Þjóðviljinn - 19.02.1985, Síða 4

Þjóðviljinn - 19.02.1985, Síða 4
LEIÐARI Launastefnan spmngin Um helgina var birtur úrskuröur Kjaradóms í kjaradeilu ríkisins og Bandalags háskóla- manna. Niðurstööur dómsins eru um margt ó- Ijósar og eiga væntanlega eftir að veröa miö- púnktur mikillar umræðu á næstu dögum. Því er ekki úr vegi að rifja upp helstu málsatvik til aö skýra stöðuna. Launadeilan nærtil tæplega þriggja þúsunda háskólamenntaðra manna sem starfa hjá hinu opinbera, eða um helmings félaga í BHM. Að- staða BHM-manna er að því leytinu frábrugðin aðstöðu þeirra sem eru félagar í BSRB, að þeir hafa ekki verkfallsrétt. Eina leiðin sem þeir geta farið til að beita stjórnvöld umtalsverðum þrýst- ingi er því að fara uppsagnarleiðina. Þetta hafa kennarar innan BHM gert og þann 1. mars taka gildi uppsagnir 445 kennara í mennta- og fjöl- brautaskólum, eða um 70 prósenta allra sem þar starfa. Grípi stjórnvöld ekki inn í með ríf- legum kauphækkunartilboðum er því allt útlit fyrir að skólaár þúsunda skólanemenda eyðil- eggist að verulegum hluta. Deilu BHM og hins opinbera var skotið til Kjaradóms. í lögum frá 1973 um kjarasamninga opinberra starfsmanna er kveðið á um hverjar skuli vera meginreglur Kjaradóms við úrskurð launa til handa ríkisstarfsmönnum. Þar segir beinum orðum, að við úrlausnir sínar skuli dóm- urinn gæta þess „að ríkisstarfsmenn njóti sambærilegra kjara og þeir menn með svipaða menntun, sérhæfni og ábyrgð sem vinna hlið- stæð störf hjá öðrum en ríkinu. Nú er það ótvírætt komið í Ijós, að laun há- skólamanna sem vinna á almennum vinnu- markaði eru miklu hærri en þeirra sem starfa hjá ríkinu. Samkvæmt nýlegri könnun Hagstofu ís- lands munar hvorki meira né minna 61 pró- senti! Þetta setur Kjaradóm augljóslega í mik- inn vanda. ( annan stað er rétt að minna á, að fyrir skömmu felldi dómurinn úrskurð um laun þingmanna og annarra háttsettra starfsmanna ríkisins og flestum er í fersku minni að fulltrúar þjóðarinnar á þingi fengu að meðaltali 37 prós- ent launahækkun. Það er að sjálfsögðu út í hött að ætla að bjóða ríkisstarfsmönnum - langt fyrir neðan launastig þeirra sem vinna ekki hjá ríkinu - minni prósentuhækkun en þingmönnum. Nú hefur hins vegar kjaradómur komið sér úr klípunni í bili með því að fella úrskurð sem segir í rauninni ósköp lítið. Allur launaramminn er stokkaður upp og hin raunverulega launaá- kvörðun er færð frá aðalkjarasamningnum til sérkjarasamninga. Áður en þeir eru um garð gengnir er ómögulegt að spá um lyktir kjara- deilunnar. Hún er jafn galopin og fyrr. Þó niðurstöður dómsins séu harla óljósar má eigi að síður draga af þeim mikilvæga ályktun. Það er alveg Ijóst að kjaradómurinn hefur sprengt launastefnu ríkisstjórnarinnar. Nið- urstöður hans opna fyrir talsverðar launahækk- anir og það er ekkert launungarmál að í kjölfar BHM munu önnur samtök á vinnumarkaði sigla við fyrsta tækifæri. Skattalækkunarleið ríkis- stjórnarinnar, sem einnig nýtur vildar hjá aðilum innan verkalýðshreyfingarinnar, er því úr sög- unni. Það einfaldlega gengur ekki að opna fyrir launahækkanir með annarri hendi og ætla sér að beita skattalækkunarleiðinni með hinni. Áþreifanlegasta niðurstaða Kjaradóms í þessari lotu er því sú, að með honum er dánar- vottorð skattalækkunarleiðarinnar