Þjóðviljinn - 02.03.1985, Page 13
PÆGURMÁL
Sem sagt gott
Jón Magnússon
Guðjón Guðmundsson
Umboðsfyrirtækiö Sóló
hefursem kunnugtergengist
fyrir söngvakeppni sem á
sínum tíma var haldin í Safarí,
en einhverra hluta vegna
leystist upp í loftin blá. Á
fimmtudaginn síðasta var
hafin keppni að nýju í
veitingahúsinu Hollywood og
var það fyrri kynningin á
keppendum. Síðara
kynningarkvöldið verður 7.
mars og til úrslita verður
sungiðsunnudaginn 10.
mars.
Fyrsti keppandinn á
fimmtudaginn var Guðjón Guð-
mundsson og söng hann sitt hlut-
verk ágætlega; tvö lög, annað
sungið á íslensku, ástarlag með
jóðli innanum a la Egill Ólafsson.
Var það eina íslenska lagið sem
hljómaði þetta kvöld, og texti
þess kannski sá vitrænasti af þeim
er síðar voru sungnir. Seinna lag
sitt söng Guðjón á ensku og ekki
eins sterkt.
Annar á dagskrá var góðkunn-
ingi bjórlíkhúsanna, Jón Magn-
ússon, og söng bæði lög sín á
ensku. Hefur Jón tileinkað sér
söngstíl í Bruce Springsteen dúr,
þó ekki verði þeim hér saman
jafnað á nokkurn hátt; en Nonni
hefur ágæta hæfileika og söng
bara um vitleysuna í þessum
Rússum og Ameríkönum sem
alla eru að drepa (úr leiðindum).
Hitt lagið var að mig minnir
eitthvað um ást og svoleiðis til-
finningar sem alltaf valda ein-
hverjum vandræðum, semsagt
gott.
Þriðji og síðasti keppandinn
var Sigurður Dagbjartsson, og
hefur að mér skilst eitthvað verið
í tygjum við hljómsveitina Upp-
lyftingu. Hann var sá aðili
kvöldsins sem vakti mesta athygli
hjá mér fyrir tilfinningaríkan
söng og hörkugóða raddbeitingu
og styrk. Að vísu var innihald
ensku textanna í báðum lögunum
fremur klént, en það var vand-
ræðalegt að heyra sítuggur fram
og aftur út laglínur; leiðinlegt,
því tjáningin var með besta móti:
Aðeins vitrænni ástarsöngva en
þarna hljómuðu, og Sigurður
mun slá í gegn.
Það vakti annars athygli
manna þetta kvöld hve mikið var
um ástarsöngva og værukæra
texta um vinkonumissi, skilnings-
leysi og minningu um ástkonuna
sem hvarf á braut.
Hljómsveitin Rikshaw lék
undir með keppendunum og
gerði vel.
í heild má segja að í Hollywood
á fimmtudagskvöldið hafi ríkt
meiri samvinna á milli hljóm-
sveitar og keppenda en gerði í
Safarí forðum daga og einnig
þóttu mér lögin sem þarna belj-
uðu betri en flest þau sem þar
voru sungin.
Pað er margt vitlausara en að
bregða sér á lifandi söngvakeppni
og skoða ný andlit í poppinu, en
eftir kvöldstundina í Hollý að
dæma er meira líf í þeim tuskun-
um en margur hyggur. 9
Sigurður Dagbjatsson
Hjá embætti skattrannsóknarstjóra er unnið
í þágu þeirra sem hafa framtalið í lagi
Þar er unniö
fyrir þig
Það er sjálfsagður réttur allra heiðarlegra skattgreiðenda að eftirlit sé haft
með þeim sem reyna að brjóta lög og svíkja undan skatti. Hjá embætti
skattrannsóknarstjóra vinna sérfróðir menn með aðstoð nýjustu tölvutækni
við slíkt eftirlit.
Hluti starfs þeirra felst í fyrirbyggjandi aðgerðum - heimsóknum í fyrirtæki
vegna almenns eftirlits og til ráðgjafar.
Með fjölgun starfsmanna og tölvuvæðingu má nú fara yfir margfalt fleiri
framtöl og reikninga á mörgum sinnum skemmri tíma en áður. Samanburður
allra fyrirtækja í sömu starfsgrein er fljótlegur. Til dæmis tekur aðeins
skamma stund að sjá hvernig hlutfallið milli heildarveltu og skattskyldrar
veltu lítur út í rekstrarreikningi fyrirtækis.
FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Skattrannsóknarstjóri skal hafa með
höndum skatteftirlit og rannsóknir. Hann
skal fylgjast með eftirlitsstörfum
skattstjóra, leiðbeina um eftirlitsaðgerðir og
veita þeim upplýsingar um atvinnugreinar,
atvinnuvegi eða önnur atriði sem þýðingu
hafa við skatteftirlit. Skattrannsóknarstjóri
getur hafið rannsókn á hverju því atriði er
varðar skatta, lagða á samkvæmt lögum.
Hvaða óróleiki er
þetta þó sölu-
skattsskýrslan sé
á núlli nokkra mán
uði í röð.. ?
. ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13
Auglýsingaþjónustan