Þjóðviljinn - 13.03.1985, Síða 15
ÍÞRÓTTIR
Borðtennis
England
Góður árangur
hjá Stjömunni
Eignaðist fyrstu íslandsmeistarana
Frammistaða unglinga úr
Stjörnunni í Garðabæ vakti sér-
staka athygli á fyrri hiuta íslands-
meistaramótsins í borðtennis sem
haldið var í Laugardalshöliinni
um helgina. Stjarnan tók þátt í
mótinu í fyrsta skipti og eignaðist
íslandsmeistara í þremur flokk-
um - Halldór Björnsson sigraði í
einliðaleik pilta 10-13 ára, Gunn-
ar Valsson í einliðaleik sveina 13-
15 ára og Gunnar og Anna Sigur-
björnsdóttir urðu síðan íslands-
meistar í tvenndarkeppni ung-
linga yngri en 17 ára.
Hörður Birgisson, UMSB,
varð íslandsmeistari í einliðaleik
hnokka yngri en 10 ára - Trausti
Kristjánsson, Víkingi, í einliða-
leik drengja 15-17 ára, Fjóla
María Lárusdóttir í einliðaleik
telpna 10-13 ára, María Hrafns-
dóttir, Víkingi, í einliðaleik
stúlkna 13-17 ára, Valdimar
Hannesson og Kjartan Briem,
KR, í tvíliðaleik sveina yngri en
15 ára, Trausti Kristjánsson og
Hermann Bárðarson, Víkingi, í
tvíliðaleik drengja 15-17 ára og
Sigríður Þorsteinsdóttir og Fjóla
Lárusdóttir, UMSB, í tvfliðaleik
stúlkna 15-17 ára.
Seinni hluti íslandsmótsins fer
fram í Laugardalshöllinni 20.-21.
apríl en þá verður keppt í karla-
og kvennaflokki.
Skíðafélagið
Spurs lá
heima!
Tapaði 1-2 fyrir
Man. Utd.
Frammi fyrir 43 þúsund áhorf-
endum missti Tottenham af tæki-
færinu til að komast á topp 1.
deildar ensku knattspyrnunnar í
gærkvöldi með því að tapa 1-2 á
heimavelli fyrir Manchester Unit-
ed. Mark Hughes og Norman
Whiteside komu Man.Utd í 0-2
en Mark Falco svaraði fyrir Tott-
enham fímm mínútum fyrir leiks-
lok. Sanngjörn úrslit í hröðum,
opnum og skemmtilegum leik.
Staða Everton styrktist við þetta,
liðið hcfur 56 stig, Tottenham 54
og Man.Utd 52.
Tveir aðrir leikir voru í 1.
deild. Stoke og WBA gerðu
markalaust jafntefli og Sunder-
land og Watford skildu jöfn, 1-1.
í 2. deild vann Carlisle óvæntan
sigur á Birmingham, 2-1,
Charlton vann Wolves 1-0,
Portsmouth sigraði Leeds 3-1 og
Shrewsbury vann Huddersfield
5-1. -VS
Aðgerðaleysi?
Þvert á móti!
Skíðafélag Reykjavíkur hefur
sent ÞjóðvUjanum cftirfarandi
greinargerð:
Vegna ummæla um aðgerðar-
leysi Skíðafélags Reykjavíkur
leyfir stjórn félagsins sér að birta
skrá yfir skíðamót sem haldin
voru á vegum Skíðafélags
Reykjavíkur á síðastliðnu starfs-
ári, veturinn 1984:
29. jan. - Toyota göngumót á
Miklatúni. 12. feb. - Barna-
göngumót á Miklatúni. 3. mars-
Meistaramót Reykjavíkur í 15
km göngu á Vatnsendahæð. 4.
mars - Meistaramót Reykjavíkur
í boðgöngu í Hveradölum. 11.
mars - Fjölskyldudagur í tilefni af
afmæli SR. 17. mars - Fram-
haldsskólamót í flokkasvigi og
boðgöngu í Hveradölum. 21.
mars - Miillersmót í göngu í
Hveradölum. 31. mars - Þing-
vallagangan, Hveradalir-Þing-
vellir. 28. aprfl-Bláfjallagangan,
Bláfjöll-Hveradalir. 2. maí -
Miillersmót í svigi í Bláfjöllum. 6.
maí - Sportvalsgangan í Bláfjöll-
um, 13 bikarar veittir. 16. maí -
Innanfélagsmót SR í Bláfjöllum.
