Þjóðviljinn - 13.03.1985, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 13.03.1985, Blaðsíða 16
Aðalsími: 81333. Kvöldsími: 81348. Helgarsími: 81663. UÓÐVIUINN Miðvikudagur 13. febrúar 1985 60. tölublað 50. árgangur Húsnœðisvandinn Hér þarf pennastrik Svavar Gestsson: Verður að gefafólki eftir og lengja lán til áratuga einsoggert erstundum við útgerðina Endurreikna höfuðstól húsnœðislánafrá því vísitölubannið á launin tókgildi að er brýnast að afla peninga strax til þess að skera niður vaxtakostnað og helst þyrfti að endurreikna höfuðstól allra hús- næðislána til bygginga frá því að bannað var að borga vísitölu á kaup. Hér þarf pennastrik, - það verður að gefa fólki eftir og lengja lán til áratuga einsog gert er stundum við útgerðina, sagði Svavar Gestsson formaður Al- þýðubandalagsins þegar Þjóðvilj- inn spurði hvað hann teldi brýn- ast til lausnar húsnæðisvandan- um. - Það er einkum tvennt sem hefur gerst: Kaupið hefur verið lækkað og bannað er að borga vísitölu á kaup. Á sama tíma hækka skuldirnar þegar verð- lagið hækkar hvort sem það er brennivín eða nauðsynjavara eins og kaffi. í annan stað hefur vaxtataka verið gefin „frjáls" að mestu. Það sem áður hét okur heitir nú frelsi. Þetta er allt að drepa: Sjávarútveg, einkum út- gerð, landbúnað - og síðast en ekki síst húsbyggjendur og skuld- ara sem hafa keypt húsnæði. Jafnframt flykkist fólk hingað inn á yfirfullan leigumarkaðinn, leiguokrið spennist upp og fólkið á landsbyggðinni horfir á sama tíma á íbúðir sínar hrynja í verði. Allt er þetta afleiðing af efna- hagsvandanum. Efnahagsvand- inn heitir ríkisstjórnin. Engin vandamál verða leyst nema koma þessari ríkisstjórn frá sem nú sit- ur. En okkar aðaláhersla nú vegna húsbyggjenda er sú að gera allt sem hægt er tafarlaust til þess að lengja lánin, skylda Seðla- bankann til skuldbindinga vegna lengingu lánanna og það verður að stöðva nauðungaruppboðin strax í dag“, sagði Svavar Gests- son. -óg. Húsnœðismálin Tapar húsinu á 5 árum Fimmtíu og átta ára gömul kona úti á landi, sem lét skrá sig í samtök um úrbætur í húsnæðismálum, rakti eftirfarandi dæmi: Hún átti fyrir tveimur til þremur árum skuldlaust lítið hús í heima- byggð sinni. Hún ákvað að gera endurbætur á húsinu og tók lífeyris- sjóðslán í því skyni. Lánið hrökk fyrir endurbótakostnaðinum. Núna telur konan húsverðið vera um eina milljón króna en lánið sem hún tók er komið í rösklega 500 þúsund krónur. Fari svo fram sem horfir mun hún að þremur til fjórum árum liðnum skulda meira en allt andvirði hússins. M.ö.o. kostnaðurinn við lagfæringar á húsinu mun gera konuna eignalausa á örfáum árum. Verðtryggingalánsins er ekki í neinu samræmi við verðmætis- aukningu þeirrar eignar sem það var notað til að endurbæta. Lánskjör af þessu tagi sem nú gilda um þjóðfélagið allt eru því ránskjör, þar sem þau ein ræna fólkið eigum sínum. _ hágé. Á bókasafninu í Ármúlaskólanum. Fáir nemendur hafa eirð í sér til að einbeita sér að sjálfsnámi við það óvissuástand sem nú ríkir. Mynd: E.ÓI. Deyfð í skólunum Það var heldur dauflegt um að litast í Ármúlaskólanum í gær. Á þrem stöðum í setustofu og afdrepum á göngum skólans voru sjónvarpstæki í gangi sem sýndu bíómyndir af myndböndum fyrir nemendur. Nokkrir nemendur grúfðu sig yfir námsbækur í bókasafni skólans og í þeim skólastofum sem kennt var var ekki nema helmingur nemenda til staðar. Hafsteinn Stefánsson skólastjóri sagði að 55% kennslunnar hefði fallið niður og mæting í tíma hefði verið um 50% að jafnaði. Hann sagðist vita til þess að allmargir nemendur hefðu hætt námi og óvíst væri hversu margir af 660 