Þjóðviljinn - 19.02.1985, Page 15
FRETTIR
Heilsufar
Beinþynning
orðin faraldur
Hrjáir 9 afhverjum 10 konum á Vesturlöndum
Mjólkurdagsnefnd hefur gefíð
út fræðslurit er nefnist „Kalk og
beinþynning“ og er það tekið
saman af dr. Jóni Óttari Ragn-
arssyni. Er hugmyndin sú, að rit-
ið verði notað við heilsufræði-
kennslu í 8. og 9. bekk grunn-
skóla. Jafnframt hefur Laufey
Steingrímsdóttir, manneldis-
fræðingur tekið að sér, fyrir
Manneldisráð, að rannsaka út-
breiðslu beinþynningar meðal
aldraðs fólks á íslandi og mun
Mjólkurdagsnefnd styrkja þær
rannsóknir.
Svokölluð beinþynning er orð-
in að faraldri á Vesturlöndum.
Orsök þessa hrörnunarsjúkdóms
er sú, að kalk skolast með tíman-
um úr beinum með þeim afleið-
ingum, að þau verða mjög brot-
hætt og geta jafnvel, - sé sjúk-
dómurinn á háu stigi, - brotnað
við minnsta hnjask. Helstu or-
sakir eru taldar vera: langvarandi
kalkskortur í fæðu, kyrrsetur og
minnkandi framleiðsla kynhorm-
óna með aldrinum, einkum eftir
breytingaskeið hjá konum. Er nú
talið að 9 af hverjum 10 konum
fái einhver einkenni sjúkdóms-
ins, sem þýðir, að beinþynnig er
orðin einn af algengustu hrörn-
unarsjúkdómum nútímans. Þetta
á ekki sérstaklega við hér, sjúk-
dómurinn er orðinn faraldur í
öllum iðnríkjum. Hálkan, sem
hérmyndast oftað vetrinum, ger-
ir sjúkdóminn hins vegar mun al-
varlegri hjá okkur en víða annars
staðar.
Kalk í fæði er nú í brennidepli í
næringarvísindum vegna vernd-
andi áhrifa þess gegn þessum
hrörnunarsjúkdómi. Þar sem
mjólkurmatur er besti kalkgjaf-
inn, beinist athyglin nú sérstak-
lega að mjólkurmatarneyslu
Vesturlandabúa. Hafa rannsókn-
ir sýnt, að þeir, sem eru í mestri
þörf fyrir kalkið, sérstaklega full-
orðnar konur, sneiða oft hjá
mjólkurmat að meira eða minna
leyti.
-mhg.
Kennaradeilan
Lítilsvirðing
við kennara
Alyktun trúnaðarmannaráðs KFR
Fundur trúnaðarmannaráðs
Kennarafélags Reykjavíkur lýsir
yfir eindregnum stuðningi við
kjarabaráttu kennara í Hinu ís-
lenska kennarafélagi. Fundurinn
telur það sýna lítilsvirðingu við
kennarastéttina að menntamála-
ráðuneytið skuli fara fram á
framlengingu uppsagnarfrests
aðeins hálfum mánuði áður en
uppsagnir kennara HÍK koma til
framkvæmda. Þá vill trúnaðar-
ráðið benda á þá staðreynd að á
síðustu vikum og mánuðum hafi
kennarar séð sig tilneydda að
hætta kennslustörfum vegna lé-
legra launa sem eru í engu sam-
ræmi við menntun, ábyrgð og
vinnutíma. Er því svo komið að
erfitt reynist að fá til starfa kenn-
ara með kennsluréttindi í
Reykjavík og fyrirsjáanlega muni
margir kennarar með mikla
starfsreynslu hætta störfum í
haust. Lýsir fundurinn ábyrgð á
hendur stjórnvalda ef kennarar
neyðist til þess að yfirgefa
skólana þann 1. mars
næstkomandi.
(F réttatilky nning)
Verksmiðjan Vífilfell h/f er
þessa dagana að setja á markað
Koffeinlaust Coca Cola.
Að mati Verksmiðjunnar Víf-
ilfells h/f er Koffeinlaust Coca
Cola eðlileg útvíkkun á hinum
geysivinsæla drykk þar sem sá
hópur neytenda fer vaxandi sem
vill takmarka neyslu sína á koff-
eini.
Niðurstöður markaðsrann-
sóknar, sem Verksmiðjan Vífil-
fell h/f lét framkvæma benda til
mikils áhuga neytenda á koffein-
lausum kóladrykk, og er mark-
aðssetningu drykkjarins því fyrst
og fremst ætlað að fullnægja þörf-
Koffeinlausa kókið er viðleitni Vífilfells hf. til að koma til móts við nýjar kröfur
neytenda, segij; í frétt frá því.
Koffeinlaust kók
um þessara neytenda.
Tilkoma Koffeinlauss Coca
Cola breytir hins vegar engu um
þá sannfæringu fyrirtækisins, að
neysla koffeins í þeim mæli sem
er í gosdrykkjum sé með öllu
skaðlaus fyrir heilsu fólks, enda
hafa ýtarlegar rannsóknir er-
lendis staðfest þessa skoðun.