undirritað. -ös KLIPPT OG SKORIÐ Afnám mannréttinda Björn Bjarnason skrifar stjórnmálagrein í Morgunblaði um helgina þar sem hann m.a. lítur yfir ófarir ríkisstjórnarinnar út frá sjónarhóli Sjálfstæðis- mannsins. Upphaf ríkisstjórnar- innar er í þessum búningi: „Þegar ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar tók við í maí 1983, varsagtskilið viðsamráðið. Það var gert með skýrum og af- gerandi hœtti. Vísitölutenging launa var afnumin með bráða- birgðalögum og kemur ekki til framkvœmda að nýju fyrr en 1. júní í ár, að óbreyttum lögum. Og ekki nóg með það, vinnustöðvan- ir og gerð nýrra kjarasamninga var bönnuð með lögum. “ Vinsældir „Þessar harkalegu ráðstafanir nutu stuðnings mikils meirihluta þjóðarinnar allt árið 1983 og hlutu í raun viðurkenningu verka- lýðsforystunnar í verki með kjara- samningum sem gerðir voru í febrúar 1984. Á þessum tima var staða ríkisstjórnarinnarsterk. Allt gekk henni í haginn nema vöxtur þjóðarframleiðslunnar, sem hún hafði ekki á valdi sínu. “ Marklaus „OBGUNBLAnlli AF INNLENDUM VETTVANGI cfúr BJORN BJARNASON Sagan endurtekursig fjárlög „Skömrnu eftir að kjarasamn- ingarnir voru gerðir snemma árs 1984 fór að halla undan fœti hjá ríkisstjórninni. Þá kom allt íeinu í Ijós, að fjárlögin sem samþykkt voru á þingi í desember 1983 reyndust marklaus. ínokkrar vik- ur var stjórnarliðið að berjast við það á vormánuðum 1984 að fylla _ samráðið aftur komið á dagskrá Ö i upp í fjárlagagatið. Að því máli var staðið með þeim hætti, að traustið á ríkisstjórninni minnkaði mikið. Þá strax hófust umrœður um að það þyrfti að styrkja stjórnina með því að skipta um mann eða menn í henni. “ Skipta um ráðherra Björn rekur það hvernig for- svarsmenn ríkisstjórnarinnar héldu því fram í síbylju að skipta þyrfti um menn í henni. Sumarið átti að nota til að setja fram efna- hagstillögur og semja verkefna- skrá. Ekki var skipt um ráðherra frekar en fyrri daginn en tillögur lágu frammi 6. september, fáum dögum síðar hófst verkfall bóka- gerðarmanna og í byrjun október fóru opinberir starfsmenn í verk- fall. „Þegarupp varstaðið að lokum með samningi Vinnuveitenda- sambandsins og Alþýðusam- bandsins 6. nóvember 1984 voru markmið ríkisstjórnarinnar fokin út í veður og vind. Þá var enn rætt um að skipta um menn í ríkis- stjórninni", segir Björn. Og um áramótin var aftur tönnlast á því að styrkja þyrfti ríkisstjórnina með því að skipta um menn í henni. Kúvending ríkis- stjórnarinnar „Nú á að leita samninga um kaup og kjör áður en efna- hagsmarkmiðin eru kynnt‘\ segir Björn og vísar þar til að engar markvissar tillögur hafi komið fram 8. febrúar þótt boðaðar hafi verið. „Stjórnin hefur kúvent í af- stöðunni til vinnumarkaðarins frá því að stjórnarsáttmálinn var gerður, já, raunar frá því að markmið hennar voru settfram 6. september síðastliðinn. Nú er að sjá hvernig aðilar vinnumarkað- arins bregðast við þessari nýju stöðu. Kennarar halda sér að vísu enn fast við harðlínustefnuna sem einkenndi BSRB í haust. Aðilar almenna vinnumarkaðarins eru hins vegar farnir að rœða saman, að því er virðist í alvöru. “ Getulaus ríkisstjórn Björn er þeirrar skoðunar að samráð leiki ekki ríkisstjórnir betur en verkfallsátök og að nú- verandi stjórn sé nánast búin að vera: „Draga má í efa að ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar sé nægilega sterk til að standast þá áraun sem samráð við aðila vinn- umarkaðarins er. Því fer víðs fjarri að það sé auðveldari leið en að draga skýrar og skarpar víglín- ur. Samráðs-stjórnarhœttir gáfust vel á tímum viðreisnarstjórnar- innar. En það tók langan tíma að skapa þann trúnað milli manna sem var forsendan fyrir því að samráðið þá bar árangur. Auglýsingamennska í stjórn- málum og verkalýðsmálum hefur aukist hin síðari ár. Minnisvarða- áráttan veldur því að stjórnmála- menn teysta ekki lengur hver öðrum jafn vel og áður og sókn verkalýðsforingja eftir pólitískum ítökum rœður oft meira en „fag- legt“ mat. “ Verkföllin sterkasta vopnið „Hugmyndum um að styrkja ríkisstjórnina sem verið hafa á döfinni í tœpt ár hefur ekki verið hrundið íframkvœmd. Verkföllin í haust veiktu ríkisstjórnina meira enfjárlagagatið. Nú liggur sem sé fyrir stefnubreyting hjá stjórn- inni“. Alþýðubanda- lagið mótvægið Björn gerir sér grein fyrir mót- væginu við ríkisstjórnina og fa- bulerar meistaralega um þau mál. Sýnishorn: „Valdabaráttan innan Alþýðu- bandalagsins um yfirráð í verka- lýðshreyfingunni á eftir að setja svip á stjórnmálaþróunina nœstu vikur og mánuði. Verkalýðsfor- ingjar eiga undir högg að sœkja í hinum „pólitíska armi“ hreyfing- arinnar eins og Svavar Gestsson nefndi hinn margklofna flokk sinn, þegar hann þóttist hafa öll ráð í hendi sér“. ,,....Og loks er Ijóst, að náið samráð verkalýðsforystunnar við stjórnvöld og viðrœður hennar við vinnuveitendur eru eitur í beinum þeirra, sem telja sig hafa náð undirtökunum í verkalýðs- málum í Alþýðubandalaginu". -óg DJOÐVIUINN Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans. Ritstjórar: Árni Bergmann, össur Skarphéðinsson. Ritstjórnarfulltrúi: Oskar Guðmundsson. Fróttastjóri: Valþór Hlöðversson. Blaðamenn: Aðalbjörg Óskarsdóttir, Álfheiður Ingadóttir, Guðjón Friðriksson, Helgi Guðmundsson, Lúövík Geirsson, Magnús H. Gísla- son, Mörður Árnason, Ólafur Gíslason, Sigurdór Sigurdórsson, Víðir Sigurðsson (íþróttir). Ljósmyndir: Einar Ólason, Einar Karlsson. Utlit og hönnun: Filip Franksson, Þröstur Haraldsson. Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar. Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir. Skrifstofustjóri: Jóhannes Harðarson. Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Magnús Loftsson. Útbreiðslustjóri: Sigríður Pétursdóttir. Auglýsingastjóri: Ragnheiður Óladóttir. Auglýsingar: Anna Guðjónsdóttir, Ásdís Kristinsdóttir, Hreiðar Sigtryggsson. Afgreiðslustjóri: Ðaldur Jónasson. Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir. Símavarsla: Margrót Guðmundsdóttir, Sigríður Kristjánsdóttir. Húsmæður: Bergljót Guðjónsdóttir, Ólöf Húnfjörð. Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Björnsson. Bílstjóri: ólöf Sigurðardóttir. Útkeyrsla, afgreiðsla, auglýsingar, ritstjórn: Síöumúla 6, Reykjavik, sími 81333. Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf. Prentun: Blaðaprent hf. Verð í lausasölu: 30 kr. Sunnudagsverð: 35 kr. Á8kriftarverð á mánuði: 330 kr. Afgreiðsla blaðsins er opin á laugardögum frá kl. 9 til 12, beinn sími: 81663. 4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 19. febrúar 1985

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.