Þjóðviljinn - 13.03.1985, Side 3
FRETTIR
Togarauppboð
Sölvi að fara undir hamarinn
Uppboð Sölva Bjarnasonar frá Tálknafirði þingfest ll.apríl.
Sigurfari boðinn upp 18. apríl og Kolbeinsey síðar í vor
Nauðungaruppboð á skuttog-
aranum Sölva Bjarnasyni BA-
65 frá Tálknafírði verður þingfest
þjá sýslumanni Barðastrandar-
sýslu 11. aprfl nk.
Stefán Skarphéðinsson sýslu-
maður Barðstrendinga sagði í
gær að hann gæti ekki gefið upp
hversu háar kröfur væru gerðar í
togarann en uppboðsbeiðandi er
Fiskveiðasjóður.
Sölvi Bjarnason er fjórði tog-
arinn sem fer undir hamarinn nú
á skömmum tíma. 18. apríl verð-
ur fyrsta uppboðið á Sigurfara II
frá Grundarfirði og síðar í vor
verður Kolbeinsey frá Húsavík
boðin upp að kröfu Fiskveiða-
sjóðs. í desember sl. var Bjarni
Herjólfsson frá Þorlákshöfn boð-
inn upp að kröfu Landsbankans.
Þá liggur núna fyrir bæjarfó-
getanum í Keflavík krafa frá
Fiskveiðasjóði um uppboð á
fiskiskipinu Helga S KE-236, sem
er yfirbyggt 236 lesta stálskip sem
Heimir h/f í Keflavík gerir út.
-•g-
A Gauki á Stöng
Kjamorioibið-
stöðin í Kef lavík
r
Iheiminum í dag eru tvær meg-
instefnur ráðandi í öryggis- og
varnarmálum, afvopnunarstefn-
an og vígbúnaðarstefnan, og Is-
lendingar hafa skipið sér í hóp
þeirra þjóða sem aðhyllast víg-
búnaðarstefnuna, sagði Ólafur
Ragnar Grímsson á fundinum um
öryggis- og varnarmál á Gauki á
Stöng á sunnudag.
Ólafur sagði jafnframt að
skipta mætti herstöðvum í
heiminum í þrjá flokka, her-
stöðvar til varna í hefðbundnum
átökum, kjarnorkubiðstöðvar
sem hefðu búnað til að taka við
kjarnorkuvopnum og gegndu því
árásarhlutverki og að síðustu
kjarnorkustöðvar sem hefðu
þann megintilgang að gera kjarn-
orkuárásir. Keflavíkurstöðin til-
heyrir kjarnorkubiðstöðvum,
sagði Ólafur.
I upphafi fundarins flutti
Gunnar Gunnarsson starfsmaður
öryggismálanefndar erindi þar
sem hann sýndi fram á það hvern-
ig herbúnaðurinn í Keflavík teng-
ist kjarnorkuvígbúnaði Banda-
ríkjanna í N-Atlantshafinu og
jafnframt hvernig hin nýja sókn-
arstefna Bandaríkjanna hefði
Bókagerðarmenn
Aðild
að
ASt?
Atkvœðagreiðsla
á nœstunni
Þegar þrjú verkalýðsfélög
runnu saman í Félag bóka-
gerðarmanna árið 1980 var
ákveðið að hið nýja félag stæði
utan heildarsamtaka verkafólks.
Aðild að ASÍ hefur þó verið til
umræðu í FBM frá stofnun, og er
nú í ráði að kanna hug félags-
manna um málið í allsherjarat-
kvæðagreiðslu.
Að sögn Magnúsar E. Sigurðs-
sonar formanns FBM hefur kjör-
dagur ekki verið ákveðinn, en at-
kvæðagreiðslan verður þó „frek-
ar fyrr en seinna", jafnvel í lok
þessa mánaðar. Á sunnudag var
félagsfundur um ASÍ-aðildina og
mælti Ólafur Björnsson, Prenti,
með aðild en Ársæli Ellertsson,
Dagsprenti, gegn henni.
Magnús sagðist engu spá um
úrslit. Ýmis sjónarmið væru uppi
meðal félagsmanna, - margir
óhressir með Alþýðusambandið,
margir teldu hinsvegar nauðsyn-
legt að verkalýðsfélögin eigi sér
sameiginlegan vettvang. _m
flutt átakalínuna norður í Bar-
entshaf og hvaða aukning hefði
orðið á vígvæðingu undir
Norðurpólsísnum.
Birgir ísleifur Gunnarsson tal-
aði um hættuna af slökunarstefn-
unni og nauðsyn samstöðunnar
meðal Atlantshafsbandalagsríkj-
anna.
Fundurinn var fjölsóttur og
urðu umræður fjörugar.
-ólg.
Fjörugar umræður urðu um örygg-
ismálin á fundinum á Gauki á Stöng á
sunnudaginn.
Tófuvinafélagið
Styður Jón Baldvin
Ályktun forseta Tófuvinafélagsins: Hið kjarkbólgna
frumkvœði Jóns Baldvins til heilla íslensku þjóðinni
og tófunni
Eins og einatt áður lýsir Hið ís-
lenska tófuvinafélag yfir full-
um stuðningi við Jón Baldvin
Hannibalsson, alþingismann og
formann Alþýðuflokks Islands.
