Þjóðviljinn - 13.03.1985, Síða 2
FRÉTTIR
TORGIÐ
Hafrannsóknir
5 togarar á fullu
Samstarfsverkefni útgerðar, sjómanna og hafrannsóknarstofnunar.
5 togarar teknir á leigu. Toga á 600 stöðum allt íkringum landið
Samstarfsverkefni sjómanna og
Hafrannsóknarstofnunar um
rannsóknir á helstu
botnfiskstegundum hér við land
sem verið hefur í undirbúningi
frá því sl. haust er nú komið á
fulla ferð.
Hafrannsóknarstofnun tók á
leigu 5 skuttogara, sem allir eru
af sömu gerð. Um boð í hverjum
togara eru auk áhafnar 5 starfs-
menn stofnunarinnar. Verður
togað á 600 stöðum umhverfis
landið frá grunnslóð og út á 500 m
dýpi. Hafa skipstjórarnir valið
helming togslóða en fiskifræðing-
ar hinn helminginn.
Tilgangurinn með þessu verk-
efni er m.a. að fá meiri vitneskju
um þorskstofninn og aðrar
botnfiskstegundir en nú eru fyrir
hendi, auk þess sem sjómönnum
er gefinn kostur að fylgjast með
og taka þátt í rannsóknar-
störfum.
Togararnir sem leigðir voru til
verkefnisins eru: Arnar HU-1,
Drangey SK-1, Hoffell SU-80,
Páll Pálsson ÍS-102 og
Vestmannaey VE-54. Leiðang-
ursstjórar eru þeir Viðar Helga-
son, Sigfús A. Schopka, Guðni
Þorsteinsson, Ólafur K. Pálsson
og Einar Jónsson.
-*g-
Eg heyrði í sjónvarpinu í gær-
kvöldi að Davíð hefði fundið
upp nýja aukabúgrein: raforku-
framleiðslu. Væri þá ekki rétt
að leggja hana undir landbún-
aðarráðuneytið?
8. mars
Glæsilegur fundur
Geysileg stemmning
Gegn launastefnu stjórnarinnar
Söngur, Ijóð og dans
Vá, þetta er eins og á 17. júní,
sagði lítil hnáta við mömmu
sína þegar hún kom á baráttu-
fundinn í Félagsstofnun þann 8.
mars. Það voru orð að sönnu, því
svo fjölmennt var að staðið var
útúr dyrum á sainum.
Geysileg stemmning ríkti, og
þegar Gladys Baez, fulltrúi nicar-
agúönsku þjóðarinnar, hafði lok-
ið ræðu sinni stóð fundarfólk upp
sem einn maður og fagnaði henni
með dynjandi lófataki.
Margir lögðu hönd á plóginn,
og stemmningin var þannig að
öliu var vel tekið. Yfirskrift fund-
arins var „Gegn launastefnu ríkis-
stjórnarinnar“ og stuttar, en
þeim mun snjallari ræður voru
fluttar í þeim anda. Listagóður
söngur var á boðstólum og af-
bragðs ljóð voru flutt af höfund-
um sínum. Verulega vel heppn-
að, var dómur aðstandenda
kvöldsins. Á eftir stigu menn
dans fram eftir nóttu og létu ölv-
ast af baráttustemmningu og ef til
vill einhverju öðru....
-ÖS
Ályktanir sem samþykktar voru á
fundinum eru birtar hér til hlið-
ar.
Mjög fjölmennur baráttufundur var haldinn fyrir tilstilli Samtaka kvenna á vinnumarkaði og annarra kvennasamtaka að
kveldi 8. mars, alþjóðlegs baráttudags kvenna. Húsfyllir varð, og fjölmargir þurftu að standa frammi á gangi. Mynd Á.Bj.
Skoðun okkar
er óbreytt:
Við teljum að hemlakerfi bifreiðar
eigi ávallt að vera í lagi,
ekki aðeins þegar kemur að hinni árlegu skoðun.
Við bjóðum original hemlahluti
í allar tegundir bifreiða
á ótrúlega lágu verði.
Þjónusta fagmanna tryggir öryggi þitt.
Sérversíun með hemlahluti
O] Stillinq
Skeifunni 11 Símar 31340 oa 82740
Stuðningur við fiskvinnslufólk
Baráttufundur, haldinn í Félagsstofnun stúdenta 8. mars 1985,
fordæmir þaö atvinnuóöryggi sem fiskvinnslufólk býr við. Enn á ný er
frystihúsum lokað - núna vegna verkfalls sjómanna - og fiskvinnslu-
fólk neytt á atvinnuleysisbætur. Það eru sjálfsögð mannréttindi að
fiskvinnslufólk búi við sama rétt og annað verkafólk hvað varðar
uppsagnarfrest. Berjumst fyrir leiðréttingu á þessari ósvinnu með oddi
og egg.
