Þjóðviljinn - 19.12.1984, Qupperneq 15
ÍÞRÓTTIR
Handbolti
Þróttur gerði
10 gegn tveimur
Sneri leiknum við Stjörnuna sér íhag og
vann 29-27
Páll Ólafsson var Þrótturum drjúgur
gegn Stjörnunni í gærkvöldi.
Körfubolti
Jóiagjöf
Reynis
Fyrstir að sigra ÍBK
„Þetta var sætur sigur,
sannkölluð jólagjöf!“ sagði við-
mælandi okkar í Sandgerði eftir
að Reynismenn höfðu orðið fyrst-
ir til að leggja Keflvíkinga að velli
í 1. deildinni 82-76 í Sandgerði í
gærkvöldi.
Reynir var yfir allan tímann,
42-31 í hléi, og þó Keflvíkingar
söxuðu á forskotið undir lokin
var sigri heimamanna ekki hættu-
lega ógnað. Sturla Örlygsson
skoraði 29 stig fyrir Reyni, Jón
Sveinsson 18 og Gunnar Óskars-
son 17. Guðjón Skúlason átti frá-
bæran leik með ÍBK - skoraði sjö
sinnum utan við þriggja stiga lín-
una og gerði alls 41 stig. Jón Kr.
Gíslason kom næstur með 13 stig.
-VS
Þróttarar komu mjög á óvart í
gærkvöldi með því að sigra
Stjörnuna í 1. deild handboltans.
Leikurinn sem fram fór í Laugar-
dalshöll var allan tímann mjög
köflóttur og skiptust á skin og
skúrir hjá félögunum. I lokin
munaði 2 mörkum á liðunum, 29-
27 eftir að Stjarnan hafði haft 12-
11 yfir í hálfleik. Með þessum
fyrsta sigri sínum í mótinu lyfti
Þróttur sér af botninum, Stjarn-
an er sem fyrr í þriðja sæti
deildarinnar en hefur leikið fleiri
leiki en flest önnur lið.
Eftir að liðin höfðu skipt með sér
sex fyrstu mörkum leiksins náðu
Garðbæingarnir góðum kafla og náðu
að komast yfir, 7-3. Þróttur saxaði á
forskotiðog náði að komast yfir 11-10
en tvö mörk Stjörnunnar á lokamín-
útum hálfleiksins tryggðu þeim for-
ystu í hálfleik 12-11.
Stjarnan komst fljótlega í síðari
hálfleik í 14-12 en þá datt botninn úr
leik liðsins og Þróttarar gengu á lagið
og skoruðu tíu mörk gegn aðeins
tveimur mörkum Stjörnunnar og eftir
það var aldrei nein spurning um úr-
slit, minnst munaði þremur mörkum
á liðunum ef undanskildar eru loka-
tölurnar.
Páll Ólafsson, Sverrir Sverrisson
og Konráð Jónsson áttu allir stórleik
WBA í 5.
sæti
WBA komst í gærkvöldi upp í
fimmta sæti í 1. deild ensku knatt-
spyrnunnar með því að sigra
Luton 2-1 á útivelli. WBA hefur
þá 31 stig en Luton situr áfram í
neðsta sæti með 'jS stig. í þriðju
deild gerðu 2 toppliðin, Millwall
og Hull jafntefli 2-2.
með Þrótti og sáu um að gera tuttugu
af mörkum liðsins. Helsti veikleiki
liðsins felst í því hve köflóttur leikur
liðsins er, eins virðist skorta nokkuð á
samæfingu milli leikmanna og sókn-
arleikurinn vill af þeim sökum verða
of hægur. Þetta eru þó hlutir sem
hægt er að laga og verði bót á má
búast við Þrótti ofarlega við lok kepp-
nistímabilsins.
Stjarnan spilaði oft á tíðum mjög
sannfærandi sóknarleik auk þess sem
vörnin var sterk, svörtu kaflarnir
voru þó fleiri og útkoman varð óvænt
tap. Eyjólfur Bragason, Guðmundur
Þórðarson voru þeirra bestir en einn-
ig gerðu þeir Hermundur Sigmunds-
son og Guðmundur Óskarsson góða
hluti.
