Þjóðviljinn - 22.03.1985, Page 6
ÞJÓÐMÁL
Auglýsing
um almenna skoðun ökutækja í lögsagnarumdæmi
Keflavíkurflugvallar.
Skráð ökutæki skulu færð til almennrar skoðunar
1985, sem hér segir:
1. Eftirtalin ökutæki sem skráð eru 1984 eða fyrr.
a) Bifreiðir til annarra nota en fólksflutninga.
b) Bifreiðir er flytja mega 9 farþega eða fleiri.
c) Leigubifreiðir til mannflutninga.
d) Bifreiðir sem ætlaðar eru til leigu í atvinnuskyni, án
ökumanns,
e) Kennslubifreiðir.
f) Lögreglu-, sjúkra- og björgunarbifreiðir.
g) Tengi- og festivagnar, sem eru meira en 1500 kg að
leyfðri heildarþyngd, skulu fylgja bifreiðum til skoðunar.
2. Aðrar bifreiðir en greinir í lið nr. 1, sem skráðar eru nýjar
og í fyrsta sinn fyrir árslok 1982.
Sama gildir um bifhjól.
Skoðun fer fram í húsakynnum bifreiðaeftirlitsins að
Iðavöllum 4, Keflavík, eftirtalda daga, kl. 8 -12 og 13 -
16.
Mánudaginn 25. mars
Þriðjudaginn 26. mars
Miðvikudaginn 27. mars
Fimmtudaginn 28. mars
Föstudaginn 29. mars
J-1 -J-100
J-101 - J-200
J-201 - J-300
J-301 - J-400
J-401 og yfir
Við skoðun skulu ökumenn leggja fram gild ökuskír-
teini, kvittun fyrir greiðslu bifreiðaskatts og vottorð um
að vátrygging ökutækis sé í gildi. í skráningarskírteini
skal vera áritun um að aðalljós bifreiðar hafi verið stillt
eftir 31. júlí 1984.
Vanræki einhver að færa skoðunarskylt ökutæki til
skoðunar á auglýstum tíma, verður hann látinn sæta
ábyrgð að lögum, og bifreiðin tekin úr umferð hvar
sem til hennar næst.
Lögreglustjórinn á Keflavíkurflugvelli,
18. mars 1985.
SAMVINNUBANKINN
Vy 121 Reykjavík Bankastræti 7, ^ sími 91 - 20700, pósthólf 130.
Stjórn Samvinnubanka íslands h.f. hefur ákveðið vexti af inn- og útlánum bankans m/breytingum frá 21.
mars 1985 sem hér segir:
Innlán: Nú Frá21/3’85 Ársvöxtun
Spariveltureikningar 24.0% Sparireikningar með 3ja 27.0% 27.0%
mán. uppsögn 27.0% Sparireikningar með 27.0% 28.82%
6 mán. uppsögn 31.5% Innlánsskírteini 7.5% + 31.5% 33.98%
alm. sp.vextir; 31.5% 33.98%
Hávaxtareikningur 24.0-32.5% (Verðtryggður með vöxtum miðaö við kjör 3ja og 6 mán. vísitölub. reikninga hjá bankanum). 24.0-32.5% 35.14%
Verðtryggðir sparireikningar** 3ja mán. binding 1.0% 1.0%
6 mán. binding 3.0% 3.5%
Tókkareikningar: a) ávísanareikningar 19.0% 19.0%
b) hlaupareikningar 12.0% 12.0%
Innl. gjaldeyrisreikningar . 1/3 Frá21/3’85
innist. í USA-dollurum 7.5% 8.0%
innist. í sterlingspundum 10.0% 13.0%
innist. í v-þýskum mörkum 4.0% 5.0%
innist. í dönskum krónum 10.0% 10.0%
Útlán: Nú Frá 11/1 ’85
Víxlar (forvextir) 31.0% 31.0%
Viðsk. víxlar (forvextir) 32.0%
Hlaupareikningar 32.0% 32.0%*
Skuldabréfalán 34.0% 34.0%
Viðskiptaskuldabréf Lán með verðtryggingu: 35.0%
a) lánstími allt að 21/2 ár 4.0% 4.0%
b) lánstími minnst 21/2 ár 5.0% 5.0%
* þar af verðbótaþáttur 19.0% ** sérstakar verðbætur 2.0% á mánuði.
Reykjavík 15. mars 1985.
[►js+l Njarðvík-
forstöðumaður
Starf forstöðumanns við dagheimilið Gimli, Njarðvík,
er laust til umsóknar. Fóstrumenntun áskilin. Um-
sóknarfrestur er til 31. mars 1985. Upplýsingar gefur
undirritaður.
Bæjarstjóri Njarðvíkur.
Miðjumoð
Framhald af bls. 6
þyrma engum - ekki einu sinni
fötluðum og öldruðum.
