Þjóðviljinn - 15.02.1985, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
Byggingarlánin
Lánskjaravísitalan ónothæf
Ólafur Jónssonfyrrv. formaður Húsnœðismálastjórnar: Byggingarlán á
að verðtryggja ísamrœmi við breytingu á byggingarkostnaði
að var í lagi að nota lánskjara-
vísitölu mcðan jafnvægi var á
milli vísitalna. Þegar núverandi
ríkisstjórn tók til við að raska
kjörunum í landinu, m.a. með því
að haetta niðurgreiðslum land-
búnaðarvöru og fjölmörgum öðr-
um aðgerðum sem flestir kannast
við, hætti lánskjaravísitalan að
sýna breytingu á byggingar-
kostnaði, en sýnir í staðinn
breytingar á verðlagi almennt. Af
þessum sökum tel ég lánskjaravís-
itöluna með öllu ónothæfa til að
verðtryggja lán Húsnæðisstofn-
unar, sagði Ólafur Jónsson
fyrrum formaður stofnunarinnar
í samtali við Þjóðviljann, en
lánskjaravísitala var tekin upp á
húsnæðislán á þeim tíma er hann
gegndi formennsku.
Lánskjaravísitala var tekin upp
á öll lán, önnur en nýbyggingar-
lán og lán til kaupa á eldra hús-
næði, hinn 1. júlí 1980. í mars-
apríl 1982 var svo tekin upp
lánskjaravísitala á öll lán.
Ekki eru talin tæknileg vand-
kvæði á að breyta öllum lánum,
sem áður hafa verið tekin, þannig
að þau verði verðtryggð í sam-
ræmi við breytingar á bygging-
arkostnaði. Stöðugar breytingar
á lánskjörum eru hins vegar tald-
ar afar óæskilegar, og valda mikl-
um ruglingi.
„Það er rétt að verðtryggja lán
til húsbyggjenda með hliðsjón af
breytingu á byggingarkostnaði en
ekki öðru verðlagi. Það má hafa
til vitnis um hve röng lánskjara-
vísitalan er að hækkun á áfengi og
tóbaki skuli hækka skuldir hús-
byggjenda um margar miljónir á
ári“, sagði Ólafur ennfremur.
Væri mögulegt að breyta láns-
kjörunum á þeim lánum sem þeg-
ar hafa verið veitt?
„Mér er ljóst að á því eru veru-
legir erfiðleikar, þó að siðferðis-
lega væri til þess full ástæða. Það
er hins vegar á valdi stjórnvalda
að breyta uppbyggingu lánskjar-
avísitölunnar þegar í ljós er kom-
ið að hún er ónothæf".
-hágé
Kjör kennara eru móðgun við menntakerfið í landinu segir í ályktun fundarins í Hamrahlíð. Ragnhildur Helgadóttir menntamálaráðherra mætti og sagðist
neita að horfast í augu við þann möguleika að kennarar gangi út 1. mars
Menntaskólanemar
Fullur stuðningur við kennara
Aijölmennum fundi Nemend-
afélags Menntaskólans við
Hamrahlíð í gær var samþykkt
ályktun þar sem lýst var yfir full-
um stuðningi við kröfur kennara.
í ályktuninni segir að það hljóti
að teljast óþolandi að kennarar
skuli ekki hafa hærri laun en raun
ber vitni og sé það beinlínis móðg-
un við þá og menntakerfið allt. Þá
Verðlagsmál
lýsir fundurinn undrun sinni á
skilningsleysi stjórnvalda í máli
þessu og krefst þess að þau gangi
þegar að samningaborðinu.
Ályktunin var samþykkt með
tveim mótatkvæðum.
Á fundinum hafði Ragnhildur
Helgadóttir menntamálaráð-
herra framsögu ásamt þeim
Heimi Pálssyni fulltrúa kennara,
Árna Páli Árnasyni fulltrúa ném-
enda og Sigurrós Þorgeirsdóttur
fulltrúa nemenda í öldungadeild.
Á fundinum lýsti Ragnhildur
yfir fullum vilja ráðuneytisins til
að bæta kjör kennara, en fulltrú-
ar kennara sögðu að sá vilji hefði
ekki náð til samninganefndar
ríkisins enn, þar sem engar
áþreifanlegar tillögur hefðu kom-
ið fram. Á fundinum kom einnig
fram að menntamálaráðherra tel-
ur það lögbrot ef kennarar ganga
út, og sagðist hún neita að horfast
í augu við þann möguleika að
kennarar gerðust lögbrjótar með
þeim hætti. Kennarar draga hins
vegar í efa lögmæti framlengingar
ráðherrans á uppsagnarfresti.