Öldungamót íslands í göngu á
Akureyri, 11 manns fóru frá SR,
flestir höfnuðu í verðlaunasæ-
tum. Tilsögn í skíðagöngu á veg-
um SR var haldin á Miklatúni og í
Hveradölum flestar helgar.
Þetta ætti að vera nægilegt til
að sýna framá að ekki er um að-
gerðaleysi að ræða hjá Skíðafé-
lagi Reykjavíkur - Þvert á móti.
Undankeppni HM
Naumt hjá Uruguay
Uruguay marði nauman sigur á Ec-
uador, 2-1, í fyrsta leik Suður-
Ameríkuliða í undankeppni HM í
knattspyrnu á sunnudagskvöldið.
Leikið var í Montevideo og skoraði
Ramoz sigurmark heimamanna þegar
komið var framyfir venjulegan
leiktíma.
E1 Salvador, sem lék í lokakepp-
ninni á Spáni 1982, varð fyrir miklu
áfalli í Mið/Norður-Amerísku undan-
kepninni á sunnudaginn, tapaði 1-2 á
heimavelli fyrir Hondúras, sem einn-
ig lék á Spáni og stóð sig frábærlega.
Þessar nágrannaþjóðir hafa oft eldað
grátt silfur sín á milli og árið 1969 varð
leikur þeirra í undankeppni HM til
þess að styrjöld braust út á landamær-
unum.
-VS
Ivar Webster gæti rétt eins verið að skalla knöttinn að sið knattspyrnu-
manna á þessari bráðskemmtilegu mynd sem E.ÓI. tók í leik Vals og Hauka
í kvöld. En þarna er hinn hávaxni miðherji islenska landsliðsins rétt búinn
að leggja knöttinn í Valskörfuna. Hann hefur gert 47 stig í leikjunum tveimur
við Val.
Haukar-Valur
Hvor flýgur
hærra í kvöld?
Leikið í Firðinum kl. 20
Eitt stig skildi að Hauka og Val í Hafnarfírði fyrir viku. Eitt stig,
eftir framlengingu, skildi að Val og Hauka í Laugardalshöllinni í
fyrrakvöld. Hvað gerist f Hafnarfirðinum í kvöld þegar félögin
mætast í þriðja og síðasta sinn í undanúrslitum úrvalsdeildarinn-
ar í körfuknattleik?
í kvöld fæst úr því skorið hvort félagið leikur til úrslita um
íslandsmeistaratitilinn við Njarðvíkinga. Leikurinn hefst kl. 20 í
íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði, og, eins og siður er í
körfuknattleik, það verður leikið til þrautar.
Liðin eru afskaplega áþekk að getu og, eins og einn leikmanna
sagði eftir leikinn í fyrrakvöld, þá væri rétt eins hægt að kasta upp
um úrslitin. Þau hafa nú leikið sex sinnum í vetur, Haukarnir hafa
sigrað fjórum sinnum en Valsmenn tvisvar. En það eru leikirnir í
undanúrslitunum sjálfum sem gilda - þar hafa liðin unnið sinn
leikinn hvort. Hvor flýgur hærra í kvöld, Haukurinn eða Valur-
inn? -VS
Évrópuknattspyrnan
Barcaþarf tvotil
Ajax og Anderlecht styrkja stöðuna
Sigurður
Byrjaöur
í 1. deild
Sigurður Jónsson, landsliðs-
maður frá Akranesi, lék sinn
fyrsta leik í 1. deild ensku knatt-
spyrnunnar á laugardaginn.
