Þjóðviljinn - 22.03.1985, Síða 9

Þjóðviljinn - 22.03.1985, Síða 9
GLCTAN Mjólk í hvert mál Ráðlagður dagskammtur (RDS) af kalki og mjólk Dagsþörfaf kalki í mg Samsvarandi kalkmagn f mjólk,2,5dlglös Bðm 1-10 óra 800 3 Ungllngar ll-18ára 1200 4 Ungtfólk og fullorðið 800 2-3 Konur eftir tfðahvörf 1200-1500 4-5 Ófrfskarkonurog brjóstmœður 1500 5 ÞJÓÐVILJINN - S®A 9 Hér er f jörið Föstudagur 22. mars: Dansiball og diskótek í Árseli frá kl. 8 til 11.30. Bústöðum frá kl. 8 til 12, Fellahelli frá kl. 8 tU 12, Tónabæ frá kl. 8 til 11 og Þróttheimum frá kl. 8 til 12. Á laugardagskvöldið er dansi- ball í Agnarögn frá kl. 9 tU 1. í Traffic er diskótek bæði kvöldin frá kl. 10 til 2. Herranótt MR sýnir Náðar- skotið í Broddvei og leiklistarfé- lag Kópavogs frumsýnir leikritið Hlaupvídd 6 í Hjáleigu, fé- lagsheimili Kópavogs á laugar- dagskvöldið kl. 20.30. Á laugardag heldur Stýri- mannaskólinn í Reykjavík kynn- ingardag og verður skólinn opinn gestum frá kl. 13.15 til 17.00. Kennarar og nemendur sýna notkun siglinga- og fiskileitar- tækja og veita upplýsingar um námið og inntökuskilyrði. Stærðf ræði keppni Laugardaginn 16. mars var keppt til úrslita í stærðfræði- keppni framhaldsskólanema. Markmið keppninnar er að efla áhuga nemenda í framhalds- skólum á stærðfræði og beitingu hennar, efla tengsl milli nemenda og kennara hinna ýmsu fram- haldsskóla og kynna almenningi stærðfræðileg verkefni með að- stoð fjölmiðla. Að keppninni standa Félag raungreinakennara og íslenska stærðfræðafélagið, en hún er að fullu kostuð af IBM á íslandi. Dómnefnd fór yfir úrlausnir samdægurs og dæmdi lausn Há- konar Guðbjartssonar MR besta. Glætan bað Hákon að segja frá tilhögun keppninnar og varð hann fúslega við þeirri bón. - Keppninni var þannig háttað að stærðfræðidæmi voru send í alla framhaldsskólana og þeir sem vildu sendu inn lausnir. Þeir 7 sem bestum árangri náðu í for- keppninni tóku svo þátt í úrslita- keppninni. Hún var fólgin í því að leysa 6 dæmi á 4 tímum. Þetta var erfið keppni þó voru dæmin í forkepninni erfiðari. Dæmin voru úr almennri stærðfræði þ.a.e.s. rúmfræði og 2 jöfnur. Verðlaunin voru 10 þúsund, og 5 þúsund fengu þeir hvor um sig Ágúst Sverrir Egilsson MR og Bjami Gunnarsson MR sem voru jafnirí2. til 3. sæti. Við emm allir 3 í eðlisfræðideild MR, 5. og 6. bekk. Þetta er í 1. skipti sem svona keppni er haldin, en það hefur verið talað um að halda hana aft- ur, þótti takast svo vel. Það eru hka uppi hugmyndir um að senda sveit á Ólympíuleikana í stærð- fræði sem verða haldnir í Hels- inki í júlí, en ekki víst að úr verði. Það vantar peninga, sagði Hákon og hélt áfram að reikna. Auk þeirra þriggja komast í úr- slit Agnar R. Agnarsson MS, Rögnvaldur Möller MH, Sigurð- ur Á. Grétarsson MR og Vil- mundur Pálmason MK. Aðeins 1 stúlka sendi inn lausnir í for- keppnina! Unglingar verða að fá uppbyggilegt fœði vegna þess hve vóxfur