Þjóðviljinn - 26.01.1985, Blaðsíða 8
Haag. Þar var ég í skúlptúrnámi í
4 ár og síðan í akademíunni í Am-
sterdam í 2 ár. Undanfarin 4
sumur hef ég hins vegar unnið við
uppgerð á faktorshúsinu, sem vio
erum nú í, og hef bæði annajt
litaval á það og innkaup fyrir þaö.
- Ég tek eftirþví að viðgerðin er
öll mjög vönduð og smekkleg.
- Já, yfirumsjón með verkinu
hafði Hjörleifur Stefánsson arki-
tekt en Arnór Stígsson smiður
hér á ísafirði annaðist smíðarnar.
Hann er listamaður eins og þú
sérð.
- Þú segist hafa annast
innkaup?
- Já, ég hef keypt í Amsterdam
ýmsa hluti sem passa við stfl húss-
ins svo sem kveikjara, gluggajárn
og svo framvegis og allt eru þetta
Hæstakaupstaðarhúsið frá 1788 er líka friðað og í eigu bæjarins. Þar hafa nú aðsetur Alþýðubanda-
lagið og AA-samtökin - sem sagt AB og AA. Ljósm.: GFr.
Hugmyndir hafa komið upp um að gera stóru skemmuna í Hæstakaupstað að leikhúsi og opna
jafnvei gaflinn út í garðinn þannig að hægt væri að hafa útileikhús. Ljósm.: GFr.
Ur stofu í faktorshúsinu.
Viðgerð stendur yfir á turnhúsinu, sem norskt bjálkahús frá 1784. Þar er ætlunin að hafa sjóminjasafn.
gamlir messingshlutir. Það er
þannig í Hollandi að arkitektar
hafa með sér samtök og fá að taka
allt nýtilegt úr gömlum húsum
sem á að rífa. Þeir safna því sam-
an á ákveðna staði og þangað er
hægt að leita og kaupa slíka hluti.
Ég hef sjálfur verið á þönum hér
á ísafirði og fengið að taka úr
húsum, sem á að rífa, svo að hér
er kominn vísir að lager líka.
Þetta leynist víða og þegar maður
er að stússa í þessu vaknar áhug-
inn hjá fólki og það fer að hafa
betri skilning á þessum gömlu
brúkshlutum. Ég lét t.d. setja
gamla krana á baðherbergið hér í
húsið en þá fékk ég úr gömlu húsi
við Silfurgötu sem nýlega var
rifið.
- Nú búið þið hjónin hér. Hafið
þið ekki skyldu til að sýna fólki
húsið?
- Við leyfum öllum að skoða
sem vilja. Éitt herbergið er mót-
tökuherbergi á vegum bæjar-
stjórnar og þar eru gamlir hús-
munir og myndir af Isfirðingum
sem koma við sögu þessa húss.
Sjóminjasafn
í Turnhúsinu
- Hvert er nœsta skrefið í við-
gerð þessara gömlu húsa?
-Það er þegar byrjuð vinna við
Turnhúsið sem er bjálkabyggt
pakkhús. Arnór Stígsson er bú-
inn að setja ný fótstykki í húsið
sem voru orðin mjög fúin og lag-
færa hliðarnar sem voru farnar að
bunga út. Hann gerði það á mjög
hugvitsamlegan hátt, batt bjálk-
ana saman með böndum og
tjakkaði síðan hliðarnar upp
þannig að þær sveifluðust til og
frá eins og pendúll. Þannig kom
hann fótstykkjunum fyrir. Næsta
skref er svo að setja nýja klæðni-
ngu á þakið og ganga vel frá hús-
inu að utan. Það er ekki svo ýkja
mikið sem þarf að gera við það að
innan, a.m.k. verður það ekki
eins fínleg vinna og við Faktors-
húsið. Það hefur verið steypt gólf
í hluta þess sem verður t.d. að
brjóta upp og setja trégólf í stað-
inn.
- Til hvers á að nýta Turnhús-
ið?
- Hugmyndin er sú að þar verði
Sjóminjasafn. Ef maður skoðar
bækur Lúðvíks Kristjánssonar
um íslenska sjávarhætti kemur í
ljós að mjög mikið af heimildum
hans er héðan. Það er miklu
meira hér af sjóminjum en maður
gerir sér grein fy rir í fl j ótu bragði.
- Nú hlýtur viðgerð á þessum
gömlu húsum að vera mjög dýr.
Hvernig hefur hún verið fjár-
mögnuð?
- Hún hefur verið fjármögnuð
af ríkissjóði, þjóðhátíðarsjóði,
byggðasjóði, húsfriðunarsjóði og
svo auðvitað bæjarsjóði hér.