ólg.
Sjómannasamningarnir
Höfuðkrafan hefur
enn ekki verið rædd
Óskar Vigfússonformaður SSI: Pá þyrftu allar
flóðgáttir að opnast ef samningar eiga að takastfyrir
sunnudag
„Frjálsum“
vörum
fjölgar
Á fundi Verðlagsráðs í fyrra-
dag voru til umfjöllunar ýmsar
verðhækkunarbeiðnir, þar á
meðal frá olíufélögunum. Um-
sókn þeirra hlaut hinsvegar ekki
afgreiðslu að þessu sinni.
Samþykkt var að fella nokkrar
vörutegundir undan hámarks-
álagningu frá 1. mars n.k. að
telja. Má þar einkum nefna ýms-
ar rafmagnsvörur, svo sem
útvarps- og sjónvarpstæki, lampa
og ljósfæri. Einnig barnavagna
og -kerrur, reiðhjól, skrifstofu-
vélar, innflutt húsgögn og hljóð-
færi. -mhg
Höfuðkrafa sjómanna og sú
sem allir eru sammála um, að
tvöfalda kauptrygginguna, hefur
ekki einu sinni fengist rædd. Það
eina sem hefur gerst í samning-
amálunum er að undirnefndir
vinna í lífeyrismálunum og að
unnið er að lagfæringu samninga
sjómanna á rækju og frystiskip-
um, sem hafa verið hálfgert klúð-
ur til þessa, annað hefur ekki
gerst á samningafundunum,
sagði Óskar Vigfússon formaður
Sjómannasambandsins í gær.
Hann var spurður hvort von
væri til þess að samningar tækjust
fyrir sunnudag, en þá hefst boðað
verkfall sjómanna. Óskar sagði
að hann væri svartsýnn á að
samningar tækjust fyrir þann
tíma. Ef það ætti að takst þyrftu
allar flóðgáttir í samningamálun-
um að opnast og enn hefði ekkert
það komið fram sem benti til
þess.
í fyrradag hófst fundur kl. 15
og stóð hann til kl. 3 í fyrrinótt.
Annar fundur hófst svo um miðj-
an dag í gær.
-S.dór
Fiskeldi
Stríðeldi
og kynbætur
á laxi
Líffrœðingar boða til
ráðstefnu um helgina
„Þó maður opni varla svo blað
að ekki sé þar ein grein eða fleiri
um flskeldi, þá hafa líffræðingar
lítið blandað sér í umræðuna til
þessa. Tilgangurinn með ráð-
stefnunni er annars vegar að
vekja áhuga þeirra á stöðu og
framtíð matfiskeldis í landinu og
svo hins vegar að hvetja þá sem
eru að fjárfesta í fiskeldi til að
notfæra sér innlenda þekkingu og
styðja við rannsóknarstarfsemi
þessum málum til framdráttar“,
sagði Sigurður Sveinn Snorra-
son, líffræðingur í gær.
Um helgina gengst Líffræðifé-
lag íslands fyrir opinni ráðstefnu
um fiskeldi og fiskistofna í ám og
vötnum. Ráðstefnan verður
haldin á Hótel Hofi við Rauðar-
árstíg og hefst kl. 9 á laugar-
dagsmorgun. Áætlað er að henni
ljúki síðdegis á sunnudag.
„Markmiðið með þessari ráð-
stefnu er að kynna íslenska þekk-
ingu bæði í almennri líffræði og
fiskilíffræði í því skyni að varpa
ljósi á sérstöðu íslands, bæði
varðandi jarðhitann og önnur
náttúruleg skilyrði", sagði Sig-
urður.
-AI
Tryggingar
Nýtt
líftrygg-
ingafélag
Brunabótafélag Islands hefur
nú stofnað sérstakt líftrygginga-
félag, B.í. Líftryggingu, og hóf
það starfsemi sína í gær, í húsa-
kynnum Brunabótafélagsins að
Laugavegi 103.
Stofnendur eru, auk Bruna-
bótafélagsins sjálfs, sex núver-
andi aðalmenn og varamenn í
stjórn félagsins.
Félagið hyggst leggja meginá-
herslu á að veita verðtryggða
vátryggingavernd í öllum grein-
um trygginga, jafnt fyrir einstak-
linga og hópa. Til boða stendur
söfnunarlíftrygging, tímabundin
líftrygging, sameiginleg líftrygg-
ing og hóplíftrygging.
Blaðið mun innan skamms
greina nánar frá þessu nýja líf-
tryggingafélagi. .
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN