Þjóðviljinn - 22.01.1985, Blaðsíða 6
FRÁ LESENPUM
Niður með
tóbakið
Rakel Sigurðardóttir hringdi
og var mjög óhress með greinina
um að tóbakið væri allra meina
bót, sem birtist í Þjóðviljanum
fyrir skömmu.
Henni þótti lítið til þess koma
þótt læknir í Ástralíu fyndi upp á
því að bera blak af tóbaksbrúk-
un: Það þarf að haida áfram að
selja tóbak og alltaf munu ein-
hverjir finnast sem hjálpa til við
það.
Það getur verið að stundum
fari menn offari í áróðri gegn
reykingum - en það réttlætir ekki
aðra eins léttúð og fram kom í
þessari grein gagnvart rannsókn-
um þeim um háska af tóbaki sem
gerðar hafa verið á undanförnum
árum.
Og þið Þjóðviljamenn ættuð
að hafa annað mjög í huga á
krepputímum: Það er veruleg
kjarabót fyrir alþýðufjölskyldur
sem svo sannarlega hafa ekki of
mikið handa í milli, ef að þær
losna við þær fjárhagsbyrðar sem
reykingamenn bera.
Athugasemd ritstj.
Við þökkum ábendingar Rak-
elar en viljum um leið minna á að í
Þjóðviljanum birtast skoðanir
manna án þess blaðið leggi á þær
dóm. Skömmu eftir að grein ást-
ralska lœknisins birtist, kom í
Það mun mál flestra að reykingar séu
heilsuspillandi. Hins vegar virðast
einhverjir til sem halda hinu gagn-
stæða fram og grein eftir einn slíkan
birtist í Þjóðviljanum fyrir skömmu.
Hvað segja lesendur um málið?
Hringið eða skrifið til okkar og við
komum því á þrykk.
blaðinu viðtal við krabbameins-
sérfrœðing (með mynd á baksíðu)
þar sem hann hélt fram þeirri
skoðun að reykingar vœru
heilsuspillandi.
DAUFAR
Framhald á bls. 5
eins tímaeyðsla. Á meðan menn
eyða tíma sínum í svona leikara-
skap breyta frjálshyggjuöflin
samfélaginu eins og þau eru að
gera.
Feykileg sókn frá hægri er haf-
in. Margföldun hennar er í undir-
búningi. Máttugasta aflið til
þjóðfélagsbreytinga er afl fjöl-
miðlanna. Hver hefur það afl?
Sjá menn ekki hvað bíður?
Frjálshyggju- og frjármagnsöflin
í þjóðfélaginu hafa þekkt vitjun-
artímann löngu á undan okkur og
þau hafa undirbúið byltingu á
sviði fjölmiðlunar, sem mun leiða
til róttækra breytinga á viðhorf-
um og hugsunarhætti þjóðarinn-
ar þessum öflum í vil. ísfilm er
risafyrirtæki, sem er ætlað að ná
NÝJU FÖTIN
Framhald á bls. 5
vegna minnkandi verðbólgu. Á
það má benda, að nú gerist hið
gagnstæða, að greiðslubyrði
minnkar sjálfkrafa og þessi lækk-
un nýtist að fullu, þegar verð-
bólgan eykst“ (undirstrikun
mín).
Þessi röksemdafærsla Davíðs
Oddssonar er svo einfaldur
blekkingaleikur að furðu sætir að
hann skuli bera hann á borð fyrir
alþjóð. Það er vissulega verð-
bólga í þjóðfélaginu en hún skilar
sér bara ekki í launaumslögin, ef
undan eru skilin launaumslög
borgarfulltrúa og þingmanna.
Verðbætur á laun eru bannaðar
og því getur verðbólgan ekki
svipuðum yfirburðum í hljóð-
varps- og sjónvarpsfjölmiðlun og
MBL hafði á árunum á dagblaða-
markaði. Þessi bylting mun eiga
sér stað, vel undirbúin og þraut-
skipulögð, á meðan vinstri menn
í landinu fremja kaffihúsaraus
með spekingssvip í ófrjóum og
tilgangslitlum viðræðunefndum.