Koffeinlaust Coca Cola verður
í samskonar flöskum og Tab og
Sprite. Vörumerkinu svipar til
gamla góða Coca Cola merkisins,
en er auðþekkjanlegast á gylltum
þverröndum í bakgrunni, áletr-
uninni „Koffeinlaust" eða „Caff-
eine free“.
(Fréttatilkynning)
+
Merkjasala
á öskudag
Reykjavíkurdeild R.K.I.
afhendir merki á neðantöldum útsölustöðum í dag.
Börnin fá 10 kr. í sölulaun fyrir hvert selt merki, og þau
söluhæstu fá sérstök verðlaun.
VESTURBÆR:
Skrifstofa Reykjavíkurdeildar
R.K.Í. Öldugötu 4
Melaskóli
AUSTURBÆR:
Skrifst. R.K.Í Nóatúni 21
Hlíðaskóli
Álftamýrarskóli
Hvassaleitisskóli
Austurbæjarskóli
SMÁÍBÚÐA-
OG FOSSVOGS-
HVERFI:
Fossvogsskóli
Breiðagerðisskóli
LAUGARNESHVERFI:
Laugarnesskóli
KLEPPSHOLT:
Langholtsskóli
Vogaskóli
ÁRBÆR:
Árbæjarskóli
BREIÐHOLT:
Breiðholtsskóli Arnarbakka 1
Fellaskóli - Breiðholti III
Hólabrekkuskóli
ölduselsskóli
Merkjum og peningum skilað
í skólana á fimmtudag.
KVENNASTEFNA
9. og 10. mars
Konur í Alþýðubandalaginu gangast fyrir kvennastef nu 9 og 10. mars
í Olfusborgum.
Dagskra:
Laugardagur 9. mars
Kl. 10.45 1. Atvinnu- og kjaramal
Atvinnuþróun
Framsaga: Vilborg Harðardóttir og
Sigríður Stefánsdóttir
Kynskiptur vinnumarkaður
Framsaga: Guðrún Ágústsdóttir
Er verkalýðshreyfingin orðin áhrifalaus
um tekjuskiptingu í þjóðfélaginu?
Framsaga: Margrét Pála Ólafsdóttir.
Almennar umræður
Kl. 12.30 Matarhlé
Kl. 14.00 2. Staða heimavinnandi fólks
Lífeyrismál - Fæðingarorlof - Skatta-
mál
Framsaga: Adda Bára Sigfúsdóttir
Almennar umræður
Kl. 15.00 Starfshópar um ofangreind dagskrármál.
Kl. 16.00 Kaffihlé
Kl. 16.30 Hópar starfa áfram
Kl. 17.15 Skýrslur starfshópa - umræður - af-
greiðsla
Kl. 19.00 Kvöldmatur
Sunnudagur 10. mars
Kl. 9.00 Morgunverður
Kl. 9.30 1. Baráttuleiðir kvenna
Hugmyndafræði kvennahreyfinga
Framsaga: Rannveig Traustadóttir
Kvennaflokkar eða baráta kvenna í
sósíalískum flokkum
Framsaga: Álfheiður Ingadóttir
Þverpólísk samvinna
Framsaga: Guðrún Helgadóttir
Kl. 10.00 Almennar umræður
Kl. 11.00 2. Störf kvenna í AB - Kvennafylkingin
- Fundaröð í vor
Framsaga: Þuríður Pétursdóttir og
Kristín A. Ólafsdóttir
Almennar umræður
Kl. 12.00 Matarhlé
Kl. 13.00 Starfshópar um ofangreind dagskrármál
Kl. 14.15 Skýrslur starfshópa - umræður - af-
greiðsla
Kl. 15.30 Ráðstefnuslit - Kaffi
KOSTNAÐUR:
Flokkurinn greiðir helming fargjalds fyrir þær sem greiða verulegan ferðakostnað. Vegna
mismunandi ferðakostnaðar á að jafna kostnaði af húsnæði og fæði niður. Þær sem styst
eiga að fara borga því mest fyrir þær þarfir. Selt er fullt fæði, en einnig er hægt að taka með sér
mat og elda í húsunum.
Greiðslur verða þannig:
Þær sem greiða veruiegan ferðakostnað:
Þær sem greiða verulegan ferðakostnað:
Þær sem EKKI greiða verulegan ferðakostnað:
Þær sem EKKI greiða verulegan ferðakostnað:
500 kr.
Okr.
2.000. kr.
1.000. kr.
fullt fæði
án fæðis
fullt fæði
án fæðis
Kvennastefna er opin öllum konum í Alþýðubandalaginu og öðrum stuðningskonum flokks-
ins.
Þær sem hafa í huga að taka börn með eru beðnar að taka það fram við þátttökutilkynningu.
Undirbúningsgögn verða send í öll Alþýðubandalagsfélög fyrir 1. mars.
Tilkynningar um þátttöku þurfa að berast skrifstof unni Hverf isgötu 105 fyrir 1. mars
(sími 17500)
Þriðjudagur 19. febrúar 1985 ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 19