Þjóðviljinn - 22.03.1985, Qupperneq 2
1984
FRE1TIR
Meira olnbogarými
Nýjar tölur frá Þjóðhagsstofnun: 12% aukning útflutningsframleiðslu.
2.5% aukning þjóðarframleiðslu.
Allar spárnar um samdrátt í fyrra reyndust rangar
Þjóðarframleiðsla ársins 1984
jókst um 2,5% á sl. ári sam-
kvæmt upplýsingum Þjóðhags-
stofnunar og útflutningsfram-
leiðslan jókst um tæplega 12% að
raunverulegu verðgildi, segir í
fréttatilkynningu frá Þjóðhags-
stofnun. í öllum forsendum
kjarasamninga á sl. ári var gert
ráð fyrir samdrætti í þjóðarfram-
leiðslu og kaupmáttur dróst enn
saman á sl. ári. Á árinu 1983 var
kaupmátturinn að meðaltali 86.3
en fór niður í 83.6 á sl. ári, þrátt
fyrir batnandi árferði, stór-
aukningu útflutningsfram-
leiðslunnar og 2.5% aukningu
þjóðarframleiðslu.
Allar samdráttarspár fyrir árið
1984 reyndust rangar. Þorskafli
og rækjuafli og þó sérstaklega
loðnuafli varð mun meiri en
reiknað var með með tilheyrandi
búbót fyrir þjóðarbúið. Fram-
leiðsla til útflutnings jókst í öllum
helstu greinum; sjávarafurðir um
11%, kísiljárn um 22% og iðnað-
arvörur aðrar um 21%.
Miðað við kaupmáttinn 100
árið 1980 var kaupmáttur alls
greidds tímakaups 83.6 á árinu
1984, samkvæmt upplýsingum
hjá kjararannsóknarnefnd. í
Hagtölum mánaðarins kemur
fram að kaupmáttur kauptaxta
hafi rýrnað um 8% á sl. ári.
Þjóðhagsstofnun spáði í fyrra
að þjóðartekjur drægjust saman
um 3.7%. En nú kemur fram að
þjóðartekjur jukust um 2.8%
-6g
Kjúklingafóður
Ekki ég
segirStefan
Stefán Valgeirsson alþingis-
maður kom að máli við Þjóðvilj-
ann í gær og bað um að það yrði
tekið fram að hann kannaðist
ekki við að hafa verið beðinn um
að fá landbúnaðarráðuneytið til
að gefa undanþágu fyrir lyfja-
blöndu í kjúklingafóðri. Sagðist
Stefán ekki hafa heyrt þetta
kjúklingafóður minnst fyrr en
hann las um það í Þjóðviljanum.
- S.dór
Leiðrétting
í vísnaþættinum „Stökur" í
Þjóðviljanum í gær varð línu-
brengl í einni vísu eftir Pál Ólafs-
son. Rétt er vísan svona:
Lœt ég fyrir Ijósan dag
Ijós um húsið skína,
ekki til að yrkja brag
eða kippa neinu í lag,
heldur til að horfa á konu mína.
Þá hefur „fengi“ breyst í „feg-
inn“ í einni vísu, en rétt er vísan
svona:
Eg vildi eg fengi að vera strá
og visna í skónum þínum.
Léttast gengirðu eflaust á
yfirsjónum mínum.
Lesendur eru beðnir velvirð-
ingar á þessum mistökum.
- S.dór
Saltfiskur var ríkulega fram borinn í fyrradag er nemendur Veitinga- og hótelskólans efndu til
kynningar á íslenskum saltfiski í samvinnu við Bæjarútgerð Reykjavíkur. Ljósm. E.ÓI.
Kjúklingafóðrið
Bjuggust við að fá leyfi
Forstjóri KFK: Engin lög banna notkun lyfsins
Astæðan fyrir því að þetta efni,
ég kalla þetta ekki lyf, var sett
í fóðrið úti var sú að við bjugg-
umst við að fá leyfi til að flytja
það inní landið. Þegar það ieyfi
fékkst ekki var búið að setja það í
185 tonn en ekkert var sett í þau
185 tonn til viðbótar sem send
voru til íslands.
Við buðumst til að flytja þann
hluta farmsins sem efnið var í út
aftur en Jónas í Sveinbjarnar-
gerði fékk það í gegn í ráðuneytinu
að hann fengi farminn og það
varð. Þetta sagði Guðbjörn Guð-
mundsson forstjóri KFK fóður-
sölunnar í samtali við Þjóðviljann
í gær, vegna kjúklingafóðursins
með lyfinu nitróvín, sem sagt var
frá í Þjóðviljanum í gær.
Guðbjörn hélt því fram að eng
in lög hér á landi bönnuðu ai
þetta efni væri í fóðrinu og bænd
ur sækjast eftir því að það sé
fóðrinu. Það væri bara ákvörðui
yfirdýralæknis að leyfa ekki þett;
efni, sem allsstaðar annarsstaða
væri leyft í kjúkingafóðri.
