar kröfur til VSÍ í byrjun
Steini Þorvaldsson.
september, en þaðan fengust
engin svör. Og enginn fundur fyrr
en í lok okt. En þá var okkur
í umfjöllun sinni um ensku
knattspymuna um síðustu helgi
fjallar hinn ágæti íþróttafréttarit-
ari Þjóðviljans prýðilega um stór-
sigur Everton gegn Nottingham
Forest. Þar kallar hann leikmenn
Everton liðsins efratúnunga.
Ég held að ef við gerum „ton“
að túni sé rétt að hafa fyrir satt að
„ever“ þýði alltaf, og Everton er
þá það tún eða engi sem stendur
til eilífðarnóns, - það er að segja
hið sama og Ódáinsvellir eða Iða-
boðið að samningaborði, til að
fjalla um næstum fullgerðan
kjarasamning.
Að lokum vona ég að Margrét
Pála snúi vonbrigðum sínum og
reiði til sinna eigin samtaka
(BSRB) en láti vera óverð-
skuldað skítkast í garð forystu
ASÍ.
vellir í grískri goðafræði (á
frönsku Champs d’Élysées). Ér
því rétt að kalla besta lið breta til
dæmis iðvellinga. Einnig kæmi til
greina að slá saman ódáinshug-
myndinni í nafni liðsins og beinni
þýðingu á heimavelli félagsins:
kalla liðsmenn Everton einfald-
lega guðssynina og völlinn,
Gpodison Park, Goðsonavang.
Ahugamaður um orðsifjar sem
horfíst í augu við staðreyndir
og heldur með Everton.
Ráð til spamaðar
Steini Þorvaldsson
verslunarmaður, Selfossi.
íslensk verkalýðshreyfing óskast
Efratún eða Iðavellir
Miðvikudagur 19. desember 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11