Þjóðviljinn - 26.01.1985, Qupperneq 2
FRETTIR
Fjárfestingar
bensínhöll!
20 miljónir króna bensínmusteri Skeljungs í byggingu við
Vesturlandsveg. Olís úthlutað lóð andspœnis nýju stöðinni.
Indriði Pálssonforstjóri Skeljungs: Þörfin erfyrir hendi
Asama tíma og olíufélögin eru
nú að fara fram á enn eina
hækkunina á olíu og bensíni er
eitt félaganna Skeljungur langt
komið með að reisa nýja og glæsi-
lega bensínstöð við Vesturlands-
veg á móts við Höfðabakka sem
mun kosta fullbúinn um og yfir 20
miljónir. Síðar á árinu mun Olís
síðan reisa bensínstöð í Grafar-
vogi en félagið hefur einnig fengið
úthlutað lóð undir bensínstöð við
Vesturlandsveg beint á móti hinni
nýju stöð Skeljungs. Aðeins
nokkur hundruð metrum neðar á
Vesturlandsveginum standa þeg-
ar tvær bensínstöðvar Esso.
„í Reykjavík er auðvitað mats-
atriði hve bensínstöðvarnar eiga
að vera margar, það getur vel
verið að þær séu of margar og of
stórar. Ég vil hins vegar benda á
að fólksbifreiðum í Reykjavík
hefur fjölgað um 10 þúsund á síð-
asta áratug og bifreiðar lands-
manna hafa rumlega fimmfaldast
á síðustu 25 árum á sama tíma og
bensínafgreiðslum hefur fækkað.
Við höfum t.d. enga bensínstöð
byggt hér í Reykjavík sl. 10 ár“,
sagði Indriði Pálsson forstjóri
Skeljungs er Þjóðviljinn spurði
hann í gær hver þörfin væri fyrir
þessa nýju bensínstöð.
„Við sóttum fyrst um þessa lóð
árið 1976 og í skipulagi borgar-
innar er gert ráð fyrir að öll um-
ferð úr borginni um Suðurlands-
veg fari fram hjá þessari stöð.
Staðarvalið hlýtur að ráðast af
því hvar er hægt að fá lóð og
hverjar líkur eru á viðskiptavin-
um“, sagði Indriði. Aðspurður
um áhrif uppbyggingar nýrra
bensínstöðva á undanförnum
árum ábensínverð, sagði hann að
hún hlyti að hafa haft einhver
áhrif en álagning félaganna á
bensín væri mjög lág, aðeins
3.99% magnálagning auk smás-
öluálagningar í núverandi verði.
Indriði sagði óvíst hvenær nýja
bensínstöðin yrði tekin í notkun
en því væri ekki að leyna að hún
væri dýr, myndi líklega kosta í
Bensínstöð Skeljungs við Vesturlandsveg sunnan við Höfðabakka er stór í sniðum og mun ekki kosta undir 20 miljónum.
Mynd - eik.
kringum 20 miljónir.
„Eg tel að öll umræða um þessi
mál sé að hinu góða. Ég sé ekki
að olíufélögin hafi neinu að leyna
nema síður sé í þessum málum.
t>að þarf að dreifa þessari vöru og
það getur alltaf verið matsatriði
hvað það kostar. Ég er á þeirri
skoðun að alltaf megi gera betur.
Olíufélögin geta gert betur og all-
ur rekstur getur gert betur“,
sagði Indriði Pálsson.
Svan Friðgeirsson hjá Olís
sagði í gær að félagið færi rólega í
BUH
Vinnsla hefst á ný
4 sœkja um starfforstjóra. Mannaráðningar til nýja
fyrirtœkisins enn ófrágengnar
Vinnsla hefst að nýju hjá
Bæjarútgerð Hafnarfjarðar á
mánudagsmorgun eftir samfellt
fjögurra mánaða lokun fyrirtæk-
isins. Tveir af togurum útgerðar-
innar eru farnir til veiða og sá
þriðji á að fara út nú eftir helgina.
BÚH hefur verið breytt í
hlutafélagið Útgerðarfélag
Hafnfirðinga, en ennþá hefur
ekki verið gengið formlega frá
eignauppskiptum og uppsögnum
og nýráðningu starfsfólks hjá
hinu nýja félagi.
Fjórar umsóknir bárust um
stöðu forstjóra Útgerðarfélags-
ins. Tveir umsækjendur æskja
nafnleyndar en hinir eru Jón R.
Kristjánsson Sandgerði og Mark-
ús B. Kristinsson Hafnarfirði.
