Þjóðviljinn - 22.01.1985, Síða 9
MANNLIF
Hættum að sóa rafmagninu!
Rafveitan á Akranesi gefur góð ráð
Rafveitan á Akranesi gaf ný-
legaút bæklingmeö
leiðbeiningum um hvernig
spara megi rafmagnsnotkun í
heimilishaldi. Erþarfjölmarg-
an fróðleik að finna. Markmið
bæklingsins er að veita upp-
lýsingar um hvernig minnka
megi rafmagnseyðslu hinna
mörgu rafknúnu heimilistækja
okkar og um leið svara spurn-
ingunni: „Af hverju er raf-
magnsreikningurinn minn
svona hár?“
Kæliskápurinn er fyrstur tek-
inn fyrir í bæklingi Rafveitunnar.
Er okkur bent á að athuga þétti-
listann vel, hafa hitaristina á bak-
hlið skápsins hreina og þýða
frystar vörur í skápnum, því kuld-
inn úr vörunum nýtist til kælingar
skápnum.
Þá er bent á að hafa frysti-
kistuna á köldum stað og halda
hitastigi í um —18° C. Fyrir
hverja gráðu sem hitastigið í kist-
unni er lægra eykst rafmagns-
notkunin um 5%.
Þvottavélin, þurrkarinn og
eldavélin eru tekin fyrir. Fjallað
er um lýsingu og sagt frá því að
flúrpípur gefi 6 sinnum meira
ljósmagn en glóperur á hverja
orkueiningu, svo stofnkostnað-
urinn getur borgað sig. Eldhús-
störfin eru síðan tekin til endur-
skoðunar og birtist sá kafli hér.
-jP
Þegar kaffi er lagað er hægt að.
spara 30% rafmagns með því að
nota sjálfvirka kaffivél í stað þess
að hella uppá gamla mátann og
hita vatnið í hitakatli. í sjálfvirku
könnunni er hitað vatn fyrir þann
kaffbollafjölda, er nota þarf. í
hraðsuðukatli þarf að hita mun
meira vatn og venjulega sýður
vatnið skamma stund. Hvoru-
tveggja veldur því að hiti tapast,-
Með sjálfvirku kaffikönnunni
sparast því oft mun meira raf-
magn en að framan er getið.
Haldið ekki hita á kaffikönn-
unni með því að láta hana standa
Ætla má að rafmagnsnotkun venjulegs heimilis skiptist eins og sýnt er
í hringnum hér að neðan:
á heitri hitaplötu kaffivélarinnar.
Notið hitakönnu. Ef kaffikannan
stendur í tvær klukkustundir á
heitri hitaplötu kaffivélarinnar er
búiö að eyða 30% af sparnaðin-
um, sem getið var um hér að
framan.
Sparið rafmagn með því að
hita (sjóða) egg í skaftpotti með
þéttu loki. Notið lítið vatn. 4 mat-
skeiðar af vatni nægja alveg
segir í dönskum leiðbeiningum.
Látið vatnið á eftir eggjunum,
kveikið á hellunni. Slökkvið á
henni þegar gufan lyftir lokinu.
Látið skaftpottinn standa í 4-5
mínútur á hellunni, ef eginn eiga
að vera linsoðin, en í 8-10 mínút-
ur, ef þau eiga að vera harðsoð-
in.
Sjóðir eggin ekki í opnum
skaftpotti með miklu vatni í.
Til eru sérstök eggjasuðuá-
höld, sem nota enn minni orku.
Við hverja suðu nota þau 0,045
kWh, skaftpottur með þéttu loki
notar 0,08 kWh og ef soðið er í
opnum skaftpotti eða litlum potti
þarf a.m.k. 0,20 kWh.
Lýsing 12% Uppþvottavél 6% í kaflanum um eldavélina eru
Sjónv. útvarp, smá áhöld 9% Eldavól og gufugleypir 25% einnig leiðbeiningar um suðu
Þvottavél, þurrkari mm. 20% Kæliskápurogfrystikista 28% matar.
MINNING
Oddný Gunnhildur Guomundsdóttir
Hún Oddný er dáin. Fórst í
umferðarslysi á Raufarhöfn að
kvöldi 2. janúar s.l. Undarleg eru
örlögin og erfitt að sætta sig við,
þegar vinir, sem eru í fullu fjöri
eru hrifnir brott fyrirvaralaust, er
okkur þykir að enn eigi svo margt
ógert og langa leið framundan
hérna megin árinnar.
Með hryggð og söknuði kveðj-
um við nú Oddnýju Guðmunds-
dóttur og þökkum samfylgdina.
Oddný Gunnhildur Guð-
mundsdóttir var fædd á Hóli á
Langanesi N.- Þing. Foreldrar
hennar voru Guðmundur bóndi á
Hóli Gunnarsson bónda að
Djúpalæk Péturssonar og kona
hans Krístín Gísladóttir bónda í
Kverkártungu Árnasonar.
