Þjóðviljinn - 02.03.1985, Page 3
FRETTIR
Kjararán
Kaupmátturinn hrapar enn
Upplýst áfundi Alþýðubandalagsins íHafnarfirði. Ný spá hagdeildar ASÍgerir ráðfyrir5stiga kaupmáttarrýrnun á nœstu mánuðum.
Kaupmáttur kominn í69 stig íhaust. Kaupþyrfti að hækka um 45% til að ná kaupmætti ársins 1980.
GuðmundurJ. Guðmundsson: 20% kauphækkun strax lágmark!
Samkvæmt nýrri spá hag-
deildar Alþýðusambandsins
mun kaupmáttur launa hrapa um
5 stig frá ársbyrjun þar til samn-
ingar verða lausir á ný i haust. Þá
verður kaupmátturinn kominn
niður í 69 stig miðað við 100 stig í
árslok 1980. Til þess að ná honum
upp í 100 stig aftur þurfa
kauptaxtar að hækka um 44.9%.
Guðmundur J. Guðmundsson
alþm. ogformaður Verkamanna-
sambandsins skýrði frá þessum
skuggalegu tölum á opnum fundi
þingflokks Alþýðubandalagsins í
Hafnarfjarðarbíói í fyrrakvöld.
„Það þarf að fara aftur til ársins
1952, ef það dugar, til að finna
eitthvað viðlíkt. Það sem er fram-
undan næstu mánuði er ekki að
við munum búa við léleg laun,
heldur munu launin rýrna enn
frekar, viku eftir viku“, sagði
Guðmundur.
Kaupmáttur á síðasta ársfjórð-
ungi nýliðins árs var 74 stig. Spá
ASÍ gerir ráð fyrir að kaupmáttur
hrapi niður í 73,4 stig á 1. árs-
fjórðungi þessa árs, verði kominn
í 71,5 stig á 2. ársfjórðungi og
niður í 69 stig á 3. ársfjórðungi í
haust.
Guðmundur J. tók sem dæmi
um kaupránið að tímakaup fisk-
verkunarfólks eftir 7 ára starf
sem er í dag 84,80 á tímann ætti
að vera 114,55 kr. miðað við
sama kaupmátt og í árslok 1980.
Aðspurður af fundargesti
hversu hátt kaup Alþýðubanda-
lagið myndi tryggja væri það við
völd, sagði Guðmundur: „Við
skulum stefna að því að ná
kaupmættinum upp í það sem
hann var í tíð ríkisstjórnar Gunn-
ars Thoroddsen. Fyrsta skrefið
væri að hækka laun um 20% sem
yrði ekki tekið aftur, hvorki með
gengislækkun né verðhækkun-
um“. - Ig
Yfirmenn
Misjafnar
undirtektir
Flotinn enn bundinn við bryggju.
Samningaviðrœður sjómanna ráða úrslitum.
rátt fyrir samninga yfir-
manna við útgerðarmenn
verður nær allur fiskiskipaflotinn
bundinn við bryggjur þar til
samningar hafa tekist við sjó-
menn. Atkvæðagreiðsla yfir-
manna um hinn nýja samning er
þegar hafin og verður ekki Ijóst
fyrr en á sunnudag hvort verkfalli
þeirra verður aflétt. Samningur-
inn mun hafa hlotið nokkuð mis-
jafnar undirtektir yfirmanna. Á
Vestfjörðum var hann samþykkt-
ur naumlega með 26 atkvæðum
gegn 21. Þrír seðlar voru auðir og
ógildir.
I hinum nýja kjarasamningi er
gert ráð fyrir að kauptrygging
hækki úr 19.400 kr. á mánuði í
27.000 kr. miðað við sl. áramót.
Þar til viðbótar koma 2,4% frá og
með gærdeginum og aftur I. maí
nk. Krafa Sjómannasambandsins
er hins vegar m.a. að kauptrygg-
ingin verði hækkuð í rúmlega
30.000 krónur frá nóvember sl.
Þá munu fæðispeningar hækka
um 10% en Sjómannasambandið
vill fá 13% hækkun frá áramótum
og 10% frá 1. mars.
Til að greiða fyrir samningum
ákvað ríkisstjórnin að leggja 80
miljón krónur til lífeyrissjóðs sjó-
manna sem kemur af uppsöfnuð-
um söluskatti aflatryggingar-
sjóðs, hækka skattaafslátt sjó-
manna úr 10% í 12% og auka
kostnaðarhlutdeild um 2% með
niðurgreiðslu á olíuverði. Um
30% aflahlutar er nú tekinn fram-
hjá skiptum og krafa sjómanna-
félaganna var upphaflega að ekk-
ert yrði tekið framhjá skiptum.