Á undanförnum mánuðum
hefur Jón Baldvin sýnt og sannað
að honum einum er treystandi til
að verja og efla íslenska þjóðar-
vitund og þjóðarhag svo sæmandi
sé íslenskum tófuvinum og öðru
góðu fólki.
í utanríkismálum hefur Jón
Baldvin einn þorað að standa
uppi í hárinu á Danskinum. Hann
einn hefur hótað að sparka fyrr-
verandi forsætisráðherra Noregs
í Reykjavíkurhöfn. Hann einn
manna á Norðurlöndum hefur
þorað að ympra á heyrnardepru
sænska utanríkisráðherrans.
Hann einn hefur haft dug að
segja Finnum sannleikann um
Finnlandiseringu og Afgönu-
hlaup þeirra.
Hið íslenska tófuvinafélag
ítrekar því einlægan stuðning
sinn við Jón Baldvin Hannibals-
son og lýsir auk þess megnustu
vanþóknun á ítrekuðum ummæl-
um Páls Péturssonar, alþingis-
manns, fjárbónda og forseta
Norðurlandaráðs, er hann hefur
við haft um hið kjarkbólgna
frumkvæði sem Jón Baldvin hef-
ur tekið til heilla íslensku tófunni
og raunar þjóðinni allri.
F.h. Hins íslenska
tófuvinafélags,
Sigurður Hjartarson,
forseti H.Í.T.
Skuldaskipti
Beðið í ofvæni
Það hefur enn engin ákvörðun
verið tekin um framhald mála
þegar skuldaskipin svokölluðu,
sem nú eru að fara á uppboð, hafa
verið boðin upp, að því er Davíð
Ólafsson formaður stjórnar Fisk-
veiðasjóðs tjáði Þjóðviljanum í
gær.
Sem kunnugt er sendi ríkis-
stjórnin Fiskveiðasjóði bréf, þar
sem þess var farið á leit að ef
skipin yrðu boðin upp, og Fisk-
veiðasjóður eignaðist þau, þá
yrði fundið svokallað viðmiðun-
arverð og heimamenn látnir
ganga fyrir með kaup á skipunum
að öðru jöfnu, eins og það var
orðað.
Nú eru nokkur skip þegar að
fara á uppboð en ákvörðun um
framhaldið ekki verið tekið. Að
sjálfsögðu bíða heimamenn á
þeim stöðum sem skipin eru nú
gerð út í ofvæni eftir því hvað gert
verður í málinu. Davíð Ólafsson
sagði að ákvörðun um framhald-
ið yrði tekin í samráði við sjávar-
útvegsráðherra einhvern tímann
á næstu dögum.
-S.dór
Vestur-Pýskaland
Vinstrimenn unnu í Saarlandi
Sósíaldemókratar unnu hrein-
an meirihluta í kosningum til
fylkisþings í Saarlandi um helgina
en þar hafa Kristilegir demókrat-
ar og frjálslyndir verið við stjórn.
Sósíaldemókratar í Saarlandi
og forystumaður þeirra, Oskar
Lafontaine, eru öðrum krötum
róttækari í landinu. Lafontaine
hefur t.d. verið einn helstur bar-
áttumaður gegn nýjum eldflaug-
um í Þýskalandi. Sósíaldemó-
kratar í Saarlandi vildu helst
draga sig út úr hernaðarsamstarfi
við Nató. Þeir boða og aukna op-
inbera aðstoð við iðnað þessa
gróna iðnaðarhéraðs, sem mjög
hefur fengið að kenna á kreppu
undanfarinna ára.
Einnig var kosið til borgar-
þings í Vestur-Berlín. Þar héldu
Kristilegir velli. Sósíaldemókrat-
ar töpuðu nokkru en Hinn listinn
(Græningjar) bættu allmiklu við
sig. í Saar fengu Græningjar hins-
vegar aðeins 2,5% atkvæða.
Frjálslyndir stóðu sig betur en
spáð hafði verið, en þeir hafa
víða verið í þeirri hættu að fá
minna en 5% atkvæða og detta
þar með út af fylkjaþingum.
-áb
Miðvikudagur 13. mars 1985 ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 3
Laxaveikin
Engin
ákvörðun
tekin um
aðgerðir
Fisksjúkdómanefnd hefur enn
ekki tekið ákvörðun um hvað
gert verður vegna laxasjúkdóms-
ins sem kom upp í Kollafjarðar-
stöðinni, að því er Sigurður
Helgason físksjúkdómafræðing-
ur sagði í gær.
Sem kunnugt er var allt skorið
niður í fiskeldisstöðinni í
Höfnum eftir að sjúkdómurinn
kom þar upp, en talið er að hann
hafi borist þangað frá Kollafjarð-
arstöðinni.
Ég á von á því að það líði ekki
langur tími þar til Fisksjúkdóma-
nefnd ákveður hvað gera skuli,
alla vega verður það í þessum
mánuði, sapði Sigurður Helga-
son. -S.dór