Þjóðviljinn - 13.03.1985, Síða 1
ÞJÓÐMÁL
MENNING
Eldra starfsfólki og trúnaðarmönnum sagt upp. Trúnaðarmaður:
„vilja stúlkur á unglingakaupi í störf okkar“.
Hagfrœðingur Verslunarmannafélagsins: Lögleysa og siðleysi.
Sigríður er félagi í Verslunar-
mannafélagi Reykjavíkur og á
sæti í trúnaðarmannaráði þess.
Auk hennar hefur m.a. trúnaðar-
kona starfsfólksins í Glæsibæ
einnig fengið uppsagnarbréf.
Umræddar uppsagnir voru til-
kynntar starfsfólkinu bréflega
þann 28. febrúar síðastliðinn án
þess að talað væri við það um
málið.
Okkur, sem fengum uppsagn-
arbréf um mánaðamótin, þykja
þetta dónalegar aðfarir, sagði
kona með yfir 10 ára starfsaldur,
sem fengið hafði uppsagnarbréf
um mánaðmótin. Það hefur ekki
verið kvartað undan minni vinnu
hér, og þetta fólk sem sagt var
upp er allt saman gott starfsfólk
með mikla starfsreynslu sem hef-
ur þjónað fyrirtækinu lengi. Þeir
láta ekki einu sinni svo lítið að
tala við okkur, heldur senda okk-
ur bara bréf.
Eg er búin að vinna hér í 12'/2 ár
og er ein þeirra 6 sem fengu
uppsagnarbréfið þann 28. febrú-
ar síðastliðinn, sagði Sigríður
Sigurðardóttir afgreiðslukona í
SS-versluninni í Garðabæ. Við
sem urðum fyrir þessu erum allar
konur með langan starfsaldur
sem erum komnar á fullt kaup.
Þeir virðast ætla sér að ráða ung-
linga á litlu kaupi i staðinn. Þetta
er víst liður í endurskipulagningu
verslunarinnar hérna.
Lögleysa og
siöleysa
Samkvæmt lögum er bannað
að segja upp trúnaðarmönnum,
þeir eiga að vera þeir síðustu sem
ganga út, sagði Sigfinnur Sigurðs-
son hagfræðingur hjá Verslunar-
mannafélaginu í samtali við Þjóð-
viljann í gær. Við lítum það mjög
illum augum ef rétt er að verið sé
að segja upp eldra starfsfólki til
þess að ráða yngra fólk í staðinn.
Það kann að vera Iöglegt, sagði
Sigfinnur, en það er alla vega sið-
laust.
Starfsmannastjóri SS vildi ekki
gefa upp hversu mörgum hefði
verið sagt upp í verslunum félags-
ins, en samkvæmt heimildum
Þjóðviljans mun það hafa verið
um 20 manns og er ekki vitað til
að þeim hafi verið boðin önnur
störf. Að sögn starfsmannastjór-
ans starfa nú um 600 manns hjá
SS í Reykjavík, á Selfossi og
Hvolsvelli. -úlg.
Teitur Lárusson starfsmanna-
stjóri hjá Sláturfélaginu sagði að
uppsagnir þessar væru liður í
endurskipulagningu á verslunum
félagsins. Hann sagði að sumum
væru boðin önnur störf, en í öðr-
um tilfellum vildu þeir skipta um
starfsfólk.
Sigríður Sigurðardóttir trúnaðarmaður VR hjá SS í Glæsibæ: sent uppsagnarbróf eftir 121/2 árs starf.
Strandir
Mannlíf á ný
í Djúpuvík
Fimm manna fjölskylda sest þar að.Ætlar að
stunda fiskirœkt og reka gististað
Djúpavík á Ströndum hefur verið í eyði um nokkurt skeið, en nú
verður þar breyting á. Fimm manna fjölskylda úr Kópavogi er að
flytja vestur og ætlar að setjast þar að. Það eru hjónin Ásbjörn Þorgils-
son og Eva Sigurbjörnsdóttir ásamt þremur börnum sínum sem flytja
vestur.
Ásbjörn sagði í samtali við Þjóðviljann að þau ætluðu að stunda
fiskirækt þar vestra og myndu norskir sérfræðingar koma í vor til
ráðgjafar í málinu. Ætlunin er að vera með laxeldiskvíar í víkinni. Þá
sagði Ásbjörn að þau hefðu gert upp bragga frá síldarárum staðarins,
svokallaðan „Kvennabragga“ og þar ætluðu þau hjónin að vera með
vísi að hóteli. Ferðamannastraumur er mikill til Djúpuvíkur yfir
sumarið og full þörf á matsölu og gistiaðstöðu á staðnum.
Þá sagðist Ásbjörn vera þess fullviss að fleira fólk myndi setjast að í
Djúpuvík á næstunni, jafnvel svo margt fólk að hægt yrði að taka upp
skólahald á staðnum fyrir börn heimamanna.
-S.dór
Verslunin
Græddi 2 miljarða
Sjávarútvegsránið 6 miljarðar á tveimur árum
Verslunargróðinn 2 miljarðar á einu ári
Fjármálaráðherra svaraði fyr-
irspurn Svavars Gestssonar á
Alþingi um hagnað verslunar og
banka á árinu 1983. í svari ráð-
herrans koma fram að 1297 fyrir-
tæki í smásöluverslun hefðu
hagnast um 254 miljónir, 1047
fyrirtæki í heildverslun hefðu
hagnast um 318 miljónir, 10
skipafélög um 234 miljónir og 7
bankar um 222 milj.
Hagnaðurinn er samtals 1028
miljónir króna. Hér er um að
ræða nettóhagnað. Heildarhagn-
aður bankanna og skipafélag-
anna á umræddu ári er hins vegar
854 miljónir og heildarhagnað
smásöluverslunarinnar má ætla
um 500 miljónir og heildverslun-
arinnar um 600 miljónir.
Samanlagður heildarhagnaður
þessarar starfsemi á árinu 1983
var því hvorki meiri né minni en
tæpir tveir miljarðar.
Svavar Gestsson vakti athygli á
þeirri staðreynd að þessi upphæð
svaraði til árslauna sex til sjö þús-
und verkamanna. Núverandi rík-
isstjórn hefði algerlega sleppt
þessum aðiljum lausum, með
þeim væri nú að kalla ekkert eft-
irlit, en þar að auki hefði ríkis-
stjórnin komið á alls kyns
breytingum sem veittu fyrirtækj-
unum vaxandi möguleika til að
sleppa við að greiða til sam-
neyslunnar. „Þarna eru pening-
arnir“, sagði Svavar Gestsson
þegar svör ráðherra lágu fyrir.
Til samanburðar við þessar
upplýsingar er rétt að rifja upp
tölur um afkomu sjávarútvegsins
sem birtust í Þjóðviljanum í gær
og Kjartan Ólafsson hefur tekið
saman úr gögnum frá Seðlabank-
anum.
Fyrir fjórum árum voru
skuldir sjávarútvegsins 45% af
eignum en eru nú orðnar 66% af
eignum. Eignaupptakan í sjávar-
útveginum er því um sex miljarð-
ir króna á sama tíma sem hagnað-
ur verslunar, banka og skipafé-
laga er um tveir miljarðar á árinu
1983 einu saman.
hágé.