Ekkert svar til
Máttvana og ómarkvissar til-
raunir til þess að halda í úrelt
kerfi ríkiseinokunar í útvarps-
rekstri, sem meirihluti lands-
manna er andsnúinn, er ekkert
svar við sókn frjálshyggjuaflanna
á fjölmiðlasviðinu. Vinstri stefna
er róttæk í eðli sínu. Sá róttæki
krefst breytinga, ekki stöðnunar.
Vinstri menn eiga auðvitað að
mæta frjálshyggjuöflunum á
þessum nýja vettvangi sem er að
unnið með launafólki. Undarlegt
að það skuli hafa farið framhjá
borgarstjóranum!
Launafolk
borgar brúsann
Varla telur Davíð Oddsson
það markvissa fjármálstjórn að
hækka skattaálögur á Reykvík-
inga. Það kæmi mér á hinn bóg-
inn ekki á óvart að hann teldi
hækkaða verðlagningu á allri
þjónustu borgarinnar falla undir
þá skilgreiningu. Þau tvö og hálft
ár sem núverandi meirihluta hef-
ur setið að völdum hefur verð á
allri þjónustu borgarinnar hækk-
að langt umfram launahækkanir.
Þannig hefur verð á heitu vatni
hækkað um 355%, rafmagnsverð
til almennings um rúm 200%,
verða til en ekki festa sig í innan-
tómu orðagjálfri og kaffihúsa-
snakki. Slíkt er merki um doða
hugans og dauða hönd.
Sú gerbreyting sem varð á
blaðamennsku Þjóðviljans haust-
ið 1983 en virtist taka enda haust-
ið eftir var t.d. meira virði fyrir
vinstri hreyfingar á íslandi án
flokkamarka en þúsund viðræðu-
nefndir. Öflugur og óháður fjöl-
miðill á sviði sjónvarps- og út-
varpsrekstrar til mótvægis við
risafyrirtæki fjármagns- og frjáls-
hyggjuafla er okkur þúsund sinn-
um meira virði en öll þau verk-
efni samanlögð sem við gætum
unnið í núverandi stjórnarand-
stöðu.
Sighvatur Björgvinsson er fram-
kvæmdastjóri Norræna félagsins
og fyrrverandi þingmaður Alþýð-
uflokksins og gegndi stöðu fjár-
málaráðherra um skelð.
gjaldskrá dagvistarstofnan um
rúm 150%, gjaldskrá sundstaða
um rúm 300%, fargjöld SVR um
rúm 220% og svona mætti lengi
telja. Á þessu sama tímabili hafa
launatekjur verkakonu hækkað
um 135%.
Er það markviss fjármála-
stjórn hjá meirihlutanum að
sækja það fé, sem hann þarf í hin
ólíklegustu ævintýri, í hálftóma
vasa Reykvíkinga og velta öllum
kostnaðarhækkunum borgarinn-
ar út í verðlagið? Er það markviss
fjármálastjórn að hækka skattaá-
lögur og fita borgarsjóð eins og
púkann á fjósbitanum á niður-
greiðslu launafólks á verðbólg-
unni? Hvað finnst ykkur?
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarfulltrúi
Kvennaframboðsins.
A DOFINNI
Húsnæðismálin
brenna á mörgum
Reykjavík 14. jan. ’85
Virðulega ritstjórn og eða sá
blaðamaður, sem hugsanlega
gæti frætt lesanda blaðs ykkar um
hvort einhver nefnd eða starfs-
hópur varð til eftir Sigtúns-
fundinn, sem efnt var til hér um
árið. Og ef svo er hvort fólk má
búast við einhverjum tilraunum
úr þeirri átt til að reyna að knýja
Látið Þjóð-
viljann vinna
fyrir ykkur
Liggur ykkur ekki eitthvað á
hjarta? Þurfið þið að komast í
samband við einhverja í kerfinu?