Stuðningur við kennara
Baráttufundur, haldinn í Félagsstofnun stúdenta8. mars 1985, lýsir
yfirfullum stuðningi við kjarabaráttu framhaldsskólakennara. Neyðar-
aðgerðir kennara eru eina svarið sem þeir eiga gegn öfgastefnu
ríkisstjórnarinnar í launamálum. Sigur kennara væri mikilvægur stuðn-
ingur við allt launafólk í baráttu fyrir mannsæmandi launum.
Sjávarútvegstilfœrslan
Hræðileg niðurstaða
Guðmundur H. Garðarsson: Alvarleg tíðindi
Stœrðfrœði-
keppni
Úrslita-
keppnin
á laugar-
daginn
Undanrás í stærðfræðikeppni
framhaldsskólanna er nú lokið.
Keppnin var í því formi, að dreift
var verkefnum með tíu dæmum í
alla framhaldsskóla Iandsins og
nemendum gefinn kostur á að
skila úrlausnum fyrir ákveðinn
tíma. Alls bárust 14 lausnir og
skiptust þær þannig milli skóla: 5
úr MR, 3 úr MS, 3 úr MK og ein
úr MH, Verslunarskólanum og
Tækniskólanum á ísafirði. Dóm-
nefnd skipuð þeim Jóni Magnúss-
yni, Reyni Axelssyni og Sven Sig-
urðssyni sem allir starfa við Há-
skóla íslands hefur nú metið
lausnirnar og var ákveðið að
bjóða sjö keppendum til úrslitak-
eppni. Þeir eru: Agnar R. Agn-
arsson MS, Ágúst Sverrir Egils-
son MR, Bjarni Gunnarsson
MR, Hákon Guðbjartsson MR,
Rögnvaldur Möller MH, Sigurð-
ur Áss Grétarsson MR og Vil-
mundur Pálmason MK. Úr-
slitakeppnin fer fram í húsakynn-
um Verkfræði- og raunvísinda-
deildar HÍ laugardaginn 16. mars
kl. 9 - 12. Keppendur munu þá
spreyta sig á þriggja tíma loka-
verkefni.
Keppnin er haldin af Félagi
raungreinakennara f framhalds-
skólum og íslenska stærðfræðafé-
laginu, en kostuð af IBM á ís-
landi.
etta er hræðileg niðurstaða,
sagði Guðmundur H. Garð-
arsson hjá Sölumiðstöð hrað-
frystihúsanna og varaþingmaður
Sjálfstæðisflokksins er Þjóðvilj-
inn leitaði álits hans á upplýsing-
um um stórfellda eignaupptöku í
sjávarútvegi síðustu árin. í grein
Kjartans Ólafssonar í Vest-
firðingi og segir frá í frétt Þjóð-
viljans í gær kemur m.a. fram að
sjávarútveginn hafi verið rændur
6 miljörðum króna á síðustu
tveimur árum.
- Þetta eru alvarleg tíðindi fyrir
íslenskt atvinnulíf, fyrir þá sem
eru í atvinnugreininni, og sér-
staklega fyrir allt fólk sem lifir
beint af sjávarútvegi.
- Fyrir fólkið í landinu skiptir
það mestu máli hvaða forgangs-
röð sjávarútvegur er settur í í at-
vinnulífinu. Ef menn gera sér
ekki grein fyrir því að stöðug lífs-
afkoma sjávarútvegsins er undir-
staða alls annars atvinnulífs í
landinu þá eru þeir illa staddir. Ef
menn missa sjónir af þessu með
þeim afleiðingum sem birtast í
hinni athyglisverðu grein Kjart-
ans þá eru menn illa staddir hvar í
flokki sem þeir standa, sagði
Guðmundur H. Garðarsson.
-óg
Borgin
Spurt um
Á borgarráðsfundi í gær lögðu
fulltrúar minnihlutaflokkanna í
borgarstjórn fram fyrirspurn um
hvað liði svari við lóðaumsókn
Búseta. Alllangt er síðan hús-
næðissamvinnufélagið bað um
fjölbýlislóðir í Grafarvogi en svar
hefur enn ekki borist. Fyrir-
spurninni verður væntanlega
svarað á næsta fundi ráðsins á
þriðjudag.
Þá var fundinum úthlutað 30
lóðum í Grafarvogi norðanverð-
um undir einbýlishús og fengu
þær Húsasmiðjan og Ármanns-
fell í sameiningu. _n,
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 13. mars 1985