Þjóðviljinn - 15.02.1985, Page 18

Þjóðviljinn - 15.02.1985, Page 18
UM HELGINA Menningarvaka á Hellissandi Óperufólk á ferð og flugi. F.v. Garðar, Ólöf Kolbrún, Halldór, Anna, John, Bjarni, Elín og Marc. Óperan fyrir norðan Á laugardag og sunnudag verður haldin svoköluð Menn- ingarvaka í grunnskólanum á Hellissandi. Sex rithöfundar lesa úr verkum sínum, tónlistarfólk skemmtir og Alfreð Flóki sýnir teikningar. Þetta er fyrsta sjálf- stæða myndlistarsýning hans úti á landsbyggðinni. Dagskráin hefst kl. 21.00 á laugardagskvöldið með ávarpi Einars Ölafssonar skólastjóra. Þar á eftir heldur Erlendur Jóns- son rithöfundur fyrirlestur um skáldskap undir Jökli sem hann nefnir „Með sýn til Jökuls“. Á eftir Erlendi les Þorri Jóhannsson skáld úr verkum sínum. Tón- listarfólk mun einnig skemmta þetta kvöld. Bjarni Hjartarson, Anna Flosadóttir og Hilmar Ósk- arsson koma úr Búðardal og taka lagið. Englendingarnir Stephen Watkins, Wendy Watkins og Da- vid Woodhouse leika á hljóðfæri og syngja. Jóhann Hjálmarsson opnar myndlistarsýningu Alfreðs Flóka með spjalli um listamann- inn og verk hans. Alfreð Flóki verður á staðnum. Á sunnudeginum verður skólinn opnaður kl. 13.00 fyrirþá sem vilja sjá myndlistarsýning- una. Kl. 14.00 hefst svo dagskrá- in að nýju. Þá munu eftirtaldir höfundar lesa úr verkum sínum: Jóhann Hjálmarsson, Árni Berg- mann, Sveinbjörn I. Baldvins- son, Eðvarð Ingólfsson og Anton Helgi Jónsson. Þess má geta að Jóhann og Eðvarð eru báðir upp- aldir á Hellissandi. Tónlistarfólk- ið frá kvöldinu áður mun skemmta milli upplestra. - Samkomunni verður svo slitið seinni part dags. Aldrei hafa jafnmargir þekktir listamenn verið samankomnir á Hellissandi og verða um þessa helgi. Aðstandendur Menningar- vökunnar hvetja hreppsbúa og aðra Snæfellinga til að taka sér hvíld frá dagsins önn og njóta þessa einstæða viðburðar. Állir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir. íslenska óperan setti sér það markmið í upphafi að vera ópera allra landsmanna. Förin út á land er einn liður í að gera þetta mark- mið að veruleika. Sex óperusöngvarar, undir- leikar og ljósameistari eru með í ferðinni. Flutt verður óperan Síminn, eftir Menotti, atriði úr Carmen eftir Bizet og La Traviata eftir Verdi. Síminn sem er stutt gam- anópera verður flutt í heild sinni, en sögumaður kynnir nánar óper- urnar Carmen og La Traviata milli söngatriða. Söngvararnir sem syngja í „óp- eru á ferð og flugi“ eru: Ölöf Kol- brún Harðardóttir, Anna Júlíana Sveinsdóttir, Elín Sigurvinsdótt- ir, John Speight, Halldór Vil- helmsson og Garðar Cortes. Stjórnandi og undirleikari er Marc Tardue og ljósameistari Sigurbjarni Þórmundsson. „Ópera á ferð og flugi“ verður í Skjólbrekku, Mývatnssveit, 16. feb. kl. 21.30, Samkomuhúsinu Akureyri 17. feb. kl. 15.00, Mið- garði Skagafirði 17. feb. kl. 21.30 og Félagsheimilinu Blönduósi 18. feb. kl. 21.00. Miðaverð er kr. 450.00. MIR List í Rússlandi Nú um helgina verða síðustu sýn- ingar á Aljónu og ívani, rússnesku barnaleikriti sem nem- endur Leiklistarskólans sýna í Lindarbæ í samvinnu við nem- endur Tónlistarskólans. Leik- stjóri er Þórunn Sigurðardóttir Sýningar verða í kvöld, á laugar- dagskvöld og sunnudagskvöld kl 5 alla dagana. Sjálfvirkur sím- svari 