Hafið þið heyrt um eitthvað sem
aflaga fer og ykkur finnst ráð að
bæta úr?
Lesendasíða Þjóðviljans er
kjörinn vettvangur ykkar! Þið
getið annað tveggja sent okkur
línu eða hríngt og við vinnum úr
málinu. Einnig eru allar ábend-
ingar og spurningar vel þegnar og
ekki skal standa á Lesendasíð-
unni að afla svara. Hringið í síma
91-81333 eða skrífið til Þjóðvilj-
ans Síðumúla 6, 108 Reykjavík.
fram einhverjar breytingar í þágu
allra þeirra hrjáðu ungu íslend-
inga, sem eru að reyna að koma
sér upp þaki yfir höfuðið.
Er það ekki verðugt verkefni
fyrir blaðið okkar svo og aðra þá
sem allavega í orði eru sí og æ að
taka málstað lítilmagnans, að
taka á þessum málum af festu og
kanna í raun hver staða fólks er í
þessum efnum ekki alltaf bara þá
sem verst eru settir heldur nánast
allra, því mín skoðun er sú að það
þurfi meira en miðlungs tekjur til
að standa við skuldbindingar af
afborgunum og vöxtum af verð-
tryggðum lánum.
Eg held að ég tali fyrir munn
margra þegar ég segi að þetta sé
mál sem brenni á mörgum þessa
dagana og þetta sé að leggja líf
margra í rúst og þegar búið að
því.
í von um að þetta verði hugleitt
hjá ykkur. Lesandi.
Pennavinur
22 ára Austur-Þjóðverja lang-
ar að skrifast á við íslendinga, á
ensku eða þýsku. Hefur áhuga á
íslandi. Heimilisfangið er:
Tassilo Koch
5909 Wuthe
Feldstr. 4
DDR/East Germany
Bjarni Stefánsson, forstjóri Hljómbæjar h/f, Kristján Zophaníasson, sölustjóri, Ingvar Ásmundsson, skólastjóri og
Loftur Jónsson, fjármálafulltrui, við afhendingu myndbandstækisins.
Iðnskólinn
Fékk gefins myndband
í tilefni af 80 ára afmæli Iðn- VC 483 NS, með hraðspólun, það mjög hentugt við kennslu.
skólans í Reykjavík gaf Hljóm- fjarstýringu og þrepastilli. Með Fáanlegt er fjölbreytt kennslu-
bær h/f skólanum myndbands- honum er hægt að sýna hverja efni á myndsnældum og mun
tæki. Tækið er af gerðinni Sharp hreyfingu, mynd fyrir mynd og er tækið verða notadrjúgt.
Fyrirlestur
Málefni flóttamanna
Einn helsti sérfræðingur í mál-
efnum flóttamanna á Norður-
löndum, norski prófessorinn dr.
Atle Grahl-Madsen, mun flytja
fyrirlestur um þau efni miðviku-
daginn 23. janúar.
Mun hann þar ræða um með
hvaða skilyrðum flóttamönnum
er veittur landvistarréttur annars
staðar á Norðurlöndum og hver
réttarstaða þeirra er þar að öðru
leyti.
Hafa þau mál verið mjög til
umræðu að undanförnu og mis-
munandi sjónarmið uppi um það
hve langt eigi að ganga í því að
veita flóttamönum landvistar-
rétt.
Dr. Atle Grahl-Madsen er pró-
fessor í þjóðarétti við háskólann í
Bergen og talar hér í boði laga-
deildar Háskóla íslands og
Rauða Krossins. Hann er fulltrúi
Norðurlanda í alþjóðlegum
flóttamannasamtökum og hefur
ritað ýmis grundvallarrit á sviði
flóttamannaréttar.
Fyrirlesturinn verður fluttur í
Lögbergi, stofu 102, og hefst kl.
17.30. Ollum er heimill að-
gangur.
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þríðjudagur 22. janúar 1985