Hann tók stöðu Andys Blairs á
miðjunni hjá Shcffield Wednes-
day sem tapaði 3-1 á Filbert
Street í Leicester. Þetta er mikill
áfangi hjá Sigurði sem stóð fyrir
sínu í leiknum og átti m.a. skot í
þverslá.
Lokastadan
I forkeppni 1. deildar karla f handknatt-
lelk sem lauk I fyrrakvöld varö þessi:
FH......
14 13 1 0 387-318 27
14 8 4 2 319-294 20
14 7 3 4 342-316 17
14 6 3 5 307-289 15
14 5 4 5 345-341 14
14 4 2 8 300-318 10
14 3 0 11 271-334 6
14 1 1 12 292-353 3
Brynjar Kvaran landsliðsmarkvörður í handknattleik var í fyrradag útnefndur
[þróttamaður Garðabæjar fyrir árið 1984. Brynjar lék í marki Stjörnunnar og
með íslenska landsliðinu í handknattleik, m.a. á Ólympíuleikunum í Los Ange-
les. Myndina tók -eik- við afhendingu bikarsins í fyrradag.
Barcelona heldur sínu ellefu
stiga forskoti í spænsku deildar-
keppninni í knattspyrnu eftir 1-0
sigur á Malaga um helgina.
Barcelona, sem er stýrt af Eng-
lendingnum Terry Venables, þarf
nú aðeins fjögur stig úr síðustu
sex leikjunum til að tryggja sér
meistaratitilinn, sigrar í tveimur
þeim næstu myndu gera endan-
lega út um keppnina. Atletico
Madrid er næsta lið og vann Se-
villa 4-2. Mexíkaninn Sanchez
skoraði tvö markanna.
Anderlecht er líka áfram með
yfirburðastöðu í Belgíu eftir 1-0
sigur á Gent um helgina. Ander-
lecht hefur enn ekki tapa leik en
enn eru þó eftir 12 umferðir af
belgísku 1. deildinni.
Bikarinn var á dagskrá í Frakk-
landi og þar unnu topplið 1.
deildarinnar, Bordeaux og Nant-
es, sína leiki. Bordeaux sigraði
Lille 3-1 og Nantes fór létt með 2.
deildarlið Sete, 6-0. Helst komu
á óvart skeilir Brest og Marseilles
gegn 2. deildarliðum - Brest tap-
aði 3-0 fyrir Mulhouse og Mars-
eille 1-0 gegn Valenciennes.
Ajax styrkti stöðu sína í Hol-
landi með því að bursta Breda
6-1 á meðan keppinautarnir,
PSV og Feyenoord, háðu 2-2
jafntefli. Ajax er þá með 35 stig,
PSV 32 og Feyenoord 27 stig.
-VS
Markahæstlr:
Kristján Arason, FH................102
Páll Ólafsson, Þrótti...............84
Þorbergur Aöalsteinsson, Víkingi....84
HansGuðmundsson, FH.................82
Jakob Jónsson, KR...................82
Viggó Sigurðsson, Vfkingi...........74
GuðmundurÞórðarson.Stjörnunni.......70
SverrirSverrisson, Þrótti...........67
Björn Jónsson, Breiðabliki..........65
BirgirSigurðsson, Þróttir...........64
Staða fjögurra efstu liða sem lelka um
melstaratltlllnn er þessl:
FH ...............6 5 1 0 164-140 11
Valur..............6 2 3 1 109-113 7
KR.................6 1 1 4 133-142 3
Vikingur...........6 1 1 4 116-127 3
Uerdingen
vann Bremen
Lárus Guðmundsson og félagar
í Bayer Uerdingen unnu góðan
sigur ó Werder Bremen, 2-1, í
vestur-þýsku bikarkeppninni í
knattspyrnu í gærkvöldi. Liðin
höfðu áður skilið jöfn í Bremen.
Miðvikudagur 13. mars 1985 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15
1 15 80
Allir með Steindóri!
ALLAR STÆRÐIR SENDIBÍLA