Þegar þrengir að leitar fólk að
svörum. Þá geta galdramenn
stundum troðið sér fram á sviðið
og vakið athygli. Jón Baldvin tín-
ir kanínur upp úr hatti sínum og
segir miljarður þar og miljarður
hér. Fjölmiðlar afturhaldsins
hampa honum. Það er vegna þess
að pólitík hans ógnar hvergi veldi
afturhaldsins á Islandi. Hann er
óskabarn þeirra og ákjósanlegur
samstarfsmaður. Sjálfstæðis-
flokkurinn lítur á Jón Baldvin
eins og bankabók. Innistæðuna
sækir Sjálfstæðisflokkurinn að
einhverju leyti fyrir kosningar en
aðallega í pólitík nýrrar við-
reisnarstjórnar atvinnuleysis og
landflótta eftir kosningar. Þess
vegna hefur íhaldið engar áhyggj-
ur af uppgangi Jóns Baldvins
jHannibalssonar.
Andstæðurnar
Frammi fyrir þessum stað-
reyndum er nauðsynlegast að
þekkja aðstæðurnar - og and-
stæðurnar. Til þess að ná á nýjan
leik einhverju jafnvægi í íslensk-
um stjórnmálum verður Alþýðu-
bandalagið að vera svo sterkt að
það ásamt verkalýðshreyfingunni
eigi í fullu tré við Sjálfstæðis-
flokkinn og fámenna klíku fjár-
magnseigenda. Sterkt Alþýðu-
bandalag hefur alltaf þýtt betri
lífskjör alþýðu en ella. Eða af
hverju hefur kaupmáttur launa
alltaf verið hæstur í tíð þeirra rík-
isstjórna sem Alþýðubandalagið
hefur átt aðild að? Af hverju hafa
elli- og örorkulífeyrir hækkað
mest í þeim stjórnum? Af hverju
hafa úrslitasigrar náðst í land-
helgismálinu undir forystu Al-
þýðubandalagsins? Af hverju
hefur atvinnulíf íslenskrar at-
vinnustefnu alltaf staðið best
undir forystu Alþýðubandalags-
ins? Svörin liggja í stefnu flokks-
ins: Aukin verðmætasköpun ís-
lenskrar atvinnustefnu kemur
fólkinu til góða í jafnari skiptingu
verðmætanna.
Miðjumoðið - Jón Baldvin og
Steingrímur - leysa því miður
engan vanda í þessum efnum eins
og dæmin sanna. Ábyrgðarlausir
sundrungarflokkar ekki heldur.
Þess vegna er nú aðalatriðið að
efla Alþýðubandalagið og bar-
áttuþrek verkalýðshreyfingar-
innar.
í upphafi var minnt á tvær aðal
andstæður íslenskra stjórnmála.
Þær koma líka fram í þjóðfrels-
ismálum, herstöðvamálinu.
Hið einfalda samhengi ís-
lenskra stjómmála er því þetta:
Yfirlýsing
Steingríms
Því sterkara Alþýðubandalag
því sterkari verkalýðshreyfing,
því sterkari þjóðfrelsisbarátta.
Miðjumoðið getur aldrei myndað
sterkt mótvægi við hægriöflin í
landinu.
Tilefni þessarar áminningar er
yfirlýsing forsætisráðherra fyrir
nokkrum dögum um að stefna
ríkisstjórnarinnar hafi verið sam-
felld mistök; einkum það að taka
kaupið úr sambandi við aðrar
efnahagsstærðir. Sú aðgerð var
studd af núverandi formanni Al-
þýðuflokksins samkvæmt ítrek-
uðum yfirlýsingum hans á Al-
þingi. Þá þegar benti Alþýðu-
bandalagið á að þessi aðgerð gæti
að vísu skrifað niður verðbólgu-
tölur um skeið en hún myndi hafa
í för með sér óþolandi misrétti
sem fólkið gæti ekki þolað ef það
notar lýðræðislegan rétt sinn til
þess að mótmæla og mynda
samtök.
Húsnæðissamtökin fela í sér í
grundvallaratriðum kröfuri um
það að vinnuaflið sé metið meira
en fjármagnið. í húsnæðiskröf-
unum um greiðslu fyrir lán í
jafnmörgum vinnustundum felst
því ekkert annað en krafa um
virðingu fyrir vinnuaflinu, um
tryggingu kaupmáttar launa. Það
er grundvallaratriði. Húsnæðis-
hreyfingin er til marks um að
meiri hluti þjóðarinnar er að
skynja afl sitt og aðstæður - sá
meirihluti sem skapar öll þau
verðmæti sem við lifum af. Þessi
meirihluti hefur skorað fjár-
magnsöflin á hólm. Fyrsta merk-
ið um uppgjöf er yfirlýsing
forsætisráðherra; sjónarmið
fjármagnsklíkunnar eru á flótta.
