Þjóðviljinn - 22.01.1985, Page 3
FRETTIR
Skipulagstillagan sem lögð var fram í Skipulagsnefnd Reykjavíkurborgar í gær, séð frá
Sæfúni. Hin nýja byggð Skuggahverfisins afmarkast af Skúlagötu, Snorrabraut, Lindar-
götu (Hverfisgötu við enda Vitastígs) og Ingólfsstrætis.
Það held ég að Ingólfi hefði
brugðið.
Borgin
Silung og lax
verður
að slægja
Ef þú ætlar að selja lax eða sil-
ung í verslun í Reykjavík, þá
verðurðu hér eftir að slægja
fiskinn, og fjarlægja tálkn og
nýru (blóðröndina svokölluðu).
Þetta var samþykkt á fundi
heilbrigðisráðs borgarinnar fyrir
skömmu, en sala á eldisfiski hef-
ur færst í aukana í borginni.
-ólg.
Vantar
húsaskjól
Um helgina var enn einn góð-
kunningi lögreglunnar í Reykja-
vík handtekinn þar sem hann
hafði komið sér fyrir í sumarbú-
stað á Þingvöllum. Hann var
fluttur í bæinn og yfirheyrður af
Rannsóknarlögreglunni.
-jP
__Skólamál_
Sérkennsla afburða-
greindra bama?
Kennarafélag Reykjavíkur neitar að tilnefna fulltrúa í
„stjórn starfsemi vegna afburðargreindra barna“.
Elín Ólafsdóttir: Verið að draga nemendur í dilka
etta lýsir hug Kennarafélags
Rcykjavíkur til þessarar
starfsemi, sagði Elín Ólafsdóttir
fuUtrúi félagsins í Fræðsluráði
Reykjavíkur, en félagið hefur
neitað að tilnefna fulltrúa í svo-
kallaða „stjórn starfsemi vegna
afburðargreindra barna.“
Stjórn þessi var skipuð fyrir
áramótin og er Sólrún Jensdóttir
fuUtrúi menntamálaráðuneytis-
ins en Áslaug Friðriksdóttir full-
trúi Skólastjórafélags Reykjavík-
ur í stjórninni.
Sólrún Jensdóttir sagði að
Fræðsluráð Reykjavíkur hefði átt
frumkvæði að þessu máli þegar
árið 1981, og hefði niðurstaða
þess orðið sú að menntamála-
ráðuneytinu og Fræðsluráði
Reykjavíkur skyldi falið að koma
á fót starfsemi til þess að bæta
aðstöðu afburðargreindra barna í
skólum borgarinnar.
Við teljum að hér sé komin
fram á ný tilraun til að draga
nemendur í dilka sagði Elín
Ólafsdóttir. Kennarafélagið er i
grundvallaratriðum á móti allri
aðgreiningu nemenda. Okkur
finnst að styrkja eigi sjálfan
grunnskólann, sem á að þjóna
öllum. Það þarf að styrkja grunn-
skólann til þess að gera ken’nur-
um kleift að sinna þessum börn-
um þar, en ekki með sérstakri
starfsemi utan skólans. Kennarar
eru reiðubúnir til þess að sinna
þessum börnum betur, en þarna
skotir á fjárveitingu í námsgagna-
gerð og almennri aðstoð.
ólg
Bíldudalur
Ná því af sjómönnum
sem tapaðist á togaranum
Rœkjuver h.f. neitaði boði sjómanna um að taka þátt í nýtingu á skel
gegn því að taka þátt í nýtingu á rœkju
Hið umdeilda fyrirtæki á Bíldu-
dal, Rækjuver h.f. tók sem
kunnugt er togarann Bjarna Ben-
ediktsson RE á leigu í fyrra til að
veiða úthafsrækju. Tap á þessari
útgerð varð á bilinu 2-3 miljónir
króna. Halda sjómenn á Bíldudal
því fram að þau svik sem fyrir-
tækið stundar í samskiptum við
þá, með því að telja allt að 40% af
skelfiskaflanum sand, stafa af því
að fyrirtækið ætli að ná því af
sjómönnum, sem tapaðist á tog-
aranum.
Varðandi þær miklu deilur sem
nú standa um matið á hörpuskel-
fiski buðust sjómennirnir til þess
að taka þátt í nýtingunni á hörpu-
skel, gegn því að fá að taka þátt í
nýtingunni á rækju. Þessu hafn-
aði Rækjuver. Ástæðan er ein-
föld. Rækjuverð er miðað við
20% nýtingu. Aftur á móti er
raunverulega nýting 28% til
30%.
Þetta kom í ljós þegar sjómenn
fóru á rækjuróður og gáfu afla
sinn til góðgerðarstarfsemi og
starfsfólkið í landi gaf sína vinnu.
Þá var nýtingin 28% og að sögn
fróðra manna hefur hún orðið allt
að 30%.
- S.dór
Leitað án
árangurs
Sém Baldur réóinn ritstjóri
Séra Baldur Kristjánsson,
blaðamaður á NT, verðu'r að
líkindum ráðinn ritstjóri NT með
Magnúsi Ólafssyni síðar á árinu,
samkvæmt heimildum Þjóðvilj-
ans. Baldur sér nú þegar um pól-
itísk skrif biaðsins, þó stefnuskrif
þess í leiðurum séu gerð í samráði
við Magnús.
Fyrir áramótin greindi Þjóð-
viljinn frá því að fyrir dyrum
stæði að ráða annan ritstjóra að
NT. Ósamkomulag innan stjórn-
ar Nútímans kom hins vegar í veg
fyrir það. Þjóðviljinn greindi þá
jafnframt frá því, að auk þeirra
þriggja kandídata sem stjórn Nú-
tímans ræddi, þá væri ekki ólík-
legt að nafn séra Baldurs kæmi til
umræðu síðar, yrði ekki af rit-
stjóraráðningu þá.
Aðalfundur Nútímans hf.
verður í mars, og er talið að
óbreytt ástand ríki á NT þangað
til, en eftir það verði séra Baldur
dubbaður til ritstjórnarfulltrúa,
en ritstjóratignin komi ekki fyrr
en síðar á árinu. _ ös
í gær var enn leitað án árang-
urs að Kristjáni Árnasyni sem fór
frá Kleppsspítala kl. 9.30 á
laugardaginn. Ekkert hefur
spurst til hans síðan og leit hófst
þegar á laugardaginn í námunda
við spítalann.
Magnús Einarsson aðstoðaryf-
irlögregluþjónn stjórnar leitinni.
Björgunarsveitir hafa ekki verið
kallaðar út. Maður sem saknað er
heitir Kristján Árnason. Hann er
29 ára gamall, hávaxinn, með
fremur sítt, dökkt hár og dökkt
yfirvaraskegg. Á laugardaginn
var Kristján klæddur blárri mitt-
isúlpu og bláum flauelsbuxum.
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3