Þjóðviljinn - 15.02.1985, Blaðsíða 4
LEIÐARI
Brot a vamarsamningnum
Eitt virtasta dagblaö veraldar, New York Tim-
es, birti í fyrradag á forsíðu staðfestingu á því að
forseti Bandaríkjanna hefur síðastliðin tíu ár
undirritað heimild til herja sinna sem leyfir þeim
að flytja 48 kjarnorkudjúpsprengjur til íslands á
ófriðartímum, án vitundar íslenskra stjórn-
valda.
Þessar upplýsingar berast í kjölfar nýlegra
fregna frá Kanada, um að yfirmaður kanadíska
herráðsins, Gerard Theriauld, hafi lýst yfir að í
bandaríska varnarmálaráðuneytinu í Pentagon
hafi hann sjálfur séð leyndarskjölin sem heimila
vopnaflutninga, meðal annars til íslands.
Það þarf því engra frekari vitna við. Með upp-
Ijóstrun hins virta stórblaðs, New York Times og
yfirlýsingu kanadíska herráðsforingjans eru
fram komnar tvær staðfestingar á því að heim-
ildin til að flytja kjarnorkuvopnin hingað til lands
er ekki bábilja Þjóðviljans, hún er til í iðrum
Pentagon.
í þessu sambandi er rétt að vitna til ummæla
Geirs Hallgrímssonar á Alþingi íslendinga 6.
desember, þegar umræðurspunnust utan dag-
skrár um þau skjöl sem vígbúnaðarsérfræðing-
urinn William Arkin flutti hingað til lands og
sýndu fyrst fram á tilvist heimildarinnar: „Ég vil
ítreka það, að ef út úr þessu skjali má lesa að
Bandaríkjastjórn eða forseti Bandaríkjanna
hafi veitt heimild til flutnings á kjarnorku-
vopnum til íslands án heimildar íslenskra
yfirvalda, þá er hér um að ræða brot á varn-
arsamningnum...“
KUPPT OG S KO R HÐ
Heimildin ertil, einsog New York Times hefur
tekið allan vafa af, og samkvæmt yfirlýsingu
Geirs hér að ofan eru því engin tvímæli á því að
varnarsamningurinn milli þjóðanna hefur
verið brotinn. Þetta sýnir eins og svo mörg
önnur dæmi að í augum bandaríkjastjórnar er
ísland ekkert annað en nokkurs konar nýlenda.
Við erum ekki einu sinni spurð hvort við viljum
hafa hér vígbúnaðartól sem gætu teymt okkur
inn í miðju styrjaldarátaka.
Þetta er ekki einungis brot á varnarsamningn-
um - þetta er móðgun við okkur sem þjóð og
það er skýlaus krafa allra réttsýnna íslendinga
að ríkisstjórn landsins mótmæli þessari vald-
níðslu og samningsbroti af fyllstu hörku!
í grein New York Times kemur líka fram, að
bandarískir embættismenn hafa staðfest, að í
kjölfar þeirrar umræðu sem varð í þeim löndum
sem heimildin um vopnaflutningana náði til, þá
hafi ráðamönnum viðkomandi þjóða verið skýrt
frá henni. Með öðrum orðum: bandarískir emb-
ættismenn staðhæfa að íslenskum stjórnvöld-
um hafi verið gerð grein fyrir því að heimildin var
til. Hvers vegna hafa hérlend stjórnvöld ekki
gert þetta uppskátt? Er ríkisstjórnin enn að
hlífa vinum sínum vestanhafs?
Það er ótvíræð skylda forsætisráðherra og
utanríkisráðherra að skýra undanbragðalaust
fráöllum þeim upplýsingum sem þeim hafa bor-
ist um væntanlega flutninga á kjarnorkuvopn-
um til íslands. Þetta er jafnframt mál sem Al-
þingi verður að taka upp hið bráðasta og taka af
öll tvímæli um að við viljum aldrei fá hingað
kjarnorkuvopn.
Fyrst ríkisstjórnin lætur sér lynda að Banda-
ríkin komi fram við íslendinga eins og hvert
annað leppríki, þá verður Alþingi að taka í
taumana.
Viðhorf
Cairingtons
Til að draga úr þeirri ólgu sem uppljóstranir
William Arkin hafa skapað í þeim löndum sem
Bandaríkjamenn hyggjast mögulega flytja
kjarnavopn til á ófriðartímum, þá hafa bandarísk
stjórnvöld reynt að telja fólki trú um að slíkt yrði í
rauninni ekki gert án undangengis samráðs við
viðkomandi ríkisstjórnir.