Oddný átti tvo bræður, Gísla
Gunnar. Gísli var alþingismaður
N.-Þingeyinga og seinna Norður-
landskjördæmis eystra langa tíð.
Gunnar er járnsmiður og býr í
Reykjavík.
Heima á Hóli ólst Oddný upp
og sleit sínum barnsskóm. Þar, á
Hóli á Langanesi hef ég séð síðs-
umarsgrasið grænna og safarík-
ara er annarsstaðar og þar eru
margir stórir huldusteinar.
Oddný fékk í vöggugjöf góðar
gáfur, sem hún ræktaði vel alla
ævi. Hún tók gagnfræðapróf frá
Akureyrarskóla 1929. Dvaldi í
Svíþjóð við nám og störf, var
jafnframt um tíma fréttaritari
ríkisútvarpsins þar í landi. Árið
1936 stundaði hún nám við Nor-
ræna lýðháskólann í Genf í Sviss.
Á þessum námsárum ferðaðist
hún víða um Evrópu m.a. til So-
vétríkjanna. Það var gaman að
heyra hana minnast þeirra tíma.
Ævistarf Oddnýjar Guðmunds-
dóttur var að kenna börnum og
unglingum, aðallega farkennsla í
sveitum, þ.e. kenna heima á bæ-
jum til skiptis. Kennslan var
Oddnýju meira en starfið eitt,
heldur hugsjón. Hún kenndi
mjög víða um landið, var gjarnan
einn vetur í stað, breytti þá til og
réði sig á nýjan stað á næsta
FædcL 15.
hausti. Þess vegna eignaðist hún
marga vini og hélt tryggð við. Á
sumrin réði hún sig oft í kaupa-
vinnu. Úti á túni, með hrífu í
hönd, naut Oddný lífsins.
Þegar björgunarafrekið var
unnið við Látrabjarg árið 1947,
sem frægt er, var Oddný á vett-
vangi. Þá sögu rakti hún
skemmtilega í útvarpi, ekki alls
fyrir löngu í þættinum „Út og
suður“.
Sagt er að „tilvera okkar sé
undarlegt ferðalag," og er það oft
í mörgum skilningi. Oddný hafði
alla tíð mikið yndi af ferðalögum.
Þar fór hún oft á tíðum sínar eigin
leiðir. Hún notaði reiðhjólið,
hana Skjónu og hjólaði sína götu.
Á slíkum ferðum kynntist hún fs-
landi vel. Þegar Oddný var
fimmtug skrifaði hún: „Hef hjól-
að nær alla akvegi landsins sam-
fylgdarlaust.“
Island og íslensk tunga var
Oddnýju Guðmundsdóttur helgi-
dómur. Oft þótti henni menn
misbjóða landi og tungu. Þágreip
hún gjarnan pennann, var hvöss
og viðhafði enga tæpitungu. Hún
hafði ríka réttlætiskennd, máls-
vari minnimáttar, mannréttinda-
kona. Hún var „vinstrisinni", og
virkur félagi á þeim vettvangi.
Hennar draumur var: ísland úr
NATO Herinn burt!
Oddný var rithöfundur. Ritaði
margar skáldsögur, gaf út ljóða-
bækur, þýddi mikið, bæði bækur
og framhaldssögur í blöð, flutti
erindi í útvarp, skrifaði smásögur
og fjölmargar greinar í blöð og
tímarit. Og aðaláhugamálið alltaf
það sama: að skapa betri heim.
„Orðaleppa og aðrar ljótar
syrpur“, þætti sína um íslenska
tungu og menningu, skrifaði hún
marga og birti í Þjóðviljanum og
Tímanum. Þessir pistlar og fleiri í
sama dúr voru frábærir og vel
eftir þeim tekið, og skipuðu höf-
undi í heiðurssæti.
Oddný Guðmundsdóttir var
fjöldskylduvinur okkar í Austur-
görðum svo lengi ég man a.m.k.
febr. 1908 - Dáin 2. f
40 ár. Alltaf var hátíð þegar hún
kom, hafði frá svo mörgu að
segja og var fyndin, kát og
skemmtileg. Og átti svo auðvelt
með að blanda geði við alla, unga
sem aldna. Já, hún var vinur vina
sinna. Og hún var einkar lagin og
næm að veita aðstoð, með nær-
veru sinni þar sem sorg var í húsi
og erfiðleikar. Þess minnast
margir.
Og nú er hún Oddný dáin.
Laugardaginn 5. janúr s.l. var
minningarathöfn Oddnýjar í
kirkjunni á Raufarhöfn. Sú at-
höfn var ógleymanleg og kirkjan
þéttsetin. Konur stóðu heiður-
svörð með logandi kerti í hendi -
merki friðar. Þannig var hún
kvödd með virktum og þökk á
Raufarhöfn.
