Þjóðviljinn - 19.02.1985, Síða 8
Kaii rúllaði Hansen upp!
ASeins tókst að Ijúka einni
skák í 4. umferð alþjóðaskák-
mótsins á laugardag. Karl Þor-
steins tefldi af miklum krafti og
sigraði heimsmeistara unglinga,
Curt Hansen, í skemmtilegri
sóknarskák. Karl fórnaði peði
strax í 8. leik og stuttu síðar ridd-
ara. í staðinn varð Hansen að
gefa eftir hrókunarréttinn og
skilja kónginn eftir á miðborð-
inu. Hanseni varð fótaskortur í
vörninni og eftir nokkra kröftuga
leiki frá hendi Karls varð Daninn
að gefast upp eftir aðeins 22 leiki.
Allar aðrar skákir fóru í bið og
voru tefldar um kvöidið.
Spassky beitti lokaða afbrigð-
inu gegn Sikileyjarvörn Jóns L.
Með því afbrigði hefur Spassky
unnið glæsta sóknarsigra á ferli
sínum. Jóni tókst hins vegar að
halda allri sókn Spasskys niðri og
ekki nóg með það heldur vann
hann peð af Spassky. En Jón fékk
að reyna á það að heimsmeistar-
inn fyrrverandi er ekkert lamb að
leika sér við. f tímahrakinu vann
Spassky peðið til baka með betri
stöðu. Skákin fór tvisvar í bið og
hefur nú Spassky peð yfir í hróks-
endatafli.
Skák Jóhanns Hjartarsonar og A. Jusupovs sem tefld var í gærkvöldi var æsispennandi. Jóhann hafði betra tafl lengst af
en Jusupov fór með sigur af hólmi að lokum eftir mikið tímahrak hins fyrrnefnda.
Larsen, sem hafði hvítt gegn
Guðmundi, náði betra hróks-
endatafli eftir Sikileyjarvörn.
Skákin fór í bið en Larsen komst
ekkert áleiðis gegn nákvæmri
taflmennsku Guðmundar.
Jusupov og Hort tefldu
„þungt“ enda ekki við öðru að
búast þegar tveir stöðubaráttu-
skákmenn mætast. Sovétmaður-
inn fékk örlítið betra tafl upp úr
byrjuninni (Drottningarindver-
skri vörn) og nægði það honum til
sigurs. Hort gaf skákina án þess
að taka til við hana aftur eftir bið.
Hjá Helga og Margeiri varð
Drekaafbrigðið uppi á tening-
num. Helgi, sem hafði hvítt, lék
e4 í fyrsta leik og kom það mjög á
óvart. Skákin varð snemma flók-
in og er hún fór í bið hafði Mar-
geir biskup og peð upp í hrók og
mikið spil. Kóngsstaða Helga var
veik og þar að auki átti hann
lítinn tíma eftir. Það fór svo að
lokum að Helgi varð að játa sig
sigraðan.
Skák Jóhanns og Van der Wiel
vakti mikla athygli enda náði Jó-
hann betra tafli. Hollendingurinn
beitti Sikileyjarvörn og upp kom
Richter-Rauzer afbrigðið. Jó-
hann náði kóngssókn og þegar
skákin fór í bið var staðan þessi:
Hvítt: Jóhann Hjartarson
Svart: Van der Wiel
Jóhann nýtir sér á skemmti-
legan máta varnarleysi svarta
kóngsins.
41. Dxg4 Dxd3+
42. Kal Ke7
43. Dg5+ Kd6
44. Hcl! Df3
45. Dg6+ Ke7
46. Hel+ Kd8
47. De8+ Kc7
48. Hcl+ Kd6
49. Db8+ Kd5
50. Dxa7 Ke6
51. Hel+ Kf6
52. Db6+ Kg7
53. Hgl+ Kf7
54. Dg6+ Ke7
55. Hel+ Kd8
56. Db6+!
Og svartur gafst upp. Hann
verður mát eftir 56. - Hc7 57
Dd6+ Hd7 58. Db8+ mát.
Hvítt: Karl Þorsteins
Svart: Curt Hansen
Aljekín-vörn
1. e4 Rf6
Þetta er upphafsleikur
Aljekín-varnarinnar. Hún er
frekar fáséð en þeir sem tefla
hana á annað borð virðast taka
miklu ástfóstri við vörnina!
Dæmi um þetta er Bandaríkja-
maðurinn Lev Alburt.
2. e5 Rd5
3. d4 d6
4. Rf3
Karl teflir traustasta afbrigðið.
Annar möguleiki er t.d. fjögurra
peða árásin 4. c4 Rb6 5. f4
o.s.frv.
4. - Bg4
5. Be2 Rc6
6. 0-0
Með því að hróka núna hefur
hvítur þegar ákveðið að fórna
peði. Algengt er 6. exd6 cxd6.
6. - dxe5
7. Rxe5 Bxe2
8. Dxe2 Rxd4
9. Dc4! c5!
Eini leikurinn. Ef 9. - Re6 þá
10. Db5+ c6 11. Dxb7 o.s.frv.
10. Be3 a6
Að sjálfsögðu ekki 10. -
Rxe3?? 11. Dxf7+ mát!
11. Rc3 e6
12. Bxd4 Rb6!?
Eftir 12. - cxd4 13. Da4+! Ke7
(ekki 13. - b5? 14. Rxb5!!) 14.
Dxd4 og hvítur stendur betur. Nú
er hvítur þvingaður til að fórna
manni.
13. Db3 cxd4
14. Ra4 Rxa4
15. Dxb7 Dd5
16. Dxf7+
Ekki 16. Rc6 Rb6! 17. Dxb6
Bc5 og svartur nær að hróka.
16. - Kd8
17. Hfel Rc5?
Hér misstígur Hansen sig í
vörninni. Best var 17. -Rxb2 18.
Habl Ba3! 19. Dxg7 He8 20.
Dxh7 og staðan er tvísýn.
18. Hadl
Hótar 19. Hxd4!
18. - Kc8
19. c3! d3
20. b4 d2
Eða 20. - Rd7 21. Rxd3 og
vinnur
21. He2 Rd7
22. RB!
Hansen sá ekki ástæðu til að
halda þessu áfram enda er hann
algerlega bjargarlaus. Svartur
gafst upp.
Úrslit I 4. umferð:
Jusupov-Hort: 1-0
Spassky-Jón L.: Bið
Larsen-Guðmundur: V2-V1
Karl-Hansen: 1-0
Helgi-Margeir: 0-1
Jóhann-Van der Wiel: 1-0
5. umferð var tefld á sunnudag.
Sökum plássleysis verðum við að
láta okkur nægja að birta einung-
is úrslitin:
Hansen - Helgi: V2-V2
Guðmundur - Karl: 1-0
Jón L. - Larsen: 0-1
Van der Wiel - Jusupov:l-0
Margeir - Jóhann: 1-0
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 19. febrúar 1985