Það er fróðlegt að lesa viðhorf Carrington
lávarðs, fyrrum utanríkisráðherra Breta og nú-
verandi yfirmanns Nató til þessa. Að sögn New
York Times hefur Carrington lávarður sagt, að
ekki ætti að bíða með slíkt samráð til síðustu
stundar, þar sem „ég hef það á tilfinningunni að
samráðin yrðu ekki of mikil ef hættuástand væri
skollið á“.
Þjóðviljinn tekur heils hugar undir þessi varn-
arorð yfirmanns Nató.
-ÖS
Þá er það brot
„Ég vil ítreka það að ef út úr
þessu skjali má lesa að Banda-
ríkjastjórn eða forseti Bandaríkj-
anna hafi veitt heimild tilflutnings
á kjarnorkuvopnum til íslands án
heimildar íslenskra yfirvalda, þá
er hér um að rœða brot á varnar-
samningnum, þá er hér um að
rœða brot á yfirlýsingu leiðtoga
Atlantshafsbandalagsins frá
1957, sem hefur gilt um meðferð
og geymslu kjarnorkuvopna með-
al bandalagsþjóða, og þá er, að
því er ég best veit, um að ræða
brot á bandarískum lögum sem
fjalla um vörslu kjarnorku-
vopna".
Sá, sem svo mælti, var utan-
ríkisráðherra landsins á alþingi 6.
desember sl. í umræðu um upp-
lýsingar Arkins. „Ég trúi því
ekki“, sagði utanríkisráðherra,
„að Bandríkjamenn brjóti varn-
arsáttmálann".
Ekki trú
útlendingum
í einræðislöndum er oft gripið
til þess ráðs að gera útlendinga
tortryggilega og börnunum er
kennt í skólunum að trúa ekki
útlendingum.
Eiður Guðnason alþingismað-
ur sagði í umræðunni á alþingi 6.
desember: „Við eigum ekki að
trúa öllu því sem útlendingar
segja, hvaðan sem þeir koma og
hverjir sem þeir eru, einsog nýju
neti“. Og Geir Hallgrímsson
sagði: „Útaf fyrir sig eru upplýs-
ingar Arkins ekki nein ný bóla.
Arkin þessi kom af stað sögu-
sögnum fyrir fjórum árum um að
hér á landi vœru geymd kjarnork-
uvopn...“ Og fleira var látið.
fjúka í þessum dúrnum í desemb-
er sl. um upplýsingar Arkins.
Ekki sakar að geta þess í fram-
r desembor
1984
flmmtu-
| dagur
243. tóJubtoð 49. óroarvguí
MÓDVIUINN
MANNLÍF
HEIMURINN
ASÍ-þingið
Geir Hallgrímsson
Eg trúi því ekki
48 kjarnorkudjúpsprengjur til Islands á stríðstímum. Steingrímur Hermannsson: Hafði enga
vitneskjuum þetta. Geir Hallgrímsson: Trúiekkiað Bandaríkin brjótiVarnarsáttmálann.
hjáhlaupi að Eiður sagði við þess-
ar umræður á alþingi: „Mit mat er
það og ég er búinn að ítreka það,
þetta er rnín skoðun, að œrið oft
finnst mér ég hafa séð þess merki
að þar séu menn heldur hallir
undir þá stefnu sem Sovétríkin
reka í utanríkismálum". (Þarna
er þingmaðurinn áreiðanlega að
sveigja að Árna Bergmann).
Efnislega lauk umræðu og um-
fjöllun ríkisstjórnar með því að
utanríkisráðherra lýsti því yfir að
hann myndi leita skýringa hjá
Bandaríkjastjórn á plöggunum
sem Arkin sýndi þeim ráða-
mönnum.
„Fullkomlega
viðunandi"
Hjörleifur Guttormsson hóf
utandagskrárumræðu öðru sinni
á alþingi 20. desember, þegar
utanríkisráðherra hafði borist
svar frá Bandaríkjunum.
Reyndar kom í ljós að formlega
svarið var frá „forstöðumanni
bandaríska sendiráðsins í
Reykjavík“, en fram kom að
Geir hafði talað við Schultz utan-
ríkisráðherra in privatimi um
þetta mál og taldi sig hafa fengið
fullnægjandi svör.
í svarinu kemur m.a. fram að
það sé fastmótuð stefna Nató og
Bandaríkjastjórnar „að játa
hvorki né neita heimildagildi
skjala sem sögð eru trúnaðar-
skjöl“ stjórnarinnar eða Nató.
Geir sagði að svar Bandaríkja-
stjórnar kollvarpaði staðhæfingu
Arkins: „Ég hef ekki ástœðu til
annars en trúa yfirlýsingu Banda-
ríkjastjórnar. Þess vegna ersvarið
mikils virði".