Stjórn nýja hlutafélagsins og út-
gerðarráð BÚH fjalla nú um um-
sóknirnar. - lg.
Sjá Sunnudagsblað
bls 16-17
Ríkisfjármál
Nú verður ekki lengur hægt að
ferðast út úr bænum. Það verð-
ur hvergi hægt að komast á-
fram fyrir bensínstöðvum.
Ungs pilts saknað
Saknað er 18 ára pilts sem fór
að hciman frá sér í Reykjavík á
sunnudag. Hann var á bifreiðinni
X-5571 sem er blágrár Willys
Jeepster með svörtu þaki af árg.
1967, sem lýst hefur verið eftir í
Ijölmiðlum undanfarna daga.
Pilturinn heitir Hafþór Már
Hauksson. Hann er ljóshærður,
hrokkinhærður, klæddur í svartar
leðurbuxur, í svörtum mittissíð-
um leðurjakka og í hvítri skyrtu.
Þeir sem hafa orðið Hafþórs varir
frá því á sunnudag eru beðnir að
láta lögregluna vita.
öllum byggingarmálum núna og
hann hefði ekki trú á því að það
myndi byggja í bráð á lóðinni á
móti nýju Skeljungsstöðinni. Við
munum samt halda lóðinni og sjá
til hvernig þróunin verður á þess-
um stað“, sagði Svan. - lg.
Alþýðuleikhúsið
Aukasýning á
Petru von Kant
Á mánudagskvöldið kl. 20.30
verður aukasýning á leikriti Fass-
binders, Petru von Kant, að
Kjarvalsstöðum. Alþýðuleikhús-
ið hefur sýnt þetta verk við frá-
bærar undirtektir en húsnæðis-
skortur hefur hamlað því að hægt
væri að anna eftirspurn.
- ÞH
Brennivínsgróði
Stætóstjórar oanægðir
Tíu ökumenn á leið tvö hafa
mótmælt hraðahindrunum á
Vestun'ötunni og leggja áherslu
á þessi mótmæli með því að aka
ekki vestur gegnum hindrunina
heldur Mýrargötu útá Granda.
Friðrik Söebeck stýrir þeim
strætisvagni sem sést hér á mynd-
inni, og sagði við Þjóðviljann að
hindrunin þjónaði ekki tilgangi
sínum og neyddi menn að auki til
að brjóta umferðarreglurnar.
„Smábílar þurfa ekkert að hægja
á sér þarna, og eftir að menn eru
komnir í gegn gefa þeir í aftur“,
sagði Friðrik, en sagði að verst
væri að menn þyrftu að fara yfirá
vinstri kantinn þarna rétt við
hornið. Það skapaði hættu í um-
ferðinni, og hún ykist um allan
helming í hálku. Úmferðarnefnd
fjallar um málið á næsta fundi
eftir tæpa viku. Mynd: EÓl.
for í erlendar skuldir
Ablaðamannafundi sem fjár-
málaráðherra hélt í gær um
stöðu ríkisfjármála kom fram að
á þessu ári er ætlunin að vextir og
afborganir af skuldum verði
5.6% af heildargjöldum ríkis-
sjóðs. Upphæðin er rétt tæplega
hagnaður ríkisins af rekstri
ÁTVR.
Einsog áður hefur komið fram
er áætlaður halli á fjárlögum í ár
um 735 miljónirkróna. Árið 1983
voru tekjur A-hluta ríkissjóðs
1946 miljónir umfram gjöld.
Tekin lán umfram afborganir
voru 555 miljónir.
Hlutfallsleg skipting tekna á
fjárlögum 1985 er þessi: sölu-
skattur 38,8%, gjöld af innflutn-
ingi 17,7%, beinir skattar 12,3%,
ýmsir skattar af framleiðslu
7,6%, skattar af launagreiðslum
7,4%, hagnaður ÁTVR 6%,
ýmsir óbeinir skattar 7,1%.
Hlutfallsleg skipting gjalda er
hinsvegar: tryggingar og heil-
brigðismál 38,6%, fræðslumál
13,9%, vegamál 6,3%, lán og
vextir 6,6%, dóm- og löggæsla
4,6%, orkumál 3,6%, húsnæð-
ismál 3,5%, búnaðarmál 3,4%,
niðurgreiðslur 2,7%, útvegsmál
2,6%, ýmislegt 15,2%.
Launagreiðslur ríkissjóðs juk-
ust um 19,7% frá 1983 til 1984 og
töldu fundarboðendur að um
19% þeirrar hækkunar mætti
rekja til samninganna í haust.
- m
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJiNN Laugardagur 26. janúar 1985
;