þeirra er hraður á tiltölulega fáum árum. Þar gegnir mjólkurneysla mikilvœgu hlufverki því án mjólkur, og kalksins sem í henni er, ná unglingarnir síður fullri hœð og styrk. Komið hefur í Ijós að neysluvenjur unglinga fullnœgja sjaldnast lágmarks kalkþörf og er þeim því einkar hœtt við hinum alvarlegu afieiðingum kalkskorts síðar á œvinni. Sérstaklega eru stúlkur í hœttu því þeim er hœttara við beinþynningu og hörgulsjúkdómum í kjölfar barneigna. Kalksnauðir megrunarkúrar og lélegt matarœði virðist einnig einkenna neysluvenjur stúlkna fremur en drengja. Fjögur mjólkurglös á dag innihalda lágmarkskalk- skammt fyrir unglinga og neysla undir því marki býður hœttunni heim. Það er staðreynd sem unglingar og foreldrar þeirra œttu að festa í minni því þegar vöxturinn er hraður er hver dagur dýrmœtur. Mjólk innlheldur meira af kalki en aðrar fœðutegundir og auk þess A, Bog D vítamín, kalíum, magnfum, zlnk og flelri efni. Um 99% af kalkinu notar líkaminn til vaxtar og viðhalds beina og tanna. Tœplega 1 % er uppleyst f líkamsvökvum, holdvetjum og frumuhimnum og er það nauðsynlegt m.a, fyrir blóðstdrknun, vððvasamdrátt, hjartastarfsemi og taugaboð. Auk þess er kalkið hluti af ýmsum efnaskiptahvötum. Til þess að Ifkaminn geti nýtt kalkið þarf hann D vítamfn, en það ereinmitt f hœfilegu magni f mjólkinni. Neysla annarra kalkríkra fœðutegunda en mjólkurmatar gefur sjaldnast meira en 300 mg af kalki á dag en það er langt undir lágmarks þðrf. Úr mjólk fœst miklu meira kalk, t.d. 800 mg úr um það bil þremur glösum og er auk þess auðnýttara en f flestum öðrum fœðutegundum. 0 i IM MJÓLKURDAGSNEFND Vinsældalistar Þjóðviljans Fellahellir ( 2) 1. Kao Bang - Indochina ( -) 2. Nlghtshift - Commadores ( 6) 3. Forever young - Alphaville ( 7) 4. Invisible - Alison Moyet ( 5) 5.1 know him so well Elaine Paige, Barbara Dickson ( -) 6. You spin me around like a record - Dead or Alive (10) 7. Sugar don’t bite - Sam Harrís ( -) 8. Don’t look any further - Dennis Edwards ( 3) 9. This is not Amercia - David Bowie og Pat Methany Group ( 4) 10. Hearts on fire - Sam Harrís Rás 2 (1) 1. Save a prayer - Duran Duran (2) 2. Love and pride - King (6) 3. You spin me around - Dead or alive (3) 4. Solid - Ashford and Simpson (4) 5. This is not America - David Bowie (5) 6. Kao-bann - Indochine (9) 7. Things can only get better - Howard Jones (13) 8. Some like it hot - Power Station (7) 9. The moment of truth - Survivor (16) 10. Material girl - Madonna Grammló ( 8) 1. Stella -, Yellow ( 2) 2. Hateful of hollow - The Smiths ( 7) 3. Who’s afraid of - Art of Noise (10) 4. Hringurinn - Lárus Halldór Grímsson ( 3) 5. Treasure - Cocteau Twins ( 4) 6. It will end in tears - This Mortal Coil ( -) 7. Dreamtime - Cult ( 5) 8. Tones on Tail - Tones on Tail ( -} 9. Scatology - Coil ( -) 10. Base lines - Laswell

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.