Forsætisráðherra fannst það
líka og sagði við umræðuna: „Vil
ég taka þaðfram að ég tel að þetta
svar Bandartkjamanna sé
fullkomlega viðunandi", af því að
þar kemur fram að þeir muni ekki
koma fyrir kjarnorkuvopnum hér
á landi „án samþykkis íslenskra
stjórnvalda“.
Geir herðir á
þingmenn stjórnarandstöðunnar
á að í svari Bandaríkjastjórnar
væri ekkert sem kvæði á um að
upplýsingar Arkins og skjölin,
sem hann sýndi, væru rangar. Af
þessu tilefni vísaði til þess sem
segir í svari Bandaríkjastjórnar
um að aldrei kæmu kjarnorku-
vopn til íslands nema að fengnu
samþykki ríkisstjórnarinnar.
„Það er þvífullkomlega afsönnuð
sú staðhœfing sem William Arkin
viðhafði hér fyrir nokkrum vik-
um, að slík heimild lœgi fyrir til
Bandaríkjaherja að staðsetja
kjarnorkuvopn hér á íslandi á ó-
friðartímum".
Trúgirni?
Síðan ofangreind ummæli voru
látin falla á alþingi íslendinga í
desember hefur túlkun ríkis-
stjórnarinnar verið hrakin í tví-
gang: í fyrra sinnið með viður-
kenningu frá Kanada og í síðara
sinnið í fyrradag í New York Tim-
es. Þar kemur m.a. fram sú
í umræðunni á alþingi bentu staðfesting embættismanna í
Washington að „tilvist áætlan-
anna“ hafi verið staðfest fyrir
stjórnvöldum í viðkomandi
löndum eftir að blöð höfðu greint
frá málinu. Það vill segja að Geir
Hallgrímsson hafi fengið stað-
festingu á réttmæti upplýsinga
Arkins í desember sl. Var hann
þá að mæla gegn betri vitund á
alþingi eða er sannfæringarkraft-
urinn í yfirlýsingum Bandaríkja-
stjórnar svona ofboðslegur?
Með þessum nýjustu fréttum
er enn frekar staðfest að með því
að slík heimild um flutning kjarn-
orkuvopna m.a. til íslands hafi
verið til, þá hafi „varnarsamning-
urinn“ verið brotinn (sbr. um-
mæli Geirs í upphafi). Hverjar
eru afleiðingamar?
Getur það verið að íslensk
stjórnvöld, ráðherrar íslenskir,
séu þýlyndari gagnvart Banda-
ríkjastjórn en æðsti yfirmaður
Nató, Carrington lávarður, sem
gagnrýndi Bandaríkjastjórn
vegna þessa á dögunum? Eða má
gera ráð fyrir eðlilegri framgöngu
talsmanna sjálfstæðs þjóðríkis?
-óg
DJÚÐVIUINN
Málgagn sósíalisma, þjóöfrelsis
og verkalýðshreyfingar
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans.
Ritstjórar: Árni Bergmann, össur Skarphéðinsson.
Ritstjórnarfulltrúi: Oskar Guðmundsson.
Fróttastjóri: Valþór Hlöðversson.
Blaðamenn: Aðalbjörg Óskarsdóttir, Álfheiður Ingadóttir, Guðjón
Friðriksson, Helgi Guðmundsson, Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gísla-
son, Mörður Árnason, ólafur Gíslason, Sigurdór Sigurdórsson,
Víðir Sigurðsson (íþróttir).
Ljósmyndir: Einar Ólason, Einar Karlsson.
Útlit og hönnun: Filip Franksson, Þröstur Haraldsson.
Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar.
Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir.
Skrifstofustjóri: Jóhannes Harðarson.
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Magnús Loftsson.
Útbreiðslustjóri: Sigríður Pétursdóttir.
Auglýsingastjóri: Ragnheiður Óladóttir.
Auglýsingar: Anna Guðjónsdóttir, Ásdís Kristinsdóttir,
Hreiðar Sigtryggsson.
Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson.
Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir.
Símavarsla: Margrét Guðmundsdóttir, Sigríður Kristjánsdóttir.
Húsmæður: Bergljót Guðjónsdóttir, Ólöf Húnfjörð.
Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Björnsson.
Bílstjóri: Ólöf Sigurðardóttir.
Útkeyrsla, afgreiðsia, auglýsingar, ritstjórn:
Síðumúla 6, Reykjavík, sími 81333.
Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Verð í lausasölu: 30 kr.
Sunnudagsverð: 35 kr.
Áskriftarverð á mánuði: 330 kr.
Afgreiðsla blaðsins er opin á laugardögum
frá kl. 9 til 12, beinn sími: 81663.
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 15. febrúar 1984