Þjóðviljinn - 26.01.1985, Side 9
Tímarit
Skírnir komínn út
út er kominn 158. árgangur
Skírnis, tímarits Hins ísienska
bókmenntafélags og er hann
óvenju mikill að vöxtum þetta
áreða 330 blaðsíður. Ritstjórar
eru Kristján Karlsson og Sig- .
urður Líndal.
Sem fylgirit er svo 16. bók-
menntaskrá Skírnis sem Einar
Sigurðsson hefur tekið saman að
venju.
Skírnir hefst að þesu sinni á
minningarorðum um Ólaf Jóns-
son ritstjóra sem lést 2. janúar
f.á. Þá eru birt tvö kvæði eftir
Kristján Karlsson. Síðan taka við
þessar ritgerðir:
Ástráður Eysteinsson: Bók-
menntir og þýingar, þar sem rædd
eru ýmisleg álitaefni um þýðingar
bókmenntaverka á íslensku.
Matthías Viðar Sæmundsson:
Syrpa um Kristján Fjallaskáld.
Eru þar raktir þættir úr ævi
skáldsins, einkum Reykjavíkurár
hans. Síðan eru birtar Sögur og
ritgerðir eftir Kristján, fjórar
sögur, ein þýðing, og tvær rit-
gerðir, en ekkert af þessu efni
hefur birst áður. I athuga-
semdum segir Matthías Viðar:
„Ef marka má bókmenntasögur
hefur dauði verið yfir íslenskri
smásagnagerð frá útgáfu Fjölnis
1847 til útkomu Verðandi árið
1882. Sögur Kristjáns sýna hins
vegar að þá var líf, hikandi að
vísu - en líka Iíf“. Sigurður
Líndal: Lög og lagasetning í ís-
lenska þjóðveldinu. Þar er þess
freistað að skýra ákvæði Grágás-
ar um lagauppsögu lögsögu-
manns, um réttingu laga og gerð
nýmæla með hliðsjón af almennu
viðhorfi manna á miðöldum til
lága og réttar, og jafnframt að
tengja hugsun þá sem býr að baki
Grágásarákvæðunum við réttrík-
ishugmyndirnútímans. Þorsteinn
Gylfason: Hvað er réttlæti? Þar
er fjallað um ýmis atriði í
stjórnmálaheimspeki síðustu ára,/
mest um svonefnda frjálshyggju -
sem höfundur vill kalla lágríkis-
kenningu - og hafnar með ýms-
um rökum. Hann ver þá hefð-
bundnu hugmynd sem helstu
stjórnspekingar samtímans
hafna, að réttlæti ráðist af verð-
leikum. í lokin reifar hann eigin
kenningar um réttlæti sem hann
nefnirsannmæliskenningu. Pétur
Knútsson Rigdewell: Um þýð-
ingu Halldóru B. Björnsson á
Bjólfskviðu, en sú þýðing birtist
fyrir nokkru. Þórður Harðarson:
Sjúkdómur Egils Skalla-
Grímssonar. Er þar greint frá því
hvað muni hafa gengið að Agli í
ellinni. Eiríkur Jónsson: Dómurí
dagsljósi. í ritgerðinni er ýtarleg
gagnrýni á dómnefndarálit um
ritið Rætur íslandsklukkunnar
sem höfundur sendi heimspeki-
deild Háskóla íslands til doktors-
varnar. Síðan er dómnefndará-
litið sjálft birt. Dr. Gunnlaugur
SJAIST
mcð
endurskini
Umferöarr^ð
Þórðarson og Björn Th. Björns-
son rita Skírni bréf og skiptast þar
á skoðunum um það hver sé höf-
undur tiltekins málverks. Loks
eru ritdómar eftir Aðalstein Ing-
ólfsson, Jón Hnefil Aðalsteins-
son og Peter Hallberg.
Árgjald hefur verið ákveðið
750 krónur, en við bætist send-
ingarkostnaður, 32 krónur.
Karl Marx á spiladós
Svisslendingar hafa um
margar aldir sérhæft sig í
spiladósum af ýmsu tagi. Ný-
lega er ein slík komin á mark-
aðinn sem mörgum mun að
líkindum finnast mesta
óhæfa.
Sýnir hún Karl gamla Marx,
sem snýst í hring þegar dósin er
trekkt upp og lyftir hendi í takt
við Internationalinn sem spila-
dósin flytur. Undir hendinni
heldur Karl á höfuðriti sínu
frægu, Das Kapital - en sú bók
hefur reyndar gefið nafn íslenskri
rokksveit.
SÖLDEN
SÁ BESTI VARD FYRIR VAUNU
Aðferðin var í sjálfu sér einföld: Við kynntum okkur alla
þekktustu skíðastaði Austurríkis og völdum síðan þann besta
EINSTÖK AÐSTAÐA
í Sölden færð þú á einum stað allt sem til þarf í frábæra
skíðaferð. Hvort sem þú ert einn á ferð, með
fjölskylduna eða í stærri hóp, uppfyllir Sölden allar þínar
kröfur - og heldur meira.
Umhverfið er heillandi og veðursæld mikil. Ótrúlega þétt
lyftukerfi teygir sig upp eftir hlíðunum og skilar þér í allt
að 3.100 m hæð. Brautimar eru vel merktar og allt lagt
upp úr því að hver maður finni brekkur við sitt hæfi.
Mörg hundruð skíðakennarar eru til taks, útsýnisstaðir,
veitingastaðir og hvíldarstaðir eru á hverju „strái“ og
dagurinn líður hratt, fullur af skemmtilegum atvikum, -
ævintýri líkastur.
FRABÆRT NÆTURLIF
Þegar líður að kvöldi læturðu notalega þreytuna
líða úr skrokknum í sundlaugum, nuddpottum og
gufuböðum, og færð þér síðan hressingu á
huggulegum bar þar sem útsýnin til snæviþakinna
fjalla verður ógleymanleg í Ijósaskiptunum.
Kvöldið tekur síðan við í eldfjörugum Tírólabænum:
Veitingastaðir, diskótek, skemmtistaðir, nætur-
klúbbar og hressilegt götulíf gefur hverju kvöldi
nýjan lit og setur punktinn yfir i-ið í glæsilegri
skíðaferð.
SÖLDEN Á EKKI SINN LÍKAN - ÞVÍ GETURÐU TREYST
VERD FRA KR.
20.800.
og mjög góðir greiðsluskilmálar að auki!
(Miðað við gengi 21.11 '84)
Gisting er fjölbreytt og við allra hæfi.
Ferðatilhögun gæti ekki veirð öllu þægilegri: Beint leiguflug til
Innsbruck og örstuttur akstur til Sölden.
Brottfarardagar: 9. febrúar, 23. febrúar.
Nýr brottfarardagur: 9. mars.
* Sbr. niðurstöður fjölmargra skíðasérfræðinga evrópskra tímarita.
Samvinnuferóir - Landsýn
AUSTURSTRÆTl 12 - SÍMAR 27077 & 28899
SÖLUSKRIFSTOFA AKUREYRI: SKIPAGÖTU 18 - SÍMAR 21400 & 23727