Nú er að reka flóttann; meiri-
hlutinn á að ráða. íslandi hefur
aldrei verið stjórnað gegn verka-
lýðshreyfingunni. Það er kjarni
málsins. Lykillinn að betri
kjörum felst í stefnu Alþýðu-
bandalagsins.
MINNING
Agust Gíslason
sjómaður og prédikari
Fœddur 29. ágúst 1897 - Dáinn 12. mars 1985
Kvöld eitt fyrir einum þrjátíu
árum vorum við Gísli Sigurðsson
bókavörður á heimleið á trillu
vestan af Fljótamiðum í svarta-
þoku.
Allt í einu kveður við sálmalag
sungið við raust einhversstaðar
úti í kófinu. Andarataki síðar er
eins og stór, þaninn vængur birt-
ist ofan á þokukúfi framundan.
Síðan rennum við inn í rof. Þar
situr Gústi guðsmaður við stýrið ,
á horninu sínu með seglið uppi og
syngur fullum rómi.
Skipst var á einhverjum orð-
um. Síðan héldum við áfram, en
Gústi varð eftir og hélt áfram að
kyrja sálminn.
Þetta voru mín fyrstu kynni við
Ágúst Gíslason, en eftir þetta
vorum við málkunnugir. All-
löngu seinna þýddi ég fyrir hann
ræðu eftir frægan amerískan pré-
dikara. Honum hafði verið ráð-
lagt að reyna að fá einhvern kom-
múnista til að þýða þetta fyrir sig,
og Gústi sýndi mér þann heiður
að velja mig.
Ágúst var fæddur vestur í
Dýrafirði 29. ágúst 1897 og komst
snemma á sjó. Hann sigldi ungur
víða um stærstu úthöf veraldar-
innar á erlendum skipum, en
kom afturheim til íslands, fluttist
til Siglufjarðar og fékk sér trillu.
Eftir það reri hann til fiskjar eins
og postularnir Pétur, Andrés,
Jakob og Jóhannes og boðaði trú
eins og þeir. Arðinum af útgerð-
inni varði hann til kristniboðs og
hjálparstarfsemi. Sjálfur bjó læri-
sveinninn í gömlum bragga,
nærðist mikið á fiski og fugli og
veitti sér engan munað. Alltaf
flaut báturinn, með drottins
hjálp, þó sumir álitu að hann væri
orðinn svo grautfúinn að hann
þyldi ekki að vera tekinn upp, og
aðrir trillusjómenn teldu sér skylt
að hafa sífellt auga með honum ef
þeir vissu af honum í nánd.
Áratugum saman kom Gústi á
torgið hvern helgan dag og í land-
legum virka daga til að flytja sam-
borgurum sínum guðsorð og gefa
börnunum miða með handskrif-
uðum versum úr hinni helgu bók.
Þarna stóð hann löngum stund-
um, oft aleinn, mikill á velli og
mikilúðlegur, eins og guð hafði
skapað hann og seturnar á þóft-
unni og stöðurnar við færi og net-
adrátt mótað hann, gersamlega
ósnortinn af öllum þeim stofnun-
um og tilfæringum sem nú á
dögum eru hafðar til að staðla
fólk og gera alla eins. Og rómur-
inn var slíkur að hálfur bærinn gat
notið guðsþjónustunnar með því
einu að hafa opinn glugga heima
hjá sér.
Fyrir örfáum árum neyddi ellin
Ágúst til að hætta að sækja sjó-
inn. Síðustu misserin bjó hann á
elliheimilinu við gott atlæti. En
kraftamir þurru smám saman og
ferðunum á torgið fór sífækk-
andi. Þegar ég hitti hann þar síð-
ast, einhvem góðviðrisdag í haust
eða vetur, studdi hann sig við bíl
og röddin var ekki orðin nema
daufur ómur af því sem hún einu
sinni var.
Og nú er þessi öldungur hnig-
inn, hátt á níræðisaldri. Bærinn
hefur misst sinn mesta guðsmann
og prédikara, og drátt úr svip-
móti sínu. Torgið stendur autt og
hljómlaúst flesta helga daga,
hvað þá virka. Og nú syngur lík-
lega enginn sálma frammi á Fljót-
amiðum.
Benedikt Sigurðsson
Maríuleiði
„Blessaðu, drottinn, bátinn
á bylgjum hafsins og straumum
meðan hann sækir saðning
sjúkum bræðrum og aumum,
og veittu líkn þeim sem lifa
og látum frið til að sofa,
hvort sem þeir horfa til himins
frá höll eða svertingjakofa".
Þannig við reiðarann ræðir
raular sálm eða kveður
formaður lítillar fleytu
þá fárlegust drynja veður,
- en í hinni seinustu sjóferð
mun sólin Ijóma í heiði,
þá sitja þeir vinirnir saman
siglandi maríuleiði. “
Mynd og Ijóð: Bragi Magnússon
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 22. mars 1985