21971. Þessa skartgripi hefur Rúrí gert. Skartgripir í Gallerí Langbrók Á morgun klukkan 14.00 verð- ur opnuð sýning í Gallerí Lang- brók, Amtmannsstíg 1, á skart- gripum eftir myndlistarmennina Grím Marinó Steindórsson og Rúrí. Grímur hefur aðallega fengist við skúlptúr og málverk hingað til og fjallar oft um sjóinn í verkum sínum. Hann hefur haldið nokkr- ar einkasýningar hérlendis. Rúrí hefur aðallega fengist við skúlp- túr og performance og sækir við- fangsefni sín í lífið og tilveruna. Hún hefur sýnt víða, bæði á einka- og á samsýningum, hér- lendis og erlendis. Meginhluti gripanna á sýning- unni eru gerðir úr áli og stáli, sem eru óvenjuleg efni í skartgripa- gerð. Allir gripirnir eru módel- smíð og í sumum þeirra er skammt milli skarts og skúlptúrs. Sýningin er opin virka daga kl. 12.00 til 18.00 og um helgar klukkan 14.00 til 18.0. Sýningunni lýkur sunnudagin 3. mars. Skartgripir eftir Grím Marinó Steindórsson. Kjarvalsstaðir Arnarhólstillögur og Sveinn Björnsson Tvær sýningar eru nú á Kjar- valsstöðum og lýkur þeim báðum um helgina. I vestursal sýnir Sveinn Björnsson 56 málverk sem öll eru til sölu. Sýningin er sett upp í tilefni 60 ára afmælis listamannsins. í austursal er sýning á vegum Seðlabanka íslands og Reykja- víkurborgar á úrlausnum í hug- myndasamkeppni um hlutverk og mótun Arnarhóls og umhverf- is hans. 31 tillaga barst. Dóm- nefnd veitti 6 tillögum verðlaun, og keypti tvær til viðbótar, og veitti ennfremur tveim til við- bótar viðurkenningu. Á sýningunni liggur frammi Hópurinn sem stendur að Aljonu og Ivani. Ljósm.: eik. Leiklistarskólinn Síðustu sýningar á Aljonu Nú um helgina verða síðustu sýningar á Aljonu og ívani, rússnesku barnaleikriti sem nem- endur Leiklistarskólans sýna í Lindarbæ í samvinnu við nem- og Ivam endur Tónlistarskólans. Leik- stjóri er Þórunn Sigurðardóttir. Sýningar verða í kvöld, á laugar- dag og sunnudag kl. 5 alla dag- ana. Sjálfvirkur símsvari 21971. spurningarlisti þar sem gestum gefst kostur á að tjá sig um fram- tíðarskipulag Arnarhóls. Sýningarnar eru opnar daglega kl. 14-22 fram til sunnudags- kvölds 17. þessa mánaðar. Norrœna húsið Kynning ó lýðháskólum Laugardaginn 16. febrúarefnir Reykjavíkurdeild Norræna fé- lagsins til kynningar á lýðhá- skólum á Norðurlöndum. Kynn- ingin fer fram í Norræna húsinu og hefst kl. 15.00. Fjallað verður um námsbrautir og námstilhögun og sagt frá námskostnaði og styrkmöguleikum. Sérstaklega verður rætt um námsmat og tengslin við framhaldsskólakerf- ið íslenska. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Norðurljós Sýningar hefjast ó ný Á sunnudag kl. 4 síðdegis hefj- ast aftur sýningar á vegum kvik- myndaklúbbsins Norðurljósa í Norræna húsinu, fundarsal. Þá verður sýnd danska gaman- myndin Slá fprst Frede með Morten Grundwald, Poul Bund- gárd, Ove Sprogóe og fleirum í aðalhlutverkum. Leikstjóri er Erik Balling. Slá fprst Frede er fyrsta mynd- in í röðinni um andhetjuna Frede Hansen, sem fyrir tilviljun lendir í ýmsum ævintýrum og tekur þátt í njósnum stórveldanna. Myndin er skopstæling á 007 njósna- myndunum og danski húmorinn leynir sér ekki. 18 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 15. febrúar 1984

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.