Innilegustu samúðarkveðjur
sendi ég Margréti, Gunnari, Sól-
veigu og öðrum ástvinum.
Það er gott að minnast Oddný-
jar Guðmunsasóttur, hún var
kona sönn og heiðarleg.
Blessuð sé hennar minning.
Þórarinn Björnsson.
Hinn 10. þessa mánaðar var til
moldar borin Oddný Guðmunds-
dóttir kennari og rithöfundur.
Hún var fædd að Hóli á Langa-
n. 1985
nesi og ólst þar upp í foreldrahús-
um ásamt bræðrum sínum, Gísla
og Gunnari.
Oddný tók gagnfræðapróf á
Akureyri árið 1929 og stundaði
síðar nám við Foreby Folkhög-
skola í Svíþjóð árið 1933, Nor-
ræna lýðháskólann í Genf árið
1936 og International Höjskole í
Danmörku árið 1937.
Árið 1940, að loknu námi, hóf
Oddný lífsstarf sitt, kennarastarf-
ið. Hún stundaði farkennslu víða
um land og valdi þá oft afskekkta
staði,t.d.kenndi hún víða á Vest-
fjörðum og á Ströndum. Mér
þykir trúlegt að hún hafi verið
síðasti farkennari á íslandi. Á
suntrin vann hún ýmis störf, oft-
ast til sveita, og ferðaðist þá um
landið á hjóli.
Oddný var alltaf sískrifandi og
var meðal annars fréttaritari ís-
lenska ríkisútvarpsins meðan hún
var við nám í Svíþjóð. Árið 1943
kom út eftir hana fyrsta skáld-
sagan, „Svo skal böl bæta“. Síðar
komu út eftir hana skáldsögurnar
„Veltiár“, „Tveir júnídagar“,„Á
því herrans ári“ og „Skuld".
Einnig skrifaði hún smásögur og
greinar í blöð og tímarit. Nokkur
leikrit samdi hún og voru sum
þeirra flutt í útvarpinu, t.d.
„Vellýgni-Bjarni“, „Hraði“ og
„Fósturlandsins freyja". Einnig
fékkst hún við þýðingar. Árið
1982 kom út eftir hana unglinga-
bók, „Haustnætur í Berjadal" og
sama ár kom út ljóðabók,
„Kvæði og kviðlingar".
Kynni okkar Oddnýjar hófust
þegar hún var kennarinn minn
veturinn 1948-49 á Skógarströnd.
Vinátta okkar hefur haldist síð-
an.
Það voru alltaf fagnaðarfundir
þegar Oddný kom á hjólinu sínu
á sumrin og dvaldi þá oft um
lengri tíma hjá foreldrum mín-
um. Oddný var fræðabrunnur og
veitti okkur krökkunum óspart af
þeim brunni.
Oddný var einstaklega trygg-
lynd og góður vinur vina sinna.
Heyrt hef ég að hún hafi á ferðum
sínum um landið oft staldrað við
á barnmörgum heimilum og
saumað alklæðnað á allan hópinn
ef þess þurfti með.
I gegnum árin höfum við
Oddný oft átt góðar stundir sam-
an þegar við ræddum sameiginleg
áhugamál. Oddný hafði brenn-
andi áhuga á þjóðmálum og
óbugandi trú á landi og þjóð.
Friðarmál og mannréttindi voru
henni ofarlega í huga og alltaf var
hún trúr málsvari þeirra sem
minna mega sín í lífinu. Einnig
hafði hún unun af að ræða um
bókmenntir og listir.
Eitt áhugaefni held ég þó að
hafi verið ofar flestu öðru hjá
Oddnýju en það var ritun og
meðferð á íslensku máli. Hún rit-
aði margar greinar í blöð um
þetta efni og gaf út bókina „Orð-
aleppar og aðrar ljótar syrpur".
Síðustu árin, eftir að Oddný
hætti kennslu, dvaldist hún á
Langanesi í grennd við æsku-
jstöðvar sínar, á Þórshöfn,
Bakkaífirði og Raufarhöfn, og
hélt'áframaðstunda ritstörf, ogá
Raufarhöfn var hún búsett er hún
lést.
Með Oddnýju er horfin merki-
leg kona og einn besti útvörður
íslenskrar tungu, en verk hennar
munu lifa og bera henni vitni um
ókomin ár.
Ég þakka Oddnýju fyrir allar
þær ánægjustundir sem við áttum
saman og sendi ættingjum hennar
og vinum samúðarkveðjur. Ég vil
svo ljúka þessum línum með síð-
asta ljóðinu úr ljóðabók Oddnyj-
ar:
Ekki var stormurinn alltaf hlýr
utan við gamla bœinn.
Eldarnir brunnu allir þrír
til ösku handan við sœinn.
Forlögin verða flestum dýr.
Og fjarri er, að ég kveini.
Eldamir brunnu, allir þrír,
engrí skepnu að meini.
Emilía Guðmundsdóttir