Mörk Þróttar: Páll 9/1 v, Konráð 6,
Sverrir 5, Lárus Lárusson og Sigurjón
Gylfason 3, Haukur Hafsteinsson, Birgir
Sigurðsson og Gísli Óskarsson 1.
N Mörk Stjörnunnar: Eyjólfur 6, Guð-
mundur Ó 5, Guðmundur Þórðarson 4/2v,
Hermundur, Hannes Leifsson, Eggert Is-
dal, Magnús Teitsson, Gunnlaugur Jóns-
son og Sigurjón Guðmundsson 2.
-Frosti
FH-Valur
íkvöld
Það verður toppleikur í 1.
deild karla í handknattleik í
Hafnarfirði í kvöld. FH-ingar
fá í heimsókn eina liðið sem
virðist líklegt til að ógna þeim
um þessar mundir, Valsmenn,
og hefst viðureignin kl. 20. A
sama tíma hefst leikur KR og
Þórs Ve. í Laugardalshöllinni
og á eftir honum, kl. 21.15,
leika þar Víkingur og Breiða-
blik, Þetta eru síðustu leikirn-
ir í deildinni á þessu ári.
Blak
World Soccer
Ásgeir þrettándi
besti í heimi!
Þróttur og IS efst
Ásgeir Sigurvinsson hafnaði
nýlega í 13. sæti í kjöri knatt-
spyrnutímaritsins útbreidda,
World Soccer, á besta knatt-
spyrnumanni heimsins 1984.
Þetta er mikili heiður fyrir Ásgeir
og góð viðurkenning á afrekum
hans með vestur-þýska félaginu
Stuttgart - en sl. vetur varð Stutt-
gart vestur-þýskur meistari og
Asgeir var kjörinn besti knatts-
pyrnumaður Vestur-Þýskalands
af leikmönnum Bundesligunnar.
Knattspyrna
Hólmbert
með
Þetta er í fyrsta skipti sem íslend-
ingur kemst á blað í þessu árlega
kjöri - en það var Frakkinn Mic-
hel Platini sem var kjörinn besti
knattspyrnumaður í heimi og
Walesbúinn Ian Rush varð núm-
er tvö.
- VS
Þróttarar standa best að vígi í 1.
dcild karla í blaki þegar leikjum þessa
árs er lokið. Þeir léku þó ekki um
helgina en keppinautar þeirra um
meistaratitilinn unnu sína leiki. ÍS
sigraði Fram 3:0 og HK vann Víking
3:1. Staðan í deildinni er þannig:
Þróttur.................7 6 1 20:9 12
HK......................8 6 2 20:14 12
Is......................7 5 2 18:9 10
Víkingur................7 16 8:19 2
Fram....................7 0 7 6:21 0
Hörkukeppni er framundan um
meistaratitilinn í kvennaflokki. ÍS
náði að vinna Breiðablik 3:2 í Kópa-
vogi á laugardaginn og var þetta
Pétur Guðmundsson
skoraði 61 stig í þremur fyrstu
leikjunum með Sunderland Maestros'
ensku 1. deildinni. Sunderland
tapaði þeim öllum en í öllum kom
Pétur mikið við sögu.
í þeim fyrsta, gegn Crystal Pal-
ace, tapaði Sunderland 90-91.
Pétur skoraði 17 stig og var annar
stigahæsti leikmaður liðsins þrátt
fyrir að hann hyrfi af leikvelli í
byrjun seinni hálfleiks með 5 vill-
ur. í öðrum leiknum tapaði Sund-
erland 84-88 fyrir Leicester og
þar var Pétur einnig annar stiga-
hæstur með 19 stig. í þeim þriðja
tapaði svo Sunderland 88-74 fyrir
Warrington Vikings og þá var
Pétur stigahæstur með 25 stig. Að
þessum leikjum loknum voru So-
lent, Bracknell og Leicester tap-
laus á toppi 1. deildarinnar en
Sunderland á botninum ásamt
Telford og Bolton, án stiga. Þá
hafði Sunderland verið slegið
útúr bikarkeppninni af 2.
deildarliðinu Tyneside, tapaði
67-64, en sigraði sama lið 97-60 í
riðlakeppni ensk-skoska bikars-
ins, og var þar efst í sínum riðli.