-lg-
Kvennadagurinn
Tveir fundir
Ágreiningur meðal kvenna um 8. mars
Ljóst er að tveir fundir verða
haldnir samtímis á kvennadag-
inn, 8. mars. 185-nefndinni, sam-
starfsnefnd um lok kvennaára-
tugarins, komust fulltrúar aðild-
arfélaga ekki að samkomulagi um
þá tillögu Samtaka kvenna á
vinnumarkaði að Gladys Baies
frá Níkaragúa ávarpaði 8. mars-
fund nefndarinnar, og hafa Sam-
tökin ákveðið að halda eigin fund
í Félagsstofnun stúdenta á sama
tíma og samstarfsnefndin hefur
fund í Háskólabíó.
Þetta er alþjóðlegur baráttu-
dagur, sagði Anní Haugen frá
Samtökum kvenna á vinnumark-
aði, - og okkur þótti viðeigandi
að kona utanúr heimi ávarpaði
fundinn, ekki síst þarsem Gladys
Baies hefði flutt okkur kveðju frá
konum í Níkaragúa sem hafa átt í
mikilli baráttu. Samtökin gerðu
þetta ávarp að úrslitaatriði.
Sjálfstæðiskonur munu fyrir
sitt leyti hafa hótað að hætta sam-
starfi ef af ávarpinu yrði.
Á fundi 85-nefndarinnar var
tillagan um ávarp Baies ekki bor-
in upp en greidd atkvæði um til-
lögu að dagskrá á Háskólabíós-
fundinum. Fulltrúi Samtaka á
vinnumarkaði og fulltrúi
Kvennalista greiddu atkvæði á
móti, sá síðarnefndi vegna máls-
meðferðar. Hjá sátu fulltrúar
Kvennaframboðs, Naíróbíferð-!
arhóps, Samtaka um kvennaat-
hvarf og Kvennafylkingar Al-
þýðubandalags.
„Við studdum tillöguna um á-
varp Gladys" sagði Álfheiður
Ingadóttir fulltrúi Kvennafylk-
ingarinnar, „en sú tillaga var
aldrei borin upp. Ég greiddi hins-
vegar ekki atkvæði gegn dagsk-
ránni enda hafði hún batnað
mjög frá upphaflegum tillögum."
Kvennafylkingin heldur fund í
dag kl. 11 í húsnæði AB til að
ákveða hvort hún verður með á
öðrum fundinum eða báðum.
Kvennalisti hefur ákveðið að
standa að báðum fundunum;
Kvennaframboð fundar um helg-
ina.
Þessi ágreiningur um 8. mars-
fundi skapar óvissu um framtíð
85-nefndarinnar sem ætlaði að
skipuleggja ýmislegt kvennastarf
á árinu. Samtök kvenna á vinn-
umarkaði hafa þannig að sögn
Anníar Haugen ekki gert upp við
sig hvort þær halda áfram sam-
starfinu í nefndinni.
-m
Laugardagur 2. mars 1985 ÞJÓÐVILJINN — SÍOA
Spá
íslensk hönnun.
í samráði við aðila í sjávarútvegi höfum við hannað nýtt og
sérlega fjölhæft fiskiker ásamt nýrri gerð „togarabrettis".
Fiskiker, 660 lítra, á aðeins kr. 8300.-, einangrað
Af nýjungum, ásamt öðrum kostum, má nefna:
• Gólflyftari getur gengið inn undir kerið frá öllum hliðum þess.
• Gaffallyftari getur snúið kerinu um 180°
• Hífibúnaður er efst á kerinu, sem jafnframt er handfang.
• 30 ker komast fyrir í 20 feta flutningagám, bæði einangruð og
óeinangruð.
• Kerin eru einangruð með Polyurethane
• Efnið í kerunum er viðurkennt undir matvæli (US FDA)
• Viðgerðarþjónusta.
Við minnum einnig á önnur ker sem við framleiðum:
580 lítra ker „óeinangruð“ á aðeins kr. 6000.-
760 lítra ker bæði „óeinangruð" og einangruð.
„Togarabretti" 89X108,5 cm á aðeins kr. 1800.-
Ný athyglisverð hönnun á vörubretti, sérstaklega ætluðu
undir 70 og 90 lítra fiskikassa.
Af helstu nýjungum og kostum má nefna:
• Ekkert Polyurethane er í brettunum og þess vegna eru þau
viðgerðarhæf.
• Burðarmikil og gerð úr grimmsterku Polyethylene, viðurkennt undir
matvæli.
• Upphleypt yfirborð neðan á þekju og fótum brettisins sem stóreykur allt
öryggi við notkun með gaffallyftara.
• Fyrirstaða er á brúnum brettisins þannig að kassarnir renna ekki út af.
Við minnum á aðra framleiðslu okkar á vörubrettum í
stærðunum 80x120 og 100x120 cm.
íslensk gæðavara á góðu verði.
ÆM
##*
BORG ARPLASTIHF
MEMBER
VESTURVÖR 27 — KÓPAVOGI SÍMI: (91) 46966.