Þjóðviljinn - 22.01.1985, Side 8
MANNLIF
Uppskriftir
Kaffimeölæti,
brauð og pizza
úr Grundarfirði
Matthildur Guðmundsdóttir í Grundarfirði lét Þjóðviljann fá nokkrar
auðveldar uppskriftir þegar hún var sótt heim. Mynd. -eik.
MatthildurGuðmundsdóttirer
húsmóðir í Grundarfirði.
Þangað er hún komin úr
Stykkishólmi. Matthildurhefur
búið í 17 ár í Grundarfirði og
líkarvel. Húnvinnurallan
daginn á leikskóla staðarins
auk þess sem hún annast
heimili og börn (og eiginmann
sem er á kafi í bæjarmálum og
íþróttum auk mikillar vinnu).
Þjóðviljinn heimsótti Matthildi
og fékk hjá henni nokkrar
uppskriftir að meðlæti með
kaffinu og auðveldri pizzu,
sem er góð tilbreyting eftir
jólaannríkið.
Matthildur matreiðir ávallt í
hádeginu og segist hún gjarnan
hafa hakk með tómötum, gulrót-
um og ananas.
Fjölskylda Matthildar er mjög
hrifin af kaffibrauði sem eftirfar-
andi uppskrift er að:
Efni:
7Vz dl. kaffi
500 gr. sykur
125 gr. smjörlíki
2‘/2 ds rúsínur
2% tsk. kanill
2/2 tsk. brúnkökukrydd
5 tsk. vanillusykur
560 gr. hveiti
2‘/2 tsk. natrón
örlítið salt
Aðferð:
Allt nema hveiti og natrón soðið
kröftuglega í 2-3 mínútur. Kælt
smástund. Hveiti og natróni
Mánaöaralmanak
hrært út í. Bakað í u.þ.b. 1 klst. í
175°C heitum ofni.
Hcimabakað brauð er mjög
vinsælt á heimili Matthildar Guð-
mundsdóttur. Uppskriftin er
reyndar frá manni hennar, Ragn-
ari Elbergssyni, en hann hefur
ekki bakað brauð í langan tíma,
svo við eignum henni bara
heiðurinn:
Efni:
1 kg. hveiti
150 gr. sykur (Ragnar segir miklu
betra að hafa meira sykur)
9 tsk. lyftiduft
salt
mjólk
Aðferð:
Þurrefnið látið í skál. Mjólkinni
hrært út í þangað til deigið er
hæfilega þykkt. Látið í 2 form og
bakað í um klukkustund í 175°C
heitum ofni.
Litiar kökur sem bakaðar eru í
pappírsformum og kallast muff-
ins, þykja einnig geysi-góðar.
Krakkarnir í Grundarfirði hafa
lært að baka þær í Grunnskóla
Eyrarsveitar og er uppskriftin
þaðan komin til Matthildar og
síðan til okkar:
Efni:
2 egg
2 dl strásykur
1 dl mjólk
100 gr. hveiti
3 dl hveiti
2 tsk. lyftiduft
2 tsk. vanilludropar
2 msk. kakó
Janúarfiskréttur
sjávarútvegsráðuneytisins
„Afbragðsmatur er ýsan feit,
ef hún er bæði fersk og heit,
soðin í sjóarblandi. “
Þannig orti Hallgrímur Péturs-
son á sínum tíma og er vitnað í
kveðskapinn þann á nýju alman-
aki sem sjávarútvegsráðuneytið
hefur látið gera. Þar er að finna
fjölbreyttan fróðleik um sjávar-
aflann. Með almanaki hvers
mánaðar eru uppskriftir að sjá-
varréttum og ýmsar upplýsingar
um viðkomandi fisk. Og ef við
teljum saltfiskinn sem sérstaka
fisktegund getum við sagt að val-
ið standi um 12 fiskrétti úr jafn
mörgum kvikindum hafsins.
Með janúaralmajiakinu fylgir
uppskrift að „ufsa í ofni“ ásamt
þessum fróðleik:
„LJfsi er ekki algengur á borð-
um íslendinga, en svipaður
þorski og ýsu að samsetningu,
þ.e. próteinríkur og fitusnauður.