nemendum skólans skiluðu sér eftir þetta áfall. Hafsteinn sagði að um þriðjungur nemenda skólans væri utan af landi og allmargir nemendur væru komnir yfir tvítugt, og það væri of dýrt fyrir þetta fólk að hanga yfir hálflömuðum skóla. Ef kennararnir koma ekki inn fyrir næsta mánudag sé ég ekki hvernig við eigum að ljúka þessu misseri í vor, sagði Hafsteinn að lokum. ólg. Kennaradeilan Allt komið í hnút Ríkisvaldið hundsar rök kennara. Neyðarástand í skólunum. Kennarar leita íönnurstörf Það er nú orðið ljóst að mögu- leiki á bráðabirgðasamkomu- lagi við fjármálaráðuncytið er úr sögunni nema til komi nýtt pólit- ískt frumkvæði frá ríkisstjórn- inni. Það er jafnframt Ijóst að gerist ekkert á næstunni mun stór hluti kennarastéttarinnar endan- iega gefast upp á samskiptum við þetta ríkisvald og leita í önnur störf. Þetta sagði Gunnlaugur Ástgeirsson í samtali við blaðið í gærkvöldi eftir að samninga- nefnd HÍK hafði átt árangurs- lausan fund með samninganefnd fjármálaráðuneytisins. Þar kom fram að fjármálaráðuneytið hef- ur ekki annað að bjóða kennur- um en loforð upp á 1-3 launa- flokka hækkun. Fjármálaráðuneytið virðist kæra sig kollótt um það þótt skólahald verði áfram í lamasessi og það virðist ekki heldur taka þeim röksemdum sem settar eru fram í endurmatsnefnd mennta- málaráðuneytisins á starfi kenn- ara, sagði Gunnlaugur. Aðspurður um líkur til þess að kennarar sneru aftur til starfa eftir að málið væri farið fyrir kjaradóm um næstu helgi sagði Gunnlaugur að hann teldi þær afar litlar. í skólunum ríkir nú neyðar- ástand sem versnar með hverjum deginum, sagði Gunnlaugur, en það er eins og stjórnvöld láti það sér í léttu rúmi liggja. ^lg. Menntas/cólinn í Reykjavík Auglýst eftir kennumm Guðni Guðmundsson: grípa verður til neyðarrástafana strax á morgun Við verðum að fara að gera ráðstafanir strax eftir miðvik- udaginn og auglýsa eftir forfalla- kennurum, sagði Guðni Guð- mundsson rektor Menntaskólans Borgarráði Reykjavíkur hefur verið fært að gjöf handunnið líkan af Islandi sem er alls 18 fermetrar að stærð. Hefur borg- arráð falið Skólaskrifstofu borg- arinnar að finna heppilegan stað í einhverjum skóla borgarinnar til að koma líkaninu fyrir á vegg. Axel Helgason, starfsmaður á módelverkstæði hjá Borgar- verkfræðingi síðustu 42 ár, gerði íslandsmódelið og færði borginni að gjöf. í Reykjavík í samtali við blaðið í gær. Guðni sagði að þeir keyrðu nú á 50% dampi, og fyrirsjáanlegt væri að ekki yrði hægt að bæta Hann sagði í samtali við Þjóð- viljann í gær að smíðin hefði tekið um 3 ár en upphaflegu hugmynd- ina að verkinu hefði Guðjón Samúelsson gefið sér þegar árið 1937. Síðan hefði þetta legið í lág- inni en nú væri hann búinn að ljúka þessu verki. Líkanið er í 16 pörtum og enn óuppsett. Því taldi Axel ekki ráð- legt að mynda það fyrr en búið væri að koma því haganlega fyrir. -Ig- upp orðið tjón eftir 9. forfalla- daginn, sem er í dag, jafnvel þótt kennt yrði allt páskafríið og á laugardögum líka. Guðni sagði jafnframt að þetta kæmi misjafnlega niður á nem- endum og námsgreinum. Þannig væri einn bekkurinn með enga kennslu, og sagði hann jafnframt að ástandið væri verst í raun- greinum, sögu og ensku. Guðni taldi að skiptar skoðanir væru á meðal kennara um hvernig bregðast ætti við þegar málið færi fyrir kjaradóm. - ólg. Kennaradeilan Félagsfundur í kvöld í kvöld kl. 20.30 hefur Hið ís- lenska kennarafélag boðað til fé- lagsfundar um stöðuna í kjara- deilunni. Fundurinn verður hald- inn í Borgartúni 6 í Reykjavík. Módelsmíði 18 feimetra jslandslíkan

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.