- Sdór
Menntamálaráðherra
Slær á hönd Alberts
Gunnlaugur Ástgeirsson varaformaður HÍK: Þetta heimskulega frum-
hlaup menntamálaráðherra drepur þá hreyfingu sem komin varámálið
Akvörðun Ragnhildar Helga-
dóttur um að ieysa alla kenn-
ara sem sagt hafa upp störfum frá
embætti á mánudaginn kemur
hefur orðið til þess að setja mikla
hörku aftur í kennaradeiluna,
einmitt á því augnabliki þegar
eitthvað virtist vera að rofa til.
„Þetta heimskulega frumhlaup
menntamálaráðherra hefur orðið
1 15 80
Allir með Steindóri!
ALLAR STÆRÐIR SENDIBÍLA
til þess að hafi einhver hreyfing
verið komin á til að leysa málið
þá kemur yfirlýsingin í veg fyrir
hana, sagði Gunnlaugur
Ástgeirsson varaformaður HÍK
og bætti því við að kennarar
hefðu orðið alveg undrandi þegar
ummæli ráðherranns voru sögð í
útvarpinu í hádeginu í gær.
Heimir Pálsson sagði glottandi
að það yrðu margar stöður lausar
eftir helgi, ef Ragnhildur fengi að
ráða.
Á ríkisstjórnarfundi í gær-
morgun lýsti menntamálaráð-
herra því yfir að hvað sem aðrir
ráðherrar segðu ætlaði hún að til-
kynna alþjóð þennan boðskap. Á
fundi fyrr í vikunni hafði Ragi
hildur einnig haft orð á þessu e
þá var hún stöðvuð í að lýsa þess
yfir. Strax eftir ríkistjórnarfun<
inn í gærmorgun fór Ragnhildui
símann, hringdi á fréttastofu ú
varpsins og bað um að þes
ákvörðun sín yrði sögð í fréttun
Síðdegis í gær barst svo tilkym
ing frá menntamálaráðuneytin
þar sem tilkynnt er formlega fyr
greind ákvörðun ráðherra. Seg
þar einnig að núverandi ástan<
verði að linna og að leysa ver<
brottgengna kennara frá störfui
strax á mánudag svo hægt veri
að ráða nýja menn í stöði
þeirra. - S.dór/-
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 22. mars 1985
Hundurinn sagði ekki ég,
kötturinn sagði ekki ég....
Kennarar
Mikill
stuðningur
viðHIK
Stjórnin lýsir furðu sinni á
tregðu stjórnvalda við að semja
við framhaldsskólakennara um
sjálfsagða leiðréttingu á launa-
kjörum, sem eru til háborinnar
skammar. Það er ekki nóg að tala
fjálglega um mikilvægi menntun-
ar og framfylgja um leið launa-
stefnu,sem er á góðri leið með að
leggja skólakerfi landsins í rúst.
Þannig segir m.a. í ályktun Fé-
lags tækniskólakennara, en
stuðningsyfirlýsingar í sama stfl
hafa m.a. borist frá Mími, félagi
stúdenta í íslenskum fræðum við
HÍ, Launamálaráði ríkisstarfs-
manna innan BHM og Bandalagi
háskólamanna, Kennarafélagi
Vestmannaeyja, kennurum í
Verslunarskóla, trúnaðarráði
Kennarafélags Reykjavíkur,
kennurum við Snælandsskóla í
Kópavogi, Kennarasambandi ís-
lands, Samtökum kvenna á vinn-
umarkaði, Félagi skólastjóra við
grunnskóla Reykjavíkur, kenn-
urum við Iðnskólanum, Iðnnem-
asambandi íslands, Kennarafé-
lagi KSK, Kennarafélagi
Reykjaness, fjölda nemenda-
funda í framhaldsskólunum,
Kennarafélagi Fellaskóla, kenn-
urum við Heiðarskóla og frá
Akranesi, kennurum í Seljaskóla
og kennarafundi Digranesskóla í
Kópavogi.
I lok ályktunar Félags tækni-
skólakennara segir: Barátta HÍK
er barátta fyrir bættum kjörum
allra háskólamanna í þjónustu
ríkisins. Stjórn Félags tækniskól-
akennara skorar á stjórnvöld að
ganga nú þegar til samninga um
kjör framhaldsskólakennara og
tryggja þeim verulegar kjarabæt-
ur strax. _ v
Bókaormar
Veglegur
markaður
íslenskir bóksalar opna í dag
veglegan bo.-omarkað í húsi
Vörumarkaðarins á Eiðisgranda,
Seltjarnarnesi. Er markaðurinn
nú endurvakinn eftir 2ja ára hlé
og eru mörg hundruð titlar í boði
og verðið í lægri kantinum eins og
venjulcga. M.a. munu fjöldi titla
vera undir 100 krónum.
Margar nýjungar verða á þess-
um markaði og má nefna að á
morgun verður efnt til böggla-
uppboðs en auk þess eru bækur á
tilboðsverði og einnig geta menn
keypt bókapakka með nokkrum
titlum í. Markaðurinn verður op-
inn á venjulegum opnunartíma
verslana virka daga en opnunar-
tímium helgar verður auglýstur
sérstaklega.
- v.