-VS
„Sunderland Maestros hefur
náð sér í raunverulegan „Is-
mann“ og Pétur Guðmundsson,
sem er 2,18 m á hæð, hefði vel
getað verið höggvinn beint útúr
jökulvegg með ísöxi!“
Þannig segir breska körfu-
boltatímaritið Basketball frá hin-
um nýja leikmanni Sunderland,
íslendingnum Pétri Guðmunds-
syni sem óþarft er að kynna frek-
ar. Pétur gekk til liðs við Sunder-
land í haust og í blaðinu eru tí-
undaðir fyrstu þrír leikir liðsins í
fyrsta tap Blikastúlknanna. Víkingur
sigraði Þrótt 3:2.
Staðan er þessi:
(S.......................8 7
Breiðablik...............6 5
Víkingur.................7 3
Þróttur..................7 2
KA.......................6 0
23:5 14
17:7 10
10:17 6
10:15 4
2:18 0
HSK hefur forystu í 2. deild, hefur
unnið alla fjóra leiki sína. Hin liðin
hafa leikið tvo leiki hvert - KA,
Þróttur Neskaupstað og Þróttur-b eru
með 2 stig hvert en Breiðablik og HK-
b ekkert.
- VS
Hólmbert Friðjónsson var um
helgina ráðinn þjálfari hjá 1.
deildarliði ÍBK í knattspyrnu.
Hólmbert er Keflvíkingur og hef-
ur áður þjálfað á heimaslóðum,
ÍBK varð t.d. íslandsmeistari
undir hans stjórn árið 1969.
Hólmbert hefur sl. tvö ár þjálfað
lið KR-inga en þar áður stjórnaði
hann Frömurum. Með þessu hafa
öll tíu lið 1. deildar gengið frá
sínum þjálfaramálum fyrir næsta
keppnistímabil.
Körfuknattleikssamband íslands fékk í fyrradag afhentan veglegan styrk frá Hildu hf., að upphæð 230 þúsund
krónur, og I gjafabréfinu segir að KKl sé frjálst að nota hann til hvers þess málefnis sem stjórn sambandsins telji að
geti orðið íslenskum körfuknattleik til framdráttar. Stjórn KKl hefur ákveðið að verja honum til eflingar dómaramálum
en hingað til lands er væntanlegur Bretinn Rob lliffe og mun hann dvelja hér I þrjá mánuði við dómgæslu og
námskeiðahald. Á mynd -EÓ- hér að ofan tekur Eiríkur Ingólfsson formaður KKÍ við gjafabréfinu úr hendi Hönnu
Holton, stjórnarformanni Hildu hf.
Miðvikudagur 19. desember 1984 ÞJÓÐVILJINN - SIÐA 15
Handbolti
Fyrsta stig
Skallagríms
Skallagrímur hlaut sitt fyrsta stig í
3. deildarkeppninni í vetur þegar Sel-
fyssingar komu í heimsókn í Borgarn-
es á föstudagskvöldið. Tvísýnum og
spennandi leik lauk með jafntefli,
20:20, og jöfnuðu Seifyssingar hálfri
mínútu fyrir leikslok.
Úrslit um helgina í 3. deild og stað-
an í riðiunum tveimur:
A-riðill:
Ögri-Njarðvík.. 14:24
Afturelding 4 4 0 0 109:68 8
lA 5 4 0 1 143:94 8
ReynirS 5 3 0 2 164:104 6
Njarðvík 5 2 0 3 136:126 4
Sindri 2 0 0 2 25:87 0
Ögri 5 0 0 5 55:153 0
B-riðill:
Týr-(H 28: 14
Skallagrímur-Selfoss 20:: 20
Týr 6 6 0 0 120:93 12
IR 5 4 0 1 112:95 8
IBK 5 2 0 3 115:109 4
(H 6 2 0 4 112:138 4
Selfoss 5 1 1 3 101:102 3
Skallagrímur... 5 0 1 4 98:121 1
Týr og IH léku einnig í bikarkeppni
HSI og þar sigraði Týr 33:14. Eyjalið-
ið mætir Njarðvík eða HK í 16-liða
úrslitum. - VS