Sjálfur þigg ég laun að helmingi
frá Þjóðminjasafninu og að helm-
ingi frá ísafjarðarkaupstað.
- Er þetta ekki ákaflega spenn-
andi starf?
- Ég hef nú aðeins verið í því
frá 1. nóvember svo að maður er
rétt að átta sig á þessu en það
gefur ákaflega marga möguleika.
Sjáðu t.d. þennan stað hér í
Neðstakaupstað, hann hefur öll
skilyrði til þess að verða fyrsta
flokks safn. Hann er við sjóinn, á
besta stað á landinu og í miðju
atvinnulífinu. Það getur ekki ver-
ið betra. Eitt af því sem fljótlega
þarf að gera er að gera umhverfið
aðlaðandi með þvf að hreinsa til á
svæðinu og snyrta það til.
Sjúkrahúsið
sem safnahús
- Nú á ég bara eftir að spyrja þig
um Listasafnið. Hvers konarsafn
er það?
- Það hefur hingað til ekki haft
neinn samastað og verið í hálf-
gerðri niðurníðsju en það á um 60
verk, mörg ágæt. Draumur okkar
er sá að fá gamla sjúkrahúsið til
afnota sem bóka- og listasafn og
skv. greinargerð frá Knúti Jepp-
esen arkitekt er bæði ódýrara og
hagkvæmara að leysa húsnæði-
svandræði þessara safna með því
að fá þeim stað þar heldur en að
byggja yfir þau. Þá yrði bóka-
safnið á l.hæð, listasafnið á
2.hæð en á 3.hæð yrði aðstaða
fyrir funda- og fræðslustarfsemi.
- Er bœjarstjórnin ekki inni á
þessari línu?
-Það eru einhverjar hugmynd-
ir uppi um að langlegusjúklingar
fái þar inni en sú hugmynd finnst
mér fráleit. Það yrði að setja lyftu
í húsið og gera margar aðrar
breytingar sem skemmdu þetta
virðulega og fallega hús sem
Guðjón Samúelsson teiknaði á
sínum tíma. Ég tel að húsið eigi
að vera menningarmiðstöð.
- Eru einhver áform um sýn-
ingar á vegum safnsins á nœst-
unni?
- Framundan er sýning á betri
verkum safnsins og eins ætlum
við að efna til sýningar á verkum
Kristjáns Magnússonar sem var
frá ísafirði. Hann lærði í Banda-
ríkjunum en dó ungur. Ég bið hér
með fólk sem veit um myndir
eftir hann að láta mig vita. Þá hef
ég mikinn hug á að reyna að
kaupa verk inn í safnið til þess að
fylla upp í myndlistarsögu ís-
lands.
- Mérskilst að hér hafi um dag-
inn verið stofnað áhugamannafé-
lag um myndlist?
- Já, það var stofnað í haust og
er tilgangur þess að fá sýningar til
ísafjarðar og kynna myndlist að
öðru leyti. Yfir 40 manns eru þeg-
ar í félaginu og það hefur fengið
húsnæði í gamla Ríkinu við Aðal-
stræti. Við höfum efnt til einnar
sýningar sem haldin var í húsa-
kynnum Hótelsins.
- Nú ert þú myndlistarmaður.
Geturðu unnið eitthvað að eigin
myndlist?
- Ég ætla að reyna það. Nær
allir myndlistarmenn hér á landi
eru líka í brauðstritinu og er ég
þar engin undantekning.
- Hvers konar myndlist hef-
urðu mest verið í?
- Ég hef verið mest í bókagerð
á undanförnum árum og einnig
vatnslitamyndum og teikningum.
Blaðamaður man eftir Jóni í
tónlist fyrir nokkrum árum en
hann lék t.d. með Diabolus in
Musica á sínum tíma. Stór bassi
er við hliðina á flygli konunnar en
hann lætur lítið yfir því að hann
spili eitthvað að ráði. Hann leyfir
mér að lokum að heyra og sjá
verk eftir sig frá Amsterdamár-
um. Verkið heyrir maður af seg-
ulbandi en sér það á myndum
sem Jón hefur í fórum sínum. Það
heitir Hringfjórðungur. Verk
fyrir slagverksleikara, fimm
strengda blindramma og eitt mál-
arabretti. Og svo geta menn sett
ímyndunaraflið í gang.
Blaðamaður situr góða stund í
þessu stórkostlega húsi við spjall
við hjónin og kaffi og svo er hald-
ið út í kuldann og hríðina.
-GFr
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 26. janúar 1985