í allri matreiðslu á fiski þarf að
gæta hófs. Ofsuða gerir hann
þurran, fiskbragðið tapast og
næringargildi rýrnar. Munum
það líka, að fallega framreiddur
fiskur eykur lyst og matarlöng-
un.“
Þess er jafnframt getið að
veiðisvæði ufsans er umhverfis
landið mest suðvestanlands á
vertíð jan.-maí. Veiðarfæri eru
net og botnvarpa og veiðitíminn
er allt árið en mest í jan.-maí.
-jP
Ufsi f ofni
800 g ufsaflök, bein- og roð-
hreinsuð, skorin í stykki
1 egg, hveiti og rasp
‘A hvítkálshöfuð, skorið ílitla bita
3 gulrætur, meðalstórar, hreins-
aðar og skornar í litla bita
200 g ferskt selerí, skorið í litla
bita
1 meðalstór rófa, afhýdd og
skorin í litla bita
5 sneiðar (40g) magur ostur
V4 lítri ósykruð jógúrt eða súr-
mjólk
matarolía til steikingar
Flökunum er velt upp úr hveiti,
eggi og brauðraspi. Þau eru síðan
steikt í 2 msk. olíu á heitri pönnu í
2-3 mín. á hvorri hlið og þá tekin
af hitanum. Grænmetið er sett í
vel heitan pott með 2 msk. olíu og
brúnaðí8-10mín.. Grænmetiðer
síðan sett í eldfast mót og fisk-
stykkjunum raðað ofan á. Ost-
sneiðunum er raðað á fiskinn og
síðan er jógúrt hellt yfir. Bakað í
180° heitum ofni í 10 mín.. Með
þessum rétti er gott að bera fram
soðin hrísgrjón og volgt hvít-
lauksbrauð.
Máltíð fyrir 6 manns.
Súpur í kuldakasti
Hvernig væri að ylja sér á súpu
í kuldakastinu sem nú genguryfir
okkur. Góð í forrétt á undan ufs-
anum og einnig er hún fullkomin
máltíð með brauðinu hennar
Matthildar.
Minestrone súpa
1 bolli garbartzo baunir
4 bollar vatn
2 stilkar sellerí, skornir í smátt
1 gulrót, skorin smátt
4-5 meðalstórir tómatar, skornir í
bita eða 2 bollar niðursoðnir tó-
matar
1 msk. olía
súpujurtir
sítrónusafi
salt
2 meðalstór zucchini, smátt
skorið
Ve græn paprika, skorin smátt
Þvoið garbanzo baunir og látið
liggja í bleyti yfir nótt. Sjóðið
næsta dag í sama vatni - notið þá
grænmetissoð ef mögulegt er.
Þegar baunirnar eru orðnar
mjúkar bætið þá hinum efnunum
í og sjóðið þar til grænmetið er
meyrt. Mjög góð súpa. Nægir
handa 6-8 manns.
Aðferð:
Hitið ofninn í 200°C. Bræðið
smjörlíkið. Hrærið saman eggj-
um og sykri. Blandið mjólk og
smjörlíki saman við. Þá er þurr-
efnunum blandað í. Deiginu hellt
í lítil pappírsform (muffins), sem
raðað er á plötu úr ofninum. Úr
þessu verða um 40 kökur. Bakað
í miðjum 200°C heitum ofni í 12
mínútur.
Og til að vera ekki eingöngu
með kaffimeðlæti fengum við
uppskrift að pizzu sem lyftiduft er
notað í en ekki ger. Börn Matt-
hildar og Ragnars komu með
þessa uppskrift úr skólanum og
sagði Matthildur hana afar
auðvelda og pizzuna mjög góða
og vinsæla.
Efni:
2 dl hveiti
1 tsk. lyftiduft
V2 tsk. salt
1 msk. olía
1 dl mjólk
IV2 dl tómatsósa
150 g pylsur
150 g ostur
oregano og pizzakrydd
Aðferð:
Blandið þurrefnunum í skál.
Mjólk og olíu hrært saman við.
Hellið deiginu á plötu og gerið ef
til vill 2 litlar pizzur úr því. Hellið
tómatsósunni á. Skerið pylsurnar
í sneiðar og raðið ofan á ásamt
rifnum ostinum. Kryddið. Bakist
í 225°C heitum miðjum ofni í 15
mínútur.
-jp
Ufsinn er próteinríkur og fitusnauður,
líkist ýsu og þorski.
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 22. janúar 1985